Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 23
22 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998_________________________________________________ MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 23 LISTIR Opinber heimsókn forseta íslands til Eistlands Hlýhugur Eista birt- ist í hlýjum móttökum Tallinn. Morgunblaðið. ÍSLENSKU forsetalijónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, fengu í gær sannarlega hlýjar móttökur á fyrsta degi opinberrar heimsóknar til Eistlands. í sólskini og sumar- hita tók Lennart Meri forseti Eist- lands á móti forsetahjónunum, Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráð- herra og fylgdarliði við forseta- höiiina Kadriorg í Tallinn, þar sem heiðursvörður var kannaður og þjóðsöngvar beggja landa leiknir. Heimsóknin hefur vakið mikla at- hygli eistneskra fjölmiðla en sú at- hygli er til marks um þann hlýhug sem Eistar bera í bijósti gagnvart íslandi, landinu sem fyrst viður- kenndi yfirlýst sjálfstæði Eistlands frá Sovétríkjunum 1991. Eftir viðræður þjóðhöfðingj- anna sagði Lennart Meri að hann vonaðist til að þessi heimsókn markaði upphaf nýs kafla í sam- skiptum þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn frá því Eistland endur- heimti sjálfstæði sitt sem þjóð- höfðingi íslands sækir landið heim. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra kemur tii Eist- lands en þess má geta að fyrir- rennari hans í starfi, Jón Baldvin Hannibalsson, er í góðu vinfengi við Lennart Meri sem var utanrík- isráðherra í fyrstu ríkisstjóminni sem mynduð var eftir sjálfstæðis- yfirlýsinguna. Smáríki halda jafnvægi milli stórþjóða Að loknum viðræðum forset- anna sagði Meri að þeir hefðu Morgunblaðið/Ásdfs ÞJÓÐHÖFÐINGJAR Eistlands og íslands, Lennart Meri og Ólafur Ragnar Grímsson, kanna heiðursvörð fyrir utan forsetahöllina Kadriorg í Tallinn. BORGARSTJÓRI Tallinn, Ivi Eennmaa, heilsar Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, við komuna til ráðhúss höfuðborgar Eistlands síðdegis í gær. FJÖLDI fólks var á ráðhústorgi Tallinn, þar sem úti- tónleikar voru í undirbúningi þegar forsetana bar að. Hér þiggur forseti íslands húfu af Tallinnbúum. m.a. rætt hlutverk smárra þjóða í alþjóðakerfinu og verið mjög sammála um að þau gegndu mik- ilvægu hlutverki við að halda nauðsynlegu jafnvægi í kerfinu, þar sem stórþjóðirnar hafa ann- ars mest að segja. Sagði Meri að Evrópusambandið væri mjög gott dæmi um hvernig lítil ríki tryggðu friðsamlegt jafn- vægi milli stórþjóða; það væri ekki síst vegna þessa eðlis ESB sem Eistar sæktust svo n\jög eftir aðild að sambandinu, en ESB- og NATO-aðild er efst á forgangslista eistneskrar utanríkisstefnu. „Við höfum rnjög áþekka afstöðu til stækkunar Atlantshafsbandalags- ins,“ sagði Meri ennfremur um við- ræður þeirra Ólafs Ragnai's. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra átti viðræður við Toom- as Hendrik Ilves, utanríkisráð- herra Eistlands, en þeir ræddu m.a. möguleika á auknu samstarfi íslendinga og Eista í sjávarútvegi. Lýsti Ilves áhuga Eista á því að senda menn til náms í hinum væntanlega sjávarútvegsskóla Sa- meinuðu þjóðanna, sem fundinn hefur verið staður á íslandi. Eftir skoðunarferð um dóm- kirkju Tallinn og gamla miðbæinn tók borgarstjóri höfuðborgarinn- ar, Ivi Eennmaa, á móti hinum tignu gestum í ráðhúsinu, þar sem forsetahjónin rituðu nöfn sín í hina gullnu bók. Á ráðhústorginu var samankominn mikill mann- fjöldi sem fagnaði forsetunum við komu þeirra þangað. íslenskir kórtónleikar Dagskrá þessa fyrsta dags heim- sóknarinnar lauk með því að for- setarnir voru viðstaddir tónleika Mótettukórs Hallgrímskirkju.sem fram fóru í kirkju í borginni. í dag mun forseti íslands eiga fúnd með forsætisráðherra Eistlands, Mart Siimann, og ávarpa eistneska þingið, Riigikogu. Þá Ieggur for- setinn krans að minnismerki um fórnarlömb stríðanna í Tallinn. Dagskránni í dag lýkur með hátíð- arkvöldverði til heiðurs íslensku forsetahjónunum í boði eistnesku forsetahjónanna, Lennart og Helle Meri. Heimsókninni lýkur á fimmtudag. Þá halda forsetahjónin í opinbera heimsókn til Lettlands. Listíðir með lagi Kvennasögusafn Islands Myndlistar- sýning júní- mánaðar RAGNHEIÐUR Jónsdóttir sýnir grafíkverk úr myndaröðinni „Sögu“ frá árinu 1981 í Kvennasögusafni íslands, 4. hæð, Þjóðarbókhlöðu, Arngiámsgötu 3. Ragnheiður hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og er- lendis og hefur hún hlotið viður- kenningar fyrir verk sín á alþjóð- legum sýningum m.a. í Þýskalandi, Noregi, Spáni og Póllandi. Ragn- heiður tók þátt í sýningu Nýlista- safnsins „Flögð og fögur skinn“ á vegum Listahátíðar í Reykjavík 1998. Safnið er opið alla virka daga frá kl. 13-17. -------------- Tímarit • ÚT er komið 15. hefti Málfregna, tímarits íslenskrar málnefndar, en útgáfa þeirra hófst aftur í fyrra eftir fjögurra ára hlé. Ritstjóri er Ari jPáll Kristinsson, forstöðumaður Islenskrar mál- stöðvar, og í ritnefnd sitja formað- ur Islenskrar málnefndar, Kristján Arnason prófessor og Gunnlaugur Ingólfsson orðabókan-itstjóri. I blaðinu er m.a. að finna tvær greinar, „Þýðingafræði og þýðing- arlist", efth- Kristján Ái-nason dós- ent og „Þýðingar, menntun og orðabúskapur" eftir Ástráð Ey- steinsson prófessor. Einnig er í heftinu grein eftir Veturliða Oskarsson lektor um orðið mylsu eða mulsu, umsögn Islenskrar mál- nefndar um frumvarp til laga um vörumerki, grein eftir Dóru _Haf- steinsdóttur um orðabanka ís- lenskrar málstöðvar o.fl. Málfregnir koma út tvisvar á ári og er von á 16. heftinu í haust. MYJXÍDLIST Listhús ðfeigs SKART / TEXTÍL 6 NORSKAR LISTAKONUR Ingema Andersen, Sigrun Aune, Toril Glenne, Randy Hartmann, Li- ve Helgeland, Eilen Monrad Vist- ven. Opið á tímum skartgripaverzl- unarinnar. Til 13. júní. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ var með nokkrum fyi-ii'vara að rýnirinn nálgaðist sýningu 6 norskra listiðnaðarkvenna í hinu takmarkaða en notalega rými efri hæðar listhúss Ófeigs að Skóla- vörðustíg 5. Hvernig mátti það vera að sex einstaklingar væru að sýna í sal sem oftar en ekki er of lítill fyrir einn, þröng hafa verið á þingi er fleiri hafa sýnt þar og verk átt erfitt með að ná andanum í sambýlinu? En svo er almættinu fyrir að þakka, að stundum koma sýningar á óvart sem gerist æ sjaldnar hin síðari ár, er menn eru á fullu að klóna sviðið á heimsvísu og þurrka úr persónueinkenni. Þykir bara al- deilis fínt enda kennt í nútíma- skólum og gefnar prófgráður fyr- ir. Skemmst er til frásagnar, að það er afar létt yfír aðkomunni og verkum listakvennanna er meist- aralega vel fyrir komið í rýminu, þannig að þetta getur maður kallað innsetningu, installation, með lagi. Framlag hvers og eins kemur eins og hlaupandi á móti skoðandanum, slík eru einkenni þeirra og slík skil- virknin. Um er að ræða listvefnað úr silki og bómull, sjöl og púða ásamt skarti úr ýmsum efnum svo sem gúmmíboltum og silfri, oxíder- uðu silfri og glerperlum, hvaltönn, silfri og viði. Allt eru þetta vel menntaðar listakonur á miðjum aldri og ein þein-a Ingemarie Andersen, sem nefnir sig Ingema, var meira að segja tvö ár í MHÍ fyrir margt löngu er gi-unnnámið, sem nú er slitið og tætt, var í rífandi upp- byggingu. Þær hafa allar haldið nokkrar sérsýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga innan lands og utan og fjórar hafa sýnt áður á höf- uðborgarsvæðinu. Ber að taka því fagnandi er norrænir listamenn sækja hingað að eigin frumkvæði, því það gefur mikilsvert tækifæri til hlutlægri samanburðai- en opin- berar sýningar eru alla jafna. Svo er einmitt í þessu tilviki, því hér er gengið til leiks með yfír- burða þekkingu, allt í senn á hand- verkinu, hinni formrænu mótun og litrænu uppbyggingu. Á sýninguna eiga þeir mikið erindi sem halda úti listmunaverslunum þar sem krað- akið er oftar en ekki yfirþyrmandi og hver hlutur grípur inn í annan og dregur niður. Þótt vinnubrögðin séu nánast klassísk er yfir þeim ferskleiki hinnar hreinu ómenguðu lifunar og má vera auðsætt að á ferð eru listakonur sem flýta sér hægt og eru að auk atvinnumanneskjur fram í fingurgóma, hver á sínu sviði. Gefur augaleið að allar hafa þær hlotið fjölda opinberra styrkja til námsferða, og allar em þær á starfslaunum, sumar ævilangt, sem er sá öryggisventill sem skiptir sköpum. Á því sviði hafa frændur vorir Norðmenn lengi verið fremstir meðal jafningja á Norður- löndum, halda á hinn veginn úti tveimur samtímalistasöfnum í Ósló, sem hér eru nefnd nýlista- söfn, svo hér er einsýni ekki fyrir að fara. Erfitt er að gera upp á milli listamanna sem náð hafa jafnlangt og hlýtur alltaf að vera persónu- bundið, meginveigurinn er að hér gefst tækifæri til að nálgast listíðir í háum gæðaflokki. Bragi Ásgeirsson Norén fær leikskálda- verðlaunin SÆNSKA leikskáldið Lars Norén fær Leikskáldaverðlaun Norður- landaráðs 1998 fyrir leikrit sitt Klini- ken sem lýsir lífinu á geðsjúkrahúsi. Verðlaunin eru 40.000 finnsk mörk. Af fslands hálfu sat Þórhallur Sigurðsson í nefndinni. Meðai tii- nefndra verka var Ástarsaga 3 eftir Kristinu Ómarsdóttur. Verðlaunin verða afhent í Tammerfors í ágúst. Einsöngstón- leikar Kristins Sigmundssonar TÓNLEIKAR Rristins Sigmunds- sonar barítonsöngvara og Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara hefj- ast kl. 20:30 í kvöld, þriðjudagskvöld í Þjóðleikhúsinu. Á efnisskrá þemra eru meðal annars tvö þjóðlög í út- setningu Benja- mins Britten, Titt- lingsminning efth' Atla Heimi Sveins- son, tvær aríur eft- ir Mozart, úr Don Giovanni og Brúðkaupi Fígarós og tvær aríur eftir Rossini, úr Rakaran- um frá Sevilla og Öskubusku. Kristinn Sigmundsson Sumaropnun í Listasafni Sigurjóns FRAM til 1. sept. er Listasafn Sig- urjóns Ólafssonar opið alla daga nema mánudaga milli kl. 14 og 17. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. Um þessar mundir eru sýnd þrívíð verk eftir Örn Þorsteinsson mynd- höggvara í báðum sölum safnsins og þar gefur að líta á fimmta tug verka úr ólíkum málmum, áli, járni, tini, bronsi, silfri og gulli. Sýningin stendur út júnímánuð. ■ ' ' ■ . ■ Galant 2.0 litra, 136 hestöfl og 2.5 lítra, I63hestöfl •Öryggispúðar fyrir ökumann og farþega »ABS hemlakerfi •Fjarstýrðar samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn •Rafstýrðir upphitaðir útispeglar »Rafhituð sæti •15" álfelgur •Skriðstilli o.m.fl. MÍTSUBISHIGALANT kostar fra kr. Isma 1.6 lítra, 100 hestöfl og 1.8 lítra CDI, 125 hestöfl rvggispúðar fyrir ökumann og farþega »abs hemlakerfi zrstýrðar samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn ifstýrðir uþphitaðir útispeglar *Rafhitun í framsætum o.m.fl. MfTSUBISHI CARISMA kosíarfrá kr. samlæsingar •Rafdrlfnar rúðuvlndur með slysavörn •Rafhltun í framsætum •Rafstýrðlr upphitaðir útispeglar •vtndskeið o.m.fl. MITSUBISHILANCER kostarfrakr. MiTSUBISHI í ntUdttm nætum ! 1.350.000 1 I.5B5.000 2.095.000 l ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.