Morgunblaðið - 09.06.1998, Page 36

Morgunblaðið - 09.06.1998, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Að velja sér nám > í samræmi við j> hæfni og áhuga OORUGGUR og feimnislegur eða glað- beittur og hvatvís bankar nemandinn upp á hjá námsráð- gjafa. „Má ég trufla þig aðeins, ég veit ekki hvort ég er á réttum stað,“ eru oft fyrstu orð nemanda sem ekki hefur leitað áður til námsráðgjafa. I þess- ari grein mun ég fjalla um námsráðgjöf á framhaldsskólastiginu og mikilvægi hennar í síbreytilegu þjóðfélagi. Starfsvettvangur námsráðgjafa er mjög fjölbreytilegur. Námsráðgjafi veit- ir leiðsögn um skipulagningu námsins, ráðgjöf um náms- og starfsvai og liðsinnir nemendum vegna námsvanda. Einnig aðstoðar hann nemendur við persónuleg mál sem tengjast náminu. Hann hefur samvinnu við kennara, skólastjórn- endur, aðstandendur nemenda og ýmsa fagaðila. Námsráðgjafi er með opna við- talstíma en einnig er hægt að panta tíma. Flesti nemendur leita eftir aðstoð að eigin frumkvæði. Ef ástundun í námi er ófullnægjandi kallar námsráðgjafí á nemandann í viðtal. Auk þess fær námsráðgjafí ábendingar um nemendur sem þyrftu á aðstoð að halda, oftast frá foreldrum, aðstandendum eða vin- um. Námsráðgjafi þarf að átta sig á stöðu nemandans og öllu hans umhverfi til þess að hægt sé að vinna með þá hegðun sem hindrar hann í að ná ákveðnu markmiði. Breytt þjóðfélag kallar á aukna náms- og starfsráðgjöf I starfi námsráðgjafa kemur glöggt fram að margir nemendur eiga erfitt með að ákveða sig varð- andi nám og framtíð. Spurningar eins og „Hvert stefni ég? Hvað vil ég? Hvernig get ég það?“ eru á vörum allflestra nemenda. I allri vinnu er mikilvægt að hafa mark- mið að stefna að og er nám þar engin undantekning. Skortur á markmiði getur leitt til áhugaleysis og jafnvel brottfalls úr námi. Hátt brottfall úr framhaldsskól- um sýnir hve brýnt er að aðstoða nemendur við náms- og starfsval. Nemendur og aðstandendur þeirra þuifa að kynna sér vel fjölbreyti- legt námsframboð á framhalds- skólastigi, til dæmis með aðstoð námsráðgjafa. Það er ekki lengur hefðin sem leiðir fólk í ákveðið nám eða starf. Þeir dagar eru liðnir þegar fáir gengu til mennta og námsval stóð aðeins á milli nokkurra starfs- stétta. „Er það presturinn, lögmað- urinn eða læknirinn?“ er spuming sem eitt sinn náði nokkuð vel yfir helstu mehntunarmöguleika. A síð- ustu árum og áratugum hefur margt breyst og ný störf hafa myndast meðan önnur falla út eða eru yfirmönnuð. Þessar breytingar kalla meðal annars á öflugri náms- og starfsráðgjöf í skólakerfinu. Samkvæmt kenningum er náms- og starfsval þroska- ferli sem hefst þegar á bamsaldri og stendur í raun alla starfsæv- ina. I samskiptum við foreldra sína og um- hverfi áttar bamið sig á að til eru margs kon- ar störf. Barnið prófar síðan hin ýmsu störf í hlutverkaleikjum. Hver kannast til dæm- is ekki við ungu búðar- konuna, hárgreiðslu- konuna, snyrtidömuna og hinn upprennandi bílstjóra, flugmann, lækni, eða slökkviliðs- mann? Náms- og starfsval er hægt að örva og þroska með ákveðnum verkefnum. I viðtölum aðstoða námsráðgjafar nemendur við ákvörðunartöku um nám og starf. Nemendur og aðstand- endur þurfa, segir Sig- ríður Hulda Jónsdóttir, að kynna sér vel fjöl- breytilegt námsfram- boð á framhaldsskóla- stigi - t.d. með aðstoð námsráðgjafa. Einnig er æskilegt að bjóða upp á náms- og starfsfræðslu fyrir hópa í framhaldsskólum. Akvörðunartaka einstaklings um framtíð sína þarf að byggja á mikilli sjálfsþekkingu og ítariegri upplýsingaöflun. Mikil- vægt er að hann þekki sitt áhuga- svið, sínar sterku hliðar og síðast en ekki síst hvað hann telur mikil- vægt í lífinu. Einnig þarf hann að- gang að upplýsingum um námsleið- ir og störf sem getur verið flókið í síbreytilegu nútíma samfélagi. Upplýsingar um einstaklinginn og eðli mismunandi starfa gefa síðan hugmyndir um hvaða störf gætu hentað hverjum og einum. I náms- og starfsráðgjöf er hægt að nota áhugasviðskannanir til af fá fram vísbendingar um hvaða störf henta hverjum einstaklingi með tilliti til hans áhugasviðs. Margvíslegar ástæður fyrir komu til námsráðgjafa Flestir nemendur leita til náms- ráðgjafa til að fá aðstoð við náms- val, skipulagningu námsins, náms- tækni, heimanám og upplýsingar um námsleiðir innan skólans eða utan. Einnig leita nemendur til námsráðgjafa vegna prófkvíða, námserfiðleika og námsleiða. Sem dæmi um þetta vil ég nefna stúlku á öðru ári sem segir: „Ég er alltaf að fresta öllu sem ég á að gera. Svo las ég grein eftir náms- ráðgjafann í skólablaðinu sem hét: „Ertu frestari?" Ég hrökk við og dreif mig í viðtal. Námsráðgjafinn byrjaði á að spyrja mig hvað mér þætti skemmtilegast að læra og hvað mig langaði að gera í framtíð- inni. Við ræddum mikið um áhuga- Sigríður Hulda Jónsdóttir * Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks f fasteignaleit www.mbl.is/fasteignir svið og mismunandi störf. Síðan gerðum við saman vinnuáætlun fyrir heimanámið og námsráðgjaf- inn útskýrði hvernig best væri að nálgast ýmis verkefni. Ég kom vikulega í viðtal í nokkurn tíma og vann upp það sem ég hafði frestað. Nú þarf ég að finna minn eigin styrk og aga. Ég hef meiri áhuga á framtíðinni af því að ég er farin að hugsa um hvað muni henta mér best. Ég geri mínar vinnuáætlanir sjálf ef það gengur ekki nógu vel lít ég inn hjá námsráðgjafanum." Sértækir námsörðugleikar Nemendur með sértæka námsörðugleika fá sérstaka aðstoð, s.s. einstaklingskennslu, hljóðbæk- ur, séraðstæður í lokaprófum o.fl. Aðstoð við þessa nemendur hefur stóraukist á síðustu árum en er þó enn sniðinn þröngur stakkur vegna takmarkaðs fjármagns. Piltur sem nálgast útskrift segir: „Námsráð- gjafi hefur aðstoðað mig mikið eftir að ég greindist með lestrarerfið- leika. Hún fylgist með skólagöngu minni og við tölum saman nokkrum sinnum yfir önnina. Það veitir mér aðhald og stuðning. Það er gott að vita að einhver fylgist með manni, þá reynir maður að standa sig bet- ur. Hún skrifar kennurunum mín- um bréf og segir þeim frá mínum vandamálum. Mér gengur betur í prófunum eftir að ég fæ að taka þau í sérstofu, fæ lengri próftíma og ef þarf, fer kennarinn munnlega yfir prófið með mér. Þannig á ég auðveldara með að koma til skiia því sem ég hef lært og er ekki eins kvíðinn fyrir próf. Aður lenti ég alltaf í tímahraki og var mjög stressaður fyrir skrifleg próf.“ Persónulegir og félagslegir erfiðleikar Ef nemandi á í persónulegum eða félagslegum erfiðleikum verð- ur það oft til þess að hann á erfitt með að einbeita sér að náminu og nær ekki árangi’i sem skyldi. í slík- um tilfellum þarf að aðstoða nem- andann við að leita lausna á vand- anum þannig að hann geti stundað námið af heilum hug. Oft er vísað á viðeigandi sérfræðing sem vinnur þá með nemandanum og er í sam- bandi við námsráðgjafa um leið. Stúlka á öðru ári segir: „Mér gekk vel fyrsta árið í skólanum og það var gott að vera til. Svo breyttist allt heima og ég varð að fara að vinna mikið með skólanum. Ég fór að skrópa í kennslustundum og missti áhuga á öllu. Meðal annars vegna lélegrar mætingar kallaði námsráðgjafinn á mig í viðtal. Mér fannst það vonlaust og ætlaði ekk- ert að segja þó mér liði illa. Samt ákvað ég að koma aftur í viðtal og smám saman vissi hún allt. Mér leið betur og við settum saman markmið fyrir mig að stefna að og ræddum áhugamál, framtíð, vilja- styrk og uppbyggjandi lífsstíl. Auðvitað vildi ég ná prófunum og ákvað að reyna að taka mig á. Fyrsta skrefið var að bæta skóla- sóknina. Ég var undir mjög ströngu eftirliti en samt missteig ég mig nokkrum sinnum. Þegar maður hefur vanið sig á slæma siði er erfitt að breyta aftur um. í sam- vinnu við námsráðgjafann tókst mér smám saman að koma mér inn í „hinn góða hring“ í náminu. Mér finnst skelfilegt til þess að hugsa að ég var næstum búin að skrópa mig út úr skólanum og ekki veit ég hvar ég væri stödd þá.“ Að lokum Af ofantöldu má vera ljóst að það er flókið ferli að mynda sér fram- tíðarsýn og taka ákvörðun um eig- in stefnu. Sá lífsstíll, sem einstak- lingurinn myndar sér smám saman þar sem atvinna og áhugamál skapa ákveðinn sess, þarf að full- nægja hans þörfum. Þeir sem velja nám og störf í samræmi við áhuga, getu og hæfni eru líklegri til að finna sér farsælan farveg. Höfundur er námsráðgjafí við Fjöl- brautaskólann f Garðabæ. Uppsagnir hjúkrunar- fræðinga - hvað veldur? MJÖG margir hjúkrunarfræðing- ar á Ríkisspítölum, Sjúkrahúsi Reykjavíkur, hjúkrunarheimilunum og heilsugæslustöðvum á Reykja- víkursvæðinu hafa sagt upp störfum sínum vegna óánægju með launakjör. Uppsagnir á Ríkisspítölum og Sjúkrahúsi Reykjavík- ur og í heilsugæslunni í Reykjavík munu taka gildi 1. júlí nk. Akvörðun um upp- sögn er ákvörðun hvers og eins hjúkrunarfræð- ings, tekin að vel íhug- uðu máli. Þegar svo margir taka svo alvar- lega ákvörðun að segja upp starfi sínu verða skilaboðin ekki misskil- in. Sem formaður í fag- stéttarfélagi hjúki’unarfræðinga hef ég þungar áhyggjur af þessum aðstæðum vegna afkomu félags- manna og reksturs heilbrigðis- stofnananna. Hjúkrunarfræðingar eru alla jafna seinþreyttir til vandræða. Mikið þarf til að einstaklingar, sem Hjúkrunarfræðingar hafa lýst því yfir, segir Asta Möller, að þeir muni ekki sæta þessu launamisrétti lengur á vinnustöðum sínum. lokið hafa margi’a ára háskólanámi og menntað sig til að gegna sér- hæfðum ábyrgðarmiklum störfum í þágu samfélagsins, segi upp störf- um sínum og lýsi sig reiðubúna til að hverfa til annarra starfa. En hvað veldur? I júní 1997 var undirritaður kjarasamningur milli Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga og við- semjenda þess. Kjarasamningurinn fól í sér að tekið var upp nýtt launa- kerfí. Þar eru ákveðnir þættir kjarasamningsgerðar færðir til stofnana, þar sem fulltrúum stétt- arfélags og stofnana er falið að semja um hvaða forsendur skuli leggja til grundvallar launaákvörð- unum tiltekinna starfa og einstak- linga. Þar skal m.a. taka mið af starfslýsingu, en einnig ábyrgð, þekkingu, hæfni og reynslu. Öll fé- lög háskólamanna, utan kennara og lækna, gerðu sambærilega samn- inga, sem hefur þann kost að hægt er að bera saman flokkun starfa há- skólamanna milli stéttarfélaga, starfshópa, kynja og stofnana. Hið nýja launakerfi byggir jafnframt á hugmyndum um gagnsæi launaá- kvarðana. Það ýtir m.a. undir að yf- irborganir, sem tíðkast hafa um árabil hjá mörgum hópum opin- berra starfsmanna, séu teknar inn í grunnlaun og raunveruleg kjör hinna ýmsu starfshópa komi upp á yfirborðið. Nýtt launakerfi hefur því fært mörgum háskólamönnum verulega grunnkaupshækkun, sem er ánægjuleg þróun. Um leið hefur launamunur milli starfshópa, stofn- ana og kynja komið í ljós, en það er forsenda þess að unnt sé að taka á launamisrétti sem hefur viðgengist innan opinbera geirans milli stétt- arfélaga, starfshópa, kynja og stofnana. Fjölmargir samningar ýmissa stéttarfélaga við stofnanir ríkisins og Reykjavíkurborgar utan heil- brigðisstofnana liggja fyrir. Það sem einkennir þessa samninga öðru fremur er að yfirborganir hafa ver- ið teknar inn í grunnlaun. Hjúkrun- arfræðingar hafa yfir- leitt ekki notið yfir- borgana, sem gerir það að verkum að hjúkrunarfræðingar sjá fram á að grunn- laun þeirra í nýju launakerfi verða að óbreyttu tugum pró- senta lægri en annarra starfshópa í opinberri þjónustu sem eru með sambærilega mennt- um og ábyrgð. Af sam- ræðum mínum við hjúkrunarfræðinga er ljóst að þessi stað- reynd er ein helsta ástæða þess að hjúkr- unarfræðingum er misboðið og þeir hafa sagt upp störfum sínum. Um langan tíma hefur launamis- rétti ríkt innan heilbrigðisstofnana. Sama stofnun og hjúkrunarfræð- ingur ræður sig til hefur t.d. boðið nýútskrifuðum verkfræðingum, náttúrufræðingum og sjúkraþjálf- urum sem eru með jafn langa menntun að baki um 25-40% hærri laun með því að greiða þeim fasta yfirvinnu auk taxtalauna. Nýút- skrifaður læknakandidat er með 40% hæiri laun en nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur, og 10% hæn-i laun en deildarstjóri yfir stórri sjúkradeild sem veltir um og yfir 100 milljónum á ári. Hjúkrunar- fræðingar hafa lýst því yfir að þeir muni ekki sæta þessu launamisrétti lengur á vinnustöðum sínum. Þá hefur einnig komið í ljós að fjöldi stofnana sem lokið hafa gerð samninga á vinnustöðum skilgreina störf nemenda og byrjenda í starfi í sama starfaflokk og stóru sjúkra- húsin í Reykjavík vilja að 70-80% hjúkrunarfræðinga raðist í. Þessi afstaða sjúkrastofnana hefur vakið reiði hjúkrunarfræðinga, sem finnst þeir settir niður. Sú ranghugmynd hefur verið ríkjandi að hjúkrunarfræðingar hafi þokkaleg laun. Staðreyndin er hins vegar sú að grunnlaun nýút- skrifaðs hjúki’unarfræðings, sem lokið hefur fjögurra ára háskóla- námi er rétt rúmar eitt hundrað þúsund krónur á mánuði í nýju launakerfi. Hjúkrunarfræðingur sem starfað hefur í meira en 20 ár við sitt fag hefur um 120 þúsund krónur í grunnlaun á mánuði fyi’ir fullt starf í dagvinnu. Ófaglærðum ungmennum eru boðin þessi laun við búðarkassa í matvöruverslunum hér í bæ. Hjúkrunarfræðingar gera auð- vitað kröfur um að störf þeirra, menntun og ábyrgð séu ekki lakar metin í nýju launakerfi en störf og persónubundnir þættir hjá öðrum háskólamönnum. Það hlýtur að vera krafa hjúkrunarfræðinga að vinnuveitendur, stjórnvöld og stofnanir standi við fyrirheiti um að ,jafna þann launamun karla og kvenna sem ekki er hægt að út- skýra nema á grundvelli kyns. Með nýju launakerfi gefst tækifæri til að vinna að þeim markmiðum" eins og segir í yfirlýsingu fjármálaráðheiTa og Reykjavíkurborgar með kjara- samningi Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga frá 9. júní 1997. Nú er komið að efndum hjá vinnuveitend- um. Höfundur er formaður Félags fs- lenskra lyúkrunarfræðinga. Ásta Möller

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.