Morgunblaðið - 09.06.1998, Síða 34

Morgunblaðið - 09.06.1998, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ1998 AÐSENDAR GREENAR MORGUNBLAÐIÐ 5» * Um stíl „Sennilega verður Landsbankamálsins svokallaða og annarra skyldra mála ekki síður minnst í sögubókum fyrir kjarnyrtan stíl Sverris en efnisþætti þeirra ásakana sem gengið kafa manna á milli. “ Stíll skiptir máli. Þetta virðast vera sjálfsögð sannindi en ótrúlega fáir bera hins vegar skynbragð á þau. Margir líta nefnilega á stíl sem stæla. Það er leiður misskiln- ingur. Aðrir líta á stíl sem fyr- irferðarmikið aukaatriði, sem hismið utan um kjarnann: Komdu þér nú að kjarna máls- ins, komdu þér að efninu, segja þeir í tón sem gæti virst rétt- mæt óþolinmæði en er bara skilningsleysi hins andlausa. Allir eru með stíl en það eru hins vegar ekki allir sem hufíi stíl. Þar liggur VIÐHORF Eftir Þröst Helgason hundurinn grafinn. Skarphéðinn hafði stíl en Mörður síður. Bogart hafði stfl en Bruce Willis hefur hann ekki. Sverrir hefur stfl en Finnur alls ekki. Stíll getur þannig verið spurning um háðsleg tilsvör á örlagastundu, nefmæltan töffaraskap með sí- garettuna lafandi út úr frosnu andlitinu eða vestfírskan tröll- skap. í máli Sverris Hermannsson- ar, fyrrverandi bankasjóra Landsbanka íslands, hefur reyndar komið berlega í Ijós hvað stíll hefur mikið vægi. Þegar Sverrir bar æðstu menn bankans og ábyrgðarmenn í þjóðfélaginu alvarlegum sökum um spillingu og sukk snerist umræðan um eitt eða tvö skammaryrði sem hann lét falla í hita og þunga augna- bliksins. Greyin sem orðin hrutu á góluðu af öllum lífs og sálar kröftum í fjölmiðlum eins og þessar skammir væru eitt- hvert stórmál en mennirnir sem sakirnar beindust að þögðu þunnu hljóði - og gera enn. Það er raunar mjög athyglis- vert að skoða það viðhorf sem birst hefur til gi-einaskrifa Sverris að undanförnu. Ekki er nóg með að efni greinanna hafí að miklu leyti fallið í skuggann af rithætti hans heldur hefur stfll hans orðið öðrum deiluaðil- um skálkaskjól; þannig hefur til dæmis Finnur Ingólfsson, viðskiptaráðherra, neitað að svara skrifum Sverris efnislega á grundvelli ritháttar hans og ýjað að því að Sverrir ætti við einhver persónuleg vandamál að stríða. Hér er um alþekkt undan- brögð að ræða sem beitt hefur verið í gegnum aldirnar til þess að kasta rýrð á málflutn- ing andstæðings. Heimspek- ingar kalla rök sem þessi ad hominem rök en þau „skír- skota til fordóma eða hags- muna viðmælandans fremur en skynsemi hans eða dómgreind- ar“, eins og segir í Ensk-ís- lenskri orðabók Arnar og Ör- lygs. Slík röksemdafærsla er sem sé ætluð til að kasta ryki í augu fólks. I hugmyndasögunni þekkj- um við dæmi um að slíkum rök- um hafi verið beitt gegn ákveðnum heimspekingum sem hafa siglt gegn straumnum, eins og til dæmis Friedrich Ni- etzsche sem oftlega hefur verið sagður ómarktækur vegna þess að hann hafi verið geðsjúkur síðustu ár ævinnar eða vegna þess að hann hafi alltaf verið svo einmana. Líkt og Sverrir hefur Nietzsche einnig verið sagður ómarktækur vegna þess að hann var svo mikill stflisti; hann var skáld en ekki heim- spekingur, segja menn og ganga út frá því að skáldskap- ur og heimspeki séu andstæð- ur, að stflsnilld og skynsemi geti ekki farið saman. Menn verða að tala „rétt“, að öðrum kosti er ekki mark á þeim tak- andi, orð þeirra verða einungis öskur í særðu ljóni eða óðs manns órar. Það eru til margar skilgrein- ingar á stfl. Stundum hefur verið gengið út frá því að stíll sé búningur hugsunarinnar og að form og inntak séu þá að- skilin. Nú til dags er hins vegar oftast gengið út frá því að stfll sé samband forms og inntaks. Jafnframt er þá gert ráð fyrir því að áhrif þessa sambands séu mismunandi á einstaka les- endur; skynjun og túlkun les- andans er þannig stórt atriði í stíl, að minnsta kosti ekki minna en aðferð og ætlun höf- undarins. Þetta afstæði hins ritaða orðs vill oft gleymast í hita og þunga opinberrar umræðu. Aðalatriðin, efnisatriði umræð- unnar vilja dnikkna í stflbrögð- um, undanbrögðum ýmis konar og rökklækjum eins og þeim sem bent var á hér að framan eða í rangtúlkunum. Þannig er málunum drepið á dreif. Því er mjög mikilvægt að hinn al- menni lesandi sé sér meðvit- andi um stfl þeirra höfunda sem í hlut eiga, að fólk velti ekki aðeins fyrir sér hverjir tala/skrifa heldur einnig hvern- ig þeir tala/skrifa. Sennilega verður Lands- bankamálsins svokallaða og annarra skyldra mála ekki síð- ur minnst í sögubókum fyrir kjarnyrtan stfl Sverris Her- mannssonar en efnisþætti þeirra ásakana sem gengið hafa manna á milli. Stíllinn hef- ur enda leikið stórt hlutverk. Með stóryrtum, beittum og berorðum stíl, með einlægum en stundum hrokafullum, áköf- um en stundum ofhlöðnum stíl hefur Sverri bæði tekist að vekja athygli á málflutningi sínum og andúð; hann hefur beitt úthugsuðum brögðum í framsetningu máls síns til að kalla fram grunsemdir lesenda en jafnframt hefur stfll hans gefið mönnum tilefni til þess að varpa grunsemdum á persónu hans sjálfs. Og eins og gengur og gerist í hinum svokölluðu siðmenntuðu vestrænu samfé- lögum, sem segja að málfrelsi sé ein af meginundirstöðum réttlætis, þá stendur sá uppi sem sigurvegari, sem hinn rétt- láti og góði, sem hefur her- kænskuna, taktíkina, stílinn á hreinu. Til varnar sænskri löggu - og íslenskri AÐ UNDANFORNU hefur mik- ið verið fjallað um skýi-slu sænsks lögi’egluþjóns er hér dvaldi um þriggja mánaða skeið og kynnti sér fíkniefnamál. Stundum hefm’ í þessari umfjöllun verið vikið að honum hálfgerðum ónotum og skýi-slan sögð ómerkileg og ekki mark á henni takandi. Gefið hefur verið í skyn að hann sé stráklingur að læra, hafi litla reynslu af lög- reglumálum nema helst úr sænskri sveit, sé skreytinn og fari með fleipur. Loks var einhver fíkniefna- sali að hnjóða í hann fyrir að spilla fyiár sér viðskiptum. Nú er maður- inn farinn af landi brott, var aukin- heldur lítið kominn niður í ís- lensku, svo hann getur sjálfur hvorki varið sig né staðhæfingar sínar. Ég sat tvo fundi með þessum gesti, hef lesið skýrsluna og rætt hana við ýmsa. Ég vil taka upp hanskann fyrir fjarstaddan Svíann ogýerá blak af vinnu hans hér. I fyi-sta lagi þá er Carl-Filip Hendriksson ekki nemi heldur með sex ára starfsreynslu að baki og hefur lagt sig eftir að greina vímu- efnaáhrif á fasi manna og svip- brigðum á námskeiðum fyrir lög- reglumenn. Hann hefur starfað í Nacka-hverfinu í Stokkhólmi sem ber lítinn keim af þorpinu hans Emils í Kattholti. Ég vil hvorki gera of mikið úr vísindamennsku þeirra vinnubragða sem hann beitti í giæiningu sinni né of lítið, en mestu skiptir að hann gerði heiðarlega grein fyrir aðferðinni í skýrslunni og á fund- um, og hefur borið sig eftir faglegri þekkingu sem mér er tjáð að ís- lenska lögreglan búi ekki yfir. Sumt af því sem vefengt hefur ver- ið, t.d. að ástandið í fíkniefnamálum í Reykjavík sé síst betra en í Stokkhólmi, kem- ur heim við niðurstöð- ur úr nýgerðum vís- indalegum könnunum. Viðbrögðin við skýrslunni bera óneit- anlega keim af því þegar boðberi vondra tíðinda er gerður að söku- dólgi. Viðbrögðin við skýrsl- unni bera óneitanlega keim af því, segir Jón Björnsson, þegar boð- beri vondra tíðinda er gerður að sökudólgi. í útlendum málum er til sögnin að „problematisera"; ég kannast ekki við góða hliðstæðu í íslensku, en þetta þýðir að gera eitthvað að vandamáli. Til er fólk, svonefndir vandamála- fræðingar, sem alltaf er að þessu, býr til leiðindi úr öllum sköp- uðum hlutum og er ósköp hvimleitt. En svo er hitt, til að sjá raunverulegan vanda í atriði sem öllum hefm' virst meinlaust. Mér sýnist að við Islend- ingar höfum ekki gert næn'i nóg af því að „problematisera" ým- islegt í sambandi við fíkniefni, við skynjum ekki að sumt sem við gerum og líðum og finnst allt í lagi, er ekkert í lagi. Við horfumst ekki heiðarlega í augu við raunveruleg vandamál, við fegrum þau, afsökum þau og ef einhver bendir okkur á þessa blindu þá höfum við tilhneigingu til þess að gera grín að honum, kalla hann aula eða a.m.k. óvísindalegan. Hún er auðvitað ekkert í lagi tvö- feldnin í okkur gagnvart vímuefn- um, það er ekkert í lagi að trúa því að vímuvandi sé aðallega úti í heimi og Islandi litla verði hlíft við hon- um, það er ekkert í lagi að foreldr- ar kaupi áfengi fyrir börn sín af því þau útvegi sér það hvort eð er, það er ekkert í lagi að við vitum um börn sem ánetjast fíkniefnum án þess að við tökum á því, það er Jön Björnsson Tindur - sækjum á brattann SJÓNUM Vestfirð- inga og annarra lands- manna verður beint að atvinnulífi svæðisins á umfangsmikilli at- vinnuvegasýningu dag- ana 13. og 14. júní nk. Sjávarútvegurinn hefur verið sá grunnur er atvinnulífið á Vest- fjörðum hefur lengi byggst á - í upphafi þó sem aukabúgrein bænda er reru til hafs og sóttu björg í bú í gullkistuna við bæjar- dyrnar, hafið. Atvinnuhættir fjórð- ungsins hafa breyst frá fyrstu ferðum heimamanna eftir sjávarfangi, en með tíð og tíma safnaðist hér þekking á hafinu, veð- urfari, veiðum og vinnslu aflans. Erlendir sjómenn og kaupmenn er leituðu á íslensku miðin skildu eftir hluta af sinni þekkingu og við- horfum sem íbúar svæðisins lærðu einnig af. Landbúnaður, sjósókn og verslun eru þeir atvinnuvegir er lögðu grunninn að vestfirsku at- vinnulífi. Með auknum umsvifum í sjávarútvegi þróuðust smiðjur og netagerðir, iðnaður sem borið hefur hróður vestfirsks atvinnulífs víða um lönd og gerir enn. Að horfa til fortíðar er hollt, með þá sýn verður tengingin við nútíð- ina skýrari og treystir gmnninn sem byggt er á til framtíðar. Leiðandi afll íslenskt atvinnulíf hefur tekið stökkbreytingum, framþróunin hef- ur orðið á flestum sviðum: í sam- göngum, fjarskiptum, verslun, fjár- málaviðskiptum, með breyttum landbúnaðarháttum og í sjávarút- vegi. I efnahagsstarfsemi þjóðarinn- ar eru aðrar víddir sýnilegar, önnur sjónarmið era ríkjandi varðandi bú- setu manna - en flest sem gert er byggist á tiltrú á framtíðina. Atvinnuþróunarfé- lag Vestfjarða var stofnað í árslok 1996 og fyrstu starfsmenn komu til starfa í mars 1997. A aðeins rúmu ári hefur félagið komið að mörgum verkefnum og fulljrrða má að AtVest sé orðið sýni- legt afl í atvinnulífi og nýsköpun á Vestfjörð- um. A tímum mikilla breytinga er nauðsyn- legt að huga vel að þróunarstarfi og grein- ingu atvinnulífsins, kanna veikleika og styrkleika hvers svæðis. AtVest er ungt félag sem miklar vonir eru Atvinnuvegasýning Vestfjarða stendur dagana 13. og 14. júní 1988. Þórunn Gests- dóttir segir markmið sýningarinnar að sýna metnaðarfulla framrás í atvinnu- og mannlífi Vestfjarða. bundnar við, hér hafa gengið yfir áföll og töluvert verið um brott- flutning íbúa af svæðinu. Það er mikil ábyrgð er hvílir á herðum forystumanna í sveitar- stjórnum og í fyrirtækjum að snúa þeirri þróun í aðra átt, snúa vörn í sókn og skapa vænlegt umhverfi og atvinnulíf sem eftirsóknarvert er að efla enn frekar. Abyrgðin er ekki eingöngu leiðtoganna - hún fylgir hverjum íbúa í starfi, umgengni og viðhorfum til uppbyggingarstarfa og framgangi bæjarfélagsins. Framrás Að vera leiðandi afl við mótun at- vinnustefnu á Vestfjörðum er helsti þátturinn í starfsemi Atvinnuþró- unarfélags Vestfjarða. AtVest er hlutafélag í eigu sveitarfélaganna í fjórðungnum, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. A stuttum ferli hafa starfsmenn unnið að hvers konar upplýsingamiðlun, viðskipta- ráðgjöf, markaðsathugunum, veitt frumkvöðlum og uppfinningamönn- um aðstoð, staðið fyi-ir málþingum og námskeiðum og gefið út frétta- bréf. Afraksturinn er viðunandi, fé- lagið er orðið afl sem íbúarnir bera traust til. Atvinnuvegasýning Vestfjarða er eitt af verkefnum AtVest, fyrsta sýningin er félagið stóð að var hald- in í fyrra og tókst mjög vel. I annað sinn verður sjónum okkar beint að vestfirsku atvinnulífi með þessum hætti, að sjá það í hnotskurn í íþróttahúsinu á Torfnesi (ísafirði), þar sem sýningin fer fram 13. og 14. júní. A Vestfjörðum er „ærinn auður“ bæði í náttúruauðlindum og mannauði. Þegar þær lindir eru tengdar saman, safnast orka vilja og hugvits í framrás atvinnulífsins. Markmiðið með Atvinnuvegasýn- ingu Vestfjarða 1998 er að sýna metnaðarfulla framrás sem er í at- vinnu- og mannlífi Vestfjarða. Yfir- skrift sýningarinnar er TINDUR - sækjum á brattann. Hér ríkir bjart- sýni því í verkum okkar og orðum felst framtíðarsýnin. Við endur- speglum ki-aftmikið atvinnulíf sem mótast af framsýni, atorku og metnaði. Höfundur er verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Þórunn Gestsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.