Morgunblaðið - 11.06.1998, Side 29

Morgunblaðið - 11.06.1998, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 29 Síðasta sýning á Poppkorni unni verður jafnframt næmleiki gagnvart innri sálaiTÓ. Hlustað er á nið náttúrunnar. Landslagið er bæði í því hlut- verki að vera baksvið og aðalatriði. Baksvið þess atburðar sem er að gerast í forgrunni, en það sem er að gerast í forgrunni vísar aftur í bakgrunninn. Hins vegar ber með- ferð hans á landslaginu ekki með sér að það sé verið að beina at- hyglinni að landslaginu sem slíku, eða að það sé verið að sýna það á nýjan hátt. Ef við lítum á þetta sem landslagsmálverk, þá eru ekk- ert sérlega spennandi hlutir að gerast, miðað við oft áður í verkum Vignis, þar sem vantar ekki tilþrif- in. Það er ekki hægt að benda á neitt sem er sérstaklega aðfinnslu- vert, en það er heldur ekkert sem fær mann til að reka upp stór augu, hrista höfuðið og skoða bet- ur. Mér hefur oft fundist einkenna verk Vignis að hann virðist taka stef úr verkum annarra höfunda og fella inn í sinn eigin myndheim. Samlíkingar koma upp í hugann, t.d. við svífandi höfuð í málverkum Jóns Axels Björnssonar og götótt landslag Sigurðar Arna Sigurðs- sonar, þótt að öðru leyti séu ímyndir Vignis frábrugðnar mynd- verkum þeiiTa. Myndstefin sem Vignir er að vinna úr eiga líklega eftir að samlagast betur. Það er ekki sama ró yfir sýningunni og myndirnar lýsa. Rýmisverkin á sýningunni eru tvö og býsna ólík innbyrðis. Annað er mótuð mynd úr gifsi, „Numið úr læknum“, sem svipar að myndefni til málverkanna. Höfuð og skál eru tengd saman með straumlaga formi, sem gæti verið vatn eða hljóð sem hlustað er eftir. Hitt rýmisverkið, „Þögnin í skóginum", er allt annars eðlis, innsetning úr trjádrumbum sem stinga í stúf miðað við þann stíl sem Vignir temur sér á sýningunni. Stuttir höggnir trjádrumbar liggja á gólf- inu, tveir og tveir saman, í kross, og raðað í snyrtilegar raðir. Yfir þá hefur verið sáldrað hvítu dufti, sem liggur yfir eins og snjóföl. Verkið er svo ólíkt hinum að ég á erfitt með að sjá hvað þetta verk er að gera á þessari sýningu. MÁLVERK Ólöf Oddgeirsdóttir, Albert Ka Hing Liu. Til 21. júní. ÞRJÁR sýningar eru í gangi núna í Listasafni Kópavogs, Gerð- arsafni. Auk Vignis JóhannssOnar sýna þau Ólöf Oddgeirsdóttir og Álbert Ka Hing Liu í einum saln- um og á neðri hæðinni er pólski skopmyndateiknarinn Andrzej Mleczko. Albert Ka Hing Liu er rúmlega þrítugur Kanadamaður af kín- versku bergi brotinn. Þetta mun vera fyrsta sýning Alberts Lius hérna megin Atlantshafsins. Albert Liu hefur komið hingað áður og dvaldi í gestaíbúð fyrir listamenn á vegum borgarinnar. Að þessu sinni er það Hafnarfjarðarbær sem sýn- ir honum gestrisni. Málverkin og steinprentin, sem hann sýnir hér, eru ekki ný af nálinni og unnin á árinu 1992. Það hefði óneitanlega verið forvitnilegt að sjá hvernig myndir hans hafa þróast síðan þá, og vekur þá spurningu af hverju hann sýnir einungis sex ára gamlar myndir. Málverkin eru afar einföld og naum að allri uppbyggingu. Mynd- flöturinn er eins og lóðréttur strimill, hár og mjór. Yfir flötinn allan hafa verið dregnar dökkar, lóðréttar línur með olíulitum og ol- íukrít. Hlutföll myndflatarins hafa greinilega skírskotun í kínverska myndlistarhefð, þar sem vaninn er sá að mála myndir á ílanga renn- inga. Síðan býst ég við að tómleiki myndanna eigi sér einnig bakhjarl i kínverskum menningarheimi, taóisma og zen búddisma. Titill einnar myndarinnar, „The Marri- age of Heaven and Hell“, virðist benda til þess, hugmyndin um upplausn allra andstæðna í tóm- inu. Það sem manni finnst kannski vanta hér, en er svo víða að finna í myndlist Austurlanda, er ákveðinn fínleiki og léttleiki í öllum dráttum, ásamt sparsemi í meðferð lína og lita. Það eru einhver þyngsli yfir myndum Alberts Liu, sem gerir þær þéttar og óárennnilegar fyrir augað. ðlöf Oddgeirsdóttir útskrifaðist út málaradeild MHÍ 1994 og síð- asta einkasýning hennar var í Gall- erí Horninu fyrirq tveimur árum. Myndefnið sækir Ólöf í gömul út- saums- og vefnaðarmynstur. Hún málar mynstrin og skeytir saman úr ýmsum áttum. Með þessu segist Ólöf vera að undirstrika þátt í menningararfi þjóðarinnar, sem hafi ekki verið áberandi og lítill gaumur gefinn. Ólöf málar í mjög sterkum litum og leggur áherslu á sérkenni útsaumsins. Það er aftur á móti umhugsunarefni hvaða til- gangi það þjónar að mála útsaum, hvað það er sem málverk af út- saumi hefur að bjóða framyfir út- sauminn sjálfan. Að mínum dómi nægir ekki aðeins að leita eftir því hvað málverkið sýnir, heldur verð- ur einnig, og ekki síst, að líta til þess hvað málverkið hefur að bjóða sem málaralist. Það var helst í verki nr. 7 (nafnlaust), þar sem málverkið fær að njóta sín. I hinum vantar áhugaverðari efnis- tök. Hugmyndin að baki samsýning- unni er að þrátt fyrir afar ólíkan menningarlegan bakgi'unn, sem báðir listamenn vísa til með mynd- um sínum, þá sýna myndirnar að það er samt sem áður einhver skyldleiki eða „snertiflötur" milli þeiiTa. Ég er ekki viss um að ég sjái þann snertiflöt, en það sem heldur sýningunni saman er að formræn uppbygging myndanna er að nokkru leyti sambærileg. Mál- verk beggja byggjast á lóðréttum samhliða línum, og samfellu yfii’ all- an flötinn, án miðlægs áherslu- punkts. Að öðru leyti finnst mér andinn í myndunum talsvert ólíkur. Gunnar J. Árnason NÚ ER aðeins ein sýning á Popp- komi eftir Ben Elton, breskum spennutrylli sem sýndur hefur verið á Smíðaverkstæðinu undanfarna mánuði, föstudaginn 12. júní. „Kvikmyndaleikstjóri sem þekkt- ur er fyrir ofbeldismyndir fær Óskarsverðlaunin fyrir nýjustu mynd sína. Nóttina eftir afhending- una fær hann óvænta heimsókn og þá verður brjálæðisleg atburðarásin ótrúlegri en nokkur kvikmynda hans! Hættulega fyndin ádeilda á ofbeldiskvikmyndir samtímans og æsifréttaleit fjölmiðla. Og hver ber síðan ábyi'gðina á þessu öllu?“ segir í kynningu. Leikendur era Pálmi Gestsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Margrét Vilhjálms- dóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Ragn- heiður Steindórsdóttir, Arnar Jóns- son, Ingrid Jónsdóttir og Halldór Gylfason. Þýðing Illugi Jökulsson, leik- mynd og búningar Elín Edda Árna- dóttir og leikstjóri er Guðjón Peder- sen. arinn Roger Woodward og var það hann sem leitaði til kvintettsins sl. haust og óskaði eftir þátttöku hans að sögn Einars Jóhannessonar. Efn- isskrá tónleikanna er alþjóðleg, „bæði klassík og fónlist frá 20. öld,“ segir Einar. „Jafnt íslensk sem er- lend, létt og aðgengileg." Frá Frakklandi halda þeir til Italíu næsta dag þar sem Blásarakvintett- inn verður með tónleika á laugardag í litlu þorpi, Cocconato, utan Torino- borgar, þangað sem einn félaganna, Josef Ognibene, á ættir að rekja. Júnímánuður er annasamur hjá hljóðfæraleikurunum þar sem nú standa auk þess yfir upptökur Sin- fóníuhljómsveitar Islands í Hall- gi'ímskirkju. Önnur utanlandsferð Blásarakvintetts Reykjavíkur verð- ur farin í lok mánaðarins, að þessu sinni til Portúgals, nánar tiltekið Lissabon, þar sem sveitin kemur fram á Islandsdegi EXPO ‘98 ásamt fjölmörgum íslenskum listamönn- um. „Óhætt er að segja að kvintett- inn verði vel nýttur þennan dag og við munum koma þar fram af þrem- ur ólíkum tilefnum," segir Einar. „Um morguninn leikum við ættjarð- arlög við hátíðlega athöfn þjóðhöfð- ingja. Síðdegis leikum við uppi^ á dekki ms. Hvítaness á samkomu Út- flutningsráðs og loks verðum við með eigin tónleika um kvöldið." www.mbl.is Diö um allan bæ I SF 5Q£ Hátalarar T.D. með SW-200 160w • Tíðnisvið 30-35 KHZ • Segulvarðir • Tilvaldir í heima bíóið. -► Verð kr. 18,900.- stgr. SW 200, Djúp bassi með innbyggðum magnara 200 W • RMS • Tíðnisvið 30-200 HZ • Segulvarin ■ Verð kr. 37,900.- stgr. 50 tommu breiðjaldssjónvarps- tæki • Digital Nicam • Hátalarar 2x30 W • Textavarp • 3 línu combflilter • Verðlauna tæki ► Verð kr. 380,000.- stgr. VSA EQ Heimabíó magnari með THX og Dolby Digital • 5x100 W RMS á ráx í Ac-3 • THX • 2x110 W RMS í venjulegri keyslu • Forritanleg fjarstýring • 5 mismunandi hljóðkerfi og margt fleira --------►Verð kr. 129,900.- stgr. VSX 90£ Heimabíómagnari með útvarpi • RDS Dolby Digital • AC-3 • 2x110 RMSW í venjulegri keyslu 5x60 W RMS • 5 mismunandi hljóðkerfi og margt fleira - Verð 79,900.- stgr. ay.5Q5- w DVD myndspilari pað nýjasta á markaðnum • Hoizontal upplausn yfir 500 linur (PAL7NTSC) • Tíönisviö 4-44 KHZ • RCA video útgangur • S video útgangur • Scart tengi • Digital hljóð út ----------► Verð kr. 59,900.- stgr. ÖO PIONEER ÖfDÖRMSSON Þegar hljómtæki skipta máli Lóamúla 8 • Sími 533 2800 Lágmúla 8 • Sími 53 3 2800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.