Morgunblaðið - 09.06.1998, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Stjúpfaðir, stjúptengdafaðir, bróðir og mágur,
ÓLI JÓHANNES SIGMUNDSSON
fyrrv. byggingameistari og kaupmaður
á l'safirði,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík, sunnudaginn
7. júní.
Ingþór Haraldsson, Þorbjörg Daníelsdóttir,
Ásta Sigmundsdóttir, Gunnar Þorsteinsson,
Daníel Sigmundsson,
aðrir ættingjar og aðstandendur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON
verslunarmaður,
Veghúsum 31,
lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn
7. júní.
Guðrún Álfgeirsdóttir,
Olga Björk Guðmundsdóttir, Snorri Hreggviðsson,
Hólmfríður Guðmundsdóttir, Sighvatur Bjarnason,
Jóhanna H. Guðmundsdóttir, Jóhannes R. Ólafsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR,
frá Presthvammi,
Afiagranda 40,
lést að heimili sínu föstudaginn 5. júní.
Börnin.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
SÆMUNDUR BREIÐFJÖRÐ HELGASON
vélstjóri,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður til heimilis að Álfaskeiði 49,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 3. júní sl.
Útförin ferfram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. júní kl. 13.30.
Ragnhildur Þorgeirsdóttir,
Þorgeir Sæmundsson, Margrét S. Guðmundsdóttir,
Helgi S. Sæmundsson, Guðbjörg Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir mín, dóttir okkar og systir,
HRAFNHILDUR BRYNJA FLOSADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
i dag, þriðjudaginn 9. júní kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Foreldrafélag misþroska barna.
Axel Óli Alfreðsson,
Rannveig Höskuldsdóttir,
Flosi Jónsson,
Aðalsteinn Flosason,
Guðlaug Flosadóttir.
ÓLAFUR MEYVANT
JÓAKIMSSON
+ Ólafur Meyvant
Jóakimsson
fæddist á Siglufirði
11. niaí 1924. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Akureyri 1. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Jóakim
Meyvantsson verka-
maður og Ólína
Ólafsdóttir húsmóð-
ir. Systkini Ólafs
eru: Hildigunnur, f.
21.1. 1912, d. 10.11.
1982; Ottó, f. 15.4.
1913, d. 13.6. 1915;
Ottó Jón, f. 15.5. 1915, d. 28.9.
1973; Ægir, f. 4.11. 1917, d. 1.9.
1996; Bergþóra Bryndís, f. 30.6.
1920, d. 28.10. 1973; Sigurður
Óskar, f. 14.7. 1926, d. 3.7. 1927;
Ólöf María, f. 24.12. 1927, hún
býr á ísafirði.
Hinn 27. september 1950
kvæntist Ólafur Fjólu Baldvins-
dóttur, f. 2.6. 1927 í Ólafsfirði.
Foreldrar hennar voru Baldvin
Jóhannesson sjómaður og Sig-
fríður Björnsdóttir húsmóðir.
Ólafur og Fjóla eignuðust fjóra
syni. Þeir eru: 1) Guðni, f. 12.8.
1946, stýrimaður. Kona hans er
Ásdís Pálmadóttir. Börn þeirra
eru: Lilja, Fjóla, Ólafur Pálmi,
Birkir Guðni. 2) Ægir, f. 17.8.
1953, sjómaður. Kona hans er
Guðný Ágústsdóttir. Börn
þeirra eru: Ólafur, Kolbeinn,
Atli Þór og Ásdís María. 3) Sig-
urður, f. 28.3. 1960, stýrimaður.
Kona hans er Ás-
laug Grétarsdóttir.
Börn þeirra eru:
Jakob, Jóakim
Snær og Sigrún Sif.
4) Jóakim, f. 26.3.
1967, sjómaður.
Hans kona er Sæ-
björg Ágústsdóttir.
Synir þeirra eru:
Ólafur Meyvant og
Baldvin Orri.
Ólafur ólst upp til
fullorðinsára á
Siglufirði og þar
kynntist hann konu
sinni Fjólu. Hann
lauk gagnfræðaprófí og síðan
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavik 1951. Hann var á
ýmsum togurum og bátum til
þess tíma er hann ræðst til
Magnúsar Gamalíelssonar árið
1948 á NB Einar Þveræing og
var Ólafur skipstjóri á Einari til
ársins 1959. Þá sótti hann nýtt
skip til Noregs, Guðbjörgu ÓF,
og var skipstjóri á því til 1966.
Það ár fékk útgerðin nýtt skip,
Sigurbjörgu ÓF 1, sem hann
stýrði til 1979 þegar hann tók
við nýrri Sigurbjörgu, sem var
skuttogari. Hann lét af störfum
vegna veikinda árið 1984 eftir
35 ár hjá sömu útgerðinni. Síð-
an starfaði Ólafur eftir það sex
ár á hafnarvoginni í Ólafsfirði.
Útför Olafs Meyvants
Jóakimssonar fer fram frá Dal-
víkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Þegar moldin umlykur
þig vinur
og þú ert laus
úrbúriþínu
sé ég þig svífa
eins og frjálsan fúgl
frámér
núna
syngjandi af gleði.
Eg vildi að ég gæti
flogið með þér
um ónumin lönd
og átt vináttu
þar sem hér áður.
En vinur ég kemst
ekki með þér
svo ég óska þér góðrar
ferðar
(Gísli Gíslason frá Ólafsfirði)
Hann Ólafur Meyvant Jóakims-
son eða Óli Jó tengdapabbi var eng-
um líkur. Þeir sem kynntust honum
sáu strax að hann var mikilhæfur
maður, góður og vinsæll mjög. Ég
hef þekkt þig í 15 ár eða frá því ég
kynntist eiginmanni mínum. Fyrir
15 árum lást þú á sjúkrahúsi í
Reykjavík, þá í lífshættu eftir slæmt
hjartaáfall.
Við tengdapabbi eigum sama af-
mælisdag. Ég tel víst að það hafi
ekki spillt fyrir er Siggi minn tók þá
ákvörðun að ég yrði konan í lífi
hans, því hann hélt alltaf upp á vissa
daga ársins og þetta er einn af þeim
dögum. Synir þínir, Óli minn, hafa
alla tíð haldið upp á þig. Ég sem
tengdadóttir þín hef ekki getað
fengið betri tengdapabba og vil ég
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.
Segðu hug þinn um leið
og þú lætur gott af þér
® 5614400 lciSa-
<ulT HJÁlMKSTOmUN
\nr/ KIRKJUNNAR
Stefánsblóm
Laugavegí 178
S; 561 0771
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
GYLFI MÁR GUÐBERGSSON
landfræðingur,
Hávallagötu 29,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 10. júní kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans vinsamlega láti
Krabbameinsfélagið njóta þess.
'>
Vigdís Sigurðardóttir,
Ágúst Gunnar Gylfason, Bergljót Sigurðardóttir
og barnabörn.
LEGSTEINAR
í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
I! S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
segja það að minningin um þig er
ljúf. Þegar ég kom inn í ykkar fjöl-
skyldu, tókuð þið hjónin, þú og
Fjóla, vel á móti mér. Ég átti son
fyrir og var honum vel tekið sem
hann hafi alla tíð verið í þessari fjöl-
skyldu. Að koma á Gunnólfsgötuna
var alltaf eins og að koma á sex
stjörnu hótel. Þið hjónin tókuð ætíð
höfðinglega á móti okkur og öllum
öðrum gestum.
Þú varst ættrækinn mjög og
hafðir mikið gaman af því að hitta
þína nánustu og m.a. fannst þér
skemmtilgast af öllu þegar þú sér-
staklega hafðir alla syni þína hjá
þér ásamt tengdadætrum og barna-
börnum og barnabarni. Allir synir
þínir hafa valið það ævistarf að vera
sjómenn eins og þú, og ekki auðvelt
að koma því við að allir séu í landi á
sama tíma. En þegar það varð að
veruleika var yfirleitt glatt á hjalla.
Þá varst þú í essinu þínu og ham-
ingjan skein úr andliti þínu.
Ættarmótið fyrir vestan, þú
manst, vegirnir þeir voru ekki upp á
það besta, þar sem Maja og þú vor-
uð ættarhöfðingjarnir. Ekki hefði
ég viljað missa af þessu móti þrátt
fyrir vegina góðu. Á þessum ættar-
mótum naust þú þín fram í fingur-
góma. Síðastliðið sumar varð síð-
asta ættarmótið sem þú komst á lif-
andi, ég segi lifandi, því ég veit
nefnilega að þið systkinin sem þeg-
ar eruð látin verðið öll á því næsta
bara ekki okkur sjáanleg heldur
finnanleg. Ægir bróðir þinn dó f'yrir
tveim árum og fannst okkur í minni
fjölskyldu þetta stór missir og það
má með sanni segja að þar fór einn
af höfðingjunum sem ég kynntist úr
þessari stóru ætt. Nú er hún Maja
ein eftir af þessum stóra systkina-
hópi frá Siglufirði. Oli, þín verður
sárt saknað.
Óli, þú varst alltaf svo léttur í
lund, sást góðu hliðarnar á lífinu,
það var fátt sem þú gast ekki leyst
með þínu ljúfa og góðlátlega fasi.
Þú gerðir ekki mikið úr sjúkdómi
þínum, sem háði þér allan þann
tíma sem ég þekkti þig, en það eru
15 ár. Þú treystir fólki svo vel, því
þú varst þannig að hvaða barn, ung-
lingur eða fullprðinn endurgalt þér
þetta traust. Ég man eftir táningi
sem var nýbúinn að fá bílpróf og
þurfti að skreppa eitthvað og hjá
þér var það ekkert sjálfsagðara en
að lána honum bílinn þinn. Þetta er
bara smá dæmi. Þú varst skipstjóri
á mörgum skipum og hélst þar nán-
ast alltaf sama mannskap áratugum
saman vegna þess að það var eftir-
sóknarvert að vera undir þinni
stjórn, bæði vegna þess hve þú
varst þægilegur í umgengni og líka
að það gaf vel í aðra hönd að róa
með þér. Þín framkoma var bara
þannig, þú barst virðingu fyrir fólki
og eins og máltækið segir: „Eins og
þú sáir munt þú uppskera." Svona
man ég líka eftir þér, bamabörnin
löðuðust að þér og líka annarra
manna börn. Þú hefðir orðið góður
hjá þeim á Tjarnarborg.
Synir þínir voru með þér á sjó, og
gerði það þeim bara gott að vera
með þér þar. Ég veit að Siggi minn
hafði góða fyrirmynd hvort sem það
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn