Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 551 1200 Stóra si/iðiS kl. 20.00: GRANDAVEGUR 7 — Vigdís Grímsdóttir Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir. Aukiéýning fim. 11/6, allra síðasta sýning. ÓSKASTJARNAN — Birgir Sigurðsson Fös. 12/6 síðasta sýning á þessu leikári. FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick Lau. 13/6 Allra síðasta sýning. TÓNLEIKAR Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar I kvöld þri. 9/6 kl. 20.30, uppselt. Smiðaóerkstœðib kt. 20.00: POPPKORN - Ben Elton Rjs. 12/6. Síðasta sýning. Ath. sýningin er ekki við hæfi barna. Litla sviM kl. 20.30: GAMANSAMI HARMLEIKURINN - Eve Bonfanti og Yves Hundstad. Rm. 11/6 — fös. 12/6. Ósóttar pantanir seldar daglega. Sijnt i Loftkastalanum kl. 21: LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza Lau. 13/6 — lau. 20/6. Síðustu sýningar. Miðasalan er opin mánucL—þriðjud. M. 13—18, rríðvikud.—sunnud. 13—20. Simapantanir frá kl. 10 virka daga. Sumartonleikar „Summertime“ Lög úr söngleikjum í flutningi Ágústu Sigrúnar og Hörpu Harðard. Fim. 11/6 kl. 21 laus sæti Annað fólk fös 12/6 kl. 21.00 laus sæti Hljómsveitin Heimilistónar þri. 16. júní kl. 21.00 laus sæti SumarmatseðiU Sjávarréttafantasía úr róðri dagsins Hunangshjúpaðir ávextir & ís Grand marnier i Grænmetisréttir einnig í boði Miðasalan opin alla virka daga kl. 15- 18. Miðap. allan sólarhringinn í s. 551 9055. Netfang: kaffileik@isholf.is tiAslÁ^HN BUGSY MALONE sun. 14. júní kl. 13.30 örfá sæti laus sun. 14. júní kl. 16.00 örfá sæti laus Síðustu sýningar FJÖGUR HJÖRTU sun. 14. júní kl. 21 aukasýning Örfá sæti laus LISTAVERKIÐ lau. 13. júní kl. 21 lau. 20. júní kl. 21 Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI fös. 12. júní kl. 21 aukasýning Loftkastalinn, Seljavegi 2, Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775, opin frá 10-18 og fram aö sýn. syn.daga. Ekki er hleypt inn isal eftir ad sýn. er hafin. Rokk - salsa - popp söngleikur Bizet/Trotter/McLeod Eísí'ÍiNSKA ÓPEIIAN —Mlll ____ Miðasala 551 /475 fös. 26. júni örfá sæti laus lau. 27. júní kl. 20 lau. 27. júni kl. 23. fimmtudag 11. júnf uppselt föstudag 19. júní uppselt föstudag 12. júní uppselt aukasýn. fös. 19. júní kl. 23 laugardag 13. júnl uppselt laugardag 20. júní uppselt fimmtudag 18. júni uppselt fim. 25. júní örfá sæti laus Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega. Miðasala simi 551 1475. Opin allo daga kl. 15-19. Simapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar. MYNPBONP Allt er þá þrennt er Frelsum Willy 3 (Free Willy 3: The Rescue)______ F j ö I s k v 1 (I n ni .V ii <1 ★★ Framleiðandi: Jennie Lew Tugend. Leikstjóri: Sam Pillsbury. Hand- ritshöfundar:John Mattson. Kvik- myndataka: Tobias A. Schliessler. Tónlisf: Cliff Eidehnan. Aðalhlut- verk: Jason James Richter, August Schellberg, Annie Corley, Vincent Berry, Patrick Kilpatrick. 112 mín. Bandarikin. Sam Myndbönd 1998. Myndin er öllum leyfð. HÁHYRNINGURINN Willy er kominn aftur, og i þetta skipti er hann í hættu frá ólöglegum hval- veiðimönnum sem vilja gera úr honum súshi. Vinur hvalsins Jesse (Jason James Riehter) er orðinn 16 ára og hefur hafið störf á háhym- ings-rannsóknarbát ásamt vini sín- um Randolph (August Sehellen- berg) og háðskri vísindakonu, Drew (Annie Corley). Á hvalveiði- skipinu er John Wesley (Patrick Kilpatrick) við stjórn ásamt syni sínum, Max (Vincent Berry), sem líkar ekki við starf föður síns en þorir ekki að segja honum það. Willy og Jesse eiga aftur endur- fundi og sýna Max fram á hvað hvalir eru stórkostleg dýr. Þessi nýjasta mynd um háhym- inginn Willy, sem Islandsvinurinn Keiko gerði frægan, er þó nokkur skref upp á við frá annarri mynd- inni í röðinni. Ástæðan er sú að áherslan er ekki lengur á háhym- inginn heldur á fólkið sem tengist honum. Skilaboðin era augljós, það er rangt að veiða hvali, en John Wesley er ekki gerður að einhverri skepnu heldur er hann góður faðir, sem hefur ekki enn séð ljósið að mati myndarinnar. Kvikmyndatakan er eins og eitt stórt póstkort og tónlistin segir manni algjörlega hvað maður eigi að hugsa í hverju atriði. Það er hellingur af klisjum í myndinni og persónurnar verða aldrei nægi- lega áhugaverðar og ungu leikar- amir gætu farið í taugamar á sumum, en yngsta kynslóðin ætti að hafa gaman af henni. Ottó Geir Borg FÓLK í FRÉTTUM Stórkostlega leynilegt Morgunblaðið/Halldór „NINA? Hver er Nína?“ Friðrik Þór lætur ekkert uppi um leikarana í erótísku myndinni „Hjarnið Iogar“. Friðrik Þór hefur lokið tökum á erótísku kvik- myndinni „Hjarnið logar“ og er hún hluti af syrpu sem þýskt framleiðslufyrirtæki biður ýmsa virta leik- stjóra að leikstýra. Hildur Loftsdóttir reyndi að pumpa hann um leyndarmálið. - Hvað heitir myndin á útlensku? „Hún heitir On Top Down Under á ensku. Það er tilvísun í löndin tvö þar sem myndin er tekin; ísland og Ástralíu." - Hvað er hún löng? „Hún er 30 mínútur að lengd og þrjár myndir eru skeyttar saman til að sýna í bíó. Margret von Trotta er annar hinna leikstjóranna, en ég veit ekki hver sá þriðji verður. Mig minn- ir að Ken Russel, Bob Rafelson og Susan Seidelman hafi verið þrjú saman. Þetta er fjórtánda myndin í röðinni." - Eru þetta góðar myndir yfirhöf- uð? „Þær eru misskemmtilegar, en mín mynd er náttúrlega best.“ - Hvað er verið að pæia með þess- ari syrpu? „Það er heiður fyrir leikstjóra að fá boð um að gera mynd í syrpunni. Á Norðurlöndum hefur bara Kauris- maki bræðrunum hlotnast sá heiður á undan mér. Það er líka verið að pæla hvemig Ieikstjórar, sem hafa ekki verið með erótísk atriði í kvik- myndum sínum hingað til, gera því skil.“ Engin ritskoðun - Eru leikstjórunum sett einhver takmörk í því sem nefnist erótík? „Ljósbláar myndir og klámmyndir eru allt annað. Það er gert ráð fyrir því að þegar þessu verður sjónvarp- að megi gera það á almennum tim- um. Eg hef reyndar ekki orðið var við neina ritskoðun ennþá, en allir leikstjórarnir hingað til hafa verið úr listræna geh-anum, og fara því varla út í gróft klám, enda efast ég um að það yrði leyft.“ - Nú hefur ekki verið nein erótík í þínum myndum hingað tU. Er það kannski eitthvað sem þú hefur ekki áhuga á? „Eg hef áhuga á erótík ef það þjónar sögunni, sem ekki hefur verið raunin í mínum myndum hingað til. Ég hef verið mjög siðsamur í allri minni kvikmyndagerð, og það sama er að segja um þessa mynd. Þetta er bara lítil hugmynd sem varð, eins og Hilmar Örn segir, að gai-gandi meistarastykki.“ - Hefðir þú tekið boði um að gera erótíska mynd hefði það ekki verið í þessari syrpu? „Ég hefði aldrei gert erótíska mynd sem yrði sýnd á Stöð 2 eða Sýn eftir miðnætti, sem er einhver lélegasta afþreyingartugga sem maður sér. Eða grófa klámmynd fyr- ir hótelrásir. Það er ömurleg kvik- myndagerð og ég veit ekki til hverra slíkar myndir höfða.“ Opin mynd - Um hvað fjallar myndin? „Ég segi það ekki, það kemur bara í ljós.“ - Bara í einni setningu. „Myndin er eiginlega mjög opin og aliir geta gert sína eigin sögu úr myndinni. Þetta gæti verið svo margt; aðskilnaður konu og manns, eða um fullnægingu, en áhorfendur munu bara rýna í þetta. Þetta er lítil hugmynd og kannski nær því að vera myndlistarverk en kvikmynd. Frek- ar líkt því sem ég fékkst við áður en ég fór að gera kvikmyndir." - Þú ert með íslenska leikara. Hverjir eru það? „Það má ekkert segja um það fyrr en á frumsýningu og ég veit ekki hvenær það verður.“ - Af hverju er það ieynilegt þótt myndin sé erótísk? „Þetta er bara allt stórkostlega leynilegt.“ - En ég veit alveg hverjir það eru. „Þú veist ekkert um það.“ -Það er til dæmis hún Nína Gunnarsdóttir. „Nína? Hver er Nína?“ Islenskir snákar -Af hverju valdii-ðu Ástralíu og ísland? „Það er landfræðilegt. Þetta er svo rosalega djúpt; í Ástralíu fer sól- in í öfuga átt, og áhorfendur eiga eft- ir að liggja í pælingum. Kvikmynda- fræðingar, sem eru ekki vitrustu menn á íslandi, eiga eftir að snúa sig úr hálsliðnum og hausinn á þeim á efth’ að fara marga hringi Við vorum í eyðimörkinni þar sem Mad Max var tekin, innan um kengúrur, snáka og eðlur sem leika stórt hlutverk í myndinni. Það er mikið spilað með samsvörunina á snákunum í eyði- mörkinni og snákunum4 íslandi." - Ha, ha, ertu að meina þetta? „Já, það verðui’ að sjá myndina til að skilja þetta.“ Ný sýn á erótík - Hverju varstu að leita að í leik- urunum? „Ég var að leita að séreinkennum sem ég fann.“ - Varstu ekki að leita að fallega vöxnu fólki? „Nei, þá hefði ég bara leikið þetta sjálfur. En það er ekkert endilega æskOegra þótt myndin sé erótísk. Ég nenni ekki að ræða hvað er eró- tík fyrir mér og hvað ekki, en það þarf alls ekki að vera það sem glans- tímaritin telja fallegt fólk.“ - Var mikiivægt fyrir þig að gefa nýja sýn á erótík? „Já, ég get fullyrt að þetta er ný sýn á erótík, en hins vegar veit ég ekki hvort öðrum á eftir að finnast myndin erótísk. Annai-s er þetta ein- faldlega mjög falleg mynd og ég er voða ánægður með hana.“ gfe Displays %&»<>«*** fCftHtf 222**M* owíuí*, \ »«:>» wucf, \ Samruni í listaheiminum MEÐLIMIR ástralska sýningar- hópsins „Furðulegir ávextir" sveifluðu sér fram og aftur á íjögurra metra háum stöngum fyrir framan verslunarmiðstöð í Singapore á dögunum. Ferðast verður með skemmtunina, sem er sögð vera samruni höggmynda- listar og leiklistar, um Evrópu næstu þrjá mánuði og meðal ann- ars verður sýnt á Heimssýning- unni í Portúgal síðla sumars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.