Morgunblaðið - 09.06.1998, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 09.06.1998, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. DOUNREAY LOKAÐ ASTÆÐA er til að fagna ákvörðun brezku ríkisstjórnar- innar um að loka kjarnorkuendui-vinnslustöðinni í Doun- reay á Skotlandi. Stjórnvöld segjast hafa tekið þessa ákvörð- un á efnahagsforsendum, stöðin hafi ekki átt neina fjárhags- lega framtíð fyrir sér. Bretar munu nú aðeins starfrækja til frambúðar eina endurvinnslustöð fyrir kjarnaúrgang og er það stöðin í Sellafield í norðvesturhluta Englands. Ekki eru nema örfáar vikur síðan ríkisstjórn Bretlands tók við 5 kg af auðguðu úrani frá Georgíu til eyðingar í Dounreay. Sú ákvörðun og flutningur úransins til Dounreay vakti mótmælaöldu frá nági’annaríkjunum, sem höfðu áður mótmælt starfsemi stöðvarinnar í Skotlandi. Dounreay-stöðin var byggð á sjötta áratugnum en þar hef- ur ekki verið framleitt rafmagn frá árinu 1994, þegar slökkt var á kjarnaofni stöðvarinnar. Nú þegar tekin hefur verið ákvörðun um lokun stöðvai’innar verður smátt og smátt dregið úr starfseminni og er fyrirhugað að endurvinnslu ljúki fyrir árið 2006, þegar lokið verður við að endurvinna eldsneyti stöðvarinnar sjálfrar, úranið frá Georgíu og þegar staðið hefur verið við núgildandi samninga. „Nú skiptir öllu að tryggja að okkur takist að skila umhverfínu heilu og höldnu í hendur komandi kynslóða," sagði Donald Dewar ráðherra Skotlandsmála á fundi í Edinborg fyrir helgina. íslenzk stjórnvöld hafa fagnað ákvörðun brezku stjórnar- innar og taldi Davíð Oddsson, forsætisráðherra, að jákvætt og mikilvægt skref hefði verið stigið af brezkum stjórnvöld- um með þessari ákvörðun og hann bætti við að „þýðingar- mikið er að ekki verði aukning neins staðar annars staðar eins og t.d.í Sellafield-endurvinnslustöðinni". Fyrir rúmum mánuði var fjallað um þetta mál í forystu- grein Morgunblaðsins. Þar sagði m.a.: „Fiskveiðiþjóðir við Norður-Atlantshaf hljóta að mótmæla af hörku fyrirætlunum brezkra stjórnvalda um að flytja auðugt úran frá Georgíu til eyðingar í Dounreay. Þjóð sem á allt sitt undir hreinu og ómenguðu hafsvæði, hreinum og ómenguðum fískimiðum, eins og við Islendingar, hlýtur að standa fast gegn þessum áformum. Við getum aldrei sætt okkur við starfsemi sem eykur líkur á óhöppum, sem valdið gætu óbætanlegu tjóni á auðlindum hafsins, undirstöðu afkomu okkar og efnahags- legs sjálfstæðis." Það er sérstakt fagnaðarefni, að brezk stjórnvöld hafa nú komizt að skynsamlegri niðurstöðu í þessu viðkvæma máli. FORELDRAR OG FYRIRMYNDIR REYKINGAR eru dauðans alvara. Þær eru megin- eða meðvirkandi orsök margra hjartasjúkdóma og krabba- meina, einkum lungnakrabba. Þrátt fyrir almenna vitneskju um þá alvarlegu áhættu, sem reykingum fylgir, aukast reyk- ingar meðal íslenzkra ungmenna. Arið 1994 reykti tæpur fimmtungur nemenda í 9. bekk grunnskólans, íjórðungur þessa sama hóps árið eftir og þriðjungur tveimur árum síðar. Þetta er ein af niðurstöðum úr könnun Sigrúnar Aðalbjarn- ardóttur og Leifs Geirs Hafsteinssonar á tengslum tóbaks- reykinga við uppeldishætti og reykingar foreldra og vina. Könnunin leiðir og í ljós sterk tengsl milli reykinga ung- linga annars vegar og uppeldishátta og reykinga foreldra hins vegar. I því sambandi minna þau Sigrún og Leifur Geir á mælingar á uppeldisháttum foreldra, sem byggjast á þekktum kenningum bandarísku fræðikonunnar D. Baumr- ind, en hún teflir fram fjórum tegundum uppeldis: leiðandi uppeldi, eftirlátu, skipandi og afskiptalausu. Leiðandi uppeldi, sem mælt er með, er þannig lýst: „Leið- andi foreldrar krefjast þroskaðrar hegðunar af barninu og taka vel á móti hugmyndum þess. Þeir setja skýr mörk um hvað er tilhlýðilegt og hvað ekki, nota til þess útskýringar og hvetja börnin til að skýra út sjónarmið sín. Þeir eru hvorki uppáþrengjandi né setja börnunum stólinn fyrir dyrnar. Þeir sýna börnunum mikla hlýju og uppöi’vun." Tóbaksreykingar og önnur áhættuhegðun unglinga er af- leiðing flókins samspils í uppeldi, umhverfi og vinahópi. Fyr- irbyggjandi aðgerðir byggjast m.a. á fræðslu og leiðbeinandi uppeldi. Það felst í lífsstíl til eftirbreytni, samvistum foreldra og ungmenna og gagnkvæmri hlýju og virðingu. Líkurnar á því að unglingar byrji að reykja eru miklu minni ef þeir búa við slíka heimilishætti og aðstæður. Rolling Stones til landsins í ágúst Morgunblaðið/RAX RAGNHEIÐUR Hanson kynnir væntanlega Rolling Stones tónleika ásamt forsvarsmönnum Listahátíðar en tónleikarnir eru haldnir undir merkjum hennar. F.v. Sveinn Einarsson, Þórunn Sigurðardóttir, Ragn- heiður og Svanhildur Konráðsdóttir. I Ljósmynd/Ragnheiður Hanson ÞAÐ er mikið um dýrðir þegar Rolling Stones halda tónleika. Fyrir ut- an stærðarsvið er risastór skjár fyrir ofan sviðið þannig að ekkert ætti að fara fram hjá áhorfendum. ROLLING Stones halda tónleika hér á landi 22. ágúst. Ragnheiður Han- son sem stendur að tón- leikunum tilkynnti þetta á blaðamannafundi í gær. Ragnheið- ur hefur unnið að því í tvö ár að fá Rolling Stones til landsins og sagði í gær að nú væri loksins hægt að stað- festa það við fjölmiðla að þessi vinna hefði borið árangur. Allt væri í höfn og búið að skrifa undir samninga. Að sögn Ragnheiðar var það tals- verður barningur að fmna hentuga dagsetningu fyrir tónleikana en þessi dagsetning hafí verið komin á hreint fyrir þremur mánuðum. „Það er ekki rétt að það hafí verið happafengur fyrir okkur að Rolling Stones aflýstu tónleikum sínum í Bretlandi. Ég var búin að vinna í þessu máli í nokkra mánuði áður en skattamálið kom upp. Þeir ætluðu að spila þar 21. ágúst þannig að þeir gætu komið hingað 22. ágúst.“ Tónleikarnir eru haldnir undir merkjum Listahátíðar og kom fram hjá Þórunni Sigurðardóttur, for- manni Listahátíðar 1998, að Ragn- heiður hefði komið að máli við hana fyrir ári og sagt henni frá fyrirætlan sinni. „Við tókum vel í það enda hefð fyrir því að rokktónleikar séu haldnir í tengslum við Listahátíð en skipu- lagðir af utanaðkomandi aðilum og jafnvel haldnir á öðrum tíma en Listahátíð." Vonast eftir 30 þúsund tónleikagestum Tónleikarnir verða haldnir á plani Eimskipa í Sundahöfn og er fulltrúi sveitarinnar væntanlegur innan tíðar til að líta á aðstæður. Hugmyndin er að flytja gámana á svæðinu til og búa til lokað svæði sem mun rúma 30 þús- und manns en það er sá fjöldi sem Ragnheiður vonast til að mæti. „Það verða allir í góðri sjónlínu við sviðið sem er reyndar miðað við 70-100 þús- und gesti. En þetta verður ekki vasa- útgáfa af tónleikum þeirra,“ sagði Ragnheiður. „Þeir flytja hingað sitt stærsta svið og allar gi’æjur. Þannig að við njótum fámennisins og erum svo heppin að fá að sjá hljómsveitina í meira návígi en aðrir.“ Ragnheiður sagði að sviðið með öll- um sínum öngum væri sennilega á stærð við Laugardalsvöll og flestir þeirra 250 sem koma hingað til lands í tengslum við tónleikana vinna við uppsetningu þess. Svið og tæki sem hvor um sig vega um 500 tonn verða flutt hingað til lands með skipi og flugvélum nokkrum dögum fyrir tón- leikana. „Sviðið verður flutt í bílum sem ekið verður í skip og þaðan á svæðið. Strax að loknum tónleikum verður svo hafist handa við að rífa það niður og því verður lokið á hádegi daginn eftir." Ragnheiður sagði fæsta gera sér grein fyrir hversu mikið fylgdi hljómsveit sem þessari. „En ég get lofað að þetta verður flott. Það er heilmikil Ijósasýning í kringum þetta og svo er öllu varpað á risastóran skjá fyrir ofan sviðið. Ekkert gefið upp um kostnaðarhlið Ragnheiður vildi ekkert gefa upp um kostnaðarhlið tónleikanna en upplýsti að hljómsveitin slægi ekkert af launakröfum sínum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um verð á mið- um og sagði Ragnheiður að það kæmi í ljós þegar endanlegur kostnaður við tónleikana lægi fyrir. „En miðarnir verða ekki seldir á himinháu verði.“ Ragnheiður sagði að um þrjá verð- flokka yrði að ræða. Sæti næst svið- inu yrðu dýrust en síðan yrðu tveir verðflokkar í stæði. Hún sagði að vinna við að finna styrktaraðila stæði nú yfir en ekkert yrði upplýst um þá að svo stöddu. Að sögn Ragnheiðar mun hljóm- sveitin spila í tæpar þrjár klukku- stundir. Hún hefur í huga að hafa nokkrar upphitunarhljómsveitir. „Ég vil að þetta verði langir tónleikar og þeir munu hefjast síðdegis." Hafðist á þrjóskunni Aðspurð hvort ekki hefði reynst erfitt að fá kappana hingað til lands sagði Ragnheiður að þetta hefði verið langt og strangt ferli. „Ég er í raun ekki hissa á því að enginn skuli hafa reynt þetta fyrr.“ En Ragnheiður kveðst hafa fengið þá umsögn frá um- boðsmanni sveitarinnar að hún væri þrjóskasta manneskja sem hann þekkti. „Ég er ekki þekkt fyrir að gefast upp.“ Hún sagði að það hefði m.a. skipt sköpum að David Bowie, sem spilaði hér á landi fyrir milli- göngu Ragnheiðar fyrir tveimur ár- um, hefði hrósað landi og þjóð mjög í eyru Micks Jaggers. Rokkararnir síungu munu dvelja hér á landi í þrjá daga og hyggjast þeir taka fjölskyldur sínar með sem heyrir til undantekninga á ferðum þeirra. Ragnheiður vildi þó ekkert gefa út á hvernig dvöl þeirra yrði skipulögð. „Ég ætla að ganga frá öll- um lausum þráðum áður en ég fer að hugsa um að skemmta þeim.“ 85 ára rokksveit BRESKA rokkhljómsveitin The Rolling Stones, sem er væntanleg hingað til lands til tónleikahalds í ágfúst, var stofnuð í Lundúnum fyrir 35 árum. Hljómsveitin, sem dregur nafn sitt af lagi eftir blús- söngvarann Muddy Waters, var á sínum tíma talin svar við Bítlun- um; ögrandi og spennandi mót- vægi við slétt og fellt yfirbragð síðarnefndu hljómsveitarinnar. Stofnendur Rolling Stones voru þeir Keith Richards og Mick Jagg- er, en sameiginlegur áhugi þeirra á blústónlist leiddi þá saman á lestarstöð. Þeir fengu til liðs við sig gítarleikarann Brian Jones, bassaleikarann Bill Wyman og síð- ar trommuleikarann Charlie Watts, en þeir Jagger, Richards og Watts eru enn í hljómsveitinni; Jones lést í júlí 1969 og Wyman hætti í hljómsveitinni fyrir nokkrum árum. Síðan Wyman hætti hafa ýmsir bassaleikarar leikið með hljómsveitinni inn á plötur og á tónleikum, en fjórði fastamaður í hljómsveitinni er Ron Wood gítarleikari. Rolling Stones þóttu leika held- ur hrárri tónlist en Bítlarnir og textar sumra laga þóttu tæpa á málum sem annars lágu í þagnar- gildi. Hljómsveitin var og snemma umdeild, ekki síst eftir að liðs- menn hennar voru handteknir og ákærðir fyrir fíkniefnaneyslu 1967, en grunur um umfangsmikla fíkniefnaneyslu liðsmanna, og þá sérstaklega Keith Richards, var staðfestur þegar Richards var handtekinn fyrir heróínneyslu í Kanada og meðal annars dæmdur í afeitrun. Fyrstu breiðskífur Rolling Ston- es byggðust að miklu leyti á lögum eftir uppáhalds tónlistarmenn þeirra, þar á meðal Chuck Berry, en smám saman náðu lög eftir þá Richards og Jagger yfirhöndinni og hefur verið svo upp frá því. Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinn- ar fór í efsta sæti vinsældalista vestan hafs, en þar í landi hefur hljómsveitin einna helst haldið velli í gegnum árin, á meðan vin- sældir hennar hafa dvínað nokkuð í heimalandinu. A áttunda áratugnum naut Roll- ing Stones einna mestra vinsælda á ferli sínum; tónleikaferðir henn- ar þóttu mikið ævintýri og plötur seldust vel, en á þeim tíma aug- lýsti hljómsveitin sig sem „mesta rokksveit veraldar". Þó tónleikar Rolling Stones hafi ævinlega verið hljómsveitinni mikill gróðavegur dró mjög úr plötusölu á síðustu ár- um og það var ekki fyrr en með síðustu hljómplötum sveitarinnar að hún glæddist að ný. I kjölfar dvínandi vinsælda gerðust liðsmenn Rolling Stones vegmóðir og nánast slitu sam- starfi, að því er kom fram í fjöl- miðlum víða um heim, því Jagger og Richards ræddust ekki við nema fyrir milligöngu Iögfræðinga sinna og gerðu plötur hvor í sínu lagi um miðbik níunda áratugar- ins. Allt féll þó í ljúfa löð og und- anfarin ár hefur hljómsveitin sent frá sér plötur með reglulegu milli- bili og haldið í tónleikaferðir víða um heim. Síðasta hljómplata Roll- ing Stones kom út í september sl. og ber heitið Bridges to Babylon. Aflýstu hljómleikum í Bretlandi vegna nýrra skattalaga London. Reutcrs. HLJÓMSVEITIN The Rolling Sto- nes, sem nú er að hefja hljómleika- ferð um Evrópu, hefur aflýst þeim hljómleikum, sem áttu að verða í Bretlandi í ágúst. Eru ýmsar ástæð- ur nefndar til en breskir fjölmiðlar segja, að aðalástæðan sé ný skatta- lög í Bretlandi. Seint á sunnudag gaf hljómsveitin út tilkynningu þar sem sagði, að hljómleikunum femum í ágúst hefði verið aflýst en þess í stað yrðu þeir haldnir í júní á næsta ári. Voru ástæðurnar sagðar verða meiðsli Keith Richards, sem rifbrotnaði í síðasta mánuði, og sú truflun, sem þau ollu á hljómleikahaldinu; trygg- ingamál og „skattamál11. The Times of London sagði í gær, að skattamálin hefðu vegið lang- þyngst. Hefði hljómsveitin haldið við fyrri áætlun um hljómleika í Bretlandi, hefði hún staðið uppi með skattareikning upp á 1,4 milljarða ísl. kr. „Þessi útkoma þýddi, að tap hefði orðið á Evrópuferðinni og við það vildum við ekki sætta okkur,“ hafði blaðið eftir Mick Jagger en hann er nú i Munchen í Þýskalandi en hljómleikaferðin hefst í Nurnberg. Samkvæmt gömlu skattalögunum voru breskir þegnar, sem bjuggu og störfuðu erlendis í meira en ár, und- anþegnir breskum skattgreiðslum dveldust þeir ekki lengur en 62 daga í Bretlandi. Ríkisstjórn Verka- mannaflokksins hefur hins vegar afnumið þessa reglu gagnvart öllum nema 10.000 sjómönnum. Aðrar hljómsveitir ætla að mótmæla Ekki er ljóst hvernig hljómsveit- in kemst framhjá nýju lögunum með því að flytja hljómleikana fram á næsta ár nema það tengist eitt- hvað þeim dagafjölda, sem hún hef- ur verið í Bretlandi á þessu ári. The Times sagði, að aðrar hljómsveitir, til dæmis Elton John og Oasis, hygðust mótmæla nýju skattalög- unum og getur þetta mál komið sér illa fyrir Tony Blair forsætisráð- herra, sem hefur lagt áherslu á að gefa Bretlandi nýja og „svala“ ímynd og lék sjálfur í rokkhljóm- sveit á sínum tíma. Hljómleikarnir á næsta ári verða í Edinborg 4. júní, Sheffield 6. júní og á Wembley 11. og 12. júní. Evrópuferðin hefst í Ntirnberg á laugardag en næst er Mílanó 16. júní. Múnchen 13. júlí; Barcelona 20. júlí; Gelsenkirchen 27. júlí og Mann- heim 12. september. ASI hefur undirbúning að félagsmannatryggingum fyrir 69.000 launamenn sambandsins Launþegar eigi kost á alhliða tryggingavernd Landssambönd Alþýðusambandsins hafa ákveðið að hefja í sumar undirbúning að því að koma á svonefndum félagsmannatrygg- ingum með það að markmiði að tryggja að launþegar innan raða þess eigi kost á hag- stæðri og alhliða tryggingavernd. Um yrði að ræða ýmiss konar tryggingar til viðbótar lögbundnum og samningsbundnum trygg- ingum, s.s. heimilis-, slysa-, veikinda-, líf- og húseigendatryggingar. Ómar Friðriksson kynnti sér málið. ANDSSAMBOND Alþýðu- sambandsins hafa ákveðið að hefja í sumar undirbún- ingsvinnu að því að koma á svonefndum „félagsmannatrygging- um“ í þeim tilgangi að bæta trygg: ingavernd félagsmanna innan ASI og ná hagkvæmari tryggingaiðgjöld- um fyrir launafólk innan raða ASI. Fyrirmynd slíkra trygginga er m.a. sótt til annarra Norðurlanda, eink- um Svíþjóðar. Hefur umræðan aðal- lega verið um ýmiss konar ti-ygg- ingamöguleika til viðbótar lögbundn- um og samningsbundnum ti’ygging- um, s.s. heimilis-, slysa-, veikinda- og líf- og húseigendatryggingar. Frá þessu er greint í Vinnunni, blaði AI- þýðusambands Islands. Félagsmenn í ASÍ í dag eru tæplega 69 þúsund talsins. Á seinasta þingi ASI var sam- þykkt stefnumörkun í þessum mál- um þar sem sagði að eitt af brýnustu verkefnum verkalýðshreyfingarinn- ar væri að sjá til þess að félagsmenn hennar ættu kost á betri alhliða tryggingavernd, s.s. gegn slysum í frítíma og tjóni á eignum. I seinasta mánuði hélt ASI ráðstefnu um tryggingamál og var þar m.a. fjallað um reynslu Svía af félagsmanna- tryggingum. I Vinnunni segir að ið- gjaldasparnaður sænsks launafólks af því að kaupa félagsmannatrygg- ingar sé meiri en sem nemi félags- gjaldi launamanna á hverju ári. Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASI, bendir á í samtali við Morgun- blaðið, að sænska alþýðusambandið hafí að undanförnu skilgreint þörf félagsmanna sinna fyrir mai’gs kon- ar tryggingavernd til viðbótar þeirri vernd sem almannatryggingakerfið veitir. „Hér eru menn að skoða þess- ar hugmyndir og eftir að hafa farið yfir þær eru allir sammála um að það sé þess virði að skoða þetta bet- ur,“ segir hann. Halldór segir ljóst að á ýmsum sviðum sé mjög takmörkuð trygg- ingavernd á íslenska trygginga- markaðinum, m.a. bendi tölur til þess að aðeins um 30% íslenskra heimila séu með viðunandi heimilis- tryggingar. Þá hafi lyfjakostnaður farið vaxandi að undanförnu, líf- tryggingar séu tiltölulega slakar al- mennt séð og áfallatryggingar í tengslum við vinnumarkaðinn séu einnig ófullnægjandi. „Það hefur komið okkur verulega á óvart hvað tryggingamarkaðurinn hér er van- þróaður," segir Halldór. „Við erum að hluta til að tala um að stækka markaðinn verulega og koma með einhverjar aðr- ar víddir en eni fyrir.“ Á ráðstefnu ASÍ fjallaði Tore Lindbom, fulltrúi sænska alþýðusambands- ins, um reynslu Svía af fé- lagsmannatryggingum og kom fram í máli hans að í Svíþjóð kostar trygging félagsmanns u.þ.b. þriðjung af því sem hún kostar á al- mennum markaði. I Vinnunni kemur fram að meginhluti félagsmanna- trygginganna í Svíþjóð fer í gegnum FOLKSAM tryggingafélagið, sem er að hluta til í eigu verkalýðshreyfing- arinnar og samvinnuhreyfingarinn- ar. Hagkvæninin byggist á fjöldanuni Gylfi Ai’nbjömsson, framkvæmda- stjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðu- bankinn hf. og fyrrv. hagfræðingur ASÍ, hefur unnið að undirbúningi og upplýsingasöfnun vegna þessa máls ásamt Guðmundi Gunnarssyni, for- manni Rafiðnaðarsambandsins. Gylfi segir í samtali við Morgunblaðið að á ýmsum sviðum sé lítil sem engin tryggingavernd í boði hér, t.d. varð- andi heimilistryggingar og ýmsar tegundir líf- og slysatrygginga. Bendir hann á að m.a. gætu opnast möguleikar á að bjóða tryggingar vegna sjúkdóma bama, slysa sem fólk verður fyrir í frítímum og tann- lækningakostnaðar. „Þótt almanna- tryggingarnar verði alltaf ódýrasti valkosturinn í þjóðfélaginu, þá er engu að síður hægt að sjá fyrir sér ýmsar tegundir trygginga, sem framkvæmdar yrðu í formi félags- legra trygginga, þar sem félagasam- tök kaupa ákveðnar tryggingar fyrir félagsmenn sína og hafa þær sem hluta af félagsgjöldum sínum. Með því er hægt að reikna út iðgjalda- þörfina með miklu dreifðari áhættu- líkum en ef um einstaklingsbundar tryggingar væri að ræða,“ segir Gylfi. Aðspurður segir Gylfi að ekki hafi verið teknar ákvarðanir um hvort t.d. bifreiðatryggingar yrðu hluti fé- lagsmannatrygginganna en í Vinn- unni em bílatryggingar og húseig- endatryggingar taldar meðal þeirra ti’yggingaflokka sem verkalýðs- hreyfingin hafi verið að horfa til. Að sögn Gylfa byggjast þessar hugmyndir á hagkvæmni hóptrygg- inga. Iðgjöld ráðist fyrst og fremst af áhættudreifingu og því sé mikil- vægt að um tiltölulega breiðan hóp sé að ræða. Ef samtök á borð við ASÍ stæðu að tryggingum af þessu tagi ætti innheimtu- og rekstrarkostnaður að vera lágur. Aðspurður segist Gylfi telja vel koma til greina að stofnað yrði sérhæft félag sem fengist við þessa tryggingastarfsemi. „Ég sé alveg fyrir mér að svona verkefni yrði almenningshlutalélag sem yrði með dreifðri eignaraðild og skráð á verðbréfaþingi," segir hann. Halldór segir ýmsar útfærslur til skoðunar hvað þetta varðar. M.a. mætti hugsa sér stofnun hlutafé- lagsins Alþýðutrygginga hf., sem hefði með höndum ákveðna sam- setningu hinna ýmsu trygginga fyr- ir tryggingataka og semdi svo við eitthvert tryggingafélag eða byði pakkann út. „Næsta skrefið er að skoða hvaða kostir eru í stöðunni," segir Halldór. Rætt um tannlækn- inga-, innbús- og veikinda- tryggingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.