Morgunblaðið - 09.06.1998, Page 27

Morgunblaðið - 09.06.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 ' 27 ________LISTIR____ Austrænn þokki með snerpu TOMLIST i ft n ft SEIÐUR INDLANDS Tónlistar- og dansatriði flutt af Pandit D.K. Datar, fiðla; Anand Badamikar, töblur; frú D.K. Datar, tandiúra; ótilgreindum listamönnum af segulbandi á m.a. sítar, flautu, söngrödd o.fl. Kathakdansari: Archana Joglekar. Iðnó, laug- ardaginn 6. júní kl. 20. LÖNGUM hefur Vesturlandabúum þótt stafa sérkennilegur ljómi af Indlandi, sem rit- höfundar eins og Kipling hafa án efa lagt grunn að með bókum sínum. Þó eru ekki nema liðlega 30 ár síðan að almenningur komst fyrst í snertingu við indverska tónlist, m.a. með popp-bræðingi bítilsins George Harrisons og samleik Yehudi Menuhins og sítarsnillingsins Ravis Shankars undir yfír- skriftinni „Austur mætir Vestri". Dálæti kalífornískra hippa á indverskri speki gerði að verkum, að um nokkurra ára skeið varð indversk tónlist hæstmóðins í æskulýðsmenn- ingu Vesturlanda. Vitanlega urðu kynni flestra af músíkinni heldur yfírborðsleg. Hinn exótíski seimur sít- arsins var ungmennum hippaára sjaldnast annað og meira en bakgrunnur líkt og reyk- elsið, hjúpaður rómantískum skynvilludraum- um, og þeir örfáu sem hugðust ná tökum á hljómlistinni, rákust óðara á vegg framand- legrar tón- (og einkum) takthugsunar, sem reyndist ærið flóknari en virtist við fyrstu sýn. Síðan eru sem sagt liðin 30 ár og kannski tími til kominn að líta þessa merkilegu tónlist ferskari og kreddulausari augum. Tækifærið gafst sl. laugardag, þegar hingað komu í fyrsta sinn á vegum Listahátíðar í Reykjavík indverskir listamenn að kynna tón- og dansmennt þessa fjarlæga heimshluta. Var það ræðismaður Islands í Bombay, D.K. Hirlekar, sem undirbjó komu hópsins. Fyrir hlé var leikið á fiðlu, tabla- trommur og tambúru, en eftir kynnti og sýndi Archana Joglekar norðurindverska khatak- dansa við undirleik af segulbandi. Tónheimur Indlands er í mörgu gerólíkur vesturlenzkum, þvi þó að hvor tveggi byggi á árþúsunda hefð, hafa þróunarleiðir legið í andstæðar áttir. Evrópska tónlistin uppgötv- aði fjölröddun í hljómmiklum gotneskum kirkjum og sótti áfram eftir harmónískum farvegi, en einradda indverska tónlistin rækt- aði í staðinn hiynjandina, sem útundan varð hér vestra og verður nú að teljast harla frum- stæð í samanburði við margslungna hi-ynver- öld Indverja, þar sem löng og sköruð rytma- mynztur eru hversdagsleg fyrirbrigði. Það væri synd að segja að tónleikaskráin hafí gert mikið til að upplýsa áheyrendur nán- ar um innviði þessarar framandi hljómlistar, en að nokkru leyti komu enskumæltar kynningar fiðluleikarans á móti, þó að þær færu sumar forgörðum vegna hreims og óskýrrar uppmögnunar. Um til- komu ítölsku fíðlunnar í indverskri tónlist, sem væntanlega hefur leyst eldri strokfæri innfæddra af hólmi á síðari áratugum, fengum við t.a.m. ekkert að vita. Þá vakti óútskýrða undrun manns, að bordúnstónninn - í námunda við F - sem undir ómaði allt í gegn, virtist ekki koma frá tambúrunni eins og vænta mátti, heldur frá segulbandi eða öðrum rafhljóðgjafa sem varð fljótt heldur hvimleið- ur, enda bæði hátt stilltur og yfirtónasnauður. Frá tambúi'unni heyi'ðist hins vegar ekkert, þrátt fyrir að frú Datar sæist gripla hljóðfærið í sífellu. Þó að lengsta „ragan" reyndi óneitan- lega á þreyjulítið þol vestrænna hlustenda, enda rúmar 40 mín. á lengd, sem þykir víst ekki mikið suður í heimahögum, fór ekki fram hjá mönnum, að samleikur fiðlu og tablna var útfærður af meistarahöndum, og mátti í glæsi- legu tabla-sólói Anands Badamikar sjá tilþrif sem gerðu skiljanlegt, að áratuga nám á þess- ar tvær litlu handtrommur skuli liggja að baki. Dansatriði Archönu Joglekar eftir hlé voru aðgengilegri partur uppákomunnar. Við lifum á öld augans eins og sagt er, og dansmærin var að sönnu augnayndi sem hreif nærstadda rækilega upp úr skónum með þokkafullri mímík og hreyfmgum. Hér komust kynningar listamannsins betur til skila, og var ekki síður áhrifamikið að upplifa, að hreyfing og tónlist, sem eru sérlega samofín í indverskri hefð, gætu ekki aðeins verið mjúk og líðandi, held- ur líka leiftursnörp, eins og frekar undirstrik- aðist af tali dansarans ofan í tónlistina við og við til að útlista nánar flókna hrynþætti takts- ins með einsatkvæðisorðum. Sem fyrr sagði var undirleikur og -söngur fluttur af segul- bandi, og verður að viðurkenna, að þó að dansatriðin væru í sjálfu sér frábær, hefði verið enn skemmtilegra að fá að sjá og heyra lifandi undirleik, hefði þess verið kostur. Allt um það stendur heima, að hér var mik- ill snillingur á ferð sem mörgum mun seint úr minni líða, og hefðu myndbandsspólur verið á boðstólum í hléinu, hefðu þær örugglega verið rifnar út. Ríkarður Ö. Pálsson BALEf BALENO Sjálfskipting kostar 100.000 aukalega ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ: • vökvastýri • 2 loftpúða • • aflmiklar vélar • samlæsingar • • rafmagn í rúðum og speglum • • styrktarbita í hurðum • • samlitaða stuðara • SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SUZUKISÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf , Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf. Miðási 19, slmi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, slmi 456 30 95. Keflavík: BG bllakringlan, Grðfinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 26 17. SWIFT BALENO VITARA GRAND VITARA TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. 1,3GL 3d 1.140.000 KR. JLXSE 3d 1.580.000 KR. GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR. l,3GL4d 1.265.000 KR. l,6GLX4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX4x4 4d 1.495.000 KR. l,6GLXWAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. JLX SE 5d 1.830.000 KR. DIESEL 5d 2.180.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega GR. VITARA 2,5 L V6 2.589.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.