Morgunblaðið - 11.06.1998, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
!
Biskup
vísiterar í
Viðey
BISKUP íslands, heiTa Karl Sigur-
björnsson, vísiterar í Viðeyjarkirkju
21. júní nk. „Þetta verður mín fyrsta
vísitasía á íslandi, en ég er nýbúinn
að vísitera suður í Afríku,“ sagði
biskupinn í samtali við Morgunblað-
ið.
Guðsþjónusta verður í Viðeyjar-
kirkju, þar sem biskup prédikar og
staðarhaldari og dómkirkjuprestar
þjóna fyrir altari, en Viðeyjarkirkja
tilheyrir Dómkirkjusókn. Biskup
bendir á að Viðeyjarkirkja hafi þá
sérstöðu að þar sé enginn söfnuður,
svo ekki muni hann kynna sér
kristnihald á staðnum, eins og ann-
ars sé gert í vísitasíu.
Hvað aðrar vísitasíur varðar segir
biskup að þær séu ekki áformaðar
alveg á næstunni en hann verði þó
víða á ferð vegna afmæla kirkna á
næstunni. Hann kveðst hafa afráðið
að fara rólega í sakirnar, þar sem
hann hafi hug á að breyta fyrirkomu-
lagi vísitasíu, m.a. þannig að gerð
verði úttekt á safnaðarlífi, safnaðar-
upj)bygg'ingu og slíkum þáttum.
---------------
*
Ovíst hvenær
Páll Sveinsson
flýgur á ný
VERIÐ er að kanna skemmdir á
flugvél Landgræðslunnar, Páli
Sveinssyni, sem nauðlenda varð á
Selfossflugvelli í fyrradag eftir að
eldur kom upp í öðrum hreyfli henn-
ar. Er með öllu óvíst hvenær hún fer
í loftið aftur.
Hjá Landgræðslunni fengust í
gær þær upplýsingar að flugvirkjar
Landhelgisgæslunnar, sem sjá um
viðhald vélarinnar, hafi skoðað
hreyfilinn strax í fyrrakvöld og
áfram í gær. Mun liggja fyrir í dag
eða á morgun hvaða varahluti þarf til
að gera vélina flughæfa á ný.
Morgunblaðið/Sigurgeir
FULLTRÚAR Frelsið Willy-Keiko stofnunarinnar ásamt heimamönn-
um í Vestmannaeyjum í gær. Síðdegis heimsóttu þeir Eskifjörð.
Flotkví háhyrningsins
kemur í næstu viku
FULLTRÚAR Frelsið Willy-
Keiko stofnunarinnar könnuðu í
gær aðstæður í Vestmannaeyj-
um og í Eskifirði. Enn er ekki
ljóst hvor staðurinn verður fyr-
ir valinu sem heimkynni
Keikos. Ákvörðunin verður tek-
in í næstu viku og þá verður
flotkví háhyrningsins send með
flugvél frá Seattle í Bandaríkj-
unum.
Hallur Hallson, talsmaður
stofnunarinnar hérlendis, segir
ákvörðunina verða tekna að vel
yfirlögðu ráði og að frá henni
verði greint strax í næstu viku.
Þá fá Vestmannaeyingar eða
Eskfirðingar senda til sín flot-
kví á stærð við fótboltavöll sem
komið verður upp fyrir haustið
en áætlað er að Keiko komi
„heim“ í byijun september.
Vestmannaeyjar voru heim-
sóttar í gærmorgun. Þar tóku
fulltrúar Vestmannaeyjabæjar,
Háskóla Islands, Rannsóknaset-
urs Háskólans í Eyjum, Þróun-
arfélags Vestmannaeyja og Árni
Johnsen alþingismaður á móti
fulltrúum Frelsið Willy-Keiko
stofnunarinnar. Farið var út í
Klettsvík þar sem ráðgert er að
Keiko verði komið fyrir komi
hann til Eyja.
Eftir hádegi héldu fulltrúar
Free Willy Foundation til Eski-
ljarðar. Þar tóku fulltrúar bæj-
aryfirvalda á móti þeim. Víkin
við Mjóeyri utan við bæinn var
sérstaklega skoðuð en hún verð-
ur heimili Keikos verði hann
fluttur til Eskifjarðar.
Húsnæðisstofn-
un yfírtók 158
íbúðir
í ÁRSLOK 1997 voru 188 íbúðir í
eigu Húsnæðisstofnunar ríkisins,
það er einni ibúð færra en í árslok
1996. Alls þurfti stofnunin að leysa
til sín 158 íbúðir á síðasta ári og
voru það aðeins fleiri íbúðir en hún
hefur þurft að leysa til sín á undan-
fómum árum.
Frá þessu er skýrt í nýútkominni
ársskýrslu stofnunarinnar. Flestar
íbúðimar, sem stofnunin á nú, vora
keyptar á sl. þremur árum. Reynt
hefur verið eins og kostur er að
stytta þann tíma, sem líður frá því
í fyrra
að stofnunin kaupir íbúð á nauðung-
arsölu og þar til hún er sett í sölu.
Hefur sú regla verið höfð að leið-
arljósi, að setja íbúðir ekki í sölu
fyrr en þær hafa verið rýmdar, til
þess að tryggt sé, að nýr eigandi
geti fengið hana afhenta á umsömd-
um tíma.
Sem fyrr voru flestar íbúðir
stofnunarinnar í Reykjavík eða 43.
Á Reykjanesi voru þær 41, en
einnig fjölgaði íbúðum á Vestfjörð-
um talsvert á árinu, það er úr 16
íbúðum í 32.
Morgunblaðið/Arnaldur
Vel nýttir
sólar-
geislar
SÓLDÝRKENDUR ættu að
njóta sólargeislanna þegar þeir
gefast Ifkt og þessar yngismeyj-
ar gerðu í Árbæjarlaug í
Reykjavík í gær.
Veðurstofan gerir ráð fyrir
að þurrt verði að mestu á föstu-
dag, þó gætu orðið skúrir suð-
austanlands. Hlýja_st verður
norðvestanlands. Á laugardag
er spáð norðlægum áttum, víða
skúrum, einkum sunnan og
austan til en hlýjast verður
sunnanlands.
Á sunnudag er spáð kólnandi
veðri, norðankalda eða stinn-
ingskaida, skýjuðu með köfium
og skúrum við norðurströndina.
Það er því um að gera að
halda áfram að njóta góða veð-
ursins til sjávar og sveita.
íslendingar í hópferð á fyrsta einkabflnum yfír Stórabeltisbrúna
„Svolítið stolt
yfír því að hafa
verið fyrstu
HÓPUR íslenskra ferðalanga var
meðal þeirra fyrstu til að aka yfir
Stórabeltisbrúna milli Fjóns og
Sjálands sl. föstudag, eða sama
dag og Friðrik krónprins opnaði
brúna formlega við hátíðlega at-
höfn. Talið er að um 100.000
manns, fótgangandi og á reiðhjól-
um, hafi nýtt sér tækifærið til að
fara yfir Stórabeltisbrúna á opn-
unardaginn, en brúna á hins vegar
ekki að opna fyrir bílaumferð fyrr
en 14. júní.
íslenski hópurinn, 30 fatlaðir
ásamt fararstjóra og bílstjóra, var
í 40 manna rútu, sérhannaðri fyrir
hjólastóla, en aðrar bifreiðar á
brúnni voru annaðhvort strætis-
vagnar eða lögreglubflar. Bílstjóri
Islendinganna keyrði hægt yfir
brúna, enda mikið af fólki á leið-
inni og tók ökuferðin um þrjú kort-
er. Að sögn bílstjórans, Hannesar
Hákonarsonar, virtust gangandi
vegfarendur horfa svolítið undr-
andi á bfl Islendinganna, enda að
því er virtist sá eini sem fékk að
keyra yfir brúna fyrir utan stræt-
isvagnana og lögreglubílana.
Helga Jóhannsdóttir fararstjóri
sagði ennfremur að ekki væri laust
við að hópurinn væri svolítið stolt-
ur yfir því að hafa verið í fyrsta
einkabflnum sem ók yfir brúna.
Aðeins opin fyrir
gangandi vegfarendur
íslenski hópurinn hefur verið að
ferðast um Danmörku og Svíþjóð
undanfama daga á vegum Ferða-
klúbbsins Flækjufótar, sem sér-
hæfir sig í ferðum fyrir fatlaða. Að
sögn Helgu hafði hópurinn að
loknu ferðalagi um Fjón sl. fóstu-
dag ætlað að taka ferjuna til Sjá-
lands. Á leiðinni að ferjunni hafi
þau hins vegar tekið eftir skilti
sem sagði að Stórabeltisbrúin væri
opin.
„Við ákváðum að athuga betur
hvort hægt væri að aka yfir brúna,
en þegar við komum á vettvang sá-
um við að hún var aðeins opin fyrir
gangandi vegfarendur," sagði
Helga í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Þá voram við hins vegar svo
heppin að rekast á mann frá
danska Rauða krossinum, en sam-
tökin sáu um að skipuleggja hátíð-
arhöldin. Sá maður bauðst til þess
að sjá til þess að við kæmumst um
brúna á bflnum, þar sem við voram
með svo marga sem eru í hjóla-
stól,“ sagði hún ennfremur.
Svo virðist sem maðurinn frá
Rauða krossinum hafi í fyrstu
haldið að Islendingarnir hafi að-
eins viljað keyra að eyjunni
Sprogo sem tengir austur- og vest-
urhluta brúarinnar, en á leiðinni
þangað sögðu þau honum að þau
væra á leið til Kaupmannahafnar,
sem er á Sjálandi. Að sögn Helgu
sagði maðurinn í fyrstu að það
væri ekki hægt þar sem ekki væri
búið að opna brúna fyrir bflaum-
ferð. En þegar þau sögðust þá
ætla að keyra til baka, ákvað hann
að aðstoða þau við að komast alla
leið. Hann lét þau fá lítið að-
gangskort frá danska hemum og
kom því fyrir á framrúðunni. Síðan
kvaddi hann þau, en þau héldu
áfram ferð sinni yfir Stórabeltis-
brúna, óáreitt. Þar með virðist
sem þau hafi verið á fyrsta einka-
bflnum sem ók yfir Stórabeltis-
brúna.
Sérblöð í dag
8 ijímsm
4
A FIMMTUDÖGUM
VlÐSIOFn AIVINNULÍF
Samskip
Framtíð í
Eystrasalti
Aðalverktakar
Metnir á 4,3
milljaðra
Landslið kvenna valið fyrir
EM-leikinn við Spánverja/C1
Brasilíumenn hófu titilvörnina í
HM á sigri á Skotum/C2