Morgunblaðið - 11.06.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 21
LANDIÐ
Skipsflak frá
1694 fínnst við
Patreksfjörð
I ORLYGSHOFN við Patreksfjörð
hefur fundist skipsflak sem talið er
vera frá árinu 1694. Egill Olafsson,
safnvörður að Hnjóti, segir að flak-
ið hafi áður fundist árið 1923, fallið
í gleymsku en komi nú aftur í ljós
þar sem árfarvegur Hafnarvaðals
hefur grafið það upp á ný.
„Þegar flakið fannst árið 1923
náðu bændur á Hnjóti þremur
plönkum úr skipinu. Síðan hvarf
það og gleymdist, en mér var sagt
frá því hvar það lá. Nú hefur
ströndin breyst allmikið vegna ár-
innar og því kemur skipið aftur í
ljós. Þarna virðist vera botninn á
skipinu, ég veit ekki hvað mikið af
honum, en flakið er þama,“ sagði
Egill sem nýlega rakst á flakíð.
Stuðst við annála
Heimildir úr Eyrarannál, sem
ritaður var af Magnúsi Magnús-
syni sýslumanni á sautjándu öld,
segja frá komu nokkurra erlendra
skipa til Patreksfjarðar: „Sumarið
1694 kom franskt stríðskip að
Vatneyri í Patreksfirði. Þess
kapteinn var Jóhannes Diesepar er
lengi hafði verið hvalveiðimaður
hér við land. Hann hafði tekið tvö
ensk skip við komuna frá Vestm-
Indíum hlaðin með sykur, tóbak og
aðrar dýrmætar vörar, og sigldi
með þau inn á fyrrnefnda höfn í
Vatneyri. Nokkrar enskar fiski-
duggur lágu um þennan tíma á
Tálknafirði, hverjar þeir fyrst
rændu og tóku alla frakt af þeim og
í skip sín inn lögðu, og settu síðan
eld upp á þessar duggur létu þær
logandi sigla út af Tálknafirði."
Skipin brunnu svo á sjó úti og þau
rak upp í höfnina eins og hvert
annað rekald, segir Egill.
Egill segir að þessi lýsing renni
stoðum undir þann grun sinn um
að flakið í Örlygshöfn sé frá árinu
1694. „Þegar ég skoðaði flakið kom
í ljós að timbrið hafði farið í eld, og
eftir allmikla leit í annálum fann ég
fyrrnefnda sögu. Það eru mjög
miklar líkur á því að þarna séu leif-
ar af einu skipinu, og ef þetta reyn-
ist rétt er þetta mjög merkilegur
fundur.“
Egill segir lýsinguna í annálnum
passa vel við rek skipa um fjörð-
inn. „Þeir láta skipin sigla út
Tálknafjörðinn, út á Patreksfjarð-
arflóann, og vitanlega hafa þeir
ekki getað látið skipin sigla þama
út nema í norðanátt og svo þegar
þeir koma þarna út, rekur skipin
undan norðanáttinni og ber þarna
á land. Eitt skipið rekur þarna að
Hafnarvaðlinum og það er það
skip sem við erum að fást við nú,“
sagði Egill.
Að sögn Egils er von á þjóð-
minjaverði innan skamms til að
kanna flakið, og aldursgreina það,
en ekki má hreyfa við því þar sem
það flokkast undir náttúraminjar.
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
Stokkseyrar-
hreppur kvaddur
Stokkseyri - í tilefni af því að
Stokkseyrarhreppur sameinast
nú þrem öðrum sveitarfélögum,
þ.e.a.s. Eyrarbakkahreppi, Sand-
víkurhreppi og Selfossbæ, þá
ákvað hreppsnefnd Stokkseyrar
að Iáta það verða sitt síðasta
verk að efna til hátíðar og fór
hún fram að kvöldi hins 6. júní sl.
Hátíðarhöldin hófust kl. 23 á
því að gengin var blysför í gegn-
um þorpið í fylgd blásturshljóð-
færaleikara. Þegar göngunni
lauk var kveikt í bálkesti, slysa-
varnasveitin Dröfn stóð fyrir
flugeldasýningu og grillaðar
BARNASKÓR
Barnasumarskór
SMÁSKÓR
Sérverslun með barnaskó,
í bláu húsi við Fákafen, sími 568 3919.
voru pylsur. Mikill íjöldi fólks
mætti og hafði gaman af þessari
uppákomu sem fram fór í björtu
og kyrru veðri þar sem umhverf-
ið skartaði sínu fegursta.
íslensk framleiösla
síðan 1972
MÚR-
VIÐGERÐAR-
EFNI
ALLAR GERÐIR
!l steinprýði
STANGARHYL 7, SÍMI 567 2777
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
KRAKKARNIR á leikskólanum Sólvöllum tóku lagið fyrir viðstadda
• •
Oryggi barna í umferðinni
á Neskaupstað ábótavant
Neskaupstað - Nú á dögunum
gekkst Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins og lögreglan á Neskaup-
stað ásamt Umferðarráði og Vá-
tryggingafélagi íslands fyrir um-
ferðaröryggisdegi í Neskaupstað.
Tilefni þessarar uppákomu var
könnun sem konurnar í Kvenna-
deildinni gerðu í vor og þar kom í
ljós að öryggi barna á ferð í bílum
var mjög ábótavant, aðeins um
50% þeirra voru í bílstólum eða
notuðu bílbelti. Þeir sem spurðir
voru um hvers vegna bömin væra
ekki í bílstólum eða notuðu bílbelti
svöruðu því tO að vegalengdir
væru svo stuttar innanbæjar að
ekki tæki því að nota bílstóla eða
belti.
Fram kom hjá þeim sem að upp-
ákomunni stóðu að flest slysin
verða einmitt í stuttu ferðunum og
því mikilvægt að beltin og stólarnir
séu notuð hvort sem vegalengdin
sem á að fara er stutt eða löng.
A samkomu sem var haldin í til-
efni dagsins voru flutt ávörp og
tónlistaratriði auk þess sem boðið
var upp á pylsur og ís.
Ekki verður sagt að Norðfirð-
ingar hafi sýnt þessu þarfa átaki
mikinn áhuga því aðeins mættu
rúmlega 100 manns á samkomuna.
EKKI MISSA AF ÞESSU
LOÐVÍÐIR í PT.
25-35 CM.
Áður kr. 210-
ALASKAÖSP í PK. 30-60 CM.
KEISARI, JÓRA, PINNI
Áður kr. 340-
Nú aðeins
kr. 199- /
ALDREI MEIRA ÚRVALAF SUMARBLÓMUM,
GARÐ-OG SKÓGARPLÖNTUM.
SENDUM UM ALLT LAND
...
PLÖNTUSALAN í FOSS VOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrir neöan Borgarsp(tala) Opiö kl. 10 -19. helgar kl. 10 -18.
S(mi 564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG
O