Morgunblaðið - 09.06.1998, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Vernharð
fær fjár-
stuðning
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að
Akureyrarbær verði þátttakandi í
fjárstuðningi til Vernharðs Þorleifs-
sonar, júdómanns í KA, með mánað-
arlegri greiðslu, kr. 30.000, í sér-
stakan styrktarsjóð.
A fundi bæjarráðs fyrir helgi var
lagt fram bréf þar sem leitað var til
Akureyrarbæjar og nokkurra fyrir-
tækja um aðild að styrktarsjóði.
Gert er ráð fyi'ir að aðilar greiði
ákveðna upphæð til sjóðsins mánað-
arlega næstu tvö ár.
Sjóðnum verður varið til greiðslu
á keppnis- og æfingaferðum Vern-
harðs Þorleifssonar vegna undir-
búnings fyrir þátttöku á Ólympíu-
leikunum í Sydney í Astralíu árið
2000.
---------------
Mátti sjá á
eftir bjórnum
LÖGREGLAN á Akureyri hefur
stöðugt eftirlit með áfengiskaupum
unglinga og sl. föstudag stöðvuðu
rannsóknarlögreglumenn í eftirliti
ungmenni sem var á gangi í miðbæn-
um með átján flöskur af áfengum
bjór. Reyndist ungmennið enn ekki
komið á áfengiskaupaaldur og mátti
því sjá á eftir miðinum í geymslur
lögreglunnar.
í síðustu viku voru 18 umferðaró-
höpp skráð á Akureyri og urðu minni
háttar meiðsli í þremui' þeiira. Þá
voru 62 kærðir fyrir of hraðan akst-
ur, 3 fyrir ölvun við akstur og 22 voru
ekki með ökuskírteini meðferðis.
Markmiðið að efla fagmennsku,
kennslu og rannsóknir
SAMSTARFSSAMNINGUR milli
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri, FSA og Háskólans á Akureyri,
HA, var undirritaður sl. laugardag.
FSA og HA vinna saman að því að
efla starfsemi í báðum stofnunum á
sviði kennslu, rannsókna, endur-
menntunar og bókasafnsþjónustu.
Einnig er samstarf um nýtingu hús-
næðis. Markmið samstarfsins er að
efia fagmennsku, kennslu og rann-
sóknir á sviði heilbrigðismála.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
HA, sagðist mjög ánægður með
undirritun samningsins. Stofnanirn-
ar hafi lengi unnið saman en tími
hafi verið kominn til að binda sam-
starfið í form og efla enn frekar.
Þorsteinn sagði þetta ánægjulegan
dag fyrir HA. „Við vorum að út-
skrifa 22 hjúkrunarfræðinga og
vonandi eiga þeir eftir að finna
starfsvettvang á FSA síðar.“ Þor-
steinn sagði báða aðila ætla að beita
sér fyrir því að FSA verði skilgreint
sem háskólasjúkrahús, þar sem
ákveðnar stöður verði beinlínis
bundnar ákveðinni kennslu og rann-
sóknarskyldu við HA.
Sterkari saman
Baldur Dýrfjörð, formaður
stjórnar FSA, sagði að með samn-
ingnum gæfist starfsfólki kostur á
góðri endurmenntun sem væri for-
senda fyrir faglegu starfi. Þetta
væri einn áfangi á leið til bjartrar
framtíðar og lengi gæti gott batnað.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra heiðraði viðstadda með
nærveru sinni en hún var ásamt eig-
inmanni sínum, Haraldi Sturlaugs-
syni, viðstödd útskrift sonar þeirra
úr sjávarútvegsdeild HA. Ingibjörg
sagði að með þessum samningi væri
verið að tryggja samvinnu þessara
stofnana enn betur. Það renndi
stoðum undir það að FSA verði enn
betra sjúkrahús. Hún sagði mikil-
vægt fyrir landsbyggðina að eiga
þessar sterku stofnanir og að sam-
an væru þær enn sterkari.
Samstarfssamningur FSA og HA undirritaður
Morgunblaðið/Kristján
ÞORSTEINN Gunnarsson, rektor HA, og Baldur Dýrfjörð, formaður
stjórnar FSA, takast í hendur eftir undirritun samningsins .
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra var viðstödd undirritun
samstarfssamningsins. Með henni á myndinni eru Halldór Jónsson,
framkvæmdastjóri FSA, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA.
SLÖKKVILIÐSMENN á Akureyri mættu til leiks í róðrarkeppni Sjómannadagsráðs í fullum skrúða og tóku
hraustlega á eins og aðrir keppendur.
Á HAFNARSVÆÐINU voru leiktæki fyrir yngstu kynslóðina sem
vöktu mikla lukku.
LÖGMANNSSTOFA
Lögmannsstofa undirritaðs er flutt að Kaupvangsstræti
4, 2. hæð, Akureyri.
Opið alla virka daga kl. 9.00 -12.00 og kl. 13.00 -16.00.
Sigurður Eiríksson héraðsdómslögmaður.
Sími4622925.
Fax 4622955.
E-mail sigurdure@islandia.is
ÚTBOD
Húsnæöisnefnd Akureyrar óskar eftir tilboöum
í aö byggja 16 íbúðir í fjórum fjögurra íbúöa
fjölbýlishúsum sem byggja á viö Snægil 30-36
á Akureyri, stærð samtals 1.497 m2.
Áætluð verklok eru 1. september 1999.
Útboðsgögn eru afhent á Arkitekta- og verkfræðiskrifstofu
Hanks ehf., Kaupangi v/Mýrarveg, Akureyri,
gegn 30.000.- króna skilatryggingu.
Ef þeir sem taka útboðsgögn skila ekki tilboði í verkið
endurgreiðist aðeins helmingur af skilatryggingu
við skil á gögnum.
Tilboð verða opnuð í fundarherbergi Húsnæðisnefndar
Akureyrar að Skipagötu 9, 3. hæð, Akureyri,
þriðjudaginn 23. júní 1998 kl. 11.00.
HÚSNÆÐISSKRIFSTOFAN Á AKUREYRI,
Skipagötu 9, sími 462 5311.
Góð þátttaka í hátíðahöldunum
MJÖG mikil þátttaka var í há-
tiðahöldum tengdum sjómanna-
deginum á Akureyri um helg-
ina. Upphitunin hófst strax á
föstudag og má segja að dag-
skráin hafi verið í gangi fram
yfir sjómannaveisluna og dans-
leikinn í íþróttahöllinni á sunnu-
dagskvöld, sem stóð fram á
rauðanótt. Dagskráin var ekki
síst sniðin fyrir yngsta mann-
fólkið, sem kunni virkilega vel
að meta það sem í boði var.
Sjómannadagsráð stóð að
venju fyrir viðamikill dagskrá
en fékk að þessu sinni til liðs
við sig nokkra aðila sem einnig
stóðu fyrir uppákomum. Fyrir-
tækin Qögur í Oddeyrarskála,
Eimskip, Flugfélag Islands,
TVG Zimsen og Dreki, stóðu
fyrir útiskemmtun á Oddeyrar-
tanga á laugardag og Flutn-
ingamiðstöð Norðurlands og
Pizza 67 buðu upp á skemmti-
siglingu og grillveislu með
Sæfara um Pollinn. Þá fór hin
árlega róðrarkeppni sjómanna
og landssveita fram og gerðu
skipverjarnir á Akureyrinni EA
sér lítið fyrir og sigruðu fimmta
árið í röð.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
UNGIR sem aldnir skemmtu sér vel við sjávarsíðuna um helgina og
gat verið gott að setjast á bryggjukautinn og hvfla lúin bein.
Svanfríður Jónasdóttir,
alþingismaður, flutti hátíðará-
varp á fjölskylduskemmtun á
sunnudag og Magnús Scheving
brá á leik með ýmsum
uppákomum. Þá var haldinn
rútudagur við Umferðarmið-
stöðina, sem hófst með
hópakstri um 30 rútubifreiða
um bæinn.