Morgunblaðið - 11.06.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 23
NEYTENDUR
Verðsamkeppni á höfuðborgarsvæðinu
Fjarðarkaup lækka verð
á þúsundum vöruliða
UNDANFARNA daga hafa keppi-
nautar Hagkaups verið að svara
þeirri verðlækkun sem gerð var þeg-
ar rekstrarfyrirkomulagi Hagkaups
var breytt nýlega. Verð hefur verið
lækkað á 4.000-5.000 vöruliðum í
Fjarðarkaupum. Hjá 10-11 verslun-
unum hefur einnig átt sér stað verð-
lækkun.
Að sögn Sveins Sigurbergssonar í
Fjarðarkaupum eru þessar aðgerðir
liður í að svara yfirlýsingum Hag-
kaups um að þar sé alltaf hægt að
gera betri kaup. „Við höfum undan-
farið komið út sem ódýrasti stór-
markaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
og við ætlum að halda áfi-am að
skipa það sæti. Þessar verðlækkanir
að undanförnu eru bara byi’junin en
við komum til með að endurskoða
verð á öllum vörum hjá okkur og gef-
um ekkert eftir í þessari sam-
keppni," segir Sveinn. Þegar hann er
spurður um þá vöruflokka sem lækk-
að hafa í verði segir hann það alla
daglega neysluvöni eins og til dæmis
grænmeti, ávexti, mjólkur- og kjöt-
vöru.
„Það má með sanni segja að það sé
skollin á bullandi verðsamkeppni hér
á höfuðborgarsvæðinu og verðið
breytist daglega. Boltinn er þegar
fai-inn að rúlla og þetta er þróun sem
við sjáum ekki fyrir endann á.“
Eiríkur Sigurðsson kaupmaður í
10-11 segir að verð breytist daglega
á sumum vöruliðum í 10-11 verslun-
unum þessa dagana. „Við fylgjumst
vel með verðbreytingum allan ársins
hring en undanfarið hefur verið sér-
staklega mikið um verðbreytingar í
kjölfar nýrrar Hagkaupsverslunar.
Við ætlum að bjóða svipað verð og
Hagkaup og höfum því verið að
lækka verð á ýmsum vöruliðum eins
og á ávöxtum, grænmeti og annarri
ferskri vöru. Það er mismunandi
hversu mikil verðlækkunin er en hún
er geysilega mikil á ávöxtum og
grænmeti.“
Eiríkur segii' að mikill verðmunur
sé á Hagkaupi og Nýkaupi og hann
segist furða sig á að neytendur skuli
ekki hafa mótmælt breytingum á sjö
Hagkaupsverslunum í Nýkaup.
„Verðmunurinn er mjög mikill og nú
er búið að taka út hagstæða valkosti
í Nýkaupi eins og gulu línuna sem
var ódýrai'i og til dæmis allar ódýrar
kjötvörur. Sem dæmi um verðmun í
þessum verslunum hafa viðskipta-
vinir getað keypt eina öskju af inn-
Morgunblaðið/Arnaldur
VERÐ á ávöxtum og grænmeti breytist jafnvel oft á dag í helstu stór-
mörkuðum á höfuðborgarsvæðinu.
VERÐ á íslenskri grænni
papriku var afar mismunandi í
gær og lýsandi fyrir þann verð-
óróa sem er á markaðnum.
Ódýrust var fslensk paprika á
289 krónur kílóið í Bónus en
dýrust var hún á 695 krónur
kílóið í Nýkaupi og 698 krónur f
Nóatúni. Verslanir eins og
Fjarðarkaup, Hagkaup og 10-11
buðu kflóið af papriku á um 385-
389 krónur kflóið.
fluttum jarðarberjum á 69 krónur í
Hagkaupi á meðan askja af sömu
stærð var seld á 198 krónur í Ný-
kaupi og kílóið af papriku hefur verið
fáanlegt á innan við fjögur hundruð
krónur í Hagkaupi á meðan það
kostar um sjö hundruð krónur í Ný-
kaupi.“
Grænmeti og ávextir
lækka f Hagkaupi
Jón Björnsson framkvæmdastjóri
hjá Hagkaupi segir að undanfarið
hafi þeir lækkað verð enn frekar á
mörgum af þeim 7.000 vöruliðum
sem lækkaðir voru í verði þegar
verslunin vai' opnuð í Smáranum.
„Okkar stefna er að fylgja markaðn-
um og bjóða alltaf lægra verð en al-
mennar hverfaverslanir og þeirri
stefnu höfum við verið að fylgja und-
anfarna daga.“ Hann segir að sem
dæmi um verðlækkun megi nefna að
bananar hafi lækkað um 75%, tómat-
ar um 60% og paprikur um 44%.
Fylgjumst með markaðnum
„Verðið er óbreytt í Nýkaupi frá
því sem það var í Hagkaupi fyrir
þessar breytingar en þó hafa ein-
staka vöruflokkar lækkað í verði,“
segir Finnur Amason framkvæmda-
stjóri hjá Nýkaupi. Þegar hann er
spurður hvort Nýkaup hafi að und-
anfórnu lækkað verð á algengum
neysluvörum, s.s. á ávöxtum og
grænmeti eins og sumar aðrar versl-
anir hafa verið að gera, segir hann
að þeir fylgist með verðinu á mark-
aðnum og leggi áherslu á að vera
samkeppnisfærir.
Evrópskir staðlar á vöggur og smábarnarúm
Gamlar vöggur
varasamar
Á NÆSTA ári taka gildi evrópskir
staðlar um útbúnað fyrir böm. Her-
dís Storgaard, barnaslysavarnafull-
trúi hjá Slysavarnafélagi Islands
segir að staðlarnir eigi að tryggja
neytendum að verið sé að framleiða
vörurnar samkvæmt ströngum ör-
yggiskröfum.
Herdís segir gott fyrir forráða-
menn lítilla barna að vita hvaða
kröfur verða gerðar til búnaðar fyr-
ir börn og að þessu sinni greinir
hún frá því hvernig vöggur og smá-
barnarúm eiga að líta út samkvæmt
þessum stöðlum.
Vöggur eða barnakörfur
Oft er sama vaggan notuð í fjöl-
skyldum í áratugi en Herdís segir
að margir gamlir munir uppfylli
ekki öryggiskröfur og því þurfi fólk
að yfirfara vel vöggur eða bamkörf-
ur áður en þær eru teknar í notkun.
„Vöggur og bamakörfur má ein-
ungis nota fyrstu vikurnar eða mán-
uðina því þegar barnið fer að setjast
upp eða geta dregið sig upp þarf
það að sofa í barnarúmi. Frá yfir-
borði dýnu að efstu brún vöggu
þurfa að minnsta kosti að vera 20
sentimetrar."
Smábarnarúm
Smábamarúm em til í mismun-
andi útgáfum. Þau eru með háum
hliðum sem eru fastar eða stillan-
legar. Smábarnarúm er hægt að
nota frá fæðingu til tveggja og hálfs
árs aldurs.
Til að koma í veg fyrir að börn
geti hengt sig má bil milli rimla ekki
vera meira en 6 cm og sé rúmið ekki
með heilum botni þarf bil milli
botnrimla að vera 2,5 cm svo börnin
geti ekki fest hendur og fætur á
milli.
„Rúmið á að vera stöðugt og geta
þolað að bamið hoppi í því. Ef hægt
er að hækka og lækka botnplötu
rúmsins þarf að vera gengið þannig
frá hlutum að aðeins sé hægt að
gera slíkt með verkfærum. Þegar
botnplatan er í efstu stillingu þurfa
hliðar rúmsins að vera að minnsta
kosti 30 cm háar og þegar það er í
neðstu stillingu eiga hliðarnar að
vera að minnsta kosti 60 cm háar.
Þá þarf að huga að því að barnið
geti ekki sjálft hækkað eða lækkað
rúmið og skrúfur eða rær mega
ekki vera á rúminu sem barnið get-
ur losað. Sé rúmið á hjólum skal
gengið úr skugga um að góðar læs-
ingar séu á þeim. Þegar barnið fer
að geta klifrað uppúr rúminu er
kominn tími til að skipta um rúm.
ALLT TIL RAFHITUNAR!
Fyrir heimili - sumarhus - fyrirtæki
HAGSTÆTT
VERÐ!
ELFA-OSO hitakútar og túbur
Ryðfríir kútar með áratuga frábæra reynslu.
Stærðir á lager: 30—50—80—120—200 og
300 lítra.
Getum útvegað stærðir frá 400—1.000 lítra.
Blöndunar-, öryggis- og aftöppunarlokar fylgja.
Ennfremur bjóðum við hitatúbur frá 6-1200kW
og elektróníska vatnshitara fyrir vaska og
handþvott.
ELFA-VÖSAB olíufylltir ofnar
Fallegir, einstaklega jafn og þægilegur hiti,
engin rykmengun, lágur yfirborðshiti.
Thermostatstýrðir. Kapall og kló fylgja.
Stærðir á lager: 400-750-800 og 1.000 W.
Hæð: 30 eða 60 sm.
Getum einnig útvegað tvöfaida ofna.
Einar
Farestveit&Co.hff.
Borgartúni 28, sími 5622900
MÍólk
Margir þekkja lífræna
ab-mjólk sem hefur verið á
markaði um nokkurt skeið
við miklar vinsældir.
Með framleiðslu Iífrænnar
drykkjarmjólkur á íslandi er
stigið enn frekari skref á
þessari braut.
Áherslur lífrænnar framleiðslu:
■ '/ Fyrir þá sem aðhyllast lífræn markmið er lífræn
■ a drykkjar mjólk nú loks komin á markað. Hún kemur
» frá bænum Neðra-Hálsi í Kjós og er unnin til dreifingar
hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík samkvæmt reglum um
lífræna landbúnaðarframleiðslu. Framleiðslan er vottuð af
vottunarstofunni Túni ehf.
1. Að viöhalda náttúrulegu jafnvægi í umhverfinu
2. Að auka frelsi og eðlislæga hegðun dýra
3. Afurðir komlst til neytenda í eins fersku og upprunalegu
ástandi og kostur er.
Hristlst fyrlr notkun
Lífræn mjólk er ekki fitusprengd. Rjóminn flýtur því upp og
myndar rjómalag ofan á mjólkinni. Hristu hana vel áður en
hún er notuð, þá dreifist rjóminn aftur um mjólkina.
Samkvæmt kröfum heilbrigðisyfirvalda er lífræn mjólk
gerilsneydd eins og önnur mjólk.
Takmarkað magn - dýrarl framlelðsla
Magn þeirrar lífrænu mjólkur sem við getum boðið er
takmarkað enn sem komið er. Lífræn framleiðsla er
tímafrekari og fyrirhafnarmeiri en önnur
mjólkurvöruframleiðsla. Af því leiðir einnig að hún er dýrari
sem kemur fram í hærra verði. Þess er þó gætt að halda
auknum kostnaði í algjöru lágmarki en áhersla er lögð á að
verðmunurinn skili sér sem mest til bóndans og verði á þann
hátt hvatning til aukinnar lífrænnar framleiðslu.
www.mbl.is