Morgunblaðið - 09.06.1998, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Héraðsdómur Reykjavikur staðfestir ákvörðun Fiskistofu
Gjaldtaka vegna ólög-
mæts afla staðfest
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær Fiskistofu af kröfum
fyrirtækisins I nausti, sem rak fisk-
verkun í Hafnarfirði og á Bíldudal, og
krafðist ómerkingar á þeirri ákvörð-
un Fiskistofu að leggja 23,5 milljóna
króna sérstakt gjald á fyrirtækið
vegna verkunar, vinnslu og viðskipta
með ólögmætan sjávarafla.
Gjaldið var lagt á eftir að Fiski-
stofu bárust síðsumars árið 1996
ábendingar um að verulegum
þorskafla hefði á því ári og 1995 ver-
ið landað inn í fiskverkun fyrirtækis-
ins, án þess að afli hefði verið veginn,
eins og reglur segja til um. Eftir
rannsókn á því hvort samræmi væri
milli löglega innvegins hráefnis og
afurðaframleiðslu í fyrirtækinu frá 1.
janúai- til 17. september 1996 var
það mat Fiskistofu miðað við gefnar
forsendur um nýtingu að 209,5 tonn
af hráefni skorti til að unnt væri að
standa undir framleiðslunni árið
1995, þegar fyrirtækið framleiddi
555.5 tonn af tandurverkuðum salt-
físki, en uppgefin hráefniskaup voru
792.6 tonn. A tímabilinu 1. janúar til
17. september 1996 skorti, miðað við
sömu forsendur, að mati Fiskistofu,
59.7 tonn til að unnt væri að standa
undir framleiðslunni, sem var
395.565 kg af tandurverkuðum salt-
fiski, en uppgefin hráefniskaup voru
649.7 tonn af slægðum þorski og
102,3 tonn af óslægðum þorski.
Vegna þessa var lagt á fyrirtækið
23,5 milljóna króna sérstakt gjald.
Nýtingarhlutfall
Fyrirtækið mótmælti gjaldtökunni
og taldi að við meðferð málsins hefði
ekki verið gætt jafnræðisreglu
stjórnsýslulaga og ákvæði laganna
um rannsóknarskyldu og andmæla-
rétt hefðu einnig verið brotin. Þá
taldi fyrirtækið að verið væri að
snúa við sönnunarbyrði og refsa fyr-
ir það að fyrirtækið hefði náð góðu
nýtingarhlutfalli í sinni vinnslu. Það
hafi náð allt að 61,62% nýtingu í stað
þeirrar 50% nýtingar sem byggt var
á í forsendum Fiskistofu og ekki hafi
verið neinn grundvöllur fyrir álagn-
ingu gjaldsins.
I niðurstöðum héraðsdómsins var
þessum málflutningi fyrirtækisins
hafnað. Meðal annars segir að af
gögnum málsins verði ráðið, að
skráningu á afla, framleiðslu og
birgðum hafi veríð verulega ábóta-
vant hjá fyrirtækinu og hafi það ekki
gefið haldbærar skýringar á því.
Vegna skorts á innra eftirliti hjá fyr-
irtækinu og upplýsingaskorts þess
að öðru leyti hafi Fiskistofu verið
rétt að beita heimildarákvæðum laga
til að leggja á hið sérstaka gjald.
Varlega áætlað hjá Fiskistofu
„Er að mati dómsins varlega áætl-
að hjá Fiskistofu, að stefnandi hafi, á
þeim tímabilum, sem að framan
greinir, verkað í fiskvinnslu sinni
269.391 kg af ólögmætum sjávarafla,
209.594 kg fyrra tímabilið og 59.797
kg hið síðara," segir í niðurstöðum
dómsins, sem Helgi I. Jónsson og
Allan V. Magnússon héraðsdómarar
kváðu upp ásamt meðdómsmannin-
um dr. Kristbergi Kristbergssyni,
dósent.
Síðar segir meðal annars: „Var því
rétt staðið að álagningu þessari,
henni í hóf stillt og því ekki brotið
gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórn-
sýslulaga." Auk þess að staðfesta
ákvörðun Fiskistofu var fyrirtækið
dæmt til að greiða 300 þúsund krón-
ur í málskostnað.
r Huggulegt
í sumarhúsinu
Ríkulegt úrval af fallegum gardínuefnum,
gardínustöngum, dúkum, pottaleppum,
diskamottum, svuntum o.fl. fyrir sumarhúsið.
gluggatjaldadeild, Skeifunni 8
Arsþing Junior Chamber í Monte Carlo
Hafa unnið
ræðukeppni
tvo ar 1 roð
FJÖLMARGIR Ís-
lendingar eru nú á
ársþingi Junior
Chamber hreyfingarinn-
ar sem haldið er í Monte
Carlo en það er sett í
dag, þriðjudaginn 9. júní.
Evrópuþingið er haldið
árlega og er búist við að
um 2.500 gestir sæki
þingið að þessu sinni.
Asa María Björnsdótt-
ir er varalandsforseti
Junior Chamber á ís-
landi.
„Þingið stendur í þrjá
daga en öll aðildarlönd
hreyfingarinnar í Evrópu
koma þarna saman og
leggja rækt við svið al-
þjóðasamstarfs.
Stærsti þáttur þings-
ins eru þingfundir en
námskeiðahald skipar
veglegan sess.
- Er starfsemi Junior Cham-
ber útbreidd?
„Við erum þrjú hundruð í JC
hreyfingunni hér á landi en hún
er starfrækt í yfir 120 þjóðlönd-
um og þar af eru 35 í Evrópu.“
Ása María segir að alls séu um
400.000 félagar í Junior Chamber
hreyfingunni en hún er opin öll-
um einstaklingum á aldrinum 18-
40 ára.“
- Hvers konar hreyfíng er
Junior Chamber?
„Junior Chamber er alþjóðleg
hreyfing og markmiðið með
starfsemi hennar er að þjálfa ein-
staklinga til forystu. Þá er lögð
áhersla á þjálfun í mannlegum
samskiptum með þátttöku í verk-
efnavinnu. Þekktast er Junior
Chamber líklega fyrir ræðu-
mennsku og flestir sem koma til
okkar eru að leita að þjálfun í
framkomu eða stjómun."
Þá segir Ása María að sjálfs-
stjórnun sé stór þáttur af þjálf-
unarferlinu. „Eitt það mikilvæg-
asta sem miðað er að er að með
starfseminni í JC er að auka
sjálfstraust félagsmanna og
hjálpa þeim að trúa á eigin hæfi-
leika og vinna að því að láta
drauma sína rætast. Við trúum
því að mögulegt sé að láta
drauma rætast með því að nýta
allar leiðir til þjálfunar hvort
heldur sem er í Junior Chamber
eða á öðrum vettvangi og með því
að hafa óbilandi trú á því mark-
miði sem verið er að stefna að,“
segir hún.
Þá fá félagsmenn hér á landi
þjálfun í framkomu og ræðu-
mennsku og Ása María segir að
starfsemin fari fram í ellefu að-
ildarfélögum. í skipulagðri dag-
skrá gefst félögum
tækifæri á að þjálfa
sig í fundarstjóm,
fundarsköpum, skipu-
lagningu og ræðu-
mennsku.
- Taka Islendingar
virkan þátt á Evrópuþinginu?
„Já, við erum um 30 talsins
sem fórum á þingið og íslending-
ar hafa til dæmis verið mjög
sterkir á sviði ræðumennsku.
Síðastliðið ár báru okkar full-
trúar sigur úr býtum í ræðu-
mennsku. í ár er það Þorsteinn
Gunnar Jónsson félagi JC
Reykjavíkur sem er fulltrúi okk-
ar og mun keppnin fara fram 11.
júní.“
Ása María segir að auk þing-
funda, námskeiðahalds og ræðu-
keppni séu haldin svokölluð þjóð-
arkvöld en þau eru notuð til að
kynna menningu og sögu landa
►Ása María Björnsdóttir er
fædd á Akranesi árið 1963.
Hún gekk til liðs við Junior
Chamber Reykjavík árið 1994
og ári síðar starfaði hún sem
varaforseti á sviði stjórnunar í
JC Reykjavík. Sama ár var
hún nefndarmaður í byggða-
málanefnd og markaðsráði JC
Islands. Þá hlaut hún útnefn-
inguna Stjórnarmaður ársins.
Árið 1996 starfaði Ása María
sem forseti JC Reykjavíkur og
var nefndarmaður í Stefnu-
mótunarnefnd JC íslands.
Einnig lauk hún námskeiði
fyrir leiðbeinendur PRIME -
CLT (Certificate local trainer)
í Svíðþjóð. Á siðasta ári var
Ása María formaður íjármála-
nefndar JC Islands og einnig
framkvæmdasljóri viðskipta-
sviðs JC íslands svo og formað-
ur kynningarnefndar JC
Reykjavíkur og umsjónarmað-
ur með alþjóðasamskiptum.
Þetta árið gegnir hún því hlut-
verki að vera varalandsforseti
Junior Chainber íslands á sviði
alþjóðasamstarfs og byggðar-
lags.
og til að treysta tengslin milli
þjóða.
- Halda Islendingar námskeið
á þessu þingi?
„Já, Bjarni Ingibergsson verð-
ur með námskeið en hann er einn
af 26 stjórnarmönnum í heims-
stjórn og hefur umsjón með Pól-
landi, Ungverjalandi, Sviss,
Austurríki og Þýskalandi.
Námskeiðið sem Bjarni stend-
ur fyrir fjallar um hvernig árang-
ur næst með sterkri forystu.
Bjarni var einnig fenginn til að
halda námskeið á Af-
ríkuþinginu í Massa-
sucra á Fílabeins-
ströndinni í maí síð-
astliðnum."
- Hvaða önnur nám-
skeið standa til boða á
þinginu?
„Það eru ýmis námskeið sem
standa til boða og eitt þeirra
gengur til dæmis út á að kort-
leggja hugann. í heilanum eru
vinstra og hægra heilahvel sem
starfa ólíkt. Á námskeiðinu verð-
ur reynt að sýna fram á hvernig
auka má virkni hugans með því
að virkja hvelin á réttan hátt.
Þá mun leiðbeinandi koma alla
leið frá Nígeríu og vera með
námskeið þar sem hann færir rök
fyrir því að engin hindrun sé óyf-
irstíganleg og ekkert markmið of
háleitt ef fólk á annað borð vill ná
árangri.“
Ása María Björnsdóttir
einnig
Um 400.000
félagar eru í
JC hreyfing-
unni