Morgunblaðið - 12.05.1998, Side 35
34 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 35 ,■
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
KÖGUN HF.
FYRIRTÆKI að nafni Kögun hf. varð til vegna samn-
inga, sem íslenzk og bandarísk stjórnvöld gerðu sín í
milli um byggingu og starfrækslu mjög fullkominna rat-
sjárstöðva á Islandi. Fyrirtækið var stofnað til þess að sjá
um rekstur og viðhald hugbúnaðar þessa ratsjárkerfis.
Með samningi við íslenzk stjórnvöld hefur fyrirtækið haft
einkarétt til að sjá um þá þjónustu. Af þessum sökum
hljóta önnur viðhorf að gilda í sambandi við þetta fyrirtæki
en almenn fyrirtæki, sem starfa á hinum opna markaði.
Um það bil, sem Kögun hf. varð til voru augu manna að
opnast fyrir því, sem gerzt hafði í verktakastarfsemi á
Keflavíkurflugvelli frá því að bandaríska varnarliðið kom
til íslands árið 1951. Sameinaðir verktakar hf., sem síðar
urðu eignaraðilar að íslenzkum aðalverktökum hf., höfðu
fengið einkarétt til framkvæmda á vegum varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Það var eitt helzta framlag íslands til
sameiginlegra varna hins frjálsa heims á dögum kalda
stríðsins að heimila dvöl varnarliðsins í landinu. Það stóð
aldrei til að hagnast á því framlagi.
Sameinaðir verktakar áttu í upphafi að endurspegla
stétt iðnaðarmanna og verktaka á suðvesturhorni landsins,
og var hugsunin sú, að þeir tækju að sér framkvæmdir fyr-
ir varnarliðið í sameiginlegu félagi. A fjórum áratugum
varð þróunin sú, að eignaraðild að Sameinuðum verktökum
hf. færðist á hendur tiltölulega fámenns hóps manna og
i erfingja þeirra. Síðar komu bæði samvinnuhreyfingin og
íslenzka ríkið að þessari starfsemi, þegar Islenzkir aðal-
verktakar voru stofnaðir með sameiginlegri þátttöku þess-
ara þriggja aðila. A svipuðum tíma og Kögun hf. varð til
var orðið ljóst, að fámennur hópur manna hafði hagnazt
um milljarða á framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli í skjóli
einkaleyfis til framkvæmda.
Þessi reynsla varð til þess að áherzla var lögð á, að ekki
færi eins um Kögun hf., fyrirtæki, sem var stofnað til þess
að veita bandarískum stjórnvöldum ákveðna þjónustu.
Þegar fyrirtækið var stofnað var hugmyndin m.a. sú, að
það endurspeglaði að verulegu leyti hugbúnaðariðnaðinn í
landinu. Lögð var áherzla á dreifða eignaraðild. Með samn-
ingi við íslenzk stjórnvöld var fyrirtækið skyldað til að
gera utanríkisráðuneytinu árlega grein fyrir því hverjir
væru eigendur að hlutabréfum í Kögun hf. og tafarlaust
átti að gera varnarmálaskrifstofu grein fyrir því, ef einn
hluthafi eignaðist meira en 5%.
A þeim níu árum, sem liðin eru frá því að samningurinn
var gerður hefur þróunin orðið sú, samkvæmt úttekt, sem
birtist hér í blaðinu í fyrradag, að eftirlaunasjóður starfs-
manna á 28% hlut og tveir einstaklingar, hjón, eiga 27%.
Hvernig má það vera, að þetta hafi gerzt, þrátt fyrir
fengna reynslu af verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli
og þrátt fyrir stefnumörkun utanríkisráðuneytis á sínum
tíma um dreifða eignaraðild að fyrirtækinu?
Þeirri spurningu hljóta stjórnvöld að svara og geta ekki
vikizt undan því. Utanríkisráðuneytið verður að gera grein
fyrir því, hvernig eftirliti af þess hálfu með þróun eignar-
aðildar að fyrirtækinu hefur verið háttað. Stjórnarmenn í
Þróunarfélaginu, á sínum tíma, sem í upphafi var að tölu-
verðu leyti í ríkiseigu og átti meirihluta hlutabréfa í Kögun
hf. við stofnun fyrirtækisins, verða að gera grein fyrir því
hvers vegna sá meirihluti var seldur með þeim hætti, sem
gert var.
Það er alveg ljóst, að með samningi íslenzkra og banda-
rískra stjórnvalda og með einkaleyfinu til Kögunar hf.
verða til umtalsverð verðmæti, sem engum hefði dottið í
Ihug í upphafí að afhenda fámennum hópi manna, eins og
síðan hefur orðið raunin á. Það er óviðunandi með öllu að
sagan frá verktakastarfseminni á Keflavíkurflugvelli end-
Íurtaki sig með þessum hætti.
íslenzk stjórnvöld eiga tvo kosti í þeirri stöðu, sem nú
liggur fyrir. Samkvæmt samningi Kögunar hf. og utanrík-
isráðuneytis rennur hann út í maí á næsta ári. Að öðru
óbreyttu hlýtur að vera ástæða til að endurskoða hann frá
grunni í ljósi þess, hvernig eignaraðild að fyrirtækinu hef-
ur orðið. En jafnframt er utanríkisráðherra heimilt að
segja samningnum upp fyrirvaralaust, ef talið er að fyrir-
tækið hafi brotið gegn samningsskyldum sínum. Hafi svo
verið hlýtur sú leið áð koma til álita. Hafí fyrirtækið hins
vegar staðið við alla samninga er Ijóst, að utanríkisráðu-
neytið hefur brugðizt eftirlitsskyldu sinni.
Ef hins vegar er um að ræða breytta stefnu íslenzkra
stjórnvalda gagnvart eignaraðild að fyrirtækinu frá því að
það var sett á stofn hefur engin grein verið gerð opinber-
lega fyrir þeirri breyttu stefnu eða þeim efnislegu rökum,
| sem kunna að liggja slíkri stefnubreytingu til grundvallar.
Þá er tímabært að skýrt verði frá því opinberleg’a.
Hagkvæmnisathuganir á tilraunum með notkun vetnis og metanóls í samgöngum og fískiskipum
Morgunblaðið/Þorkell
ÞEIR voru ásamt fleirum í viðræðum um orkumálin alla helgina: Iljálmar Árnason þingmaður og formaður orku-
nefndar iðnaðarráðuneytisins (t.v.) og Phiiip Mok, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Daimler-Benz.
Islenskt vetni próf-
að á strætisvagna
frá Daimler-Benz
✓
Fyrsta skref Islendinga í þá átt að taka upp
nýja orkugjafa í samgöngum og fiskveiðum
gæti verið framundan. Jóhannes Tómas-
son kynnti sér fyrirhugað samstarf
Daimler-Benz og Ballard við íslensk
orkuyfirvöld um tilraunir með vetni
og metanól sem orkugjafa.
RAÐGERT er að hefja hér-
lendis tilraunarekstur
strætisvagna knúinna vetni
sem framleitt er í Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi. Munu þær
að líkindum hefjast eftir tvö til þrjú
ár og svipaðar tilraunir einnig
framundan varðandi fískiskipaflot-
ann. Talsvert lengra er þó í beinar
tilraunir þar. Þær gætu verið fyrsta
skrefíð í þá átt að skipta um orku-
gjafa í þessum tækjum og að nýta
innlenda orku í stað innfluttrar í ná-
inni framtíð.
Fulltrúar þýska bílaframleiðand-
ans Daimler-Benz og DBB sem er
dótturfyrirtæki þess, Ford og
kanadíska efnarafalafram-
leiðandans Ballard, ræddu
við fulltrúa viðræðuneínd-
ar iðnaðarráðuneytisins
um vetni og undirrituðu á
sunnudag viljayfírlýsingu
um samstarf sitt við þessar
tilraunir. Næstu skref verða frekari
skilgreiningar og fjármögnun þeirra.
„Þetta eru fyrstu viðræðurnar sem
skila ákveðnum áfanga og er í honum
fólgin mikil viðurkenning fyrir okk-
ur,“ sagði Hjálmar Árnason, alþing-
ismaður og formaður íslensku orku-
nefndarinnar, og kvaðst hann vilja
vara við því að menn byggðu upp of
miklar væntingar, eftir væri að und-
irbúa næstu skref og kanna fjárhags-
legan grundvöll samstarfsins. Hann
sagði að kæmu þessir nýju orkugjaf-
„Þekkingin
gerir landið
fýsilegt til til
raunanna“
ar í stað bensíns og olíu myndu spar-
ast um 10 milljarðar árlega í kaupum
á þessum orkugjöfum og í staðinn
yi'ði notuð innlend orka sem jafnvel
yrði hægt að flytja út.
Aðdragandinn að samningnum nú
er sá að Bragi Árnason prófessor við
Háskóla Islands, sem lengi hefur tal-
að fyrir tilraunum með aðra orku-
gjafa og unnið að vetnisrannsóknum,
hefur verið í sambandi við fulltrúa
Daimler-Benz. Má í stuttu máli
segja að rannsóknardeild fyrirtækis-
ins hafi ákveðið iyrir forgöngu hans
að kanna af alvöru hvers konar til-
raunir væri hægt að gera hérlendis
og er þar komin viðurkenning á því
________ rannsókna- og vísinda-
starfi sem hér hefur verið
unnið á þessum sviðum
mörg undanfarin ár. Hef-
ur Ingimundur Sigfússon,
sendiherra Islands í
” Þýskalandi, einnig veitt
aðstoð og átt þátt í að koma viðræð-
unum af stað. En af hverju varð Is-
land fyrir valinu? Því svarar Philip
Mok, framkvæmdastjóri alþjóða-
deildar Daimler-Benz, sem var einn
fulltrúanna i viðræðunum hér:
Góð skilyrði á íslandi
„Við vissum áður en við komum
hingað núna að hér væru fyrir hendi
möguleikar og skilyrði fyrir tilraun-
um sem þessum sem varða hreina
orku og hér er nánast eðlilegast að
nota vetni sem orkugjafa. Og ekki
aðeins það heldur höfum við líka
uppgötvað að hér er samfélagið opið
fyrír tækninýjungum og hér eru um-
hverfísmál í heiðri höfð. Síðast en
ekki síst ber að nefna að hér er fyrir
hendi góð menntun í þjóðfélaginu og
þekking á notkun vetnis. Þess vegna
er gott að hefja hérlendis alvöru til-
raunir með notkun umhverfisvænna
orkugjafa í bílum.“
Philip Mok sagði aðspurður um
hvenær fvrirtæki hans hefði fyrst
fengið áhuga á Islandi að það væri
eins og í svo mörgu að einhvers stað-
ar kæmist á samband milli manna,
milli þeiiTa sem væru að huga að
málum sem þessum og í þessu tilviki
hefði það verið rannsóknadeild
Daimler-Benz sem hefði kynnt sér
vetnisframleiðslu íslendinga og þá
fyrirætlan að auka framleiðslu og út-
flutning. „Hugmyndin er því hvergi
nærri ný en nú höfum við líka séð
enn betur hversu tilraunir á Islandi
gætu verið fýsilegar." Daimler-Benz
fyrirtækið hefur eins og nánast allir
stærstu bílaframleiðendur heimsins
unnið mikið síðustu árin að tilraun-
um með rafbíla, annars konar vélar
en þær sem knúnar eru bensínorku.
Segir Philip Mok fyrirtækið hafa
verið eitt það fyrsta sem
kynnti bíla sem ganga fyrir
metanóli eða vetni og segir
hann það bæði eiga við
fólksbfla og stærri bfla. En
hvert verður fyrsta skref
tilraunanna hérlendis?
„Við gerum ráð fyrir að tveir til
þrír strætisvagnar af nýrri kynslóð
vetnisvagna verði sendir hingað eftir
um það bil tvö ár, hugsanlega þrjú.
Fyrsta skrefið verður að safna meiri
reynslu af notkun þeirra og fram-
leiðslunni en við eigum hins vegar
•eftir að ganga frá öllum smáatriðum
málsins. Við erum brátt komnir að
því að hefja fjöldaframleiðslu og
spumingin er aðeins sú hversu hratt
það verður gert. Tilraunimar hér
munu gefa okkur nýjar upplýsingar
„Afla þarf
reynslu frá
ýmsum heims-
hornum“
og nýja reynslu til að byggja frekari
framleiðslu á.“
Fulltrúi Daimler-Benz kvaðst
sannfærður um að hérlendis væra
öll skilyrði fyrir hendi til framleiðslu
vetnis til notkunar innanlands og
ekki síður til útflutnings ef hægt
verður að leysa tæknivandann við
hann, þ.e. sjálfan flutninginn á vetn-
inu. „Umhyggja fyrir umhverfínu
fer alls staðar vaxandi og þess vegna
verður sívaxandi eftirspurn eftir
hreinum orkugjöfum um allan heim
og ég veit að það er áhugi á mörgum
stöðum, víðar en í Þýskalandi, fyrir
nýtingu á þessum orkugjöfum."
Næstu þrjú árin hyggst Daimler-
Benz framleiða kringum 20 vetnis-
vagna sem reyndir verða á ýmsum
stöðum sem taldir eru hæfa tilraun-
um sem þessum. Þegar era þrír
vagnar í notkun í Chicago í Banda-
ríkjunum og í sumar verða einnig
komnir þrír vagnar í gagnið í
Vancouver í Kanada og era þeir af
eldri kynslóð en þeir vagnar sem
hingað koma.
Viðræðunefnd iðnaðarráðuneytis-
ins skipa auk Hjálmars prófessor-
amir Bragi Árnason og Þorsteinn
Sigfússon, Jóhann Már Maríusson,
aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar,
Þorkell Helgason orkumálastjóri,
Skúli Bjarnarson, stjómarformaður
Áburðarverksmiðjunnar, og Ingi-
mundur Sigfússon sendihema. Auk
viðræðufundanna, sem stóðu föstu-
dag, laugardag og sunnudag, var
farið með erlendu gestina að Nesja-
völlum og í Svartsengi.
„Þetta var þriggja daga hörð
samningalota og varð niðurstaðan sú
að koma á samstarfí þessara erlendu
aðila og Islendinga og lokatakmark-
ið verður að vetnið verði nýr orku-
gjafi í samgöngutækjum og fiski-
skipum,“ sagði Hjálmar Amason
eftir samningana um helgina. Hann
sagði verkefnið verða tekið í
nokkrám lotum, næst væri að at-
huga nánar einstaka þætti tilraun-
anna.
Fulltrúar frá Strætisvögnum
Reykjavíkur, Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna og Kynnis-
ferðum auk forsvarsmanna Áburðar-
verksmiðjunnar komu á fund við-
ræðunefndarinnar og segir Hjálmar
ráðgert að á næstunni muni starfs-
nefndir taka hvert svið til nánari
skoðunar. „Markmiðið í þeim eru
hagkvæmnisathuganir á því hvort og
hvernig framleiða má vetni og met-
anól með innanlandsnotkun og út-
flutning í huga,“ sagði Hjálmar enn-
fremur.
Nánari athuganir framundan
„Fulltrúum erlendu fyrirtækjanna
finnst íslenskt samfélag opið og
smátt í sniðum sem gerir það áhuga-
vert í þeirra augum og þægilegt að
vinna að slíkum tilraunum hér. Hér
færa sem sagt fram lokatilraunir
með notkun á vetni fyrir þessa
strætisvagna áður en þeir verða
settir í fjöldaframleiðslu. Þeir hafa
þegar byrjað tilraunir í Bandaríkj-
unum, tilraunir í Kanada standa fyr-
ir dyram og þannig vilja þeir fá
reynslu af notkun vagnanna við sem
ólíkastar aðstæður og bera hana
saman. Þeir munu fylgjast með
framleiðslu vetnisins og rekstri
vagnanna og meta í framhaldi af því
hvaða skref verða stigin. Ég vil hins
vegar vara við því að menn byggi
upp of miklar væntingar í kringum
verkefnið strax því við
eigum eftir nánari út-
færslu og fara betur ofan í
fjármálin," sagði þingmað-
urinn.
Hjálmar sagði að fleiri
- erlendir aðilar hefðu sýnt
áhuga á samstarfi við Is-
lendinga. Þannig hefði breskur aðili
sem framleiðir efnarafala átt við-
ræður hér og annar erlendur aðili
hefði óskað eftir viðræðum. „Við höf-
um verið að fá fyrirspumir víða utan
úr heimi og allir eru að horfa á það
sama, reynslu okkar af vetnisfram-
leiðslu, smæð efnahagssamfélagsins
og þá reynslu sem við höfum af því
að skipta um orkugjafa þegar við
fóram úr olíu yfir í hitaveitu," sagði
Hjálmar Árnason að lokum.
Vetni, metanól og
rafmagn til skoðunar
YETNI og metanól sem orku-
gjafar fyrir bílvélar hafa lengi
verið til rannsóknar hjá bflafram-
leiðendum og þeim sem sérhæfa
sig í framleiðslu véla. Auk sam-
göngutækja á landi er einnig til
skoðunar að knýja til dæmis skip
með vélum af þessu tagi. Slíkt
verður þó ekki gerlegt nema eftir
frekari tækniþróun. Þá standa yfir
víðtækar rannsóknir og tilraunir
með raforku til að knýja bfla.
Umhverfisvernd hefur ýtt undir
hvers kyns leit manna að öðrum
orkugjöfum en olíu og bensíni til
að knýja farartæki heimsins. Þyk-
ir flestum brýnt að finna almenna
orkugjafa sem menga sem minnst
en eru jafnframt hagkvæmir. Má
segja að rafmagn, vetni og met-
anól séu helst til skoðunar og í
mörgum tilvikum er um að ræða
samnýtingu þessara orkugjafa.
Vetni er framleitt úr hitaorku
með því að nota vatn og síðan þarf
að bæta við sérstökum hvata.
Einnig má framleiða vetni úr jarð-
gasi með efnahvörfum. Gísli Jóns-
son, fyrrverandi prófessor, hefur
bent á að þótt vetnisbflar nái í dag
lengri akstursvegalengd en rafbfl-
ar sé þróun rafgeyma hröð og slík-
ir bflar verði fullt eins spennandi
og vetnisbflar. Þá hefur Baldur EI-
íasson, vísindamaður hjá ABB í
Sviss, bent á að hagkvæmara gæti
verið að nota metanól, það sé fljót-
andi vökvi við eðlilegar kringum-
stæður og því sé það trúlega hent-
ugast íslendingum til notkunar á
bfla- og skipaflotann. Eru því ýmis
sjónarmið á lofti og þau geta líka
verið mismunandi eftir því hvort
um er að ræða stór atvinnutæki
eða fólksbfla.
Rannsaka vetni
og metanól
Fyrirhugað tilraunasamstarf ís-
lendinga við Daimler-Benz og
Ballard fyrirtækin gengur einkum
út á nýtingu vetnis sem framleitt
er hérlendis en einnig metanóls
sem sömuleiðis er hugsanlegt að
framleiða hérlendis. Það er gert
með samruna vetnis og koltvísýr-
ings en til greina kemur að nýta í
því skyni útblásturinn frá Járn-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga. Verður settur sérstakur
rannsóknarhópur af stað til að at-
huga hagkvæmni þess. Annar hóp-
ur mun athuga sérstaklega nýt-
ingu þessara nýju orkugjafa í skip-
um og sá þriðji athugar fram-
leiðslu Áburðarverksmiðjunnar á
vetni.
Strætisvagnarnir frá Daimler-
Benz sem nú standa yfir tilraunir
á eru vetnisvagnar. Kom sá fyrsti
NEBUS frá Daimler-Benz sem tæknimenn eru að leggja síðustu hönd á. Sjá má vetnisgeymana sjö á þaki vagns-
ins. Stefnt er að því að þrír slíkir vagnar verði reknir hér í tilraunaskyni eftir um það bil tvö ár.
Drifkerfið
tekur við raforkunni og
flytur hana beint á hvort
drifhjól um sig. Tveir
slíkir mótorar eru því á
vagninum. Þeir eru
loftkældir.
Vetnistankarnir
sex eru á þaki vagnsins.
Sjö 150 lítra tankar gefa
bílnum 21 kg af vetni.
Kælikerfið
er á þaki vagnsins en
það færir hitann
frá efnarafalnum.
Tíu efnarafalar
framleiða rafmagnið
sem þarf fyrir drif-
búnaðinn og önnur
kerfi vagnsins.
HÉR sjást aðalhlutar vetnisvagnsins.
á götuna í fyrra eftir að frumgerð
hafði verið kynnt tveimur árum
fyrr. Vetnisvagninn er kallaður
NEBUS og er stytting á ensku
heiti hans, new electric bus. Á
þaki vagnsins eru vetnistankarnir
sem geyma nægilegt vetni til að
knýja bflinn 400 km vegalengd.
Efnarafall bflsins, sem er frá
kanadíska framleiðandanum Ball-
ard, er 275 hestöfl og tekur vagn-
inn 60 farþega. Næsta kynslóð á
að ná 560 km á einni tankfylli, hef-
ur jafnstóran efnarafal og tekur
75 farþega.
Fyrirtækið gerir ráð fyrir að
fjöldaframleiðsla strætisvagna af
þessari gerð geti hafist árið 2004.
Forstjóri SVR um væntanlegan tilraunarekstur vetnisvagna á íslandi
Spennandi
tilraun
ETTA er spennandi tilraun og það sem að
okkur snýr er prófun á vögnunum á almenn-
um leiðum og að gera úttekt á því hvernig þeir
reynast," segir Lilja Ólafsdóttir, forstjóri Stræt-
isvagna Reykjavíkur, aðspurð um þátt fyrirtæk-
isins í fyrirhuguðum tilraunum með vetnisvagna
hérlendis.
Lilja sagði að engir samningar hefðu verið
gerðir, hugmyndin aðeins verið kynnt, og sagði
hún það hæfa vel umhverfisstefnu SVR að taka
upp aðra orkugjafa en díselolíu fyrir vagnaflot-
ann. Annar þáttur í henni og stærsta framlagið til
umhverfisvemdar í almenningssamgöngufyrir-
tæki væri að veita það góða þjónustu að draga
mætti úr umferð einkabíla, sem þýddi minni
mengun.
Hún sagði að hugmyndin væri sú, ef af verður,
að lána SVR vagnana en Ijóst væri að mikil vinna
yi'ði í því fólgin að læra að umgangast þá og við-
halda og sjá um skýrslur og samantektir um
hvernig þeir reyndust. Síðan yrði að semja við
Áburðarverksmiðjuna um hvernig háttað yrði
áfyllingu vetnisins.
Forstjóri SVR benti líka á að til þess að vetnis-
vagnar gætu átt framtíð fyrir sér yrðu þeir að
vera álíka hagkvæmir í innkaupum og rekstri og
þeir vagnar sem notaðir væru í dag.
Áfyliing í Gufunesi
Áfylling vetnis á tvo til þrjá strætisvagna sem
hér yrðu í rekstri í tilraunaskyni myndi fara fram
á framleiðslustað, þ.e. hjá Áburðarverksmiðjunni
í Gufunesi, en kæmi til þess í framtíðinni að ti)
dæmis allur floti SVR yrði knúinn vetni yrði trú-
lega lögð leiðsla frá framleiðslustað og á Kirkju-
sand. Færi þá áfylling á vagnana fram þar.
Þetta segir Teitur Gunnarsson, verksmiðju-
stjóri Áburðarverksmiðjunnar, en hann segir
vandamálið við notkun efnisins hversu létt og fyr-
irferðarmikið það er. Eina leiðin er að afgreiða
það frá framleiðanda á afhendingarstað með
leiðslum. Þess vegna sé það ekki hentugt til notk-
unar nema á stóra bílaflota sem gerðir era út frá
einni miðstöð eins og á til dæmis við um strætis-
vagnaflota höfuðborgarsvæðisins. Vetni myndi
því ekki henta til rekstrar langferðabíla, sem fara
um land allt, eða einkabíla, þar kæmi metanól
hins vegar til greina.
Tvöfalda þyrfti framleiðsluna
Teitur Gunnarsson segir Áburðarverksmiðjuna
ekki eiga í erfiðleikum með að útvega vetni á
nokkra vagna í tilraunaskyni. Ársframleiðslan er
20 milljónir rúmmetra sem er um 1.800 tonn og
til að knýja 160-180 strætisvagna þyrfti um það
bil það magn. Verði flotinn því knúinn vetni í
framtíðinni myndi þurfa að tvöfalda framleiðslu
verksmiðjunnar. Teitur segir að slíkt kosti tals-
verða fjárfestingu og að það myndi taka eitt til
tvö ár í undirbúning.