Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hraðfrystihús Eskifjarðar
Grandi þriðji
stærsti hluthafínn
Stærstu hluthafar Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf.
Hluthafar 15. maí 1998 Nafnverð, kr. Eignarhluti
1. Aðalsteinn Jónsson 97.458.068 23,14%
2. Guðlaug Stefánsdóttir 57.899.262 13,75%
3. Eskja hf. 21.941.571 5,21%
4. Skeljungur hf. 21.174.521 5,03%
5. Tryggingamiðstöðin hf. 19.466.262 4,62%
6. Grandi hf. 18.000.000 4,27%*
7. Þorsteinn Kristjánsson 17.366.270 4,12%
8. Elfar Aðalsteinsson 15.723.190 3,73%
9. Kristinn Aðalsteinsson 15.722.595 3,73%
10. Lífeyrissjóður Norðurlands 15.111.250 3,59%
10 stærstu samtals: 299.862.989 71,19%
Aðrir hluthafar: 121.358.093 28,81%
Heildarhlutafé: 421.221.082 100,00%
| * Grandi hf. hefur tilkynnt kaup á 7,14% hlutafjár en hluti þeirra er óskráður. |
GRANDI hf. er þriðji stærsti hlut-
hafinn í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar
hf., á eftir hjónunum Aðalsteini
Jónssyni forstjóra og Guðlaugu
Stefánsdóttur. Grandi tilkynnti í
síðasta mánuði að félagið hefði eign-
ast 7,14% í Hraðfrystihúsinu en
hluthafaskrá félagsins hefur enn
ekki fengið tilkynningar um öll
hlutafjárkaupin.
Litlar aðrar breytingar hafa orðið
á hlutafjáreign 10 stærstu hluthafa
félagsins frá því Hraðfrystihúsið
var skráð á Verðbréfaþing Islands á
síðari hluta síðasta árs. Þó hefur
Aðalsteinn Jónsson selt um 1% af
sínum hlut og nokkrir minni hlut-
hafar úr fjöldskyldu hans hafa
einnig minnkað sína hluti. Tíu
stærstu hluthafar félagsins eiga
samkvæmt hluthafalista 71,19% en
áttu 72,83% í ágúst á síðasta ári.
Þess ber þó að geta að eftir er að
skrá kaup Granda á 2,87% hlut.
Heildarhlutafé í Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar hf. er nú liðlega 421
milljón kr. á nafnverði. Bréf í félag-
inu voru seld á genginu 9,40 á síð-
asta söludegi. Samkvæmt því er
markaðsvirði hlutafjár félagsins
tæpir 4 milljarðar kr. og 37,88%
eignarhlutur Aðalsteins og Guð-
laugar er því 1,4 til 1,5 milljarðar
kr. að markaðsvirði.
Auðlind hf.
403 millj-
óna króna
hagnaður
í fyrra
HAGNAÐUR hlutabréfa-
sjóðsins Auðlindar hf. vegna
rekstrarársins 1. maí 1997 til
30. apríl 1998 nam samkvæmt
rekstrarreikningi 403 milljón-
um króna. Innborgað hlutafé
félagsins var 1.524 m.kr. 30
apríl sl. Til viðbótar átti félag-
ið eigin bréf að fjárhæð 54
m.ki’. Eigið fé 30. apríl 1998
nam samtals 3.448 m.kr. sam-
anborið við 3,555 m.kr 30 apríl
1997. Innra virði sjóðsins var
því 2,26 í lok rekstrarársins.
Aðalfundur félagsins verð-
ur haldinn þann 23. júní nk.
Stjóm félagsins leggur til að
greiddur verði 7% arður til
hluthafa.
I fréttatilkynningu kemur
fram að hluthöfum í Auðlind
hf. hafi fjölgað um 1.800 á síð-
asta ári og er félagið nú næst
fjölmennasta hlutafélag lands-
ins með um 8.700 hluthafa.
Asíuríki enn á
meðal þeirra
samkeppnishæfustu
Singapúr
trónar enn
í efsta sæti
London. Reuters.
SINGAPÚR og Hong Kong halda
sessi sínum sem samkeppnishæf-
ustu lönd heims þrátt fyrir fjár-
málaöngþveiti í Asíu samkvæmt
árlegi skýrslu, World Economic
Forum.
Löndin halda tveimm’ efstu sæt-
unum á árlegum lista skýrslunnar
um samkeppnishæfustu ríki heims-
ins vegna þess að Asíukreppan hef-
ur ekki skaðað langtíma vaxtar-
möguleika þeirra.
„Að okkar mati leiða skammtíma
áhrif ekki til þess að vöxtur dragist
saman til langframa," sagði
Andrew Warner, einn höfunda árs-
skýrslunnar, sem hefur komið út í
Genf síðan 1979.
Vaxtarhorfur til skemmri og
lengri höfðu mikil áhrif á mat okk-
ar á samkeppnishæfni 53 landa,
sem skýrslan nær til, sagði Warn-
er.
A eftir Singapúr og Hong Kong
koma Bandaríkin og Bretland, sem
var í sjöunda sæti í skýrslunni í
íyiTa.
Hlutafjárútboð Delta hf.
Hluthafar
nýttu sér for-
kaupsréttinn
HLUTHAFAR í Delta hf. nýttu sér
nær allan forkaupsrétt á þeim
hlutabréfum í eigu fyrirtækisins
sem boðin voru til sölu frá 20. maí
sl., en útboðinu lauk á fimmtudag.
Um var að ræða hlutabréf að and-
virði kr. 2.662.959 að nafnverði á
genginu 15. Alls voru seld bréf fyrir
kr. 2.433.725 að nafnvirði sem ligg-
ur nálægt 37 milljónum króna í
söluverðmæti.
Sá hluti sem enn er óseldur, tæp-
ar 23 þúsund krónur að nafnverði,
verður boðin út á Opna tilboðs-
markaðnum dagana 11.-12. júní nk.
á lágmarksgenginu 15.
-------------
Hugbúnstður
fyrir
þjónustuver
LANDSBANKI íslands hefur gert
samning við Upplýsingu ehf. um
kaup, aðlögun og uppsetningu á
hugbúnaðarlausnum fýrir símaþjón-
ustu í þjónustuveri bankans. Þessar
lausnir koma frá bandarísku fyrir-
tæki, Versatility Inc., sem sérhæfir
sig í lausnum fyrir símaþjónustu
fyrirtækja.
Þjónustuver bankans veitir við-
skiptavinum upplýsingar um ýmis
atriði, sem varða viðskipti þeirra við
bankann og veitir ýmsa almenna
bankaþjónustu í gegnum síma. Nýi
hugbúnaðurinn auðveldar þjónust-
una. Hann mun tengjast símstöð og
tölvukerfi bankans þannig að starfs-
menn hans munu geta fengið upp-
lýsingar um viðskiptavini birtar á
tölvuskjá um leið og þeir hringja í
bankann. Einnig verður hægt að
svara í símann og hringja út beint
frá tölvuskjá á kerfisbundinn máta.
Útflutnings-
aukning og
hagvöxtur
SJO FYRIRTÆKI: 3X-Stál ehf.
Isafirði, Hólmadrangur hf.
Hólmavík, Iðntæknistofnun
Reykjavík, Akva hf. Akureyri,
Oddi hf. Patreksfirði, Ríkisspítal-
ar og Tæknival hf. Reykjavík,
tóku þátt í verkefninu Útflutn-
ingsaukning og hagvöxtur á veg-
um Útflutningsráðs íslands. Um
er að ræða þróunarverkefni fyrir
lítil og meðalstór fyrirtæki sem
hafa áhuga á að helja útflutning
eða festa í sessi útflutning sem
þegar er hafinn. Fulltrúar fyrir-
tækjanna tóku við viðurkenningu
í móttöku á Hótel Sögu fyrir
skemmstu og hér sjást þeir
ásamt menntamálaráðherra,
Birni Bjarnasyni, við það tæki-
færi.
Morgunblaðið/Þorkell
Minni ríkisútgjöld og sveigjan-
leiki á vinnumarkaði
Bætt frammistaða Breta stafaði
af minni ríkisútgjöldum og auknum
sparnaði skattborgara.
Sveigjanleiki var einnig talinn
meiri á vinnumarkaði í Bretlandi
en á meginlandi Evrópu.
Samkeppnishæfni dalaði hvað
mest í Indónesíu, sem hrapaði í 31.
sæti úr 15. sæti í fyrra.
Hér fer á eftir listi yfir 10 sam-
keppnishæfustu ríki heims 1998
(staða þeirra í fyrra innan sviga):
1 (1) Singapúr
2 (2) Hong Kong
3 (3) Bandaríkin
4 (7) Bretland
5 (4) Kanada
6 (8) Tævan
7 (12) Holland
8 (6) Sviss
9 (10) Noregur
10 (11) Lúxemborg
Nýútgefíð bráðabirgðauppgjör Seðlabankans
Viðskiptahalli 16 milljarð-
ar á fyrsta ársfjórðungi
VIÐSKIPTAHALLI við útlönd
nam 16,1 milljarði króna á fyrsta
fjórðungi ársins, samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri Seðlabanka Islands,
samanborið við nær hallalaus við-
skipti á sama tíma í fyrra.
I fréttatilkynningu kemur fram
að fjárinnstreymi á íýrsta ársfjórð-
ungi nam um 15 milljörðum króna
vegna fjárfestingar erlendra aðila í
stóriðju og lántöku innlánsstofnana
og fyrirtækja í útlöndum. Fjárút-
streymi vegna erlendra verðbréfa-
kaupa nam 3,3 milljörðum króna.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
minnkaði á íýrsta ársfjórðungi um
0,7 milljarða og nam 27,2 milljörð-
um í lok mars 1998.
Mikill halli á utanríkisviðskiptum
íslendinga á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs stafar aðallega af 11,2
milljarða króna óhagstæðum vöru-
viðskiptum sem skýra má að hluta
af sérstökum þáttum, s.s. kaupum
og sölu á flugvélum og fjárfestingu í
stóriðju og að hluta af minni fiskafla
og aukinni innlendri eftirspurn.
Halli á þjónustujöfnuði jókst einnig
Greiðslujöfnuður við útlönd 1997-98
| Milljarðar króna | 1997 1. ársfj. 1997 2. ársfj. 1997 3. ársfj. 1997 4. ársfj. 1998 1. ársfj.
VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR -0,1 -3,1 -1,6 -4,3 -16,1
Útflutningur vöru og þjónustu 43,4 47,0 50,8 49,0 41,9
Innflutningur vöru og þjónustu -39,3 -48,0 -49,2 -51,2 -54,6
Vöruskiptajöfnuður 5,1 -1,6 -2,3 -0,9 -11,2
Þjónustujöfnuður -1,0 0,6 3,8 -1,2 -1,6
Þáttatekjur og framlög, nettó -4,2 -2,0 -3,1 -2,1 -3,4
FJÁRMAGNSjÖFNUÐUR 3,8 -0,8 -0,3 10,1 14,9
Hreyfingar án forða -1,6 7,7 -3,7 7,1 14,2
Bein fjárfesting, nettó 1,2 0,9 2,0 3,0 1,2
Verðbréfaviðskipti, nettó -0,5 -3,2 -3,9 -5,2 -3,4
Annað fjármagn, nettó -2,3 10,0 -1,8 9,3 16,4
Gjaldeyrisforði (-aukning) 5,3 -8,5 3,4 2,9 0,7
Skekkjur og vantalið, nettó -3,9 3,9 1,9 -5,8 1,2
nokkuð á milli ára og nam 1,6 millj-
örðum króna. Þáttatekjur nettó,
þ.e. laun, vextir og arður af fjárfest-
ingu, voru neikvæðar um 3,2 millj-
arða á fyrsta fjórðungi ársins sam-
anborið við 4 milljarða króna halla í
fyrra að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá Seðlabankanum.
Nýr stjórnarformaðiir Samherja
KARI Arnór Kárason, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs
Norðurlands, hefur tekið við
starfi stjómarformanns Sam-
herja hf. Þetta var ákveðið á
fundi stjómar félagsins í gær.
Kári tekur við af Kristjáni Þór
Júlíussyni, sem tekur við starfi
bæjarstjóra á Akureyri í dag en
hann mun sitja áfram í stjórn
Samherja sem meðstjórnandi.