Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 19
MORGUNB LAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 19 NEYTENDUR □□ SEIMIVHEISER HM98! V (HeimilisUekjaverslun Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222 Ný reglugerð um kjöt og kjötvörur PFAFF Mismunandi tegundir af svínaskinku Hafin er fram- leiðsla á líf- rænni mjólk Lífræn mjólk er komin á markað á höfuð- Vorum að fá 1. flokks „Dolby Pro Logic Surround" heimabíó fyrirneymartól. Hlvalið fyrir „Sjónvarp-Video - DVD Playstatíon-TöIvuleiki“. Fullkominn umhverfis- hljómur, án þess að trufla hina á heimilinu. Hreint ótrúleg upphfun! um samsetningu vörunnar og skal magn hráefna tilgreint þegar um það er gerð krafa. „Næringargildi er skylt að merkja á umbúðir kjötvara en það gildir þó ekki um hreinar kjötvörur og kjöt með beini.“ Þegar Jón er spurður hvort fram- leiðendur fái aðlögunarfrest segir hann að reglugerðin verði birt í Stjórnartíðindum nú í vikunni og frá þeirri dagsetningu fá framleiðendur sex mánaða frest til að taka mið af þessum kröfum og fara nákvæmlega eftir reglugerðinni. „Ég geri á hinn bóginn ráð fyrir að sum fyrirtæki bregðist skjótt við og fari mjög fljót- lega eftir reglugerðinni." Hann segir að sú skylda sé lögð á matvælaframleiðendur að þeir láti rannsaka eitt sýni af hverri vöruteg- und árlega til að athuga hvort fram- leiðslan sé í samræmi við reglur. „Þeir sem sinna eftirliti munu hafa fullan aðgang að þessum niðurstöð- um. Frá þessu má veita undanþágu ef fyrirtæki eru með öflugt og gott innra eftirlit. Þá munu margir koma að fræðslustarfsemi í þessu sam- bandi. Reglugerðin var unnin í ná- inni samvinnu við Samtök iðnaðar- ins, Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins, Framleiðsluráð landbúnaðarins og kjötiðnaðarmenn. í kjölfar út- komu reglugerðarinnar munu allh- sem unnu að henni leggjast á eitt um að kynna innihald hennar." borgarsvæðinu. Mjólkin kemur frá bænum Neðra-Hálsi í Kjós og er unnin til dreifíng- ar hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík. KRISTJÁN Oddsson bóndi að Neðra-Hálsi í Kjós fékk vottun á sinn lífræna búskap árið 1996 en það var svo í gær að Mjólkursamsalan fékk vottun á þann búnað sem notað- ur er við vinnslu til dreifmgar . Það er vottunarstofan Tún sem veitti bæði Neðra-Hálsi og Mjólkursam- sölunni vottunina en gerðar eru strangar alþjóðlegar kröfur til starfsaðferða sem notaðar eru við líf- ræna ræktun. Neytendur gera kröfur um lífrænar vörur Að sögn Guðlaugs Björgvinssonar forstjóra Mjólkursamsölunnar gera neytendur í sívaxandi mæli ki'öfur um vörur þar sem aðferðum lífrænn- ar ræktunar er beitt við framleiðslu vörunnar. Hann segir að vísu að ís- lendingar standi ennþá grannþjóðum sínum að baki hvað varðar lífræna framleiðslu en bendh' á að allir möguleikar séu fyrir hendi á að á því verði breyting. Fyrir er á mark- aðnum lífræn ab mjólk. Að sögn Baldurs Jónssonar fram- kvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Mjólkursamsölunnar er lífræna mjólkin ófitusprengd. „Rjóminn flýt- ur því upp og myndar rjómalag ofan á mjólkinni þegar hún er látin standa. Þetta er ólíkt því sem er í fitusprengdri mjólk þar sem fitukúl- unum hefur verið sundrað í margar smáai’ kúlur sem haldast dreifðar í mjólkinni. Því er best að hrista hana vel áður en hún er notuð til að dreifa rjómanum aftur um mjólkina. Þegar Baldur er spurður um verð- LÍFRÆN mjólk. ið á lífrænni mjólk segir hann það svipað og á sælumjólkinni. „Magnið af lífrænni mjólk er takmarkað enn sem komið er. Lífræn fi’amleiðsla er tímafrekari og fyrirhafnarmeiri en önnm- mjólkurframleiðsla. Af því leiðir að hún er dýrari en venjuleg mjólk. Við höfum þó gætt þess að halda auknum kostnaði í algjöru lág- marki og leggja áherslu á að verð- munurinn skili sér sem mest til bóndans og verði á þnn hátt hvatn- ing til aukinnar lífrænnar fram- leiðslu.“ Er með 102.000 lítra framleiðslukvóta Kristján Oddsson bóndi að Neðra- Hálsi í Kjós er með 35 kýr og 102.000 lítra framleiðslukvóta en auk þess stundar hann garðyrkju og leggur áherslu á lífræna ræktun á gulrótum. Morgunblaðið/Jim Smart GUÐLAUGUR Björgvinsson forstjóri Mjólkursamsölunnar veitir viðtöku vottunarskjali frá Gunnari Gunnarssyni hjá vottunarstöðinni Túni ehf. KRISTJÁN Oddsson bóndi að Neðra-Hálsi í Kjós hefur í rúm- lega tíu ár stefnt að því mark- miði að geta framleitt Iífræna mjólk. Árið 1996 hlaut hann endanlega vottun á lífræna land- búnaðarframleiðslu búsins. „Ég hef markvisst stefnt að þessu takmarki frá ái’inu 1987 en áhuginn á lífrænni ræktun vaknaði mun fyrr“, segir Kristján sem bætir við að í raun hafi hann alltaf haft andúð á tilbúnum áburði. Árið 1989 setti hann á markað lífrænt ræktaðar gul- rætur og árið 1996 fékk hann vottun á búskapinn um að framleiðaslan væri orðin lífræn þ.e. aðlögun hefði átt sér stað. Smári í tún og búfjáráburður Kristján segir muninn á lífrænum búskap og þeim hefðbundna aðallega felast í að nota ekki tilbúinn áburð. „Ég nýti búfjáráburðinn og hef einnig fengist við safnhaugagerð og afraksturinn nota ég sem áburð.“ Þá segir Kristján að hann hafi skipulega verið að setja smára í túnin hjá sér en smárinn er með rótarbakteríur sem framleiða köfnunarefni umfram eigin þarfir sem nýtist þá í nágrenn- inu sem í þessu tilfelli er gras. Kristján er ekki enn kominn með smára í öll tún og á meðan notar hann fiskimjöl til að brúa bilið. „I lífrænum búskap eru einnig gerðar strangari kröfur um aðbúnað dýra. Það þarf að vera rúmt um skepnurnar og þær eiga að geta not- ið útiveru allt árið um kring.“ Hann notar ekki lyf nema í neyðartilvikum og þá er útskolunartíminn lengri en í hefðbundnum búskap. „Lífrænn búskapur krefst meiri vinnu en sá hefðbundni og breytts hugarfars. Á móti kemur að með því að veita skepnunum meiri umhyggju og vinna með náttúrunni á lífrænan hátt verður búskapurinn meira gef- andi og skemmtilegri en ella.“ Þegar Ki-istján er spurður hvort hann viti til að fleiri bændur hyggi á lífrænan búskap með mjólkurfram- leiðslu segist hann ekki hafa fengið slíkt staðfest en heldur að þetta hafi þegar vakið forvitni margra. „I Mýr- dal, á Arnarnesi í Eyjafirði og í Skaftholti í Gnúpverjahreppi er líf- ræn mjólkurframleiðsla en hún er enn í litlu magni.“ Ný reglugerð um kjöt og kjötvörur er að ganga í gildi. Fram til þessa hefur til dæmis skinka getað verið úr næstum hvaða hráefni sem er. Með nýrri reglugerð breytist það. HÉR á landi hefur skinka ekki bara verið gerð úr svínakjöti heldur hefur t.d. verið til skinka úr hrossakjöti og lambakjöti ef því er að skipta og eng- ar upplýsingar hafa verið gefnar um viðbætt vatnsmagn en það hefur oft verið mjög hátt. Jón Gíslason, forstöðumaður mat- væla- og heilbrigðissviðs Hollustu- verndar ríkisins, segir að það sem neytendur komi til með að verða fyrst áþreifanlega varir við með nýrri reglugerð séu merkingar á skinku. „Nú er búið að skilgreina hvað skinka er og fólk á að geta gengið að því vísu hvað það er að kaupa. Búið er að setja lágmarksskilyrði um kjöt- magn og skinka verður bundin við svínakjöt." I reglugerðinni er skilgreiningin á skinku sú að um saltað og e.t.v. reykt svínakjöt sé að ræða. „Þá verður hægt að kaupa brauðskinku sem inniheldur heldur minna af hreinu kjöti og nokkuð af viðbættu vatni og skal magn þess koma fram í innihalds- lýsingu. Síðan verður til brauðskinka með við- bættu vatni. Hún er sú skinkuafurð sem inniheldur minnst af hreinu kjöti og mest af viðbættu vatni og þessvegna kemur vatnið fram í heiti vörunnar." segir Jón að nú þurfi framleiðendur að til- greina magn viðbætts vatns og prósentuhlut- fallið á þá að koma fram í innihaldslýsingu vörunnar. „Þetta á til dæmis við um skinku, hangikjöt og svínaham- borgarhrygg." Nokkrar vöruteg- undir þarf að merkja með nýjum heitum og í tengslum við heitið á í sumum tilvikum að til- greina fituinnihald. „Heitið nautakjöt verð- ur ekki samheiti fyrir kjöt af nautgripum heldur skal það einung- is notað um ungnauta- 30 mánaða og Tilgreina magn viðbætts vatns Jón segir að til að hægt verði að merkja vöru sem lúxus skinku þurfi að vera um að ræða beinlaust, saltað og ef til vill reykt svínslæri. Samkvæmt þessari nýju reglugerð JÓN Gíslason, forstöðu- maður matvæla- og heil- brigðissviðs Hollustu- verndar ríkisins. kjöt. Kjöt af kúm, eldri, heitir kýrkjöt. Ef fólk ætlar að kaupa nautahakk getur það verið nokkuð öruggt um að það sé að kaupa ungnautakjöt. Ef það er að kaupa nautgripahakk þarf það að skoða vel innihaldslýsinguna til að sjá hvaða kjöt er verið að kaupa.“ Innihaldslýsing Jón bendir á að innihaldslýsing eigi að veita nákvæmar upplýsingai-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.