Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/IJorkell
PÉTUR Friðriksson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir innsigla samein-
inguna með handabandi.
Reykjavík
Morgunblaðið/RAX
NÝTT skilti við Kiðafellsá býður nú ferðalanga velkomna til Reykja-
víkur.
Kjalarneshrepp-
ur sameinast
Reykjavík
HÁTÍÐARSTEMMNING var í
Fólkvangi á Kjalarnesi á sunnudag-
inn þegar Kjalameshreppur samein-
aðist Reykjavík með formlegum
hætti. Mikill mannfjöldi var þar sam-
ankominn og var létt yfir viðstödd-
um, að sögn Péturs Friðrikssonar,
fráfarandi oddvita Kjalameshrepps.
Við sameiningarathöfnina flutti
Pétur Friðriksson ávarp og þakkaði
þeim sem unnið hafa að sameining-
unni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, flutti
einnig ávarp og af þessu tilefni færði
hún Kjalnesingum það að gjöf að
settar yrðu upp hljóðmanir og vind-
brjótar fyrir þéttbýlið á nesinu auk
þess sem gróðursettar yrðu plöntur.
Gefnar voru fleiri gjafir því Kjal-
nesingar færðu Reykjavíkurborg
blágrýtisstein úr fjörunni við Móa en
á honum eru áfest merki sveitarfé-
laganna og útskorin mynd af Esj-
unni. í lok dagskrárinnar í Fólk-
vangi kynnti síðan Jón Ólafsson ný-
útkomna bók um Kjalnesinga og
færði borgarstjóra fyrsta eintakið að
gjöf.
Ný skilti sett upp
Á sunnudagsmorgninum voru sett
upp ný skilti sem bjóða ferðafólk vel-
komið til Reykjavíkur. Kjalames-
merkin voru tekin niður og Reykja-
víkurskiltin sett upp í staðinn. Ánnað
þeirra stendur við veginn við Kiða-
fellsá, rétt áður en komið er inn í
Tíðaskarð, en hitt er við Leirvogsá.
Nýr afgreiðslutími verslana
_______ Hagkaups:
Skeifan, Smáratorg, Akureyri, Njarðvík:
Virka daga til
Laugardaga:
Sunnudaga:
Kringlan
Mán. • fim.
Föstudaga:
Laugardaga:
Sunnudaga:
20:00
10:00-18:00
12:00-18:00
2. hæð:------
10:00-18:30 i
10:00-19:00 !
10:00-18:00 !
13:00-17:00 I
HAGKAUP
Alltaf betrí kaup
íslenskur skipstjóri komst lífs af þegar
skip hans sökk undan strönd Suður-Georgíu
21 bjargaðist en 17 fórust
ÍSLENSKUR skipstjóri, Björgvin
Ármannsson frá Hveragerði,
bjargaðist ásamt 20 öðrum en 17
fórust þegar línuskipið Sudurhafid
sökk undan strönd Suður-Georgíu,
ekki langt frá Suðurskautslandinu,
sl. laugardag.
„Þeir höfðu verið að berjast við
ísingu í nokkra daga og mér skilst
að það hafi komið ágjöf á skipið,
svo það fylltist af ís, fór á hliðina
og rétti sig ekki upp aftur. Þeir
náðu ekki nema tveimur björgun-
arbátum en á hinni hliðinni voru
tveir bátar sem fóru strax í sjó-
inn,“ sagði Hrönn Bergþórsdóttir,
eiginkona Björgvins, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Björgvin gat
hringt heim og látið vita þegar
hann og hinir skipverjarnir tutt-
ugu voru komnir um borð í
spænskt björgunarskip sem tók þá
upp þegar þeir höfðu verið í bátun-
um í tvo til þrjá klukkutíma.
í áhöfn skipsins, sem var gert út
frá Höfðaborg af útgerðinni Alus-
hip, sem er í 40% eigu Færeyinga,
voru 38 manns. Þeir voru á tann-
fiskveiðum og vom að sögn
Hrannar komnir með fullt skip og
áttu að landa í Uruguay eftir tíu
daga.
Sjópróf í Höfðaborg
Björgvin og félagar hans sem
komust af eru nú um borð í björg-
unarskipinu á leið til
Falklandseyja og eru þeir væntan-
legir þangað á fimmtudag eða
fóstudag. Þaðan fljúga þeir svo til
Höfðaborgar þar sem sjópróf fara
fram.
„Þeir eru eitthvað kalnir en eng-
inn þó alvarlega, held ég. Það er
fimbulkuldi og vetur á þessum slóð-
um núna,“ segir Hrönn. Hún segist
hafa fengið símbréf frá manni sín-
um sl. fimmtudag. Þá hafi þeir ver-
ið að brjóta ís af skipinu en menn-
irnir, sem flestir eru frá Afríku,
hafi ekld verið vanir því.
Hrönn var að vonum slegin yfir
tíðindunum en jafnframt fegin að
heyra að bóndi hennar væri heill á
húfi. Hann hefur stundað sjóinn
síðastliðin 27 ár en ekki frá jafn-
fjarlægum stöðum og Höfðaborg
fyrr en nú, en hann tók við skipinu
í apríl sl. Hrönn er nú að reyna að
komast út til hans en segir það þó
ganga heldur treglega að koma út-
gerðinni í skilning um nauðsyn
þess.
Vandamál sem tengjast ártalinu 2000
í upplýsingakerfum og tækjabúnaði
Lausn vandans fær
ekki nægan forgang
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
opnaði í gær upplýsingavef Ríkis-
kaupa um vandamál sem tengjast ár-
talinu 2000 í upplýsingakerfum og
tækjabúnaði. Fjármálaráðherra
sagði á blaðamannafundi sem hald-
inn var af því tilefni að vandamálið
væri leysanlegt. Það væri hins vegar
mikil vinna framundan og nefnd um
vandamál sem tengjast ártalinu 2000
í upplýsingakerfum og tækjabúnaði
hefði það hlutverk að vera á verði
gagnvart þessum vandamálum. Á
fundinum kom fram að erfitt væri að
fá stjórnendur fyrirtækja til að gera
lausn vandans að forgangsatriði.
Haukur Ingibergsson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, er for-
maður nefndarinnar. Haukur sagði
að í raun hefði enginn yfirsýn yfir
hve stór vandinn væri og hve mikill
kostnaður fylgdi því að búa tölvu-
kerfi undir árið 2000. Hann sagði að
vandinn sem við blasir um aldamótin
væri leysanlegur. Það væri hins veg-
ar afar mikilvægt að fyrirtæki og
stofnanir hæfu undirbúning sem
fyrst. Ekki væri vænlegt að bíða síð-
ustu stundar.
„Þetta er mikil vinna og tímafrek
og vandinn er að oft reynist erfitt að
fá hana í forgang hjá fyrirtækjum.“
Haukur sagði aðalatriði að greina
vandann. „Það þarf að fara í gegnum
tækin og greina tölvukerfin sem eru
í notkun.“
Haukur lagði áherslu á að hver og
einn sem ætti einhvers konar búnað
sem sýslar með tíma bæri ábyrgð á
honum. Vandinn felst í því að fram á
þennan áratug tíðkaðist að tákna öld
í dagsetningum með tveimur stöfum
í stað fjöguiTa. Þess vegna er fyrir-
sjáanlegt að ýmis vandamál munu
koma upp í upphafi ársins 2000 verði
ekki brugðist við. Þetta á ekki ein-
göngu við um hefðbundin tölvukerfi
heldur einnig búnað eins og rann-
sóknartæki, heimilistæki og fleira.
Haukur kynnti starfsáætlun
nefndarinnar sem skiptist í fjóra
þætti. í fyrsta lagi er það sem snýr
að innviðum þjóðfélagsins. Hann
sagði það forgangsverkefni nefndar-
innar að fylgjast með því að þeir
yrðu í lagi þegar árið 2000 gengi í
garð. Innviðimir eru í fyrsta lagi
framleiðsla og dreifing á raforku,
heitu vatni, olíu og bensíni. í öðru
lagi fjarskipti og í þriðja lagi fjár-
málastarfsemi og hvers konar
greiðslumiðlun.
Annað atriði starfsáætlunar
nefndarinnar miðar að því að ekki
verði truflun á starfsemi opinberra
aðila vegna ártalsins 2000 í tölvu- og
tækjabúnaði. En m.a. hefur verið
samið við Skýrr um að samhæfa öll
Andlát
JÓNASÞÓR
JÓNASSON
JÓNAS Þór Jónasson
kjötverkandi lést á
heimili sínu í Reykjavík
aðfaranótt síðastliðins
sunnudags fimmtugur
að aldri.
Jónas Þór var fædd-
ur í Reykjavík 15. apríl
1948. Hann fór til sjós
15 ára gamall eftir nám
í Kársnesskóla í Kópa-
vogi og gagnfræðaskól-
anum á Höfn. Hann
fékkst við ýmis störf á
sjó og landi til ársins
1978. Þá réð hann sig
sem matsvein á Hrafn-
istu í Reykjavík þar sem hann var
til ársins 1981 er hann söðlaði um
og fór að starfa við Tommaham-
borgara. Árið 1983 hóf hann ásamt
fleirum rekstur Kjöt- og matvæla-
vinnslu Jónasar Þórs.
Hann var síð'an einn af
stofnendum Kjöts hf.
og opnaði verslunina
Gallerí Kjöt í október
1994.
Jónas Þór hafði mik-
inn áhuga á stjómmál-
um, ekki síst landbún-
aðar- og útvegsmálum.
Hann var virkur í Al-
þýðuflokknum og sat
um árabil í stjóm
flokksins. Jónas hafði
einnig mikinn áhuga á
sjóstangaveiði og end-
urvakti Sjóstangaveiði-
félag Reykjavíkur árið 1991 og var
formaður þess um árabil.
Eftirlifandi eiginkona Jónasar
Þórs er Katrín Þ. Hreinsdóttir. Þau
eignuðust þrjú börn.
upplýsingakerfi ríkisins að undan-
skildum nokkrum upplýsingakerfum
sem verða flutt í annað umhverfi.
Þriðja atriðið snýr að fyrirtækjum
og félögum en nefndin stefnir að því
að vekja athygli þeirra á vandamál-
inu. Fjórða atriði starfsáætlunarinn-
ar snýr að upplýsingagjöf og fellur
vefsíða Ríkiskaupa undir það. Net-
fang síðunnar er www.2000.stjr.is
--------------------
Líklega
íkveikja í
Austurbergi
SLÖKKVILIÐINU í Reykjavík gekk
greiðlega að slökkva eld sem kom upp
á miili klæðninga á suðurenda íþrótta-
hússins við Austurberg í Reykjavík
síðdegis á sunnudag. Nokkrar
skemmdir urðu á ytri klæðningum
hússins sem og á þakinu, en svo virð-
ist sem ekki hafi orðið neinar
skemmdir innandyra, að sögn aðal-
varðstjóra hjá Slökkviliðinu í Reykja-
vik. Nokkur reykur myndaðist, en
húsið var mannlaust þegar eldsins
varð vart. Talið er lfldegt að um
íkveikju hafi verið að ræða, sam-
kvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu.
Þá var Slökkviliðið í Reykjavík
kallað út síðdegis á sunnudag vegna
ótta um að eldur hefði kviknað í
húsakynnum Listasafns íslands við
Fríkirkjuveg. Þegar slökkviliðið kom
á staðinn reyndist hins vegar hafa
verið kveikt í rusli rétt við Listasafn-
ið, en við það barst nokkur reykur
inn í húsið.
------♦ ♦ ♦
Eftirskjálfti
á Hellisheiði
JARÐSKÁLFTI sem mældist 3,6
stig á Richter varð rétt fyrir klukkan
fimm í gærmorgun. Upptök skjálft-
ans voru norðan við Skálafell á Hell-
isheiði, í sömu sprungu og stærstu
skjálftarnir urðu í síðustu viku.
Einar Kjartansson, jarðeðlisfræð-
ingur á Veðurstofu Islands, sagði
skjálftann í gærmorgun eftirskjálfta
og að gera megi ráð fyrir fleiri slík-
um í þessari sprungu. „Nokkuð var
um að Reykvíkingar vöknuðu við
skjálftann og gera má ráð fyrir að
hann hafi einnig fundist fyrir austan
fjall,“ sagði Einar Kjartansson.