Morgunblaðið - 11.06.1998, Side 32

Morgunblaðið - 11.06.1998, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fyrirlestur og tónleikar Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig ... við systur Carlotu hafa að leiðar- ljósi. Listamaðurinn heldur sig til hlés en reynir þess í stað að efla skilning og virkja næmi samferða- manna sinna fyrir eigin hæfileik- um og sköpunarkrafti. Er þetta ekki einmitt hugmynd okkar um Guð; hið ósýnilega almætti sem nýtir sér okkur mennina sem verk- færi sitt? Hin sýningin, „ODELLA - að lifa afer í salnum bakvið kaffiter- íuna í Gerðubergi. Þessi átakan- lega sýning sem ábyggilega nær að væta augu margra sýningar- gesta er annað samvinnuverkefni systur Carlotu, að þessu sinni við konu af allt öðru sauðahúsi en hún er sjálf. Odella er ein af fjölmörg- um, saklausum fórnarlömbum þessa heims. Sem barn mátti hún þola ofbeldi og vanrækslu, og það sem verra var; að vera lokuð að ófyrirsynju inni á geðveikrahæli. Af myndröðinni má sjá að hún hef- ur aldrei borið sitt barr eftir með- ferðina. Öllu stórkostlegra er að sjá hvernig nunnan Carlota Duarte, sem væntanlega lifir skírlífi sem brúður Jesú, heilsar Odellu fagn- andi, þó svo að lesa megi milli lín- anna að sú síðarnefnda hafi lifað allt öðru en grandvöru lífí, enda þrígift, sjö bama móðir - án þess að hafa fengið að ala nokkurt þeÚTa upp. Fordómalaust gengur systir Carlota inn í fáfengilegan hugarheim Odellu Chatel og tekur af henni hverja ljósmyndina eftir aðra, en náin vinátta kvennanna tveggja hefur nú varað í aldar- fjórðung. Odella er með allan hugann við elskhugana, útlitið og líkamann. Þótt hún sé bersýnilega heimsk og ljót tekst henni á góðri stund að hrista af sér þunglyndisdoðann og samsama sig þeim sem hún vildi helst líkjast; Liz Taylor og Marilyn Monroe, meðan þær voru og hétu. Með tveim hárkollum, ljósri og dökkri, sem hún skellir eins og vanhh-tum sátum á hausinn fyi’ir framan spegilinn, nær hún að upp- lifa sig örskotsstund sem heila og heillandi manneskju sem hugsan- lega gæti snortið einhvern þótt aldur og útlit hreki hana til enda- lausrar einveru. Samkennd systur Carlotu virðist takmarkalaus. Með þessum tveim Ijósmyndaröðum tekst henni að sýna hvemig list samtímans hefur sig yfir allan grun. Hér er ekki ver- ið að velta sér upp úr þegar fund- inni fegurð til að slá ryki í augu kröfulítilla sýningargesta. Kúrsinn er settur á háleitari mið; hvorki meira né minna en sammna hins fagra og góða; hina ósættanlegu þverstæðu allrar sið- og fagurfræði. Þangað stefndi Iíka frelsarinn forðum þegar hann bað okkur um að sleppa grjótkastinu, gleyma ekki okkar smæsta bróður, elska náungann eins og okkur sjálf og fyi’irgefa umyrðalaust okkar versta óvini. Þannig er framlag Carlotu Duarte miklu stærra og tilkomumeira en umfang þess hermir við fyrstu sýn og þannig er það reyndar með alla sanna og brýna list. Halldór Björn Runólfsson MYJVPLIST IVI e n n i n g a r m i ð s t ö ð - inni Gerðubergi LJÓSMYNDIR Verk eftir Carlotu Duarte og skjdl- stæðinga hennar frá Chiapas-hér- aðinu í Mexikó. Til 20. júní. Opið mánudaga til fimmtudaga frá 9-21; föstudaga frá 9-19, og laugardaga frá 12-16. Aðgangur dkeypis. Sýn- ingarskráin „ODELLA - að lifa af“, kr. 1.500. HÉR er um tvær aðskildar ljós- myndasýningar að ræða. I anddyr- inu niðri í menningarmiðstöðinni er myndröðin „SÓPAÐU ALDREI SÍÐDEGIS“ eftir mexí- kanska nemendur bandarisku nunnunnar Carlotu Duarte, en hún er sjálf af mexíkönsku bergi brot- in. Orðið nemendur er hér notað í óeiginlegri merkingu því það eru óbreyttir Maya-indíánarnir frá Chiapas - þeir sömu og við þekkj- um úr fréttum sem fjendur stjórn- arinnar í Mexíkó-borg - sem mundað hafa græjurnar á það sem þeim sjálfum fannst markvert. Systir Carlota, sem komin var til Mexíkó frá heimabyggð sinni í Cambridge, Massachusetts, í leit að uppruna sínum, gerði ekki ann- að en útvega þeim myndavélarnar og framköllunartæknina. Hún lagði sig beinlínis í líma við að kenna indíánunum sem minnst svo vestræn sýn hennar eyðilegði ekki upprunaleg myndgildi þeirra. Eins og allir vita áttu Mayar sér ríkulegt lista- og menningarskeið á for-kólumbískum tíma - miðöld- um, samkvæmt okkar tímatali; nánar til tekið skömmu fyrir, og á því skeiði sem við köllum land- námsöld, söguöld og þjóðveldis- tíma. Pýramídar þeirra, lágmynd- ir, málverk og rúnir eru með mikil- fenglegustu minjum sem varðveist hafa í Ameríku. Sú list varð nær- tækasta fyrirmynd mexíkanskrar nútímalistar á millistríðsárunum. En í staðinn fyrir hið stórbrotna drama - grimmúðleg goð, laun- helgar og ógnvekjandi blóðfórnir - sem einkenndi hina konunglegu miðaldalist Maya beinist ljósmynd- un afkomendanna að því fábrotna lífi sem þeir lifa nú á tímum. Þeir ljósmynda náungann við vinnu sína, mæður með börn sín, gróður jarðar og matargerðina, húsdýrin, heimatilbúið altarið og hátíðar- höldin með grímum sínum, goð- mögnum og sviðsettu nautaati. Aherslurnar eru vissulega mis- munandi eftir því hver heldur á ljósmyndavélinni. Þannig taka konurnar í Chiapas allt öðruvísi myndir af körlum sínum en karl- arnir af þeim. Ungviðið bryddar upp á enn öðrum vinkli. Sýningin er dæmigerð fyrir þá samfélags- legu áherslu sem listamenn á borð HÉRNA reynir Odella Chatel, árið 1988, að líkja eftir Marilyn Monroe og telur að svo vel hafi tekist til að ný kynþokkadís sé fædd. EPTA (Evrópusamband píanókenn- ara) og Tónlistarskólinn í Reykjavík standa fyrir fyrirlestri og tónleikum í sal Tónlistarskólans í Reykjavík, Skipholti 33, sunnudaginn 14. júní kl. 17. Þar mun ísraelska tónskáldið og píanóleikarinn Gil Shohat leika Partítu nr. 6 í e-moll eftir J.S. Bach, sundurgreina verkið, útlista frá ýmsum hliðum og bregða nýju ljósi á flutning verka meistarans. Eftir hlé mun Shohat kynna nokkur verka sinna. Gil Shohat er hingað kominn fyrir tilstilli ræðismanns ísraels vegna 50 ára afmælis ísra- els. Gil Shohat er fæddur árið 1973 í Tel-Aviv og hefur lokið prófum í tónsmíðum og píanóleik með hæstu einkunn frá Tónlistarháskólanum í Tel-Aviv og Santa Cecilia-tónlistar- háskólanum í Róm. Shohat hefur unnið til fjölda verð- launa, þ.á m. 1. verðlaun Tónlistar- háskólans í Israel og 1. verðlaun í Arthur Rubinstein-tónsmíðakeppn- inni auk fjölda námsstyrkja frá ísra- el, Ítalíu og Bretlandi. Verk hans hafa verið flutt víða í Evrópu og Bandaríkjunum og eru á efnisskrám helstu hljómsveita Isra- els. Shohat hefur samið píanóverk, kammerverk, píanókonsert og fiðlu- konsert, sinfóníu, sönglagaflokka og tvær kantötur. Frá árinu 1996 hefur ítalska út- gáfufyrirtækið Ricordi séð um út- gáfu verka hans. Aðgangur er ókeypis. Morgunblaðið/Jim Smart „MJÖG ánægjulegt að tónlistarhátíðin skuli vera bæði Hveragerði og okkur til hagsbóta,“ segja listamennirnir sem koma fram á „Björtum sumarnóttum" í Hveragerðiskirkju um helgina. Þriggja daga tónlistarhátíð í HVERAGERÐISKIRKJU hefst tónlistarhátíðin „Bjartar sumarnæt- ur“ á morgun, fóstudaginn 12. júní, kl. 20.30 og stendur hún yfir í þrjá daga með jafnmörgum tóníeikum, en hátíðin er framlag bæjarins til tón- listar- og menningarmála. Megin- uppistaðan fyrsta tónleikadaginn eru verk frá 17. og 18. öld eftir barokktónskáld auk Sónötu fyrir flautu og píanó eftir Poulenc. Að- standendur hátíðarinnar telja fullvíst að hún muni skipa fastan sess í bæj- arlífi Hvergerðinga í framtíðinni, enda hafi gengið vel í fyrra þegar hún var haldin í fyrsta skipti. Tríó Reykjavíkur og góðir gestir “Bærinn vildi halda hátíðina aftur því aðsóknin var mikil í íyrra og við- tökurnar góðar,“ segir Gunnar Kvar- an, sellóleikari í Tríói Reykjavíkur, en tríóið er burðarásinn í hátíðinni. Auk Gunnars leika í tríóinu Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Peter Máté píanóleikari. Gunnar segir að nálægðin við höfuðborgina hafí góð áhrif á aðsóknina því ekki sé um svo langan veg að fara til að hlýða á sí- gilda tónlist. „Við vildum hafa á efn- isskránni að minnsta kosti eitt veg- legt kammerverk á hverjum tónleik- um í bland við kvartetta, tríó og sönglög," segir Gunnar. Fimm gestir Tríós Reykjavíkur eru að þessu sinni Gerður Gunnars- dóttir fiðluleikari, Ashildur Haralds- dóttir flautuleikari, Helga Þórarins- dóttir víóluleikari, Sigi’ún Hjálmtýs- dóttir sópran og Gerrit Schuil píanó- leikari. Sönglögin mun Sigrún Hjálmtýsdóttir flytja, en hún kemur fram á öllum þrennum tónleikunum, og segir Guðný Guðmundsdóttir að efnisskráin hafi að nokkru leyti verið byggð upp í kringum sönglögin sem Sigrún flytur. Þrjú þein’a eru samin við ljóð Halldórs Laxness og segja listamennirnir að Nóbelsskáldsins sé minnst með þeim hætti að velja lög- unum stað í efnisskránni. Laugardaguriim undir íslensku tónlistina Fimmtán íslensk tónverk, stór og smá, verða flutt á hátíðinni og þeim er valin stund laugardaginn 13. júní, en tónleikarnir hefjast þá kl. 17. Meðal verkanna er sónata í F-dúr fyi’ir fiðlu og píanó eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og segir Guðný að sónatan sé íyrsta íslenska fiðlusónat- an sem samin hafi verið. „Þetta er sónata sem hefur legið í gleymsku í áratugi og fékk mjög góðar viðtökur áheyi’enda og gagnrýnenda í vetur þegar hún var flutt í Norræna húsinu og var kölluð „Vorsónata íslands“,“ segir Guðný. „Við flytjum líka lítinn strengjakvartett, Andante in memoriam eftir Emil Thoroddsen, sem var frændi Sveinbjarnar," bætir hún við. Svo vill til að í júní eru eitt hundrað ár síðan Emil fæddist svo það fer vel á þvi að flytja kvartettinn, sem Guðný segir að hafi legið í gleymsku um langt árabil, en Emil samdi strengjakvartettinn til minn- ingar um móður sína, Önnu Guðjohn- sen. Yngsta verkið á efnisskránni er eftir Áskel Másson frá árinu 1994 og nefnist það Spor, fyrir sópran, selló og píanó. Verkið er samið eftir texta Thors Vilhjálmssonar og var í'rum- flutt af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Gunnari og Guðnýju í Hafnarborg á síðasta ári. Þótt laugardagurinn verði helgaður íslenski’i tónlist leika píanóleikararnir Schuil og Máté fjór- hent á píanó Grand Rondeau op. 107 eftir Franz Schubert og þá verður leikin Serenaða i D-dúr op. 25 fyrir flautu, fiðlu og víólu eftir Beethoven. Klassík og rómantík að siðustu Síðasta tónleikadaginn, sunnudag- inn 14. júní, svífur andi barokks, klassíkur og rómantíkur yfir vötnum í Hveragerðiskirkju, því leikin verða fimm verk eftir höfuðtónskáld þess- ara stefna. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 með Passacagliu fyrir fiðlu og víólu eftir Hándel og Halvorsen, Flautukvartett í D-dúr KV. 285 eftir Mozart, Frauenliebe und -leben eftir Schumann og eftir hlé verða leikin Ah! Vous dirai - je, Maman fyiár sópran, flautu og píanó eftir Adolphe Adam-Schmidt og að síðustu píanó- tríó op. 90 eftir Dvorák. Fyrir þremur árum var tónlistar- hátíðin Bjartar sumarnætur aðeins hugmynd, sem laust niðui’ í huga hjónanna Gunnars og Guðnýjar, sem voru í brúðkaupsferð í Hveragerði. „Okkur datt í hug að það væri gaman að halda tónlistarhátíð úti á landi og við spurðum okkur hvort Hveragerði væri ekki ákjósanlegur staður," segir Gunnar. „Við bárum erindi okkar upp við bæjaryfirvöld, sem tóku okk- ur sérstaklega vel, og í maí á síðasta ári var hátíðin haldin í fyrsta skipti og gekk vonum framar og því erum komin hingað aftur.“ Áheyrendurnir mjög einbeittir Gerrit Schuil píanóleikari ber mik- ið lof á íslenska áheyrendur og segir þá engum líka. „Þeir hlusta með svo mikilli einbeitingu og skiptir þá engu hvort um ræðir tónlist sem þeir þekkja eða ekki,“ segir Schuil. „Ég gleymi því aldrei þegar ég lék langa og erfiða sónötu eftir Schubert í Garðabæ fyrir tveim árum. í fjörutíu og fimm mínútur á hægum hraða og með veikri áferð heyrðist hvorki hósti né stuna. Þetta myndi aldrei gerast í Amsterdam, Berlín eða New York. Aheyrendur þar skirrast ekki við að láta í sér heyrast og gangast blygðunarlaust við öðrum búkhljóð- um. Á Islandi nær maður nefnilega einstöku sambandi við áheyrendur og það myndast oft skapandi andrúms- loft á tónleikum," segir Schuil, við góðar undirtektir félaga sinna. Listamennirnir eru sammála um að tónleikar sem haldnir eru á hátíð sem þessari séu nokkuð frábrugðnir hefðbundnum tónleikum, aðalmunur- inn felist í þeirri miklu samveru sem fylgir slíku tónleikahaldi. „Það sem mér fínnst gera svona tónlistarhátíð svo skemmtilega,“ segir Gunnar, „er hin nána samvinna og vinátta sem skapast á milli fólks, þar sem góðir tónlistarmenn hittast og eru saman allan daginn. Aðstaðan hér er einnig mjög góð og það er mjög ánægjulegt að hátíðin skuli vera bæði bænum og okkur til hagsbóta."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.