Morgunblaðið - 09.06.1998, Page 10

Morgunblaðið - 09.06.1998, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hátíðarhöld í tilefni sjómanna- dagsins SJÓMANNADAGURINN var haldinn hátíðlegur í blíðskapar- veðri á sunnudag. Hátíðarhöld í tilefni dagsins stóðu yfir í Reykja- vík allan daginn en þetta var í sextugasta skipti sem haldið var upp á sjómannadaginn. Fyrir hádegi var m.a. helgi- stund við Minningaröldur sjó- mannadagsins í Fossvogskirkju- garði. Þar flutti biskupinn yfir Is- landi, herra Karl Sigurbjömsson, bæn að viðstöddum forsetahjón- unum, herra Ólafi Ragnari Gríms- syni og frú Guðrúnu Katrínu Þor- bergsdóttur. Eftir hádegi voru hátiðarhöld á Miðbakka við Reylgavíkurhöfn. Þar voru fiutt ávörp og veittar viðurkenningar. Að því loknu voru ýmis skemmtiatriði, t.a.m. kappróður skipshafna og kodda- slagur. Sjómaniiadagsávarp Þorsteins Pálssonar Gagnrýndi andstæðinga fisk- veiðistj órnunarkerfisins ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra gagnrýndi í ræðu sinni á sjómannadeginum þá sem vilja „kollvarpa fiskveiðistjórnunarkerfinu" og falaðist eftn’ því að þeir sem það gera „geri grein fyrir hvað þeir ætla að gera, hverju á að breyta". Sjávarútvegsráðherra sagði árangur þann sem fengist hefur í uppbyggingu fiskistofnanna mikið fagnaðarefni, með aukningu þorskveiðikvótans á næsta fiskveiðiári væru menn að njóta ávaxta þeirrar uppskeru. „Þeir sem vilja bylta fiskveiði- stjómunarkerfinu búa til þann hræðsluáróður að örfá stórfyrirtæki séu að gleypa allan íslenskan sjávarútveg. En hverjar eru staðreyndimar í þeim efnum? Fyrir 60 árum seldi eitt fyrirtæki annan hvern þorsk sem fluttur var út úr landinu." Ráð- herra benti á að stærsta fyrirtækið í sjávaiútvegi í dag næði ekki fjórðungi þessarar hlutdeildar í dag. Eigendur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja hefðu aldrei verið fleiri en nú. Ráðherra sagði ennfremur að efnahagslegur ár- angur síðustu ára væri fyrst og fremst að þakka ábyrgri og aðhaldsamri efnahagsstjórn og styrk- um tökum á fiskveiðimálum. Hann vitnaði m.a. í úttekt norræna ráðherraráðsins þar sem Islend- ingar eru sagðir fremstir norrænna þjóða í fisk- veiðistjórnun. Ráðherra sagði að þeir sem vildu kollvarpa kerfinu kölluðu verðbólgu og minnkandi kaupmátt yfir þjóðina. Sókn umliverflssamtaka að réttinum til að veiða fisk stærsta ógnin Ki’istján Þórarinsson stofnvistfræðingur LÍÚ var- aði í sinni ræðu við sókn að réttinum til að veiða fisk sem hann líkti við sóknina að réttinum til hvalveiða. Hann sagði íslendinga verða að vera á varðbergi gagnvart þessari sókn „enda kann hún á komandi árum að reynast stærsta ógnin við lífið í landinu". Hann sagði að réttinum til að nýta fiski- miðin fylgdi sú skylda að ganga vel um fiskistofna og nýta á sjálfbæran hátt. Kristján sagði Islend- ingum mikilvægt að halda áfram á sömu framfara- braut og vinna á eigin forsendum og „ekki láta áróðursmenn erlendra umhverfissamtaka leiða starfið afvega með óupplýstum málflutningi sín- um“. Mikilvægt væri að viðhorf íslendinga kæmust á íramfæri við neytendur í markaðslöndum. Kristján sagði samstöðu íslenskra sjómanna og útvegsmanna „um skynsamlega nýtingu fiski- stofna og góða umgengni um auðlindina“ vera þann grunn sem byggja ætti á í sókn á erlendum mörkuðum. Þrátt fyrir að athygli hefði beinst að deilum þeirra undanfarið væri meira sem samein- aði í þeim samskiptum en sundraði. ■ Morgunblaðið/Þorkell ÞAÐ var ýmislegt til skemmtunar á sjómannadeginum. Hér sýnir þyrla Landhelgisgæslunnar björgun, \ \ ^ ■ n f f ' n [ ,• • s , L'Trrl Á INGÓLFSTORGI í miðbæ Reykjavíkur var stiginn línu- dans í góða veðrinu. Morgunblaðið/J6n Svavarsson HILMAR Snorrason, skipstjóri á Sæbjörginni, Slysavarna- skóla sjómanna, afhenti Heimi Pálmasyni og Þórði Þórðar- syni, fulltrúum Mánabergsins, Sæbjargarbikarinn ásamt Kristbirni Óla Guðmundssyni. Sæbjarnarbikarinn, sem er farandgripur ætlaður til eflingar áhuga sjómanna um ör- yggismál, var nú afhentur í áttunda sinn. Flöskuskeyti frá Nökkva frá Blönduósi fundust í Bretlandi og Frakklandi Sandgerði Kveðjur í flöskum vekja athygli erlendis Morgunblaðið/Jón Sigurðsson KÁRI Kárason skipsljóri á Nökkva HU-15 skoðar hér verkefnamöpp- una frá frönsku börnunum sannfærður um að þessi minning fylgi hon- um ævina á enda. Blönduósi - Á tímum öflugra fjar- skipta eru flöskuskeyti til þess að gera seinvirk boðleið. En flösku- skeyti sem rekur um óravíddir hafsins og ratar að lokum í hend- ur einhvers í íjarlægu landi sem svarar því, vekur gleði og eftír- væntingu. Kári Kárason, skip- stjóri á rækjutogaranum Nökkva frá Blönduósi, var við veiðar á Flæmska hattinum í sjö mánuði árið 1996 og hinn 26. júlí kastaði hann þremur flöskum fyrir borð með ósk um að finnandi hefði samband. Tvær flöskur eru komn- ar í manna hendur og hefur Kári fengið svar rúmlega einu og hálfu ári eftir að flöskurnar fóru í haf- ið. Þá flösku, sem fyrr fannst, rak á franska íjöru, ekki fjarri borg- inni Quimper á sunnanverðum Bretagne skaga. Þá flösku fann skólastjóri nokkur hinn 14. janúar sl. Hin flaskan fannst á enskri ströndu 8. mars eigi langt frá borginni Exeter á suðvestur Englandi. Kári Kárason skipsljóri var nánast búinn að gleyma því að hann hefði sent þrjú flöskuskeytí og því kom það skemmtilega á óvart þegar níu ára ensk stúlka sendi honum bréf um miðjan apríl og sagði að bróðir sinn hefði fundið flöskuskeytið. Um viku seinna kom heil mappa frá franska skólastjóranum sem hafði að geyma myndir og verkefni sem níu ára krakkar í Pierre Le Lec skólanum í Audierne höfðu unnið um flöskuskeytið. Kári er búinn að svara báðum þessum bréfum og frönsku krökk- unum sendi hann myndbandsupp- töku af lifínu á Blönduósi og um borð í Nökkvanum. Kári sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri hreint út sagt stórkostlegt að fá svona sterk viðbrögð við flöskuskeytunum. Dóttir Kára, Sandra Dís, sem verður tíu ára á þessu ári, fór með möppuna frá frönsku krökkunum í skólann og er ætlunin að vinna verkefni um ísland næsta vetur í skólanum og senda frönsku krökkunum það. Kári sagði að það væri Iireint ótrúlegt hverju flaska með kveðju frá Blönduósi gæti komið af stað. Nú þegar hefur athygli nokkurra franskra barna verið vakin á fs- landi, landi sem þau líkast til hafa aldrei heyrt, minnst á. Einnig hef- ur þetta kveikt áhuga krakkanna í bekknum hennar Söndru Dísar á að segja frá landi sínu og þjóð. Aðsúgur gerður að lögreglu TALIÐ er að um þrjátíu manns hafi gert aðsúg að lögreglumönnum í Keflavík fyrir utan samkomuhúsið í Sandgerði aðfaranótt sunnudags, er þeir reyndu að handtaka karlmann fyrir ölvun og óspektir. Einn karl- maður var handtekinn til viðbótar og er líklegt að mennirnir tveir verði kærðir m.a. fyrir það að torvelda störf lögreglunnar. Aðdragandinn var sá að lögreglan í Keflavík var kölluð á vettvang vegna óláta í ölvuðum manni efth- dansleik í samkomuhúsinu í Sand- gerði aðfaranótt sunnudags. Efth' að sá hafði gert sér lítið fyrir og migið yfir vélarhús lögreglubílsins, var hann handtekinn. Við það blönduðu nokkrir dansgesth- sér í gang mála og reyndu að torvelda handtöku mannsins, að sögn lögreglunnar í Keflavík. Fleiri lögreglumenn í Keflavík voru kallaðh- til og þurftu að nota táragas til að ná m.a. tökum á mönnunum tveimur sem mest höfðu sig í frammi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.