Morgunblaðið - 09.06.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 47
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Elsta prestafé-
lagið 100 ára
I GÆR, mánudaginn 8. júní, voru
liðin rétt 100 ár frá stofnun elsta
prestafélags á Islandi. Það var
stofnað á Sauðárkróki í húsi sr.
Arna Björnssonar, sóknarprests
þar. Af því tilefni mun stjórn fé-
lagsins koma saman á Sauðárkróki
í safnaðarheimili Sauðárkróks-
kirkju til hátíðarfundar. Helsta
efni fundarins verður að heiðra
fyrrverandi formenn félagsins og
biskupa, þá sr. Pétur Sigurgeirs-
son, sr. Sigurð Guðmundsson og sr.
Bolla Þ. Gústavsson. Annað efni
fundarins verður að taka ákvörðun
um hvað gera skuli til hátíðabrigða
á aldarafmælinu.
Ætlunin er að njóta hátíðarinnar
allt afmælisárið og enda það næsta
sumar með útgáfu á Tíðindum
Prestafélags hins forna Hólastiftis,
sem er tímarit félagsins. Það kom
fyrst út árið 1899 og hafa aðeins fá-
ein hefti komið út síðan af þessu
elsta tímariti presta á Islandi sem
enn kemur út.
Formaður félagsins er nýlega
kjörinn sr. Kristján Björnsson,
sóknarprestur á Hvammstanga.
Grensáskirkja. Kyri'ðarstund kl.
12. Orgelleikur, ritningalestur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður á eftir.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Seltjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Ellimálaráð Reykjavíkurprófasts-
dæma. Guðsþjónusta í Bústaða-
kirkju á morgun, miðvikudaginn
10. júní. Ræðumaður Valgerður
Gísladóttir. Kór Bústaðakirkju
syngur. Sr. Pálmi Matthíasson
þjónar fyrir altari. Kaffiveitingar á
eftir.
EVOSTIK
LIMKITTI
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
www.mbl.is/fasteignir
Villidýr sem þú ræður við!
Verð aðeins: 1.320.000 kf.
Öflug 1600 vél
PEUGEOT
LJÓN Á VEGINUM!
Peugeot 306 5 dyra - vakur og viljugur
Undlr fóguðu yflfborðlnu leynist óheflað villidýr. Peugeot 306 er djarfur og dugandi með öfluga lóOOcc vél.
svo ekki sé minnst d ríkulegan útbúnað og framúrskarandi aksturseiginleika. Spreyttu þig á honuml
1600 cc vél • 90 hestöfl • 5 gíra ■ bein innsprautun ■ regnskynjari ó framrúðu ■ þokuljós að framan
vökva- og veltistýri • loftpúðar böðum megin • rafdrifnar rúöur að framan ■ útvarp og segulband
stillt með stöng í stýri ■ hœðarstillanlegt ökumannssœti • bilbeltastr ekkjari ■ fjarstýrðar samlœsingar
með þjófavörn • litað gler • höfuðpúðar í aftursœti ■ niðurfellanleg aftursœti 40/60 • rafdrifnir
hliðarspeglar • rafgalvaníseraöur ■ hiti í afturrúðu ■ samlitir stuðarar ■ barnalœsingar ö afturhurðum
NYBYLAVEGI 2
SÍMI: 554 2600
0PIÐ LAUGARDAG KL. 13-17