Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjálfvirkar myndavélar á gatnamótum
Ljósmyndir ekki
sönnunargagn
BÍLSTJÓRI var sýknaður í dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur í gær af
ákæru um að hafa ekið gegn rauðu
ljósi 23. maí 1997. Ákæruvaldið sótti
málið á grunni gagna úr sjálfvirkri
og tölvustýrðri myndavél á gatna-
mótum Miklubrautar og Snorra-
brautar og komst héraðsdómur að
þeirri niðurstöðu að ekki væri unnt
að byggja á ljósmyndum sem sönn-
unargögnum í málinu.
Ákærði ók fólksflutningabíl vest-
ur Miklubraut og Hringbraut fóstu-
dagskvöldið 23. maí og neitaði hann
að hafa ekið yfir gatnamótin á
rauðu ljósi. Kvað hann gult Ijós hafa
kviknað rétt áður en hann ók inn á
gatnamótin og hann metið það
þannig vegna öryggis farþeganna
að rétt væri að aka viðstöðulaust yf-
ir. Hann kvaðst við aðalmeðferð
málsins ekki geta sagt hversu hratt
hann hefði ekið, hann hefði þó verið
búinn að hægja verulega á og tahð
sig fara yfir línuna á gulu ljósi.
í dómi héraðsdóms segir að ljós-
myndabúnaðurinn hafi ekki hlotið
löggildingu hérlendis, ein myndavél
sé notuð á mörgum gatnamótum og
færi lögreglumenn hana á milli og
sjái um að setja hana í samband við
málmskynjara og tímastilla hana.
Umferðarljósin sjást ekki á mynd-
unum en á þeim koma fram upplýs-
ingar sem eiga að gefa sönnun um
stöðu ljósanna þegar myndirnar
voru teknar. „Liggur ekkert íyrir
um það í málinu hvort þeir haíi
fengið kennslu eða þjálfun í því að
fara með vél þessa. Þá er ekkert í
málinu um eftirlit með búnaðinum
eða hvort hann hafi verið prófaður
fyrir og eftir atburðinn," segir í
dóminum.
Vélin ekki prdfuð reglulega
Niðurstaða dómsins er sú að
sýkna beri ákærða þar sem ákæru-
valdið hafi ekki sýnt fram á að eftir-
litsmyndavélin sé prófuð reglulega
né hvort þekking og þjálfun þeirra,
sem hana nota, sé viðhlítandi. Sé því
ekki unnt að byggja á ljósmyndun-
um sem sönnunargögnum í þessu
máli. Sakarkostnaður, þar með talin
málsvamarlaun, greiðist úr ríkis-
sjóði.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað dóminn upp. Þorsteinn Skúla-
son fulltrúi flutti málið fyrir hönd
lögreglustjórans í Reykjavík en
verjandi ökumannsins var Guðni Á.
Haraldsson.
Heimsókn
forsætisráð-
herra Lithá-
ens afboðuð
ÓOPINBER heimsókn forsætisráð-
herra Litháens, Gediminas Vagn-
orius, og konu hans, frú Nijole
Vagnoriené, til íslands hefur verið
afboðuð.
Forsætisráðherrahjónin hugðust
koma við á leið sinni til Bandaríkj-
anna og dvelja á íslandi 7. og 8. júní.
Samkvæmt upplýsingum frá forsæt-
isráðuneytinu breyttust ferðaáætl-
anir þeirra þannig að ekki var leng-
ur hægt að millilenda á íslandi og
því var hætt við heimsóknina.
Morgunblaðið/Arnaldur
Andlát
DIETER ROTH
ÞÝSK-svissneski
myndlistarmaðurinn
Dieter Roth lést í Basel
í Sviss fóstudaginn 5.
júní sl. Dieter var
fæddur í Hannover í
Þýskalandi árið 1930.
Af mörgum hefur Diet-
er Roth verið viður-
kenndur sem einn
frumlegasti og afkasta-
mesti listamaður þess-
arar aldar. Dieter bjó á
íslandi um árabil og
hafði mikil áhrif á þró-
un íslenskrar myndlist-
ar á 7. og 8. áratugnum.
Dieter Roth var einn af forvígis-
mönnum konkret-ljóðlistar, hreyfi-
listar og bókverkagerðar; í senn
ljóðskáld og rithöfundur, kvik-
myndaleikstjóri, gerningalistamað-
ur, hönnuður, grafíker, listmálari,
myndhöggvari, tónsmiður, kennari
og útgefandi bóka, tímarita, geisla-
diska og myndbanda. Dieter Roth
sýndi verk sín víða um
heim og verk hans eru í
eigu allra helstu lista-
safna báðum megin
Atlantshafsins auk
þess sem honum hlotn-
uðust mörg eftirsótt
verðlaun á ferlinum.
Sýningar á verkum
hans hér á landi voru í
Nýlistasafninu 1982 og
1994 á Listahátíð en
safninu hefur listamað-
urinn fært fjölda verka
sinna að gjöf.
Dieter Roth lærði
grafíska hönnun í Bern
1947-51, bjó í Kaupmannahöfn
1956- 57 og dvaldi á Islandi, þar sem
hann var giftur Sigríði Bjömsdóttur
1957- 64. Síðustu árin var Dieter bú-
settur í Basel.
Börn Dieters Roths og Sigríðar
Björnsdóttur eru Karl, Bjöm og
Vera og stjúpdóttir hans var Guð-
ríður Adda Ragnarsdóttir.
Lesið á vegg
FYRIR utan Borgarbókasafnið í
Þingholtsstræti sat í gær strákur
með blað í hendi og var svo upp-
tekinn af lestrinum að hann gaf
sér ekki tíma til að líta upp þeg-
ar ljósmyndari Morgunblaðsins
átti leið hjá.
-------------
Sigurður
fari til
Hólmavíkur
TEKIN hefur verið um það ákvörð-
un í dómsmálaráðuneytinu að Sig-
urður Gizurarson, sýslumaður á
Akranesi, verði fluttur til í embætti
og taki við embætti sýslumanns
Strandasýslu.
Sýslumaðurinn í Strandasýslu,
Ólafur Þór Hauksson, sem situr á
Hólmavík, á að taka við embættinu
á Akranesi. Skiptin eiga að fara
fram hinn 1. júlí næstkomandi.
Olympíuleikar í eðlisfræði á Islandi
Morgunblaðið/Jim Smart
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ólympíuieikanna, Viðar Ágústsson, og
skrifstofustjóri, Þórdís Eiríksdóttir með íslenska liðinu. Fremri
röð: Þorvaldur Arnar Þorvaldsson, Páll Melsted og Teitur Ara-
son. Aftari röð: Jóel Karlsson og Jón Eyvindur Bjarnason.
Sextíu þjóðir
verða með
ÓLYMPÍULEIKAR í eðlisfræði
verða haldnir í Reykjavík dagana
2. til 10. júlí. íslensku keppendum-
ir fimm sinna nú formlegum undir-
búningi en þeir urðu hlutskarpast-
ir í úrslitakeppni fyrir leikana. 180
nemendur víðsvegar af landinu
tóku þátt í forkeppni.
Stefna hærra
íslensku keppendumir eru allir
karlkyns og allir úr Menntaskólan-
um í Reykjavík. Einn þeirra, Jón
Eyvindur Bjamason, hefur áður
tekið þátt í Olympíuleikum í eðlis-
fræði og náði þá bronsverðlaunum,
en þau eru veitt fyrir helmings
árangur. Athygli vekur að sá yngsti
í hópnum, Páll Melsted, er ekki
einu sinni byijaður að læra eðlis-
fræði í menntaskóla. Hann segir
eðlisfræðina vera sitt áhugamál og
hann lesi hana til skemmtunar.
Hinir taka undir það og segja mik-
inn tíma fara í eðlisfræðiiðkun sína.
Undirbúningur liðsins fyrir
keppnina felst einkum í því að
reikna gömul „Ólympíudæmi".
Þeir segja dæmin yfn-leitt ekki
raunhæf héldur fái þeir uppgefnar
allskyns óraunhæfar aðstæður og
þurfi að reikna út eða spá um af-
leiðingar út frá ýmsum þáttum.
Það sé mjög gaman að reikna
þessi dæmi. Undirbúninginn segja
þeir fyrst og fremst einstaklings-
vinnu, enda er keppnin einstak-
lingskeppni, stundum rökræði þeir
þó um eðlisfræðina eða einstök
dæmi. Piltarnir segjast hvergi
bangnir og þegar þeir eru spurðir
hvert stefnan sé tekin vilja þeir
ekkert gefa upp annað en að þeir
stefni hærra.
150 tilraunasett
íslendingar hafa tekið þátt í
Ólympíuleikum í eðlisfræði frá
1984, en þá voru þeir haldnir í
Sigtuna í Svíþjóð. Með þátttökunni
tóku þeir á sig þá skyldu að halda
sjálfir leikana eitthvert árið. 1990
staðfesti þáverandi menntamála-
ráðherra, Svavar Gestsson, að ís-
lendingar myndu halda leikana
1998. Það er því menntamálaráð-
herra íslands, Björn Bjarnason,
sem er gestgjafi á 29. Ólympíuleik-
unum í eðlisfræði.
Áætlaður kostnaður við leikana
er um 40 milljónir króna og greiðir
íslenska ríkið hann að hálfu leyti.
Afgangurinn er greiddur með
frjálsum framlögum keppnisliða
og stuðningi íslenskra fyrirtækja
og stofnana. íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur hefur um-
sjón með keppnisstað, Laugardals-
höllinni, og ungt fólk á vegum ITR
mun koma að skipulagningu leik-
anna. Búist er við 60 keppnisliðum
en 57 hafa staðfest þátttöku, að
sögn framkvæmdanefndar.
Gert er ráð fyrir að um 300 ung-
menni á aldrinum 15-19 ára keppi
og með hverju keppnisliði eru svo
að jafnaði tveir fararstjórar. Að
auki sækir alltaf nokkur hópur er-
lendra áheymarfulltrúa leikana.
Miklar vonir eru bundnar við að
Ólympíuleikarnir muni hafa mikil
og góð áhrif á raungreinastarf í
landinu. „Mesta vítamínsprautan
fyrir eðlisfræðikennslu á fram-
haldsskólastiginu er þó að 150 til-
raunasett sem keypt hafa verið inn
til landsins verða afhent fram-
haldsskólum um allt land að gjöf
að lokinni keppni,“ segir í kynn-
ingu frá framkvæmdanefnd.
Formlegur undirbúningur hefur
staðið á vegum íslensku fram-
kvæmdanefndarinnar frá 1996,
formaður hennar er Þorsteinn I.
Sigfússon. íslendingar semja próf-
verkefni og sjá um að afla tilrauna-
tækja, einnig hafa þeir yfirumsjón
með störfum dómnefnda. Eðlis-
fræðingai- úr Háskóla íslands hafa
umsjón með prófagerð, en um 40
sérfræðingar verða í dómnefndum.
Ungu eðlisfræðingarnir og
fylgdarlið þeirra munu gera fleira
en að reikna. Farið verður í kynn-
isferðir um nágrenni Reykjavíkur,
erlendum gestum boðið í kvöld-
verð á íslenskum heimilum og ým-
islegt fleira verður til gamans gert.
ISérblöðídag fHsr V-öimbl ab ib
Boltinn
á Netinu