Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 37
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
Enn færist skatta-
dagurinn framar
HEIMDALLUR
hefur um nokkurt
skeið minnt árlega á
svonefndan skattadag.
Skattadagurinn er sá
dagur ársins sem
landsmenn „hætta að
vinna fyrir ríkið og
fara vinna fyrir sjálfa
sig“. Hin ákveðna dag-
setning er fundin út
með því að reikna út
meðaltal skatta ein-
staklings út frá hlut-
falli útgjalda hins op-
inbera og iðgjalda líf-
eyrissjóða af vergi-i
landsframleiðslu.
Þetta er auðvitað ekki
fullkomið eða óumdeilanlegt mæli-
tæki á skattbyrðar landsmanna,
engu að síður athyglisverður leið-
ai-vísir. Útreikningar sýna að
skattadagurinn var að þessu sinni
29. maí. Skattadagurinn hefur því
færst fram um fimm daga frá síð-
asta ári og hefur ekki
verið fyrr á ferðinni í
áratug.
Stutt skref
en mikilvægt
Skattadagurinn
minnir á hve gífurlega
umsvifamikið hið opin-
bera er hér á landi.
Skattbyrði lands-
manna er 40,4% sé
fyrrnefnt hlutfall not-
að sem þýðir að 148
dagar fara í að vinna
fyrir fyrrgreindum
skyldugreiðslum. Þar
með er reyndar ekki
öll sagan sögð því
mælikvarðinn tekur ekki tillit til
skyldugreiðslna almennings og fyr-
irtækja til verkalýðsfélaga eða
stofnana á borð við Ríkisútvarpið
eða sjúkrasjóði. Ekki er heldur
reiknað með þeim áhrifum á lífs-
kjör almennings sem hindranir og
Ingvi Hrafn
Óskarsson
kvaðir ríkisins hafa, svo sem inn-
flutningshöft og ríkisvernduð sér-
leyfi og einokun. Ekkert tillit er
tekið til þess hve mikill tími lands-
manna, fyrirtækja og einstaklinga,
fer í skýrslugerð fyrir hið opinbera
eða umstang sem hlýst af skyldu-
bundnum samskiptum við seinvirk-
ar ríkisstofnanir. Undanfarin þrjú
ár hefur skattadagurinn verið að
þokast framar. Þetta verður fyi-st
og fremst rakið til árangurs ríkis-
Þess er óskandi, segir
Ingvi Hrafn Oskarsson
í tilefni af skattadegin-
um, að ríkisstjórnin
hafi kjark til að ganga
áfram á sömu braut.
stjómar Davíðs Oddssonar í ríkis-
fjármálunum; hægt hefur á vexti í
útgjöldum hins opinbera og á sama
tíma hefur hagvöxtur verið meiri
en undanfarið og landsframleiðslan
aukist. Ríkisvaldið er þó enn sama
ferlíkið, um er að ræða stutt skref
en engu að síður mikilvæg í átt til
meira frjálsræðis og minni ríkis-
umsvifa.
Friðhelg skattheimta
I stjórnarskrá lýðveldisins segir
að eignarrétturinn sé friðhelgur.
Þetta er hátíðleg yfirlýsing sem þó
er óhætt að fullyrða að sé fremur
léttvæg sem vörn gegn ásælni rík-
isvaldsins. A meðan þessi orð hafa
staðið í stjórnarskráinni hefur
skattbyrði landsmanna margfald-
ast. A vorum dögum væri ef til vill
nær að tala um friðhelgi skatt-
heimtunnar því ljóst er að ákaflega
erfitt mun reynast að snúa þessari
þróun við. Það er mun einfaldara
fyrir stjórnmálamenn að halda í
horfmu eða jafnvel auka umsvif
hins opinbera til þess að þóknast
sterkum þrýstihópum heldur en að
grípa til nauðsynlegra aðgerða til
þess að brjóst úr ógöngunum. I
ljósi þessa er árangur ííkisstjórnar
Davíðs Oddssonar hrósverður.
Þess er óskandi að ríldsstjórnin
hafi kjark til að ganga áfram á
sömu braut og hafi hugfast að það
er eignarrétturinn sem er friðhelg-
ur, ekki skattheimtan.
Höfundur er háskóliuienii og situr í
stjórn Heimdallar f.u.s.
VINNÍS - nýtt félag áhuga-
fólks um vinnuvistfræði
UM ÞESSAR mundir er liðið
rúmt ár frá stofnun Vinnuvist-
fræðifélags íslands - VINNÍS. Fé-
lagið er áhugamannafélag og er op-
ið öllum sem áhuga hafa á vinnu-
vistfræði. Stofnendur félagsins
voru 48 einstaklingar úr röðum
heilbrigðis-, félagsvísinda- og
tæknistétta auk sex fyrirtækja og
félaga. Nú, tæpu ári eftir stofnun
þess, eru félagar orðnir 68 frá ell-
efu faggreinum.
Hvað er vinnuvistfræði?
Vinnuvistfræði (ergonomics)
fjallar um samspil mannsins og
þess umhverfis sem hann lifir og
starfar í. Vinnuvistfræðin sam-
þættir þekkingu úr mörgum grein-
um mannvísinda í því skyni að laga
störf, kerfi, framleiðsluvörur og
umhverfi að líkamlegri og andlegri
getu og takmörkunum mannsins.
Sögu vinnuvistfræðinnar má
rekja langt aftur í tímann. Frá tím-
um hellamanna hafa menn leitast
við að hanna vopn og verkfæri sem
auðvelda þeim verkin. Mannfræði-
mælingar hófust á 15. öld en þekk-
ing á stærðarhlutföllum og breyti-
leika meðal þjóða er afar mikilvæg
við ýmiss konar hönnun.
Segja má að áhugi á samspili
manns og vinnuumhverfis hafi
vaknað í fyrri heimsstyrjöldinni.
Þórunn
Sveinsdóttir
Vinnuvistfræðin hefur
verið, segja Þórunn
Sveinsdóttir og Björk
Pálsdóttir, í stöðugri
þróun sem vísinda-
grein.
Rannsóknir voni gerðar sem
tengdust vinnuálagi og þreytu
starfsmanna við störf í hergagna-
iðnaði. Áratug síðar beindust þær
að vinnuumhverfi og -aðstæðum
iðnverkafólks, eink-
um með tilliti til
vinnuafkasta og
hvernig varðveita
mætti heilbrigði
starfsmanna. I
seinni heimsstyrj-
öldinni var orðið
mjög brýnt að at-
huga getu og tak-
markanir mannsins.
Eftir því sem
vinnuvistfræðin þró-
aðist breyttust
markmiðin. Ahersla
var lögð á að stuðla
að öruggu og heilsu-
samlegu vinnuum-
hverfi þar sem fólki
liði vel. Óhætt er að segja að vinnu-
vistfræðin hafi sem vísindagrein
verið í stöðugri þróun og nær í dag
til fjölmargra sviða.
Markmið VINNÍS eru:
að efla og kynna vinnuvistfræði á
Islandi; að stuðla að því að vinnu-
vistfræðileg þekking sé nýtt við ný-
hönnun og endurhönnun húsnæðis
og aðstöðu; við skipulag vinnu og
vinnuferla; við hönnun búnaðar,
Björk
Pálsdóttir
STEINAR WAAGE
JUN-Afö
/LEOURV
Stærðir; 23-38
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
STEINARWAAGE ^ToDV skórinn STEINARWAAGE
SKÓVERSLUN # --------- SKÓVERSLUN ^
SÍMI 551 8519
• Veltusundi við Ingólfstorg
• Sími 5521212.
SlMI 568 9212
tækja og ýmissa framleiðsluvara.
I staifinu út á við hyggst félagið
beita sér á breiðum vettvangi og
kynna vinnuvistfræði sem víðast.
Mikilvægt verður að stuðla að
gæðatryggingu og rannsóknum
innan vinnuvistfræðinnar. Jafn-
framt þarf að tryggja að fylgst
verði með staðlamálum á sviði
vinnuvistfræði við hönnun. Miklu
skiptir að framleiðendur, stjórn-
endur, samtök atvinnulífsins og
stjómmálamenn séu meðvitaðir
um þýðingu vinnuvistfræðilegra
sjónarmiða.
Fyrsta starfsárið var ákveðið að
áhersla yrði lögð á að byggja upp
innra starf félagsins, skapa tengsl
milli félgsmanna og koma af stað
þverfaglegum áhugahópum um
ýmis málefni. VINNÍS hefur sótt
um inngöngu í Norrænu vinnuvist-
fræðisamtökin en þau hafa verið
starfandi siðan 1969. Við það mun
VINNÍS öðlast aðild að alþjóðleg-
um samtökum á þessu sviði en
markmið samtakanna er að efla
tengsl og samstarf milli landa.
Næstu daga munu félagar í
VINNÍS vekja athygli lesenda
Morgunblaðsins á samspili manns
og umhverfis út írá vinnuvistfræði-
legu sjónarhomi.
Þórunn er sjúkraþjálfari og formad-
ur VINNÍS.
Björk er iðjuþjálfi og varaformaður
VINNÍS.
Hagkvæm,
hljóðlát
loftpressa
fyrir þá sem
vilja vinna
í kyrrlátu
umhverfi
Bláa línan frá Jun-Air er ódýrari
en þú átt að venjast.
Jun-Air - þessar hljóðlátu!
SKÚLASON BJÓNSSON
VERSLUN ■ SKÚTUVOGI 12H ■ REYKJAVÍK • SÍMI 568-6544
V.
Fyrir
falleg
heimili!
m: