Morgunblaðið - 11.06.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 11.06.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 33 „Hljóðs bið eg allar kindir“ BÆKUR Fa|rurbúkmenntir EDDUKVÆÐI Ritstjóri: Gísli Sigurðsson Mál og menning 1998, 444 bls., auk 63 bls. inngangs. NÚ Á VORDÖGUM kom út hjá Máli og menningu vönduð heildar- útgáfa eddukvæða í ritstjórn Gísla Sigurðssonar íslenskufræð- ings. Hér er um að ræða stóra bók í fallegu bandi og öskju, með mátulega stóru og læsilegu letri sem prentað er á endingargóðan pappír. Það sem skiptir þó meira máli er að hér er leitast við að gera kvæðin sem aðgengilegust fyrir hinn almenna lesanda; þau eru prentuð með nútímastafsetn- ingu og þeim fylgja nákvæmar skýringar og útleggingar sem settar eru upp við hlið textans. Hverju kvæði fylgir síðan stuttur eftirmáli þar sem gerð er grein fyrir efni þess, gerð og varðveislu. Hin fornu kvæði verða þannig að- gengileg öllum lesendum, leikum sem lærðum. Á undan kvæðunum fer langur og ítarlegur inngangur ritstjóra þar sem hann gerir grein fyrir helstu handritum eddukvæða, varðveislu þeirra, efniviði, ein- kennum og fleiri atriðum sem kvæðin varða. Mikinn fróðleik er hér að fínna. Gísli ræðir til að mynda rannsóknarhefðina á eddu- kvæðum, bendir á nýjar áherslur í rannsóknum og túlkunum og dvel- ur við nýjan skilning fræðimanna á munnlegri hefð. Sú hugmynd að munnleg geymd eddukvæða hafi frá öndverðu miðað að orðréttri varðveislu þeirra og að þær upp- skriftir sem við eigum í handrit- um séu meira og minna ófull- komnar eftirlíkingar hins glataða „frumtexta" eru á undanhaldi. Nýlegri viðhorf til munnlegrar geymdar ganga út frá því að munnlegar bókmenntir hafí verið stöðugum breytingum háðar sem mörkuðust af aðstæðum sagna- eða kvæðamannanna á hverjum tíma: „Sami söngvari, gat líka stytt eða lengt kvæði eftir að- stæðum hverju sinni, breytt um stíl og hagrætt söguþræði eftir því hverjir áheyrendurnir voru; konur fóru með önnur kvæði en karlar og aðalhetjurnar breyttu um svip eftir því hvort kveðið var yfir kristnum mönnum eða múslímum. Þrátt fyrir þennan breytileika voru kvæðin mjög hefðbundin að efni og orðfæri þannig að nýsköpun hvers ein- staklings var alltaf innan ramma hefðarinnar. . .“ Slíkar áherslu- breytingar í skilningi á munnlegri geymd hafa mikil áhrif á hvernig menn rannsaka og túlka hin fornu kvæði. Áherslur eldri fræðimanna lágu í að reyna að aldursgreina einstök kvæði, semja kenningar um þróun kvæðanna út frá tilgát- um um aldur, um áhrif eins kvæð- is á annað og jafnvel var reynt að „feðra“ einstök kvæði, að leita „höfundarins". Yngri fræðimenn skoða kvæðin fremur sem af- markaðar fagurfræðilegar heildir og velta fyrir sér tengslum þeirra við það samfélag sem þau eru sprottin upp úr: „Hvernig var hann [textinn] fluttur, af hverjum og við hvaða tækifæri og hvaða skilningur var lagður í hann á meðan hann var hluti af hefð í lif- andi flutningi fólks sem skapaði hann og varðveitti?“ Flest eddukvæða eru varðveitt í handriti því er nefnist Konungs- bók og var skrifuð um 1270. Eddukvæði Konungsbókar eru hér prentuð í heild sinni og röð kvæðanna látin halda sér eins og þau koma fyrir í handritinu. Þar fer fremst Völuspá, síðan koma Hávamál, þá Vafþrúðnismál, Grímnismál, Skírnismál og síðan koll af kolli allir kvæðaflokkarnir 29 sem handritið geymir. I Kon- ungsbók er eyða þar sem nokkur blöð hafa glatast úr bókinni og inn í þessa eyðu er hér í þessari út- gáfu skotið stuttum kafla og fjór- um kvæðaerindum úr Völsunga- sögu til að lesendur geti gert sér mynd af söguþræði hinna glötuðu kvæða. Á eftir eddukvæðum Kon- ungsbókar fer hér sú uppskrift Völuspár sem varðveitt er í Hauksbók og er fjórum erindum styttri og tæpum tveimur öldum yngri en uppskrift Konungsbókar. Þá koma Baldurskviða (úr AM 748 I 4to), Rígsþula (úr Snorra Eddu), Hyndluljóð (úr Flateyjar- bók), Svipdagsmál (varðveitt í 17. aldar pappírshandritum) og síðast Grottasöngur (úr Snorra Eddu). Á undanfórnum árum hafa komið fram ýmsar nýjar og spennandi túlkanir á fornbók- menntum, jafnt sögum sem kvæð- um. Ritstjóri þessarar bókar Gísli Sigurðsson hefur verið iðinn við að kynna nýjar hugmyndir um munnlega geymd, eins og fram kemur hér að ofan, og nefna má bók Helgu Kress prófessors Máttugar meyjar þar sem settar eru fram róttækar hugmyndir um íslenskar fornbókmenntir. Einnig er vert að nefna afar athyglis- verða endurtúlkun Svövu Jakobs- dóttur rithöfundar á þeim erind- um Hávamála sem fjalla um sam- skipti Oðins og hofgyðjunnar Gunnlaðar. Þær hefur Svava kynnt bæði í langri fræðigrein í Skírni svo og fært í fagurfræði- legan búning í einni athyglisverð- ustu íslensku skáldsögu síðari ára, Gunnlaðar sögu. Þessi nýja aðgengilega útgáfa á eddukvæð- um auðveldar hinum almenna les- anda að fylgjast með spennandi þróun í íslenskum fornfræðum með því að kynna sér af eigin raun þá texta sem fræðin fjalla um. Þegar haft er í huga að þrír áratugir eru liðnir frá síðustu heildarútgáfu á eddukvæðum á ís- lensku og að á því tímabili hafa orðið þær miklu áherslubreyting- ar í rannsóknum og túlkunum á kvæðunum sem um er getið, hlýt- ur þessi nýja útgáfa að vera fagn- aðarefni öllum þeim sem láta sig varða íslenskan bókmenntaarf. Bókin mun fara vel uppi í hillu við hlið íslendinga sagna og þátta, Sturlungu, Heimskringlu, Grá- gásar og Vídalínspostillu sem all- ar tilheyra sömu ritröð. En mikil- vægara er þó að bókin verði lesin því hér er um magnaðan skáld- skap að ræða og er ekki síst ástæða til að ítreka hversu skemmtileg mörg kvæðanna eru, það munu nýir lesendur kvæð- anna vissulega sannreyna. Soffía Auður Birgisdóttir Vorum að baka Mltaf ferskt.. Seléct Staflanlegir, sterkir stólarfyrir veitingasali o.fl. Til afgreiðslu strax! InryT}] húsgögn ULJLjr Ármúla 44 I sími 553 2035 krísTni LISTSKÖPUN ÁRIÐ 2000 KRISTNIHÁTÍÐ Á ÞINGVÖLLUM j/J's r ÍCEBLUE Árið 2000 veröa þúsund ár liöin frá þeim merka viðburöi er íslendingar höfnuöu heiönum sið og tóku kristna trú. í tilefni þessara tímamóta auglýsir Kristniháttöarnefnd eftir tillögum og hugmyndum um listsköpun, listflutning eöa verkefnum er tengjast árþúsundinu og kristnihátíö. Tillögurnar mega tengjast hverju sem er í kirkjusögu íslendinga í 1000 ár, viöburöum sem höföu áhrif á þróun íslandssögunnar fornum munum sem fundist hafa, einstaklingum sem settu sviþ á samtíö sína, helgisögum, kirkjulist og ööru því sem gæti tengst tilefninu. Leitað er eftir hugmyndum eða tillögum sem gætu fallið að dagskrá Þingvallahátíðar (júlí áriö 2000, svo og öörum listviðburðum sem mætti standa fyrir viö ýmis tækifæri í tilefni af Kristnihátíð á Þingvöllum. Tillögurnar verða að hafa borist fyrir 15. ágúst 1998. Tillögum skal skilað til: Aðalstræti 6, 101 Reykjavík sími 575 2000, fax 575 2042
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.