Morgunblaðið - 09.06.1998, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 7
Morgunblaðið/Porleifur Friðrik Magnússon
EINSTÆÐ tilviljun réð því að íjölskyldan varð vitni að hamförunum og náði að festa þær á filmu.
Sjónarvottar að
skriðuföllunum
Ótrúleg
upplifun
fjöl-
skyldu
ÞORLEIFUR Friðrik Magnússon,
verslunarstjóri í Reykjavík, varð
ásamt fjölskyldu sinni vitni að
hamförunum í Lómagnúp. Þau
voru á ferðalagi og voru að koma
úr Skaftafelli.
„Það er hreint ótrúlegt að þetta
skuli gerast einmitt sem við eig-
um leið hjá,“ sagði Þorleifur. „Við
vorum að koma úr Skaftafelli og
vorum á brúnni yfir Núpsvötn.
Fjöiskyldan var á útkikki og
skyndilega kölluðu börnin og
sögðu að eitthvað væri að gerast í
hliðinni. Það var lágskjjað og
þótti okkur skýjabólstrarnir ein-
kennilegir á Iitinn í hlíðinni. Þeg-
ar við stoppuðum komu þessar
svakalegu drunur sem stóðu hátt í
hálfa mínútu. Stálið var þá á leið-
inni niður og myndaðist þá mikið
reykjarkóf. Þetta er feiknafylla
sem hefur farið niður og vantar
líklega á um 100 metra kafla í
klettabergið. Við vorum þarna í
um tvo tíma og skoðuðum okkur
um og á meðan féllu þarna minni
fyllur sem líklega hafa vegið hver
og ein nokkra tugi tonna.“
Höfðum rætt um skriðuföll
„Við fjölskyldan höfum ferðast
mikið í gegnum tíðina og þá höf-
um við eignast okkar uppáhalds-
Qöll. Eitt þeirra er Lómagnúpur
og höfum við ævinlega, þegar við
keyrum þar framhjá, riíjað upp
framhlaupið sem varð í Núpnun
að vestanverðu árið 1789. Þá féll
fram í frjálsu falli mikið magn af
efni og dreifðist það um aurana
fyrir neðan. Þá höfum gjarnan
sagt að gaman hefði verið að fá
að fylgjast með í hæfilegri fjar-
lægð. Síðan gerist þessi atburður
sem við munurn seint eða aldrei
gleyma."
Morgunblaðið/Þorleifur Friðrik Magnússon
Á MEÐAN Þorleifur og fjölskylda dvöldu við skriðuna komu aðrar
minni í kjölfarið og var ekki laust við að þeim væri nokkuð brugðið.
Umhverfísviðurkenning
Reykjavíkurborgar
Morgunblaðið/Arnaldur
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Reykjavíkur afhendir
Einari Benediktssyni forstjóra Olíuverslunar íslands umhverfisviður-
kenningu Reykjavíkur.
Olíuverslun
S
Islands
heiðruð
UMHVERFISVIÐURKENNING
Reykjavíkurborgar var afhent í
annað sinn síðastliðinn föstudag.
Að þessu sinni komu verðlaunin í
hlut Oh'uverslunar Islands hf og
var nefnd um árlega umhverfísvið-
urkenningu Reykjavíkurborgar
einróma í vali sínu.
I ræðu Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra við af-
hendinguna kom meðal annars
fram að þegar verið var að skoða
þau fyrirtæki sem tilnefnd voru til
verðlaunanna, var sérstök áhersla
lögð á þátttöku starfsmanna í að
-framfylgja umhverfisstefnu við-
komandi fyrirtækja.
I vali nefndarinnar skipti m.a.
sköpum að Olíuverslun íslands hf.
hefur samþykkta umhverfisstefnu
og hefur unnið að því að kom á fót
umhverfisstjórnun og innra eftir-
liti í umhverfismálum. Einnig hef-
ur verið gert átak til að draga úr
mengun frá starfseminni en fyrir-
tækið setur bætiefni í allt bensín
sem dregur úr eyðslu og mengun.
Nefndin lagði einnig áherslu á
að þátttaka starfsmanna í um-
hverfisstefnunni væri virk en Olíu-
verslun Islands hf. hefur sérstakt
leiðbeiningarrit til starfsfólks hef-
ur verið gefið út sem fjallar um
meðhöndlun sorps með áherslu
ma.a. á endurnýtingu.
Fiugfélag íslands
Lítilsháttar
hækkun
fargjalda
FRÁ og með gærdeginum
hækkuðu fargjöld Flugfélags
Islands á innanlandsleiðum um
3,3 til 4,7% og er þá miðað við
flug fram og til baka. Að með-
altali hækka fargjöld um 298
kr. eða 3,3% frá Reykjavík til
Egilsstaða, Hornafjarðar,
Vestmannaeyja, ísafjarðar,
Akureyrar og Húsavíkur, en
um 410 kr. frá Akureyri til
Grímseyjar, Raufarhafnar,
Þórshafnar, Vopnafjarðar, ísa-
fjarðar og Egilsstaða.
Ástæða þessarar hækkunar
segir Páll Halldórsson fram-
kvæmdastjóri vera lakari af-
koma félagsins. „Við höfum
haldið því fram frá því í upphafi
að efth' að flugið var gefið
frjálst væri verð of lágt og ekki
hægt að reka félagið á þeim
grunni. Afkoman hefur staðfest
það og eftir að samkeppnisaðil-
ar okkar hækkuðu hjá sér þá
höfum við fylgt þeim eftir. Eg
vil þó taka fram að það eru
ekki öll fargjöld sem hækka og
eru sem dæmi fargjöld fyrir
námsmenn, öryrkja og ellilíf-
eyrisþega óbreytt.“
Ung’ir fram-
sóknarmenn
fagna rannsókn
STJÓRN Sambands ungra fram-
sóknarmanna hefur samþykkt álykt-
un þar sem lýst er yfir vanþóknun á
„aðför þingmanna stjórnarandstöð-
unnar og Sverris Hermannssonar,
fyirverandi bankastjóra, á hendur
Finni Ingólfssyni viðskiptaráð-
herra“.
Stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna fagnar þeirri rannsókn
sem yfirvöld hafa ákveðið á málefn-
um Lindar og Landsbankans og seg-
ir í ályktuninni að formbreyting rík-
isbankanna, sem framkvæmd hafi
verið af Finni Ingólfssyni, sé stærsta
skrefið sem stigið hafi verið til að-
halds og nútímalegi'a viðskiptahátta
í ríkisbankakerfinu.
Þá segir einnig í ályktuninni:
,Árásir Sverris og stjórnarandstöðu
eru ómaklegar og ómálefnalegar og
einkennast fremur af persónulegri
óvild í garð ráðherrans og Fram-
sóknarflokksins heldur en af sann-
leiksást og vilja til þess að uppræta
spillingu. Ungir framsóknarmenn
benda Sverri Hermannssyni og
lagsmönnum hans í stjórnarandstöð-
unni s.s. Sighvati Björgvinssyni,
Össuri Skarphéðinssyni, Svavari
Gestssyni og Ástu Ragnheiði Jó-
hannesdóttur, að líta sér nær og
taka til í eigin ranni áður en þau
dæma aðra.“
PAGEPRO 12:12 eintök ó mín.
600x600 dpi. Aukabúnaður:
Netkort,PostScript og pappirsbakki.
PAGEPRO 6: 6 eintök á mín.
600x600 dpi, PCL 5e samhæfður.
COLOR PAGEPRO:
Fyrir PC og IVlat.
3 eintökí lit, 12 eintök
sv/hv. 6 mín. 600x600 dpi.
Aukabónaður:
Netkort,PostScript og
pappírsbakki.
PAGEPRO 20: 20 eintök á mín.
A3 (yfirstærð) 600x600 dpi.
Aukabúnaður: Netkort,PostScript
og pappírsbakki.
MINOLTA IfClimDUIMMTJUrl
/ / .
SKYR MYND-SKYR HUGSUN SÍÐUMÚL112 108 REYKJAVÍK SÍMI 510 5500 510 5520 www.kjaran.is
PPLYSINGAR A LJÓSHRAÐAi
LASERPRENTARA BYLTINGIN FRA MINOLTA
-Á VERÐI SEM KEMUR
Á ÓVART!
PRENTARIA s
HVERT SKRIFBORÐ
A3 PRENTARI
r
LITAPRENTARI
» « " *. NETPRENTARI wRF * ♦ . „ ■.*¥% - .. . ýr '. * * #■ m' *