Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 41'*' MINNINGAR var um borð í Sigurbjörginni eða á heimili ykkar Fjólu. Alltaf þegar Siggi kom af sjónum eftir að við rugluðum reitum okkar saman í Reykjavíkinni, þurfti hann að hringja í þig til þess að ræða um fiskerí og fótbolta. Maðurinn minn var og er pabbastrákur, og er það vel meint hjá mér. Þú varst góð fyr- irmynd fyrir strákana þína. Bama- bömin þín leituðu oft til þín og báðu þig bónar sem þú einn gast á þinn einlæga hátt látið eftir þeim, án þess að verið væri að spilla þeim. Ég á ekki nógu mörg orð til þess að lýsa persónu þinni og velvilja, en eitt veit ég að það er mikill missir að þér. Elsku Fjóla, Guðni, Ægir, Jóakim og Sigurður, ykkar missir er mikill, megi hið almáttuga hjálpa ykkur í gegn um sorgina. Það er erfitt að trúa því að afi sé dáinn, sérstaklega þegar við emm svona langt í burtu. Það var sunnu- daginn 31.5. að við fengum skilaboð um það að afi væri mikið veikur og vart hugað líf. Það varð svo úr að það sem maður hefur óttast mest frá því að maður var smápatti varð að veruleika, símhringing um miðja nótt. Eitthvað sem alltaf getur fengið hjartað til að taka aukaslag þar sem svo margir í fjölskyldunni eru sjómenn. En í þetta skipti tók hjartað ekki aukaslag, það var frek- ar eins og það stoppaði eitt augna- blik, ég fylltist tómleika, söknuði og reiði. Það var ekki fyrr en ég talaði við ömmu sem reiðin hvarf og við tóku stanslausar hugsanir um þær gleðistundir sem ég hef fengið að njóta með afa. Þau vom ófá skiptin sem ég fékk að fara með afa út á bryggju þegar Sigurbjörgin var í landi. Þessar ferðir renna mér seint úr minni þar sem ég fékk að fikta í öllum tökkum, tólum og leika skip- stjóra nánast afskiptalaus. Það var nefnilega rétt sem hún Ásdis María sagði: „Hann afi skammaði okkur aldrei." Afi var gæddur þeim einstaka eiginleika að koma sínu á framfæri án þess að æsa sig. Sjómannadagur- inn var einn að heilögustu dögum ársins hjá afa, enda starfaði hann sem sjómaður mestalla sína starfsævi. Það var orðinn siður hinn síðari ár að ég færi með afa í sjó- mannamessu á sjómannadaginn. Við keyrðum venjulega upp að póst- húsi, þar biðum við eftir skrúðgöng- unni og gengum með henni síðasta spölinn að kirkjunni. Þessar stuttu gönguferðir með afa gáfu mér mjög mikið og skilja eftir sig góðar minn- ingar. Það lýsir afa mjög vel að þeg- ar við vorum að leggja af stað frá Gunnó til að fara í skrúðgönguna þá sagði ég alltaf við afa: „Eigum við ekki að gera eins og síðast og bíða við pósthúsið." Hann svaraði mér alltaf eins, elsku karlinn: „Eigum við ekki að kíkja út á vigt?“ Hann / r v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 egsteinar Lundi Opið öll kvöld iil kl. 22 - einnig uin hclgar. Sltrcytingar fyrir ftll tilcfhi. Gjafavðrur. vildi alltaf reyna að gera meira en honum var ráðlagt. Hann var aldrei fyrir það að láta vorkenna sér né láta fólk stjana í kringum sig, sem sannaði sig best þau skipti sem hann lá inni á spítla, hann vildi helst ekki trufla hjúkkumar því þær áttu að vera að sinna veika og gamla fólkinu. Svo harður er enginn hafsins klettur, að hafaldan vinni ekki á honum seinast (Tennyson.) Afi reyndist mér afar vel allt frá því að ég man fyrst eftir mér. Það eru ekki mörg afabörnin sem hafa komist í gegnum skólaárin á annan hátt en ég gerði. Afi kenndi mér á klukku, hann kenndi mér að reikna, skrifa og svo kemst maður ekki hjá því að vera stanslaust að læra eitt- hvað um lífið sjálft þegar maður fær tækifæri til að umgangast svo ein- stakan mann sem afi var. Þeir voru margir klukkutímarnir sem við nafnarnir sátum við stofuborðið í Gunnó og lærðum saman. Ég held að afi hafi verið eini maðurinn sem hafði þolinmæði til þess að reyna að kenna mér og verð ég honum ævin- lega þakklátur. Án hans væri ég sjálfsagt ekki með þann menntaá- huga sem ég hef í dag. Ég veit að yngri systkini mín og frændsystkini vita hvað er verið að tala um þegar minnst er á stafabókina hans afa. Elsku afi, þakka þér fyrir allar þær stundir sem við fengum að vera saman í þessu lífi. Ég kveð þig í hinsta sinn með miklum söknuði. Elsku amma, Guðni, pabbi, Siggi, Jói og Mgja. Guð gefi okkur styrk í okkar miklu sorg. Guð blessi þig, elsku afi. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Ólafur Ægisson og Steingerður Sigtryggsdóttir, Oklahoma. Elsku afi. Þú varst besti vinur okkar, þú kenndir okkur á klukk- una, að þekkja stafina og skrifa þá. Þú varst jafn spenntur og við þegar fyrsti skóladagurinn kom sem var svo stór stund hjá okkur. Þú fylgd- ist vel með náminu hjá okkur og hvort við værum ekki dugleg eins og Óli Æ., Fjóla, Lilja og Oli P. Þau lærðu nefnilega líka fyrstu stafina og á klukkuna hjá þér. Þú hafðir áhuga á öllu sem við gerðum, fórst með okkur á bryggjuna að veiða og komst á æfingarnar á vellinum því þú varst líka svo mikill Leifturs- maður. Söknuður okkar er mikill en þú varst svo duglegur að leggja inn á „minnisbók barnanna“ og við getum alltaf tekið út úr henni ón þess að tæma hana, og minnst þín með bros á vör seinna meir. Hafðu þökk fyrir allar góðu stundirnar sem þú gafst okkur, elsku afi. „Þegar vinur þinn talar, þá and- mælir þú honum óttalaust eða ert honum samþykkur af heilum hug. Og þegar hann þegir, skiljið þið hvor annan. Því að í þögulli vináttu ykkar verða allar hugsanir, allar langanir og allar vonir ykkar til, og þeirra er notið í gleði, sem krefst einskis." (KHALIL GIBRAN) Kveðja. Kolbeinn, Atli Þór, Ásdís Maria, Ólafur Meyvant og Baldvin Orri. Til hafs sól hraðar sér, hallarútdegi, eitt skeiðrúm endast hér á lífsins vegi. (Amór Jónsson.) Elsku Óli mágur. Mig langar til þess að senda þér nokkrar línur, og þakka þér fyrir allar yndislegu stundimar sem ég hef fengið að njóta með þér og systur minni, Fjólu. Þú hringdir oft til mín, til þess að fá fréttir af litlu útgerðinni minni fyrir sunnan og fá að vita um aflabrögðin. Það var ekki nóg að vita um hvar veiddist heldur á hvaða breiddargráðu veitt var, hve mikill aflinn var og hvort þetta hafi ekki verið almennilegur fiskur. Þú sagðir við mig að þarna hafi lang- þráður draumur ræst hjá mér, að komast út á sjó, vera sjálfs míns herra. Eins og þú vissir var það allt honum Andra mínum að þakka að þessi draumur gat ræst. Ég vil þakka þér fyrir stuðning sem þú gafst mér við fráfall Skjaldar, sem dó fyrir 17 árum, og einnig við frá- fall Andra, sambýlismanns míns, á síðasta ári. Það má víst segja að ég þekki sorgina vel. Þessa dagana hefur sorgin hellst yfir mig aftur þegar þú kvaddir þetta líf. Ég þekki sorgina allt of vel. Ég kom norður til ykkar í heim- sókn, en þú varst ekki heima heldur á sjúkrahúsi á Akureyri. Ég var ein- ungis búin að vera hjá ykkur Fjólu systur í sólarhring þegar alvarlegar fréttir bárust frá spítalanum. Mikið var þessi sólarhringur sem eftir var lengi að líða. Biðin er alltaf svo erf- ið. Svo kom sorgarfréttin, að þú hefðir látist mánudagsmorguninn 1. júní. Elsku systir, systrasynir og fjöl- skyldur. Ég sendi ykkur mínar samúðarkveðjur. Vigdís systir. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, VALGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Víðivöllum 21, Selfossi, andaðist á heimili sfnu föstudaginn 5. júní. Bjarni Dagsson, Guðmundur Bjarnason, Þórlaug Bjarnadóttir, Karl Þórir Jónasson og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, SIGURVEIG MAGNÚSDÓTTIR, Árskógum 8, lést á heimili sínu 7. júní. Hilmar Þór Björnsson, Gunnfríður Friðriksdóttir, Magnús Þór Hilmarsson, Guðrún S. Benediktsdóttir, Björn Ingþór Hilmarsson, Birna Katrfn Ragnarsdóttir, Hilmar Þór Hilmarsson, Þórunn Arinbjarnardóttir og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir og afi, DIETER ROTH myndlistarmaður f Sviss, lést á vinnustofu sinni f Basel að kvöldi föstu- dagsins 5. júní. Útförin verður auglýst síðar. Karl Roth, Lára Magnúsardóttir, Bjöm Roth, Þórunn Svavarsdóttir, Vera Roth, Guðrfður Adda Ragnarsdóttir og barnabörn. + Bróðir okkar, INGÓLFUR PÉTURSSON frá Ófeigsfirði, Grund, Hringbraut 50, áður Njálsgötu 26, lést á Landspítalanum laugardaginn 6. júni. Ófeigur Pétursson, Einar Pétursson, Sigurgeir Pétursson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÍSGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Hrafnistu Reykjavfk, veröur jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 10. júníkl. 15.00. Gunnar Ingi Þórðarson, Sigrún Þórðardóttir, Gunnar Hans Helgason, Ragnheíður Guðrún Þórðardóttir, Björn Björnsson og barnabörn. Útför + JÓNS FINNBOGASONAR, sem lést á Sjúkrahúsi Neskaupsstaðar 2. júni sl., verður gerð frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag, þriðjudaginn 9. júní kl. 14.00. Böm og aðstandendur. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, HAFLIÐA MAGNÚSSONAR kjötiðnaðarmeistara, Bergþórugötu 59. Guðrún Th. Beinteinsdóttir, Margrét Hafliðadóttir. Bjarni Þorkelsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður míns, AÐALSTEINS GUÐMUNDSSONAR frá Laugabóli. Sérstakar þakkir til allra sem greiddu götu okkar. Guðmundur Valtýr Guðmundsson og fjölskylda. <r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.