Morgunblaðið - 09.06.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 09.06.1998, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR KVÖLD í Reykjavík eftir Ásgrím Jónsson. Nýjar bækur Blíður Indlandsblær Tímarit • TÍMARIT Máls og menningar, 2. hefti 1998 er komið út. Pað er að mestu helgað verkum Halldórs Kiljans Laxness. I tímaritinu er frumbirt bréf sem Laxness skrifaði Kristínu Guð- mundsdóttur frá Utah í Banda- ríkjunum haust- ið 1959, um það bil sem hann var að leggja loka- hönd á skáldsög- una Paradísar- heimt. Birtar eru níu ólíkar greinar um Lax- ness, eftir Stein- unni Sigurðar- dóttur, Halldór Guðmundsson, Ey- stein Þoi'valdsson, Arna Bergmann, Sr. Gunnar Kristjánsson, Pétur Gunnarsson, Svein Einarsson, Sig- þrúði Gunnarsdóttur og Brad Leit- hauser, þar sem varpað er nýju ljósi á ýmsar hliðar verka hans, meðal annars með hliðsjón af minn- isbókum hans. Ennfremur er birtur skáldskapur eftir Hallgrím Helga- son og Elías Mar, sem tengist Lax- ness á einn eða annan hátt, birt er samantekt Kristinar Björgvinsdótt- ur bókasafnsfræðings um efni sem Laxness birti í Tímariti Máls og menningar og listi yfir greinar sem birtar hafa verið um verk hans í tímaritinu. Alls spannar samantekt- in tímabilið 1940-1997. Aukinheldur er í þessu hefti grein Jóns Viðars Jónssonar um leikhúslíf í Kaupmannahöfn á síð- ustu öld, ádrepa eftir Kristján Kristjánsson heimspeking, og rit- dómar eru á sínum hefðbundna stað. Tímaritið er 160 bls. Það kemur út ársfjórðungslega og kostar ársá- skrift 3.300 kr. Ritstjóri er Friðrik Rafnsson. Nánari upplýsingar og efnisyfírlit síðustu árganga er að fínna á heimasíðu Máls og menningar: http://www.mm.is, auk þess sem þar er birtur listinn yfir allt það efni sem birst hefur í TMM um og eftir Laxness frá 1940 til 1997. • HÆGUR söngurí dalnum er sjötta ljóðabókin eftir Onnu S. Björnsdóttur. í bókinni eru 35 ljóð sem skipt- ast í þrjá kafla, Himinn snertir himin, Hvörf og Birkigrein úr skógi. Eftirfarandi kynning er eftir Valgerði Bene- diktsdóttur: „Eins og ný- kviknaður foss niður hengiflug út í syngjandi eldhaf sem dansar burt gleymd vötn.“ Aður hafa komið út ljóðabæk- urnar Örugglega ég 1988, Strend- ur 1990, Blíða myrkur 1991, Skil- urðu steinhjartað 1993 og I engla- kaffi hjá mömmu 1996. Kápumynd er unnin af Heidi Kristiansen. Höfundur gefur bókina út. Bók- in er prentuð í Prentsmiðjunni Odda og fæst í helstu bókaversl- unum. Verð kr. 2.140. Sumarsýn- ing á Safni Asgríms Jónssonar í SAFNI Ásgríms Jónssonar á Bergstaðastræti 74 hefur verið sett upp sumarsýning á verkum Ásgríms. Efni myndanna er af ýmsum toga, landslagsmyndir og þéttbýlismyndir ásamt þjóðsagna- myndum sem eru í íbúð lista- mannsins. Leiðarstef verkanna er birtan í öllum sínum margbreyti- leik, hin náttúrulega birta, sem fær huglæga merkingu í túlkun listamannsins, sem og hin tákn- ræna birta í þjóðsagnatúlkun hans. Á sýningunni eru bæði olíu- og vatnslitamyndir, enda tengslin þar á milli oft náin í verkum Ás- gríms. Sumarsýningin í safni Ás- gríms Jónssonar stendur til sept- emberloka og er opin alla daga nema mánudaga, kl. 13.30-16. Að- gangur er ókeypis. LISTDANS Iðnó INDVERSKUR DANS Tónlist leikin af segulbandi. Archana Joglekar dansar kathak. Sýnt í Iðnó 6. og 7. júní 1998. ÞAD er rétt að það komi fram að vanþekking mín á indverskum döns- um og tónlist er alger, því miður og þó ég hafi undanfama daga lesið mér til mun ég ekki reyna að gera sýningunni í Iðnó hinn 6. júní fræði- leg skil, heldur aðeins að segja frá því sem ég sá og skynjaði. Ég vil vísa til ágætrar greinar um norður-ind- verska dansinn kathak í Morgun- blaðinu 5. júní sl. Eftir að þrír indverskii' tónlistar- menn höfðu flutt indverska tónlist í íyrri hluta sýningarinn- ar og að loknu hléi, kom Archana Joglekai' inn á sviðið klædd rauðum og gulum búningi, síðu víðu pilsi, þröngri blússu með slæðu yfir aðra öxlina og mikið af gulum blómum í svörtu hárinu, afar fogur á að líta. Sýningin hófst á Invocation (Ákall til guðanna), þá Rhythmic (Takt- bundinn dans) og síðast Expression (Tjáning). En fyrst og á milli atriða talaði Archana Joglekar til áhorf- enda og útskýrði dansinn, ljóðin og sögumar. Hún lagði mikla áherslu á taktinn ekki aðeins í dansinum held- ur lífinu almennt og túlkun tilfinn- inga eftir því hvemig takturinn í tón- listinni breyttist. Henni tókst með þessum ágætu útskýringum að gera okkur áhorfendur enn meðvitaðri um það sem svo fór fram á sviðinu. Gaman var til dæmis að heyra kunn- uglegan flamenco-taktinn sem hún kallaði fram með bemm bjöllum skrýddum fótum sínum, en á hvomm ökkla bar hún hundrað litlar bjöllur settar saman úr jámi, kopar og blýi. Mun hvor fótur hafa borið um eitt kíló. Dansamir minntu á látbragðs- leik, túlkunin var afar einfóld og skiljanleg. Archana Joglekar er mjög fallegur og þokkafullur dans- ari. Hún notaði svipbrigði um margt á sama máta og gert er í látbragði hefðbundins vestræns listdans, nefni ég „Giselle" og „Svanavatnið“ til glöggvunar. Kathak dansinn er upp- mnninn á meðal farandskálda sem miðluðu sögum og Ijóðum á ferðum sínum (úr leikskrá) og er einn af sjö helstu hefðbundnu dansstílum Ind- verja, myndmál dansins er sem fyrr segir einfalt og auðskiljanlegt, sem ef til vill skýrir vinsældir hans og langa lífdaga. Dansaður ljóða- og söguflutningur er heillandi á að horfa, en þó var það hinn flókni taktur sem undirrituð heillaðist mest af, kannski vegna þess að ekld var nokkur leið að skilja hann, svona til tilbreytingar! Móðir Arehönu Joglekai', Asha Joglekar, er lærimeistari hennar og kom hún fram í framkallinu, ásamt tónlistarmönnunum flinku frá því fyrir hlé, þeim Pandit DK Datar fiðluleikara, frú DK Datar tampura- leikara og Anand Baclamikar tabla- leikara. Listafólkið sagðist vera þakklátt og því þætti heiður að því að koma fram á Listahátíð í Reykja- vík en undirbúningur að komu þess hingað mun hafa staðið í eitt ár. Ber að þakka forsvarsmönnum „Listahá- tíðar í Reykjavík" að færa okkur heillandi listform fjarlægrar þjóðar og listafólkinu komuna til Islands, þar sem engin nótt er, eins og hin fagra Archana Joglekar sagði, áður en hún sýndi með fallegum mynd- rænum handahreyfingum hvernig nóttin og stjömumar era á Ind- landshimni. Ásdís Magnúsdóttir Halldór Laxness Anna S. Björnsdóttir Menningarnótt í miðborginni Morgunblaðið/Ásdís Á MENNINGARNÓTT verða ýmsar uppákomur. „Vökum af list“ Nýr sýningarsalur, Apótekið, tekinn í notkun í Hafnarborg Sverrisdagur 1998 EFNT verður til Menningarnætur í miðborg Reykjavíkur í þriðja sinn laugardaginn 22. ágúst nk. Markmið Menningarnætur er að beina kastljósinu að því sem borg- in hefur upp á að bjóða og að kveikja áhuga á menningarvið- burðum hjá borgarbúum á öllum aldri.Menningarnóttin byggist á framlagi fjölda aðila sem standa dags daglega að menningarlífi í borginni og eins framlagi annarra aðila sem nota þetta tækifæri til að setja svip á borgarlífið. Söfn, kirkjur, gallerí, kaffihús, veitinga- hús, verslanir og fleiri aðilar hafa opið fram á nótt og í boði eru myndlistarsýningar, tónleikar, upplestur, leiklist og aðrir menn- ingarviðburðir. Á miðnætti verður síðan flugeldasýning. Sérstök verkefnisstjórn á veg- um Reykjavíkurborgar samræmir atriði, kynnir dagskrá og greiðir eftir fóngum götu þeirra sem vilja taka þátt í Menningarnóttinni. Verkefnisstjóri er Harpa Björnsdóttir. Verkefnisstjórn skipa: Elisabet B. Þórisdóttir, Óm- ar Einarsson, Anna Margrét Guð- jónsdóttir, Ágiíst Ágústsson og Anna Einarsdóttir. Verkefnisstjórn beinir þeim óskum til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana, sem hafa áhuga á þátttöku með einum eða öðrum hætti, að hafa samband sem fyrst við verkefnissljórn Menningar- nætur, Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, eða verkefnisstjóra. NÝR sýningarsalur hefur verið opnaður á fyrstu hæð Hafnarborg- ar, þar sem Hafnarfjarðar Apótek var áður til húsa. Salurinn hefur fengið nafnið Apótekið, með tilvísun í að þar hefur verið rekið apótek frá árinu 1921. Sören Kampman apó- tekari lét byggja húsið á Strand- götu 34 árið 1921. Arkitekt var Guð- jón Samúelsson. Kampmann rak Hafnarfjarðar Apótek í húsinu fram til ársins 1947 en þá keypti dr. Sverrir Magnússon húsið og rekst- urinn og rak apótekið fram til 1985. Sverrir seldi reksturinn Almari Grímssyni lyfjafræðingi sem rak apótekið til ársins 1995. Húsnæðið hefur nú verið endur- nýjað og ytra útlit fært til fyrra horfs eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. Sverrir Magnússon og kona hans, Ingibjörg Sigurjóns- dóttir, gáfu Hafnarfjarðarbæ húsið árið 1983 ásamt safni listaverka og bóka og hefur rekstur Hafnarborg- ar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, verið í húsinu síðan. Afmælissýning Hafnarborgar Sumarsýning Hafnarborgar er um leið afmælissýning. Tilefnið er 90 ára kaupstaðarafmæli Hafnar- fjarðarbæjar og 15 ára afmæli Hafnarborgar. Á sýningunni em málverk eftir eldri og yngri íslenska listamenn þar sem myndefnið er Hafnarfjörð- ur og nágrenni. Málverkin eru eftir ýmsa listamenn, m.a. Ásgrím Jóns- son, Gunnlaug Scheving, Jóhannes S. Kjarval, Nínu Tryggvadóttur, Hörð Ágústsson, Eirík Smith, Svein Bjömsson, Gunnar Hjaltason, Pét- ur Friðriksson og Jón Gunnarsson. Sýningin hefur þegar verið sett upp í aðalsal en 12. júní verða fleiri Hafnarfjarðarmnyndir settar upp í Sverrissal á 1. hæð og stendur til 4. ágúst. Andlit bæjarins Sýningarsalurinn Apótekið verð- ur að mestu nýttur fyrir sýningar úr safni Hafnarborgar. I tilefni af 90 ára kaupstaðarafmæli Hafnar- fjarðarbæjar er fyrsta sýning í þeim sal, sýning Byggðasafns Hafnar- fjarðar á myndum Önnu Jónsdóttur Ijósmyndara. Sýningin nefnist And- lit bæjarins og var opnuð 1. júní sl. Anna Jónsdóttir bjó og starfaði í Hafnarfirði um áratuga skeið. Eftir hana liggja tugir þúsunda mynda sem varðveittar eru á glerplötum. Á sýningunni nú eru 60 myndir úr þessu safni. Sýningin stendur til 4. ágúst. Minningarsjóður um hjónin Sverri Magnússon og Ingibjörgu Sigurj ónsdóttur, frumkvöðla að stofnun Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, var stofnaður 1. júní 1993. Tilgang- ur með stofnun sjóðsins er að minn- ast þeirra hjóna með þvf að veita táknræna viðurkenningu fyrir framlag til menningar og lista í Hafnarfirði. Við hátíðlega athöfn í Hafnarborg 1. júní sl. vora viðurkenningar veitt- ar í fjórða sinn. Formaður stjórnar Hafnarborgar afhenti viðurkenn- ingarnar sem vora glæsilegir rakú- brenndir leirvasar á stöplum sem myndlistarkonan Sigríður Ágústs- dóttir vann. Viðurkenningarnar hlutu: Gunn- ar Ásgeir Hjaltason gullsmiður og myndlistarmaður og Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.