Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 19
SBC kaupir Amerítech
Næstmesti
samruni
fyrirtækja
til þessa
New York. Reuters.
SBC Communicatíons Inc., sem hefur
keypt tvö bandarísk símafyrirtæki á
síðustu tólf mánuðum, hefur sam-
þykkt að kaupa Midwest Baby Bell
Ameritech Corp. með skiptum á
hlutabréfum upp á 61 milljarð dollara.
Þetta verður annar mestí fyrir-
tækjasamruni, sem um getur, á eftir
72,6 milljarða dollara samruna Tra-
velers Corp og Citícorp Bank. Þriðji
mestur er 60 milljarða dollara sam-
runi BankAmerica og NatíonsBank.
Fyrirhuguð kaup WorldCom Inc.
á MCI Communicatíons fyrir 43,4
milljarða dollara eru í fjórða sætí og
verða því annar mesti samruni á
fjarskiptasviðinu á eftir samruna
SBC og Ameritech. Þar næst kemur
35 milljarða dollara samruni
Chrysler Corp Daimler-Benz í síð-
ustu viku.
Þjóna 50 mörkuðum
SBC og Ameritech munu í samein-
ingu þjóna viðskiptavinum á 50
helztu mörkuðum Bandaríkjanna.
Fyrirtækin munu selja vissar far-
símaeignir þar sem hagsmunir
þeirra falla að hluta til saman.
EDWARD Whitacre áfram yfir-
maður SBC.
Samruninn býður upp á möguleika
á auknum tekjum, tækniþróun,
minni kostnaði o.fl. að sögn fyrir-
tækjanna. Ekki er búizt við fækkun
starfsmanna.
Hluthafar Ameritech fá 1,316
hlutabéf i SBC fyrir hvert hlutabréf í
Ameritech. Lokaverð SBC hluta-
bréfa á föstudag var 42,375 dollarar,
en Ameritech hlutabréfa 43,875 doll-
arar. Samruninn á að verða að veru-
leika á innan við einu ári og þarf
samþykki hluthafa og eftirlitsyfir-
valda.
Edward Whitacre verður áfram
stjórnarformaður og aðalfram-
kvæmdastjóri SBC og Richard
Notebaert stjómarformaður og aðal-
framkvæmdastjóri Ameritech. Sam-
kvæmt samningnum við SBC má
Ameritech ekki leita annarra hugs-
anlegra kaupenda.
Hagnaður Sony slær
met annað árið í röð
Tókýó. Reuters.
SONY Corp. skilaði methagnaði
annað árið í röð á reikningsári fyrir-
tækisins tíl marzloka, en gerir ráð
fyrir að draga muni úr miklum vextí
l\já fyrirtækinu á næstu mánuðum.
Nettóhagnaður fyrirtækisins í
heild jókst um 59% í 222,1 milljarð
jena (1,66 milijarða dollara) 1997/98,
en sala á vamingi þess jókst um 19%
í 6,76 biHjónir jena (50,8 milljarða
dollara).
Masayoshi Morimoto varafor-
stjóri taldi helztu skýringar á góðri
afkomu óvenjumikla sölu PlaySta-
tíon og annarra tækja auk styrkrar
stjómar Hollywood-kvikmynda-
deildarinnar.
Morimoto sagði að Sony hefði selt
19,4 milljónir 32 bita PlayStatíon á
heimsmarkaði 1997/98, tvöfalt fleiri
en árið áður.
Hagnaður þessarar deildar fyrir-
tækisins jókst í 116,9 milljarða jena
(879 milljónir dollara) og nam 22% af
rekstrartekjum fyrirtækisins. Sala
kvikmyndadeildar jókst um 46,7%
vegna metsölumynda á við Men in
Black og My Best Friend’s Wedding.
Morimoto segir að Sony geri ráð
fyrir að nettóhagnaður minnki um
3,2% í 215 milljarða jena á reiknings-
árinu sem hófst 1. apríl.
Hann benti á óvissu á yfirstand-
andi fjárhagsári, meðal annars
vegna minni eftirspumar í Japan og
Asíu, verðþrýstings og minni áhuga
á PlayStation vegna þess að markað-
urinn sé mettur.
Rdðstefha um lausnir í viðskiptakerfum
með tilliti til drtalsins 2000
Opin kerfi í samvinnu við Hug-forritaþróun, Skýrr
og Streng bjóða til ráðstefnu fyrir fyrirtæki, stofnanir og
sveitarfélög um lausnir í viðskiptakerfum m.t.t. ártalsins 2000.
Einstakt tækifæri til að kynnast á einum stað vinsælustu
viðskiptakerfunum á markaðnum:
•Agrcsso
• ConcordtXAL
• Navision Financiols
Ráðstefiian verður í ráðstefnusal A á Hótel Sögu
fóstudaginn 15. moikL 13.00-17.00.
Þátttaka er ókeypis.
Vmsamlegast tilkynnið þátttöku f tölvupósti skraning@hp.is
eða i sima 570 1000 fyrir fimmtudaginn 14. mai 1998.
Athugið aðfiöldiþútttakenda er takmarkaður!
(A3
HUGUR
fORRITAÞRÓUN
Skwfhr U*''" 0»um H
OPIN KERFIHF
HEWLETT
PACKARD
VIÐSKIPTI__________________
Nissan íhugar tengsl
við Daimler Chrysler
Tókýó. Reuters.
NISSAN, annar mesti bifreiðafram-
leiðandi Japans, hefur tílkynnt að
hann eigi í viðræðum við Daimler-
Benz AG í Þýzkalandi.
Fyrirtækið segir að í svipinn sé
aðeins rætt um flutningabíla, en við-
ræðumar kunni að beinast að öðru,
þar á meðal fólksbílum og eignarað-
ild.
Fjárfestar fögnuðu fréttinni og
mikil eftírspum var eftir hlutabréf-
um í Nissan Motor og hinu eignar-
tengda vömbílafyrirtæki Nissan
Diesel Motor Co.
Sérfræðingar velta því fyrir sér
hvort fyrirhugað bandalag nægi Ul
að leysa vanda Nissans og koma tíl
leiðar nauðsynlegri samþjöppun í
japanska bílaiðnaðinum.
Sérfræðingur Salomon Smith Bar-
ney sagði að hér kunni að vera reynt
að stíga „lítíð skref í rétta átt“, en
bætti við að hann vildi heldur að
Nissan drægi úr vörubflaframleiðslu.
Rætt um flutn-
ingabíla í byrjun
en fólksbíla og
eignatengsl einnig
inni í myndinni
Japanskir fjölmiðlar höfðu sagt
frá því um helgina að Nissan ættí 1
viðræðum um að selja Daimler
megnið af 39,8% hlut sínum í Nissan
Diesel, minnsta bílaframleiðanda
Japans af 11.
Minnkandi sala Nissan Diesel
Sala Nissan Diesel hefur dregizt
saman á heimamarkaði og í Suðaust-
ur-Asíu á undanfórnum mánuðum.
Vaxandi tap og róttæk endurskipu-
lagning á rekstri fyrirtækisins hefur
íþyngt Nissan Motor, sem sjálft á við
erfiðleika að stríða vegna taps á
Bandaríkjamarkaði og sölutregðu í
Japan.
Sérfræðingur Nikko rannsóknar-
stöðvarinnar hækkaði mat sitt á
Nissan Diesel og Nissan Motor og
sagði að ef af samningum yrði þyrftí
Nissan Motor ekki lengur að hafa
áhyggjur af vörubílafyrirtækinu.
Að sögn sérfræðings Salomon
Smith Bamey eru tvö helztu vanda-
mál Nissans miklar skuldir og ónóg
arðsemi. Hins vegar getur Nissan
unnið með Daimler á öðrum sviðum,
til dæmis í verksmiðju Nissan á
Spáni, sem er vannýtt.
Hann stórefast um að Nissan geti
farið að dæmi Chrysler Corp og
samið við Daimler um fullkominn
samruna. Nissan vekur of lítinn
áhuga vegna skulda fyrirtækisins,
umframgetu þess og of mikils fjölda
starfsmanna.
Fyrirlesarar
Hallgrímur Oskarsson,
John A. Deighton,
deildarstjóri á sölu~ og markadssv. Flugleida hf. prófessor i markads- og vidskiptastjórnun. Harvard B.S.
Hreggvióur Jónsson.
forstjori Stöðvnr 2
Þorlákur Karlsson.
Ph.D.. Callup
Alison Copus,
framkvæmdastjori markadsmala. Virgin Atlantic Airways
Marianne Nielsen,
framkvæmdastjóri markads- og sölusvids Ericsson
FLUGLEIÐIRJ& IMARK~
fyrir félaga (ÍMARK er 8.900 kr. og 12.900 kr. fyrir aöra. Innifalinn er léttur hádegisverður og
kaffiveitingar. Þátttökugjaldið má greiða með VISA eða EURO. Til þess að fá aðgöngumiða
á félagsverði tMARK þarf viðkomandi að hafa greitt félagsgjöldin fyrir starfsárið 1997-1998.
Hægt er að greiða þau við skráningu eða við innganginn.
fer fram á skrifstofu ÍMARK, I síma 511 4888 eöa 899 0689. Einnig má tilkynna þátttöku með
þvl að senda slmbréf f sama númer, skrá sig á heimaslðu (MARK: www.imark.is eða senda
tölvupóst: imark@mmedia.is. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst þar sem sætafjöldi er
takmarkaður og búast má við mikilli aösókn.
Alþjóöleg ráöstefna
í Háskólabíói, sal 3,
15. maí kl. 09.00-15.30
• Getur vlnsælt fyrirtæki haft 1000 andlit?
• fmynd fyrirtækja er þáttur f vlnsældum þeirra. Hvernig má meta
• Buildlng the Ericsson Brand
• The Quest for Positive Perceptions In an Age of Addressable
• The Management of Positlve Perceptions of the Virgin Brand
FLUGLEIDIR i
NllUltl
OPIN KFRf'l
Mk
Landsbanki
Islands