Morgunblaðið - 11.06.1998, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Sigurður Hannesson
SKIPVERJAR á Hafborgu við hákarlinn.
Ekki er allur
fengur til fjár
HAFBORG SF 116, sem er 30
tonna bátur, fékk í síðustu viku
10 metra langan hákarl í net sín í
Hornaíjarðardýpi.
Að sögpi Sigurðar Guðmunds-
sonar skipstjóra á Hafborginni
var hákarlinn nærri dauður þeg-
ar netin voru dregin en honum
hafði tekist að valda töluverðu
tjóni, því tvö netanna eru alveg
ónýt. Hákarlinn var dreginn á
land og var ætlunin að hann færi
í vinnslu á Eskifírði. Við nánari
skoðun kom hins vegar í ljós að
hér var um beinhákarl að ræða,
því miður, en sú skepna er til lít-
ils nýt. Hákarlinn verður því fjar-
lægður hið fyrsta úr höfninni.
Afurðaverðmæti þorskaflans eykst um 30%
Utlit fyrir
áframhaldandi
hækkanir
ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI
sjávarafurða hefur hækkað mun
meira á þessu ári en ráð var fyrir
gert í þjóhagsspá. Þannig hefur af-
urðaverðmæti þorskaflans aukist um
30% á fyrstu 4 mánuðum þessa árs
samnborið við sama tíma í fyrra. Or-
sakir þessa má rekja til minnkandi
framboðs á erlendum mörkuðum,
sérstaklega á bolfiskafurðum, sam-
fara samdrætti í fiskafla nágranna-
þjóðanna. Búast má við áframhald-
andi hækkunum, m.a. í kjölfar
kvótaaukningar sem fulltrúar stóru
sölusamtakanna segja að hafi mjög
góð áhrif á ímynd Islands á mörkuð-
unum. Þeir vara þó við ýmsum hætt-
um.
Kristján Hjaltason, framkvæmda-
stjóri markaðsmála hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, segir aflasam-
drátt í Barentshafi fyrst og fremst
hafa leitt til skorts á markaðnum og
hækkunar á bolfiski, einkum þorski.
,Afli úr Barentshafi hefur dregist
umtalsvert saman, auk þess sem
minni veiði hefur verið í Eystrasalti.
í augnablikinu eru ekki horfur á
auknum afla á þessu svæði. Hins
vegar hefur einnig verið samdráttur
í veiðum á alaskaufsa og því getur sú
tegund ekki bætt upp samdrátt í
þorski. Verðið hefur því hækkað því
viðskiptavinurinn hefur ekki getað
leitað neitt annað. En eins og horf-
urnar eru nú er ekki víst að þessi
góða sala minnki á næstunni “
Kristján segir fullvíst að salan
minnki um leið og neytendur þurfi
að borga hærra verð. Þá leiti neyt-
andinn í aðrar vörur og spuming sé
þá aðeins í hvaða mæli það gerist.
„Það er hreinlega ekki til nægur
fiskur fyrir markaðinn í bili. Eins má
benda á að afurðaverð hafa lækkað
mikið frá árinu 1991 og tími til kom-
inn að þau hækkuðu aftur, sérstak-
lega í Evrópu.“
ísland getur sér gott orð
Kristján segir aukningu á þorsk-
kvóta hérlendis kannski ekki hafa
mikið að segja á markaðnum hvað
magn varðar en áhrifin séu engu að
síður góð. „Viðskiptavinir leita eðli-
lega til þess lands þar sem þeir sjá
aukningu. Einnig hefur umræða um
sjálfbærar fiskveiðar leitt til þess að
stærstu viðskiptavinir okkar úti í
heimi, tO dæmis verslunarkeðjur í
Bretlandi, eru undir þrýstingi frá
umhverfissamtökum um að hegða
sér á ábyrgan hátt í innkaupum. Þá
leita þeir meðal annars til aðila sem
eru ábyrgir í umgengni um sína auð-
lind. Þar hafa íslendingar getið sér
gott orð. Upprunamerkingar og
rekjanleiki verða sífellt mikilvægari
og hjálpar okkur mikið. Það höfum
við fundið greinilega á síðustu vik-
um,“ segir Kristján.
Þrýstingur frá kaupendum
Aðalsteinn Gottskálksson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs
íslenskra sjávarafurða, segir greini-
legan skort á hráefni á mörkuðum
erlendis, sérstaklega á þorsk- og
karfaafurðum. Það eigi við um alla
markaði. „Verð á blokkaframleiðslu
er nú orðið samkeppnishæft við unn-
ar afurðir á Bandaríkjamarkað og
slíkt gerist ekki nema þegar vöntun
er á hráefni."
Aðalsteinn segir margvísleg tilboð
í gangi á markaðnum um þessar
mundir sem einkennist af því að
menn hafi skuldbundið sig til að af-
henda vöru á tilsettum tíma og verði
því að fá hráefni hvað sem það kost-
ar. „Það er hins vegar erfitt að sjá
hver framþróunin verður í þessum
málum. En það er ennþá spenna á
markaðnum. Kvótaaukningin nú er
því gulls ígildi þegar þörfin iyrir vör-
una er mikil. Það hefur bæði góð
áhrif fyrir okkur sem erum að selja
íslenska vöru en einnig gefur það Is-
landi góða ímynd að geta sýnt fram á
að sjálfbærar veiðar skili árangri. Á
meðan eru aðrar þjóðir að draga
saman veiðar."
Verðum að vera á varðbergi
Aðalsteinn bendir þó á að í örum
afurðaverðshækkunum geti falist
hættur. „Ein af afleiðingum þess
gæti verið að menn fari að leita að
annarri og ódýrari vöru. Hættan er
sú að hækkunin verði of mikil og hafi
í för með sér neysluáhrif. Ef neyt-
endur færa sig úr fiski yfir í aðrar
próteinvörur gæti orðið mjög erfitt
að ná því til baka. Þannig að um
ástandið í dag má segja að í því felist
bæði tækifæri og hættur. Við verð-
um því að vera á varðbergi," segir
Aðalsteinn.
Indónesía
Auka á
mann-
réttindi
Jakarta, Tókýó. Reuters, The Daily Telegraph.
INDÓNESÍSK stjórnvöld hyggjast
hvetja til fimm ára þjóðarátaks í
mannréttindamálum til þess að
bæta ímynd sína á alþjóðavettvangi,
að því er blaðið Jakarta Post greindi
frá í gær. Átakið mun m.a. fela í sér
að viðurkenndar verða nokkrar
mannréttindasamþykktir Samein-
uðu þjóðanna.
Forseti landsins, B.J. Habibie,
mun opinberlega hefja átakið 25.
júní, að sögn blaðsins. Haft var eftir
Ali Alatas utanríkisráðherra að
meðal þeirra samþykkta sem viður-
kenndar yrðu væri sú, er kveður á
um bann við pyntingum. Indónesar
hafa viðurkennt Mannréttindayfir-
lýsingu SÞ frá 1948.
Habibie gaf í skyn á þriðjudag að
hann væri reiðubúinn til að veita
Austur-Tímor „sérstaka stöðu“ og
ryðja þannig úr vegi hindrunum fyr-
ir friðsamlegri lausn í deilunni þar.
Austur-Tímor er fyrrverandi ný-
lenda Portúgala, en Indónesar
gerðu þar innrás 1975 og innlimuðu
landið ári síðar. Vopnuð andspymu-
hreyfing veitir þeim enn mótspyrnu.
Habibie sagði að tíu pólitískum
fóngum, er tengjast sjálfstæðis-
hreyfingu A-Tímor, yrði sleppt úr
haldi.
Suharto sagður sljóma
á bak við tjöldin
Einn helsti leiðtogi óháðra laun-
þegasamtaka í Indónesíu kveðst
telja að þótt Habibie hafi tekið við
embætti forseta af Suharto, fari sá
síðamefndi raunvemlega með mikil
völd á bak við tjöldin. Leiðtoginn,
Muchtar Pakpahan, var látinn laus
úr fangelsi fyrir hálfum mánuði í
kjölfar afsagnar Suhartos.
„Habibe hefur alltaf verið sem
strengjabrúða í höndum Suhartos,
og Suharto togar enn í strengina á
bak við tjöldin," sagði Pakpahan.
Ohugnanlegt morð
Jasper. Reuters.
IBÚAR bæjarins Jasper í Texas í
Bandaríkjunum em slegnir óhug
vegna morðs sem framið var á
svörtum manni síðastliðinn
sunnudag. Þrír hvítir menn voru
á þriðjudag handteknir vegna
morðsins og era þeir grunaðir
um að vera tengdir Ku Klux
Klan-samtökunum. Hafa þeir all-
ir setið af sér fangelsisdóma og
voru tveir þeirra lausir á skil-
orði.
Mennirnir bundu hinn 49 ára
gamla James Byrd við vélarhús
bfls og keyrðu með hann langa
vegalengd í eftirdragi á miklum
hraða niður afskekktan vegar-
slóða. Skildi bfllinn eftir slóð
blóðs og á myndinni markar
málning staðinn þar sem höfuð
Byrds fannst, i rúmlega kfló-
metra Qarlægð frá búknum.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
Útflutningur brezks
nautakjöts verði leyfður
Brusscl, London. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins lagði til í gær að
banni við útflutningi á brezku nauta-
kjöti til annarra ríkja Evrópusam-
bandsins yrði aflétt. Samkvæmt til-
lögu framkvæmdastjómarinnar
verður leyft að flytja út kjöt af naut-
gripum, sem fæddir eru síðar en í
ágúst 1996, en þá gekk í gildi í Bret-
landi algert bann við því að fóðra
nautgripi á kjöt- og beinamjöli, sem
óttazt var að gæti borið í sér
kúariðusmit.
í yfirlýsingu framkvæmdastjórn-
arinnar segir að ákveðið hafi verið,
að fengnum ráðleggingum vísinda-
manna, að aflétta banninu, sem ver-
ið hefur í gildi frá því í marz 1996,
en þá viðurkenndu brezk stjómvöld
að hugsanlega væru tengsl á milli
kúariðu og Creutzfeldt-Jacobs-sjúk-
dóms í mönnum.
Nokkrir mánuðir í að pólitiskt
samþykki fáist
Tillaga framkvæmdastjórnarinn-
ar verður lögð fyrir dýralækna-
nefnd ESB á morgun og fer þá fram
fyrsta umræða um hana. Tillagan
verður síðan rædd áfram á fundi
nefndarinnar á þriðjudag í næstu
viku. Hugsanlegt er að hún verði
síðan tekin á dagskrá á fundi land-
búnaðarráðherra ESB-ríkja 22. júní
en búizt er við að hún hljóti ekki
endanlegt pólitískt samþykki fyrr
en pð nokkrum mánuðum liðnum.
Áætlun brezkra stjómvalda um
útflutning á kjöti af nautgripum,
sem fæddir eru eftir ágústmánuð
1996, hefur verið til umfjöllunar hjá
framkvæmdastjórninni í níu mán-
uði. Enn á eftir að koma í ljós hvort
einstök aðildarríki ESB fallast á
hana, t.d. Þýzkaland, sem hefur ver-
ið mjög tregt til að taka trúanlegar
fullyrðingar brezkra stjórnvalda um
heilbrigði nautakjöts.
Málið ekki í höfn
Talsmaður brezka landbúnaðar-
ráðuneytisins var varkár í yfirlýs-
ingum í gær. „Frá okkar sjónarhóli
er þetta mikilvægt skref hjá fram-
kvæmdastjóminni en þetta þýðir
ekki að málið sé í höfn,“ sagði hún.
Formaður brezku bændasamtak-
anna, Ben Gill, var öllu uppveðraðri.
„Við erum nú komin yfir erfiðasta
hjallann og héðan í frá er leiðin
greið. Nú má ekki missa niður
dampinn," sagði hann. „Við hlökk-
um til að sjá kjötið okkar á ný á
diskum Evrópubúa.“
Andstaða Svía við
ESB minnkar
Stokkhdlmi. Reuters.
ANDSTÆÐINGAR aðildar Sví-
þjóðar að Evrópusambandinu em
nú í fyrsta sinn um langt skeið
færri en helmingur kjósenda,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
SOM-stofnunarinnar, sem birt var
í gær. Enn eru þó andstæðingar
aðildar mun fleiri en stuðnings-
menn.
Niðurstöður könnunarinnar
sýna að 49% sænskra kjósenda
séu andvígir ESB-aðild, en fyrir
ári var þessi hópur 52%. Stuðn-
ingsmenn aðildar eru nú 34%, en
vom 33% fyrir ári. Afgangurinn,
eða 17%, eru óákveðnir.
í þjóðaratkvæðagreiðslu árið
1994 samþykktu 52,2% sænskra
kjósenda aðild Svíþjóðar að Evr-
ópusambandinu.