Morgunblaðið - 09.06.1998, Síða 46

Morgunblaðið - 09.06.1998, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ljóska HI5 FAITHFUL MECHANIC5 U)ILL HAVE HI5 PLANE FUELEP ANP READV TO 60.. A5 500N A5 THET FINI5H PLAVIN6 THI5 . HANP.. > 4« ©AKJ OBZ *< ♦ <»-•. H ■ <J* w E <JQ8763 ÖAO S 4" 4o . ♦- ♦ »6J <J“ 0 64 S-b IT 15 DAWN..HERE 5 THE UIORLP WARI FLYIN6ACE WALKIN6 OUT ONTO THE AEROPROME... Það er komin dögun, hér er flugkappinn úr fyrri heimsstyijöldinni að ganga út á flugvöllinn. DygRU vélvirkjam- ir hans munu fylla flugvélina hans með eldsneyti og gera hana klára fyrir flugtak... ... jafnskjótt og þeir hafa lokið spilinu. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Þrjár kökur á diski Frá Hrafni Sæmundssyni: ÞETTA er svolítið sendibréf til eldri borgara. Ástæðan til að skrifa þetta bréf er sú að mér blöskrar oft hvað full- orðið fólk lætur ganga yfir sig. Hvað fullorðið fólk lætur sig litlu varða um hag sinn og almenna stöðu í þjóðfélaginu. Að það skuli til dæmis ekki rísa upp og mótmæla þeirri neikvæðu umræðu um þann „vanda“ sem stöðugt er verið að klifa á um að gamalt fólk skapi ný vandamál í þjóðfélaginu í framtíð- inni. Sauðkindin og við Hafið þið, eldra fólk, tekið eftir því að þegar talað er eða skrifað um þetta „vandamál", að þá eru aldrað- ir ekki með í textanum? Það er ekki talað um aldraða eins og lifandi fólk, heldur eins og dauðar tölur. Hafið þið tekið eftir því að þegar talað eða skrifað er um „vandamál" aldraðra, hvað textinn er líkur og þegar talað er um „vandamál" landbúnaðarins? Sérstaklega þegar sauðkindina ber á góma? Það er byrjað að tala um fjölda aldraðra nú og fjölda þeirra eftir tíu ár og eftir tuttugu ár og eft- ir þrjátíu ár og eins og fjölgun sauð- kindarinnar leiðir til „offramleiðslu" þá leiðir fjölgun aldraðra til vissrar offramleislu svipaðs eðlis og árið 2010 og árið 2020 og árið 2030 verð- ur þessi „offramleiðsla" farin að íþyngja mikið þeim fáu sem enn „vinna“ og borga skattana. Hafið þið, eldri borgarar, nokkumtíma heyrt málsmetandi menn í þjóðfé- laginu tala um einhverjar aðrar þarfir aldraðra en dýr vistunar- pláss, heimilishjálp, elliheimili og svo framvegis? Kannski er minnst á það í hátíðarræðum að „afi og amma“ séu mikils virði fyrir yngri kynslóðina en það eru einmitt afi og amma sem verið er að koma fyrir í risablokkum fjarri „glaumi" þjóðfé- lagsins og yngri kynslóðunum. í ræðum manna og skrifum em aldr- aðir settir á „færiband", taldir eins- leitur hópur sem staðsetja eigi í út- jaðri þjóðfélagsins þar sem allir hafa sömu þarfir og sömu áhuga- mál. Og þegar gamalt fólk að lokum leggur í síðasta róðurinn þá er eng- in trygging fyrir því að fólk fái að lifa og deyja með reisn á þessum lokaspretti. Með blíðu brosi Annað sem mér blöskrar er fram- koma við fullorðið fólk í þjónustunni og úti í þjóðfélaginu. Kannist þið, eldri borgarar, við þetta? Umsjón- armaður sem vinnur að félagsmál- um aldraðra kemur með hóp af „öldruðum" á stað þar sem vel er tekið á móti fólki. Gestgjafinn tekur á móti hópnum og snýr sér að um- sjónarmanni og segir: „Getur þetta fólk gengið upp stigann eða þarf það að fara í lyftunni?" Þegar fólkið er komið á áfangastað - í stiga eða lyftu - er hópurinn ávarpaður hjart- næmum orðum og boðnar veitingar. Síðan koma brosandi konur með veitingamar, þrjár kökur á diski, og setja íyrir framan hvem mann. Kaffi er áður komið á borðin Og fólkið sest niður og nú verður það að bjarga sér sjálft í sambandi við sykurinn! „Notar hann sykur?“ Kalt brennivín Annað dæmi: Eldri borgarar koma á þorrablót. Þar er þorramat- ur borinn fram í plastbökkum eins og notaðir eru í mötuneytum og bú- ið er að skammta í hvem bakka - eins handa öllum. Einhver eldri borgari vekur athygli á þvi að ískalt brennivín í staupi hafi verið borið fram með þorramatnum í „gamla“ daga. Þessi athugasemd er strax þögguð niður og gestgjafinn gefur umsjónarmanni þessa skýringu frammi í eldhúsi: „Þetta fólk notar ekki áfengi, það drekkur bara djús.“ Bítlalögin Og þá em það „félagsmiðstöðv- arnar“. Af hverju heita þessir sam- verustaðir fullorðins fólks ekki „fé- lagsheimili"? Og af hverju er fólki 67 ára og eldra safnað saman á þessa staði? Af hverju blandast kynslóðirnar ekki í „félagsheimil- um“ aldraðra þegar svo ber undir? Og af hverju er starfsemi félags- miðstöðvanna oftast skipulögð á al- mennum vinnutíma? Karlakórar, hestamannafélög, laxveiðiklúbbar, átthagafélög og svo framvegis eiga „félagsheimili". Gamla fólkinu er safnað í „félagsmistöðvar". Finnið þið ekki „stofnanakeiminn“ af nafn- inu? Félags-„heimili“ er staður þar sem fólk kemur saman á , jafnréttis- gmndvelli" eins og á venjulegu heimili fólks. Þegar maður kemur í heimsókn á venjulegt heimili og fær góðar viðtökur þá em kannski margar sortir með kaffinu. Enginn kemur með disk með þrem kökum og setur fyrir mann á venjulegu heimili. Á „heimili“ kemur það svo fyrir að einhver gestanna sest við píanóið eða tekur gítarinn og gestir taka lagið og syngja kannski Hvað er svo glatt eða bítlalögin. Þannig er heimili og af hverju ekki að breyta „félagsmiðstöðvunum" í „fé- lagsheimili" þar sem fólk hittist á jafnréttisgrandvelli og tekur sjálf- stæðar áhvarðanir og gefur sjálf- stæðri sköpunargleði sinni lausan tauminn og hefur frumkvæði sem einstaklingar og hópar? Og af hverju skyldu félagsheimili aldraðra ekki vera mótsstaður kynslóðanna? Af hverju er kynslóðabilið ekki þurrkað út? Rauð prjónahúfa Og það er eins og fyrri daginn þegar maður fer að skrifa bréf. Maður gleymir að hætta. Erindi mitt við ykkur, eldri borgarar, átti að vera stutt. Bara lítil spuming: Af hverju látið þið, fólk sem er meira og minna í fullu fjöri, af hverju látið þið bjóða ykkur allt? Af hverju rísið þið ekki upp og breytið umhverfi ykkar? Að eigin vild og þörfum. Ég á ekki hatt, en ef ekkert af ykkur kannast við dæmin sem tekin eru hér, þá skal ég éta húfuna sem vinnufélagi minn gaf mér á sextugs- afmælinu mínu! HRAFN SÆMUNDSSON, Bræðratungu 10, Kópavogi. Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.