Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 20

Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ 23 bíða bana í sprengjutilræði í Pakistan Indverjar sakaðir um hermdarverk Sukkur, Sameinuðu þjóðunum. Reuters. PAKISTANAR sökuðu í gær ind- versku leyniþjónustuna RAW um að hafa staðið fyrir sprengjutilræði í farþegalest í Pakistan, sem kost- aði 23 lífið á sunnudag. Indverska stjómin sagði að ekkert væri hæft í þessari ásökun og sagði hana „fá- ránlega". Tveir vagnar eyðilögðust í sprengingunni, sem varð í lest á leiðinni frá Karachi til Peshawar í norðurhluta Pakistans. Pakist- anska utanríkisráðuneytið sagði að augljóst væri að indverska leyni- þjónustan RAW hefði staðið fyrir „þessu viðurstyggilega hermdar- verki“. Mushahid Hussein, upplýsinga- málaráðherra Pakistans, sagði að pakistönsk yfirvöld myndu leggja fram „óyggjandi sannanir" fyrir því að Indverjar hefðu tekið þátt í tilræðinu, en indverska utanríkis- ráðuneytið sagði þessar ásakanir „tilhæfulausar og fáránlegar". Mikill spenna hefur verið í sam- skiptum ríkjanna frá því Indverj- ar hófu kjarnorkutilraunir í liðn- um mánuði og Pakistanar fóru að dæmi þeirra og sprengdu sex kjarnorkusprengjur í tilrauna- skyni. „Þjóðir heims hafa lagt áherslu á að þörf sé á viðræðum til að komast fyrir rætur vandans og draga úr spennunni í kjamorku- væddri Suður-Asíu,“ sagði í yfir- lýsingu frá pakistanska utanríkis- ráðuneytinu. „Þeim ber einnig skylda til að fordæma slík hermd- arverk, sem magna spennuna og heiftina.“ Ályktun SÞ gagnrýnd Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á laugardag ályktun þar sem kjarnorkutilraunir Indverja og Pakistana eru fordæmdar og skorað er á þjóðimar að hætta strax við áform sín um að þróa kjamavopn og eldflaugar sem geta borið kjamaodda. Ráðið samþykkti einnig að hvorugt ríkjanna fengi „stöðu kjamorkuveldis", sem myndi gera því kleift að halda kjarnavopnunum, og skoraði á ríki heims að selja ekki Indverjum og Pakistönum tæki sem hægt yrði að nota við framleiðslu kjamavopna. Atal Behari Vajpayee, forsætis- ráðherra Indlands, gagmýndi ályktun öryggisráðsisins í gær og sagði hana „algjörlega gagns- lausa“. Hann sagði að Indverjar hefðu þegar ákveðið að hætta kjarnorkusprengingum í tilrauna- skyni. „Við getum hins vegar ekki fallist á kröfuna í ályktuninni um að við follum frá kjamorku- eða eldflaugaáætlunum okkar.“ Stjórn Pakistans kvaðst harma að í ályktuninni væri ekki tekið á rót vandans í samskiptum ríkjanna og þörfinni á því að deila þeirra um Kasmír, sem þær gera báðar tilkall til, yrði leyst. Nawaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, sem var í heimsókn í Saudi-Arabíu, sagði að kjamorku- tilraunir Pakistana tengdust á eng- an hátt trúmálum, þeir væru ekki að búa til „íslamska sprengju“. Kamal Kharrazi, utanríkisráðherra írans, hafði sagt að kjamavopn Pakistana gætu verið mótvægi við hemaðarmátt Israels, sem ætti einnig kjamavopn. Ryskingar í Austur- Jerúsalem PALESTÍNUMAÐUR gerir sig líklegan til að henda stól í Isra- ela (t.v.) í Silwanhverfi í Austur- Jerúsalem. Þar kom til ryskinga í gærmorgun milli Palestínu- manna og nokkurra Israela sem sest höfðu að í fjórum húsum í hverfinu í fyrrinótt og kváðust hafa keypt þau fyrir tíu árum. Smávægileg meiðsl hlutust af. Austurhluti Jerúsalem er undir stjórn Palestínumanna, sem ætla honum að verða höf- uðstaður sjálfstæðs ríkis síns, en Israelar geta ekki fellt sig við að borginni sé skipt. Er þetta eitt helsta þrætueplið í deilun- um fyrir botni Miðjarðarhafs. Meðlimir ísraelskra friðarsam- taka, Peace Now, veittu Palest- ínumönnunum liðsinni í gær- morgun og tóku undir þá full- yrðingu að svæðið væri í eigu araba. Saeb Erekat, helsti samninga- fulltrúi Palestinumanna, sagði að það gæti haft „n\jög alvar- legar afleiðingar" ef gyðingarn- ir yrðu ekki fluttir á brott, en David Bar-Illan, einn helsti ráð- gjafi Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra ísraels, sagði að meðlimir hægrisamtakanna Elad ættu umrædd hús og það væri ekkert ólöglegt við það að mennirnir settust að í þeim. Borgara- flokkar snúa bökum saman Stokkhólmi. Reuters. ÞRÍR sænsku stjómmálaflokk- anna stóðu í gær saman að auglýs- ingu þar sem þeir heita því að íjölga störfunum um 300.000 fái þeir til þess umboð í þingkosning- unum í september. Segja má, að með auglýsingunni, sem birtist í Dagens Nyheter, hafi flokkamir, Hægriflokkurinn, Mið- flokkurinn og Kristilegi demókra- taflokkurinn, hafið baráttuna fyrir kosningamar, sem verða 20. sept- ember. „Markmiðið er að fjölga störfun- um um 300.000 á næsta kjörtíma- bili og um miðjan næsta áratug á atvinnuleysi að vera orðið úr sög- unni,“ segja leiðtogar flokkanna, Carl Bildt, Lars Leijonborg og Alf Svensson. Ætla þeir að ná þessu marki fyrst og fremst með skatta- lækkunum. Leiðtogar borgaraflokkanna kenna jafnaðarmönnum um at- vinnuleysið í landinu en það er nú 6,3%. Þá vilja þeir einnig draga úr kostnaðinum við að standa utan EMU, Evrópska myntbandalags- ins, með því að heimila fyrirtækj- um að gera samninga og greiða skatta í evróum eftir næstu ára- mót. ----------------- Flug að stöðvast í Noregi HÆTTA er á, að allt flug í Suður- Noregi stöðvist nk. fóstudag vegna verkfalls flugumferðarstjóra, tækni- manna og stjómenda í norsku flug- stjómarmiðstöðinni. Verði verkfallsaðgerðir auknar, mun það hafa áhrif á millilanda- flugið og flugið í N-Noregi en allt þyrluflug vegna olíuborpallanna frá Kristjánssundi hefur nú þegar stöðvast. Við norsku flugstjómar- miðstöðina starfa 77 manns og mun verkfallið ná til þeirra á föstudag. Svo er einnig með 82 starfsmenn í Ósló og 71 í Sola á vesturströnd- inni. Verði af verkfalli þeirra má heita, að flugumferð í Noregi hafi lagst niður. Reutere Fyrrverandi eiginkona Guccis Grunuð um fleiri glæpi Róm. Tlie Daily Telegraph.+ PATRIZIA Reggiani sem sökuð er um að hafa staðið fyrir morðinu á fyrrverandi eiginmanni sínum Maurizio Gucci, erfingja Gucci-tísku- húsanna, árið 1995 er nú einnig grunuð um að hafa átt aðild að dauða stjúpföður síns. Reggiani er ásamt móður sinni Silvönu og heimilislækni fjölskyldunnar til rannsóknar hjá ítölsku lögreglunni vegna gruns um að Fernando Reggi- ani, vel stæðum iðnrekanda í Mílanó, hafi verið byrlað eit- Stjúpbróðir Patriziu vitnar Lögreglan hóf að rannsaka andlát Reggianis eftir að Vincenzo Reggiani, stjúpbróð- ir Patriziu, krafðist þess að lík föður síns, sem lést árið 1973 án þess að skilja eftir sig erfðaskrá, yrði grafið upp. Að sögn Vincenzos var markmið stjúpmæðranna með morðinu á Reggiani að koma í veg fyrir að erfðaskrá, sem gert hefði þær arflausar, liti dagsins ljós. Vincenzo var hvorki líf- fræðilegur sonur Reggianis né réttmætur erfingi hans heldur fjarskyldur ættingi sem Reggiani ól upp sem sitt eigið barn. Vincenzo var enn barn að aldri þegar Reggiani varð ekkill og giftist síðar Silvönu, sem áður hafði unnið fyrir sér við uppvask. Vincenzo segir að þegar Reggiani var greind- ur með krabbamein hafi þær Silvana og Patrizia haft öll ráð hans í hendi sér og að Reggi- ani hafi gert sig arflausan að undirlagi þeirra. Þær hafi síð- an byrlað Reggiani eitur í þann mund sem hann hugðist segja Vincenzo allt af létta. Uppnefnd „svarta ekkjan" Patrizia Reggiani, sem köll- uð hefur verið „svarta ekkjan" á Italíu, er ákærð fyrir að hafa staðið fyrir morðinu á Maurizio Gucci sem skotinn var til bana fyrir utan skrif- stofu sína í Mílanó árið 1995. Er talið að hún hafi viljað refsa Gucci fýrir að skilja við sig en einnig að hún hafi viljað koma í veg fyrir að Gucci gift- ist á nýjan leik því þá hefði erfðahlutur hennar verið í hættu. Hún neitar öllum ásökunum en horfir fram á lífstíðardóm í fangelsi ef hún verður fundin sek. Svisslendingar hafna hömlum á genatilraunir ZOrich. Reuters. SVISSNESK lyfjafyrirtæki fogn- uðu á sunnudag niðurstöðu þjóðar- atkvæðagreiðslu í Sviss þar sem kjósendur höfnuðu frekari hömlum á genatilraunir. Tillögu þess efnis að ákvæði um bann við genabreytingum á dýrum yrði sett í stjómarskrána var hafn- að með miklum meirihluta at- kvæða, andstæðingar bannsins reyndust helmingi fleiri en stuðn- ingsmennimir. „Við emm fegin vegna þess að það var mikið í veði - framtíð Sviss sem miðstöðvar líf- og læknisfræði- rannsókna,“ sagði Thomas Cueni, formaður samtaka svissneskra lyfjafyrirtækja. „Við erum ánægð vegna þess að kjósendur lýstu í raun yfir trausti á þeirri stefnu stjórnarinnar að setja reglur til að hafa stjóm á genatilraununum en höfnuðu almennum bönnum, að hitt og þetta yrði bannað í sviss- nesku stjómarskránni." Tillagan þurfti að fá meirihluta- stuðning í öllu landinu, auk þess sem meirihluti kantónanna 26 þurfti að samþykkja hana til að hún yrði að lögum. Hún fékk hins vegar ekki meirihluta í neinni kantónu. Dýra- og umhverfisvemdarsinn- ar og samtök neytenda beittu sér fyrir tillögunni en ríkisstjórnin og lyfjafyrirtækin lögðust gegn henni. Margir vísindamenn vom andvígir tillögunni og nokkrir Nóbelsverð- launahafar tóku þátt í mótmæla- göngum til að krefjast frelsis til rannsókna. Stuðningsmenn tillögunnar vildu bann við ræktun genabreyttra dýra og plantna. Þeir sögðust ætla að halda baráttu sinni áfram þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæða- greiðslunnar. Þeir sögðust sann- færðir um að margir kjósendur hefðu ákveðið að greiða atkvæði gegn henni til að styðja læknis- fræðilegar rannsóknir en hefðu samt áhyggjur af afleiðingum til- rauna sem byggjast á því að flytja gen úr einni lífvem í aðra. Cueni kvaðst sannfærður um að þær reglur, sem em nú þegar í gildi, og nýtt lagafmmvarp stjóm- arinnar myndu tryggja að sviss- neskir vísindamenn gengju ekki of langt í genarannsóknum sínum. 40.000 störf sögð í veði Lyfjafyrirtækin höfðu áætlað að 4.500-5.000 vísindamenn störfuðu að verkefnum sem hefðu verið bönnuð ef tillagan hefði verið sam- þykkt. Bannið hefði getað kostað alls um 40.000 störf til ársins 2005. Stuðningsmenn tillögunnar sögðu að bannið hefði ekki hindrað genarannsóknir, framleiðslu lyfja eða framfarir í læknisfræði og sök- uðu lyfjafyrirtækin um hræðslu- áróður. Bannið hefði aðeins haft áhrif á 5% rannsóknanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.