Morgunblaðið - 11.06.1998, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Misjöfn
áhrif
kvóta-
breytinga
ÁHRIF kvótabreytinga á
kvóta einstakra fyrirtækja eru
mjög misjöfn og fara eftir teg-
undasamsetningu kvóta
þeirra. í heildina hafa kvóta-
breytingar á næsta ári þó lítil
áhrif á kvóta flestra félaga í
þorskígildum. Þetta kemur
fram í markaðsyfirliti Lands-
banka íslands.
Á næsta fiskveiðiári eykst
þorskkvótinn veralega eða um
15%, einnig er gert ráð fyrir
nokkurri aukningu loðnukvóta.
Hins vegar minnkar ýsukvóti
um 22%, rækjukvóti um 20% og
síldarkvóti minnkar um 30%.
Kvótaaukning verður því
hjá þeim fyrirtækjum sem
hafa hlutfallslega mikinn
þorskkvóta án þess að hafa
veralegan ýsu- eða rækju-
kvóta. Þar á meðal eru Tangi
hf., Fiskiðjan Skagfirðingur
hf. og Kaupfélag Fáskrúðsfirð-
inga. Kvótaminnkun verður
aftur á móti mest hjá fyrir-
tækjum sem byggja kvótann
að mestu á rækjuveiðum. Þar
eru fremst í flokki Fiskiðju-
samlag Húsavíkur hf. og Þor-
móður rammi-Sæberg hf.
Hægt er að segja til um
áhrif kvótabreytinganna með
því að meta breytingu á
þorskígildiskvóta. Hann er
reiknaður út eftir verðmæti
fisktegunda. Ef það er gert
kemur í Ijós að kvótabreyting-
ar hafa neikvæð áhrif á fyrir-
tæki sem byggja á rækjuveið-
um en jákvæð áhrif á fyrirtæki
sem byggja á loðnu- og þorsk-
veiðum. Þannig verður aukn-
ing kvóta í þorskígildum 7%
hjá Tanga hf. á Vopnafirði en
minnkun um tæp 6% hjá Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur hf.
Jákvæð áhrif meiri
en neikvæð
Jákvæð áhrif era hins vegar
meiri en neikvæð áhrif. Skýring
þessa er einkum sú að rækju-
og síldarkvóti síðasta árs mun
ekki nást en hins vegar náðist
að veiða nær allan loðnukvót-
ann og þorskkvótinn verður að
öllum líkindum allur veiddur.
Þessir útreikningar taka
ekki mið af hugsanlegum verð-
breytingum sem hafa einnig
áhrif á afkomu sjávarútvegs-
fyrirtækja. Sé t.d. miðað við
óbreytt verð á þorskkvóta er
verðmæti aukningar hans um
25,6 milljarðar króna.
Deilur um menningarmiðstöð sem arftaka Goethe-stofnunarinnar
Yonir bundnar við stjórn-
arskipti í Þýskalandi
STJÓRN félagsins Germaníu hefur
einróma hafnað því að taka þátt í
stofnun Hollvinafélags þýsks menn-
ingarseturs í Reykjavík, sem taka á
við hluta af starfsemi Goethe-stofn-
unarinnar sem lögð hefur verið nið-
ur, fyrr en ljóst verður hvort þýsk
stjórnvöld muni leggja því til nægi-
legt fjármagn. Fjórir fyrrverandi
formenn Félags þýskukennara hafa
einnig sent frá sér yfirlýsingu þar
sem þeir segja stofnun slíks félags
ótímabæra en meii-ihluti fundai--
manna á aðalfundi Félags þýsku-
kennara 21. maí síðastliðinn sam-
þykkti að halda áfram undirbúningi
að stofnun félagsins.
I fréttatilkynningu frá Hollvinafé-
laginu sem send var út í kjölfar fram-
haldsstofnfundar þess 26. maí síðast-
liðinn, segir að Félag þýskukennara
og þýskudeild Háskóla íslands standi
að baki stofnun þess. Formaður fé-
lagsins er Oddný Sverrisdóttir, dós-
ent í þýsku við Háskólann og í stjórn-
inni era að auki, meðal annarra, tveir
Þjóðverjar sem kenna þýsku við Há-
skólann, annar sem sendikennari en
hinn er stundakennari.
í samtali við Morgunblaðið fyrir
helgi sagðist Kjartan Gíslason, dós-
ent í þýsku við Háskólann, efast um
lögmæti þess að þýskudeild Háskól-
ans væri sögð tengjast félaginu með
slíkum hætti. I fyrsta lagi vegna
þess að slík deild væri formlega ekki
til við Háskólann og í öðru lagi væri
hann, einn af þremur fastakennuram
í þýsku í skor þýsku og Norður-
landamála, ekki þátttakandi í félag-
inu.
Oddný Sverrisdóttir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið á fostudag, eft-
ir að hafa ráðfært sig við Pál Skúla-
son, rektor Háskóla ísland, að það
hefðu verið mistök að nota nafnið
þýskudeild og réttara hefði verið að
segja að kennarar í þýsku í skor
þýsku og Norðurlandamála stæðu að
stofnun félagsins.
Angi af langvarandi umræðu
Deilan um Hollvinafélagið er angi
af þeirri umræðu sem staðið hefur
allt frá því að yfirvöld í Þýskalandi
ákváðu að leggja niður Goethe-stofn-
unina í Reykjavík. Sú ákvörðun kom
til framkvæmda í lok mars síðastlið-
ins;
í kjölfar mótmæla á íslandi og í
Þýskalandi gegn lokun stofnunarinn-
ar kom upp sú hugmynd að koma á
fót annarri stofnun sem taka myndi
við hlutverki hennar. I áðurnefndri
fréttatilkynningu Hollvinafélagsins
kemur fram að stjórn félagsins hafi
að undanfömu staðið í samningavið-
ræðum við fulltrúa Goethe-stofnun-
Áhugamenn um menningarsamskipti ís-
lands og Þýskalands deila nú í kjölfar lok-
unar Goethe-stofnunarinnar um það hvort
best sé að taka boði þýskra stjórnvalda um
menningarmiðstöð eða hvort bíða eigi eftir
betri tíð undir stjórn jafnaðarmanna eftir
þingkosningarnar í Þýskalandi. Helgi Þor-
steinsson segir nýjustu tíðindi af margflók-
inni og langvarandi umræðu.
arinnar í Munchen, en
þar eru höfuðstöðvar
hennar, um stofnun
þýskrar menningarmið-
stöðvar í Reykjavík.
Fram hafi komið í þeim
viðræðum að þýska
bókasafnið, sem Goethe-
stofnunin í Reykjavík
hefur starfrækt, muni
áfram starfa þar og að
höfuðstöðvarnar í
Munchen muni tryggja
að bókakosturinn, tíma-
rit og önnur gögn verði
endumýjuð. Ymissi
annarri starfsemi stofn-
unarinnar verði einnig
áfram haldið.
Menningarmiðstöð fær
minni styrki
Ljóst er þó að starfsemi nýju
menningarmiðstöðvarinnar, sem
ráðgert er að opna í haust, mun ekki
njóta jafnmikilla styrkja frá Þýska:
landi og Goethe-stofnunin gerði. í
umræðum á þýsku þinginu hefur
komið fram að 75 þúsund mörkum,
eða um þremur milljónum króna,
verði varið til þessara mála árlega,
auk nokkurs aukaframlags í tengsl-
um við sérstaka viðburði, en Goethe-
stofnunin fékk árlega 350 þúsund
marka styrk.
Annette Fafie, þingmaður jafnað-
armanna á þýska sambandsþinginu,
hefur gagnrýnt ákvörðunina um lok-
un Goethe-stofnunarinnar og ítrekað
beint fyrirspurnum um framtíð
þýsk-íslenskra menningarsamskipta
til ríkisstjómarinnar. Fafie situr á
þingi fyrir hafnarborgina Cuxhaven,
sem hefur mikil viðskiptatengsl við
ísland.
I fréttatilkynningu sem Fafie
sendi frá sér 15. maí síðastliðinn seg-
ist hún áfram munu beita sér fyrir
þvi að viðunandi lausn
verði fundin á málinu.
Vonir sínar bindur hún
ekki síst við flokksbróð-
ur sinn Schröder, for-
sætisráðherra Neðra-
Saxlands, sem jafnframt
er utanríkisráðherra í
skuggaráðuneyti jafnað-
armanna. Schröder kom
til Islands á síðasta ári
og sagðist þá andvígur
lokun Goethe-stofnunar-
innar í Reykavík.
Fyrir rúmri viku var
sendinefnd Alþingis á
ferð um Þýskaland og
heimsótti þá Sambands-
þingið í Bonn og ræddi
þar við ýmsa þingmenn.
I samtölum við tvo þeirra minntust
Islendingarnir á málefni Goethe-
stofnunarinnar. Annar var þingkon-
an Antje Vollmer, varaforseti þings-
ins, sem tilheyrir flokki Græningja.
Pétur H. Blöndal, formaður ís-
lensku nefndai-innar, segir að Voll-
mer hafi lýst áhyggjum af þróun
mála í menningarsamskiptum land-
anna og sagt að Græningjar hefðu
reynt að hnekkja ákvörðun stjórn-
arinnar í þessum efnum. Aðspurð
hefði hún sagt að ef eftir kosning-
arnar tæki við samstarfsstjórn
Græningja og jafnaðarmanna væru
miklar líkur á því að Goethe-stofn-
unin í Reykjavík yrði endurreist, án
þess þó að hún vildi lofa neinu í því
efni.
Á að bíða eftir vinstri stjórn?
Það er vonin um stuðning ríkis-
stjórnar undir forystu jafnaðar-
manna að loknum þingkosningum
sem fram fara í september næst-
komandi, sem gerir að verkum að
sumir íslenskir stuðningsmenn
Goethe-stofnunarinnar í Reykjavík
Johann Wolfgang
Goethe
telja ótímabært að standa að stofnun
arftaka hennar strax.
Oddný Sverrisdóttir bendir á móti
á að sé tilboðinu ekki tekið strax sé
hætta á að þýska bókasafnið í
Reykjavík, sem er eldra en Goethe-
stofnunin, muni alveg leggjast af, til
dæmis með því að bækurnar verði
gefnar Þjóðarbókhlöðunni.
Þeir sem nú deila eiga þó flestir
eða allir sameiginlegt að vilja helst
stefna að endun’eisn Goethe-stofn-
unarinnar. Á aðalfundi Félags
þýskukennara, sem klofnaði í af-
stöðu sinni til þess hversu fljótt ætti
að ganga í stofnun menningarmið-
stöðvar, var samhljóða samþykkt
ályktun þess efnis að meginmark-
miðið væri að endurreisa Goethe-
stofnunina.
Lokunin áróðursbragð
Goethe-stofnunarinnar?
Miðað við yfirlýsingar þýskra
jafnaðarmanna og Græningja er eðli-
legt að baráttumenn fyrh’ endur-
reisn Goethe-stofnunarinnar í
Reykjavík vonist eftir sigri þeirra í
kosningunum í haust. Ekki er þó ful-
Ijóst hvort við núverandi ríkisstjórn
eina er að sakast varðandi lokunina á
sínum tíma.
Fyrirmæli ríkisstjórnarinnar til
höfuðstöðva Goetheinstitut í
Munchen á sínum tíma voru þau að
fækka þyrfti starfsmönnum um 2%.
Stofnunin kaus að leggja niður níu
útibú, þar af þrjú á Norðurlöndum.
Á sama tíma var stefnt að opnun
nýrra útibúa í Hanoi, Taschkent,
Vilnius og Ramallah, á sjálfstjórnar-
svæði Palestínumanna.
Eins og sagt hefur verið var í heim-
sókn íslensku þingmannanna til Sam-
bandsþingsins í Bonn fyrir skemmstu
rætt um lokun Goethe-stofnunai-innar
í Reykjavík við Græningjann Antje
Vollmer, en jafhframt var minnst á
málið við einn fulltrúa Kristilegra
demókrata. Sá heitir Rolf Olderog og
er formaður þýsk-skandinavísku þing-
nefndarinnar á Sambandsþinginu.
Olderog sagði að ákvörðunin um
að leggja niður útibúið í Reykjavík
hefði aldrei komið fyrir augu stjóm-
málamanna heldm’ verið tekin af
embættismönnum. Hann lét í veðri
vaka að sumpart hefði sú lokun verið
tæki Goethe-stofnunai’innar til að
vekja athygli á niðurskurði á heildar-
framlögum til hennar, enda hefðu
forstöðumenn hennar vitað að lokun-
in í Reykjavík myndi vekja athygli.
Olderog sagði að stefnt væri að því
að leysa málið með viðunandi hætti,
til dæmis með því að hafa sérstakan
sendifulltrúa hér á landi.
viöveg [nr 3741 Hvammur)>
Sjón er sögu ríkari Láttu þœr sjá þig
Tré, runnar, sumarblóm, fjölcer blóm, lclifurplöntur,
alparósir, skjólbeltaplöntur, limgerðisplöntur, eðalrósir,
berjarunnar og sígrœnir dvergrunnar.
Opið alla daga frá kl. 10.00 til 19.00
Sími 483 4840 Fax 483 4802
Velkomin í sveitasœluna
Áfrýjun vegna Sig-
urðar VE dómtekin
ÁFRÝJUN ísfélags Vestmanna-
eyja vegna töku norsku strand-
gæslunnar á Sigurði VE og
dóms yfir útgerðinni og skip-
stjóranum í kjölfarið, hefur verið
dómtekin í Lögmannsrétti í
Hálogalandi. Dóms er að vænta í
næstu viku að sögn Sigurðar
Einarssonar framkvæmdastjóra
ísfélagsins, en hann segist vera
bjartsýnn á betri útkomu að
þessu sinni.
„Við höfum kynnt okkar sjón-
armið. Þetta getur auðvitað farið
á hvorn veginn sem er og maður
áttar sig ekki alveg á því hvað
gerist, en við reynum að vera
bjartsýnir. Við teljum að mál-
staður okkar sé góður og Norð-
menn hafi farið offari gegn skip-
inu á sínum tíma,“ sagði Sigurð-
ur enn fremur.
Upptaka málsins fyrir dóm-
stólnum í Hálogalandi fór fram í
gær og fyrradag. Skipstjóri Sig-
urðar og stýrimaður voru kall-
aðir í vitnastúku, svo og tækni-
maður sem setti upp staðsetn-
ingabúnað í skipinu. Einnig
komu menn frá norsku strand-
gæslunni, Fiskistofunni í Björg-
vin og norskur sérfræðingur í
staðsetningatækjum. „Menn
gáfu skýrslur sínar og málið var
flutt af sækjendum og verjend-
um eins og lög gera ráð fyrir.
Síðan var það dómtekið og við
verðum bara að bíða og sjá hvað
setur,“ bætti Sigurður Einars-
son við.