Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 38

Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Tvísýnt í A- og B-flokki HESTAR G1 a ð h e i m a r í Kópavogi GÆÐINGAMÓT OG ÚRTAKA GUSTS Árlegt gæðingamót Gusts var haldið um helgina þar sem jafnframt voru valdir fulltrúar félagsins á landsmót- inu í öllum flokkuin. Einnig fóru fram kappreiðar þar sem kcppt var í 150 og 250 metra skeiði og 250 metra stökki. Veður var hið besta meðan á mótinu stóð og tókst það vel í alla staði. Þá öttu knapar einnig ung- hrossum í tamningu saman í kcppni. STÓÐHESTARNIR koma víða við sögu þessa dagana og einn þeirra, Sjóli frá Þverá sem Ragnar Hinriksson sat, tók A-flokkinn með trompi eftir harða keppni við annan stóðhest, ísak frá Eyjólfsstöðum sem Páll Bragi Hólmarsson sat, og hryssuna Brá frá Votmúla sem Steingrímur Sigurðsson sat. ísak hafði nauma forystu eftir forkeppni en í úrslitunum höfðu Sjóli og Ragnar sigurinn. I B-flokki voru það konurnar sem börðust hart. Sigrún Erlings- dóttir var með As frá Syðri-Brekk- um og voru þau í öðru sæti að lok- inni forkeppni en Hugrún Jóhanns- dóttir hafði að því er virtist örugga forystu. I úrslitunum höfðu þær sætaskipti og As og Sigi'ún stóðu uppi sem sigurvegarar. Glæsileg- asti gæðingur mótsins var valin Fjöður frá Asi sem Sigurður Sig- urðarson sýndi. Asetuverðlaun hlaut Bjarnleifur Smári Bjamleifsson sem keppti í bamaflokki á Vini frá Kirkjulæk. Þá hlaut Sigríður Þorsteinsdóttir ásetuverðlaun en hún keppti í ung- lingaflokki á Gusti frá Litlu-Gröf og urðu í öðm sæti með 8,53 í einkunn. Berglind Rósa Guðmundsdóttir sigraði á hinni víðförlu Maístjömu Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson RAGNAR Hinriksson enn á sigurbraut nú með stóðhestinn Sjóla frá Þverá eftir spennandi keppni við ísak og Pál Braga, næstir honum koma Brá og Steingrímur, Þruma og Hugrún og Sigurbjörn á Fonti. M *- &. V * iS*r. frá Svignaskarði með 8,51 og mætti ætla að þessar tvær stúlkur ætli sér stóra hluti á landsmóti. Valdimar Kristinsson Galsi í háum tölum Úrtökukeppni Gusts Kært vegna eignarhalds- ákvæðis í gæðingakeppni ENN og aftur verður eignarhalds- w ákvæði í reglum um gæðinga- keppni Landsambands hesta- mannafélaga að bitbeini og var send kæra til aganefndar vegna gruns um að verið væri að brjóta þetta ákvæði í gæðingakeppni Gusts nú um helgina. Oft hefur verið á það bent hér í hestaþætti Morgunblaðsins að þetta ákvæði sé löngu úr sér gengið því ekki sé með nokkm móti hægt að framfylgja því. Fyrir þá sem ekki átta sig á hvað er um að ræða þá segir í þessu ákvæði reglnanna að sá hestur sem sýndur er í gæðingakeppni skuli vera í eigu félagsmanns hjá við- komandi félagi. Oft hefur leikið -gmnur á að menn ýmist fái lánaða hesta hjá aðila sem ekki er félagi í viðkomandi félagi og sýni í eigin nafni eða þá að utanfélagsmaður gerir samkomulag við félagsmann um að hann, utanfélagsmaðurinn, fái að sýna hesta í sinni eigu í nafni félagsmanns. Talið er að þess séu mörg dæmi að farið sé í kringum þetta ákvæði, sérstaklega þegar valin em hross hjá félögunum til þátttöku á fjórðungsmót eða lands- mót. Kæra barst vegna skráningar Sigrúnar Sigurðardóttur félags- manns í Gusti á tveimur hrossum þar sem hún var skráður knapi á bæði hrossin. Þegar svo keppnin hófst mætti Sigurbjörn Bárðarson og sýndi hrossin en þau höfðu að því er talið var verið í eigu hans. Einnig var kært vegna knapaskipt- anna. Eins og í öðmm slíkum mál- um taldi mótsstjórn sig ekki geta tekið á málinu en að sögn Krist- mundar Halidórssonar mótsstjóra þótti rétt að vísa málinu til aga- nefndar LH. Hann tók fram í sam- tali við blaðamann að ekki væri bú- ist við að aganefndin gæti tekið með afgerandi hætti á málinu en rétt hefði þótt að láta nefndina fjalla um máiið því brýn þörf væri á að fá umræðu um þetta mál. Kristmundur benti á annað ákvæði í lögum um gæðingakeppni þar sem segir að sé sami knapi skráður á fleiri en eitt hross skuli skrá varaknapa en það hafí ekki verið gert í þessu tilviki. Hins veg- ar væri almennt ekki gengið eftir slíku og hefðu fleiri knapar verið skráðir á fleiri en eitt hross að þessu sinni en ekki verið skráður varaknapi. I þeim tilvikum sýndu skráðir knapar þau hross sem þeir voru skráðir á. Þess má að lokum geta að bæði þessi hross unnu sér rétt til þátttöku á landsmóti fyrir hönd Gusts. HESTAR Hlíðarholtsvöllur, Akureyri GÆÐINGAMÓT OG ÚRTAKA LÉTTIS Akureyringar völdu gæðinga sína til þátttöku fyrir hönd Léttis um hvíta- sunnuna á gæðingamóti félagsins. BALDVIN Ari Guðlaugsson stað- festi með góðri sýningu á Galsa frá Sauðárkróki orðróm um að þeir myndu blanda sér í baráttu hinna bestu í A-flokki á landsmótinu. Hlutu þeir 8,80 í forkeppninni sem er með hæstu einkunnum ársins í gæðinga- keppni. Léttir hefur rétt til að senda þijá keppendur í hverjum flokki og var keppnin um þessi sæti afar spennandi þótt ekki væru einkunnir háar í öllum flokkum. Baldvin Ari var einnig með efsta hest í B-flokki, Tuma frá Skjaldar- vík, en þeir hlutu í einkunn 8,46 og höfðu þeir nokkra yfirburði yfir aðra keppendur. Þeir knapar sem unnu sér sæti í landsmótsliði Léttis fengu félagsbúninga til notkunar utan vall- ar frá félaginu. Næsta mót hjá Létti verður töltmót væntanlega til að gefa keppendum í Eyjafírði og víðar tækifæri til að tryggja sér lágmarks- einkunn til þátttöku í keppni úrvals- töltara á landsmótinu. BALDVIN ARI og Galsi voru í miklu stuði í úrtökunni og Ijóst að þeir verða erfiðir viðfangs á landsmótinu. Mikill kraftur er nú kominn í allan undh'búning fyrir landsmótið eftir breyttar kringumstæður í hitasótt- armálum þegar hillir undir afnám út- flutningsbanns hrossa og var að heyra á Eyfirðingum að nú væri far- in að skapast rétta stemmningin fyr- ir mótið eftir erfíðan vetur í óvissuá- standi. Valdimar Kristinsson Urslit Hestamót Gusts í Glaðheimum A-flokkur gæðinga 1. Sjóli frá Þverá, eigandi Magnús Matthías- son, knapi Ragnar Hinriksson, 8,45. 2. ísak frá Eyjólfsstöðum, eigendur Kristinn Valdimarsson og Páll B. Hólmarsson, knapi Páll B. Hólmarsson, 8,47. 3. Brá frá Votmúla, eigandi og knapi Stein- grímur Sigurðsson, 8,46. » 4. Þruma frá Þóreyjarnúpi, eigandi Ámi Þor- kelsson, knapi Páll B. Hólmarsson, 8,31. 5. Fontur frá Akureyri, eigandi Sigrún Sig- urðardóttir, knapi Sigurbjörn Bárðarson, 8,33. B-flokkur gæðinga 1. As frá Syðri-Brekku, eigandi Bjami Frímannsson, knapi Sigrún Erlingsdóttir, 8,49. 2. Blær frá Sigluvík, eigendur Hugrún Jó- hannsdóttir og Páll B. Hólmarsson, knapi Hu- grún Jóhannsdóttir, 8,60. 3. Ábóti frá Bólstað, eigandi og knapi Halldór Svansson, 8,44. 4. List frá Litla-Dunhaga, eigandi og knapi 'fr Sigrún Sigurðardóttir, 8,45. 5. Adam frá Götu, eigandi Jón Styrmisson, knapi Erling Sigurðsson, 8,43. Ungmennaflokkur 1. Krapi frá Kirkjuskógi, eigandi og knapi Sigurður Halldórsson, 8,43. 2. Ósk frá Refsstöðum, eigandi Erla G. Matthíasdóttir, knapi Birgitta D. Kristins- dóttir, 8,40. 3. Eldur frá Hóli, eigandi og knapi Ásta D. Bjarnadóttir, 8,47. 4. Funi frá Kjartansstaðakoti, knapi Þórdís Guðmundsdóttir,8,25. 5. Toppui- frá Árbakka, eigandi og knapi Sveinbjörn Sveinbjömsson, 8,31. Unglingar 1. Maístjarna frá Svignaskarði, eigandi Sig- urður Halldórsson, knapi Berglind R. Guð- mundsdóttir, 8,51. 2. Gustur frá Litlu-Gröf, eigandi og knapi Sig- ríður Þorsteinsdóttir, 8,53. 3. Kári frá Þóreyjamúpi, eigandi Iris B. Haf- steinsdóttir, knapi Pála Hallgrimsdóttir, 8,38. 4. Ögri frá Uxahrygg, eigandi og knapi Svan- dís D. Einarsdóttir, 8,27. 5. Glæsir frá Reykjavík, eigandi og knapi Guðrún E. Þórisdóttir, 8,21. Barnaflokkur 1. Kolgrímur frá Hellutúni, eigandi og knapi Vala D. Birgisdóttir, 8,25. 2. Vinur frá Kirkjulæk, eigandi Maríanna Bjamleifsdóttir, knapi Bjarnleifur S. Bjarn- leifsson, 8,27. 3. Kópur frá Reykjavík, eigandi og knapi Freyja Þorvaldsdóttir, 8,12. 4. Brenna frá Lundum, eigandi og knapi Tryggvi Þ. Tryggvason, 7,64. 5. Druna frá Húnastöðum, eigandi Halldór Svansson, knapi Elka Haildórsdóttir, 7,96. Pollaflokkur 1. Fengur frá Götu, eigandi Friðrik Friðriks- son, knapi Styrmir Friðriksson. 2. Litli-Rauður frá Svignaskarði, eigandi og knapi Guðný B. Guðmundsdóttir. Unghross 1. Tvistur frá Kálfhóli, eigandi Sigurður Leifsson, knapi Sigurður Sigurðsson. 2. Yrpa frá Seylu, eigandi Sigurður Leifsson, knapi Sigurjón Þ. Skúlason. 3. Birtingur frá Miklabæ, eigandi og knapi Gylfi Gylfason. Skeið - 250 m 1. Ósk frá Litla-Dal, eigandi og knapi Sigur- björn Bárðarson, 23,40. 2. Tangi frá Lambafelli, eigandi Tryggvi Geirsson, knapi Axel Geirsson, 25.14. 3. Freydís frá Steðja, eigendur Hugrún Jó- hannsdóttir og Páli B. Hólmarsson, knapi Hu- grún Jóhannsdóttir, 26,60. Skeið - 150 m 1. Snarfari, eigandi og knapi Sigurbjörn Bárð- arson, 15,81. 2. Gnýfari, eigandi og knapi Sigurbjöm Bárð- arson, 16,66. 3. Skerjála frá Svignaskarði, eigandi Guð- mundur Skúlason, knapi Berglind R. Guð- mundsdóttir, 16,87. Stökk - 250 m 1. Leiser frá Skálakoti, eigandi Guðni Krist- insson, knapi Axel Geirsson, 20,16. 2. Skuggi frá Skeiðháholti, eigandi og knapi Guðrún E. Þórisdóttir, 20,26. Gæðingamót Léttis A-flokkur. 1. Galsi frá Sauðárkróki, eigandi og knapi Baldvin A. Guðlaugsson, 8,80. 2. Logi frá Brennihóli, eigandi Einar Ö. Gr- ant, knapi Arnar Grant, 8,34. 3. Dumbur frá Skriðu, eigandi Davíð Sverris- son, knapi Þór Jónsteinsson, 8,34. 4. Nökkvi frá Akureyri, eigandi og knapi Þor- var Þorsteinsson, 8,10. 5. Dimmalimm frá Akureyri, eigandi Páll Tryggvason, knapi Erlendur A. Öskarsson, 8,16. B-flokkur 1. Tumi frá Skjaldarvík, eigandi og knapi Baldvin A. Guðlaugsson, 8,46. 2. Þokki frá Akureyri, eigandi og knapi Helga Ái’nadóttir, 8,28. 3. Spuni frá Torfunesi, eigandi og knapi Sig- rún Brynjarsdóttir, 8,28. 4. Sölvi frá Syðra-Garðshorni, eigandi Þóra Höskuldsdóttir, knapi Höskuldur Jónsson, 8,14. 5. Ofsi frá Engimýri, eigandi og knapi Er- lendur A. Óskarsson, 8,28. Ungmenni 1. Ögri frá Enni, knapi Þorbjöm Matthíasson, 8,14. 2. Trausti frá Akureyri, knapi Heimir Gunn- arsson, 8,04. 3. Vör frá Hofi, knapi Sveinn 1. Kjartansson, 8,10. 4. Drafnar frá Akureyri, knapi Þorsteinn Bjömsson, 8,22. 5. Leiknir frá Arnarstöðum, knapi Diljá Óla- dóttir, 8,02. Unglingar 1. Lögg frá Garðshorni, knapi Ólafur Þ. Magnússon, 7,58. 2. Djákni frá Dalvík, knapi Haukur H. Bjarnason, 7,88. 3. Þáttur frá Akureyri, knapi Þórhallur Guð- mundsson, 7,86. 4. Freyja frá Garðshorni, knapi Alda Ákels- dóttir, 7,20. Barnaflokkur 1. Vængur frá Akureyri, knapi Dagný B. Gunnarsdóttir, 8,22. 2. Gauti frá Borgai-hóli, knapi Ragnhildur Haraldsdóttir, 8,22. 3. Skuggi frá Akureyri, knapi Rut Sigurðar- dóttir, 7,84. 4. Draumadís, knapi Marta S. Jónsdóttir, 6,98. Skeið - 150 m 1. Ör, knapi Arnar Grant, 15,60. 2. Trausti, knapi Ólafur Ö. Þórðarson, 15,60. 3. Bjartur, knapi Stefán Erlingsson, 17,40. Skeið - 250 m 1. Logi, knapi Arnar Grant, 24,5. Stökk - 300 m 1. Funi, knapi Þorbjörn Matthíasson, 23,60. 2. Jarpstjarna, knapi Hulda Sigurðardóttir, 23,75. 3. Brúnn, knapi Ágúst Ásgrímsson, 23,75.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.