Morgunblaðið - 12.05.1998, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 55
BREF TIL BLAÐSINS
Grípa þarf tafarlaust
til sterkari sóttvarna
Frá Þorsteini Thorarensen:
I GREIN minni „Verum viðbúin
því versta“ í Morgunblaðinu 30.
apríl varaði ég við afleiðingum
hrossasóttarinnar á íslandi, sem
getur um langa framtíð lagt ís-
lenska hrossaræktun og hrossaút-
flutning í rúst. Þótt maður viti í
sjálfu sér ekki, hvaða sjúkdómur
þetta er, varaði ég við því, að ef
ekki tækist að hefta útbreiðslu
pestarinnar, yi’ði ekki um að ræða
neinn frekari útflutning íslenskra
hesta til Evópu. Því miður hafði
greinin þurft að bíða birtingar í
nærri tvær vikur, það kynni að
vera að hún hefði vakið fleiri til
umhugsunar tímanlega ef hún
hefði komið fyiT.
Nú er allt því miður komið fram
sem ég sagði, Evrópulöndin hafa
lagt strangt bann við innflutningi
íslenskra hesta af sýktum svæðum,
en ætluðu að heimila það af ósýkt-
um svæðum. En nú berast fregnir
um að allt sé komið í óefni, sóttin
sé komin upp á einum bæ í Skaga-
firði.
Ég spyr þá, hvað hefur verið
gert til að hindra útbreiðslu þaðan?
Því miður ekki neitt! Það er furðu-
legt að yfírdýralæknir skuli nú
leggja hendur algjörlega í skaut
sér út af skammtíma hagsmunum
landsmóts hestamanna. Þá yrði
fokið í öll skjól.
Ég skora því á Norðlendinga að
mynda samtök og grípa tafarlaust
sjálfir til frekari sóttvarnarað-
gerða. Minnist fordæmis Péturs
Hafsteins amtmanns. Úr því að
dýralæknishjassinn í Reykjavík
ætlar ekkert að gera, verðið þið,
Norðlendingar, að bjarga besta
hrossastofninum með því að grípa
sjálfir til harkalegra aðgerða.
Reynið að fá sýslumanninn í lið
með ykkur alveg eins og öðlingur-
inn Jóhann Skaftason vinur minn
gekk á sínum tíma í lið með skæru-
RYÐVÖRN
SEM ENDIST
ARVIK
ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
liðunum í Mývatnssveit. Gerið þeg-
ar í stað gangskör að því að ein-
angra hinn sýkta bæ, fella hrossin
þar tafarlaust og sótthreinsa allt
með lýsóli og öðrum sterkum efn-
um og þá líka setja „merarmang-
ana“ sem hafa borið þetta með sér í
lýsólsturtu. Nú þarf að dreifa skýr-
um upplýsingabæklingum um allt
Norðurland, koma á algerri ein-
angrun og vernda besta hrossa-
stofninn á Norðurlandi með ein-
angrunargirðingum og strangi-i
varðgæslu alveg eins og húnvetns-
kir og skagfirskir bændur komu á
hjá sér á 19. öld og tókst frábær-
lega vel.
Með baráttukveðjum.
ÞORSTEINN THORARENSEN,
Njörvasund 15 a.
afsláttur frá friðjudegi til laugardags
Suðurlandsbraut 54 (bláu búsin)
Sími 568 9511
matarstell
hnífapör
trévörur
UaffisteJl
horÖvinsglös
Uoníaksglös
JíUjörsglös
sérríglös
veggUluUUur
borðlampar
o.fl. o.fl...
Skrifstofa framtíðarinnar
„Við gerum á einum degi það sem áður tók viku
66 Staður: Hótel Loftleiðir, Þingsalur I.
Tími: Þriðjudagur 19. maí 1998.
kl. 9-13 eða ld. 14-18.
Lars Kolind, 49 ára, kom til Oticon árið 1988 til að taka við fyrirtæki í miklum vanda. Eins og venja er byrjaði hann
á að ráðast á kostnaðinn. Hann gerði sér hins vegar fljótlega grein fyrir að slíkar leiðir myndu ekki nægja til að umbylta
fyrirtækinu og skapa því sterka stöðu gegn Sony og Philips, sem eru ráðandi á þessum markaði. Eftir tveggja ára
basl gerðist Lars Kolind svo djarfur að reyna nýja leið: að „afskipuleggja" fyrirtækið. Sú aðferð grundvallaðist á því
að þróa nýja tækni og kafa djúpt í vinnusálfræði til að ná ffarn hámarksafköstum.
Nú byggist starfsemi Oticon á liðsheildum sem skipuleggja sig sjálfar eftir hverju verkefni sem ákveðið er að vinna.
Þannig er unnið með tugi verkefna á hverjum tíma og flestir starfsmenn vinna að fleiri en einu verkefni á sama tíma.
Sérhvert verkefhi er eins og fyrirtæki og stjómandi þess hegðar sér eins og yfirstjómandi fyrirtækisins.
Auk Lars Kolind munu
nokkrir íslenskir athafna-
menn segja ffá og miðla
reynslu sinni af þessu
fyrirkomulagi.
Lars Kolind og félagar hans hafa skapað byltingarkennt fyrirtækisumhverfi norðan Kaupmannahafnar.
Það er djarft og árangursríkt og með því hafa þeir unnið nýja markaði og vakið athygh viðskiptaffömuða
um allan heim. Listin snýst um hvemig fólk skynjar starf sitt. Unnið er gegn pappírsflóði með
skrifborðum án skúffa og einstæðum nettölvum í umhverfi sem leggur áherslu á hreyfanleika.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 533 4567 og wmv.stjomun.is
sms.
▲
Stjórnunarfélag
Islands