Morgunblaðið - 11.06.1998, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Vímuefni og
Islendingar
Á kosningadaginn
23. maí síðastliðinn
birtist grein í Morgun-
blaðinu eftir undirritað-
an um hinar ólíku hlið-
ar flkniefnaneyslunnar.
Eg hélt satt að segja að
greinin hefði drukknað
^mitt í allri greinasúp-
unni um verðleika
hinna ýmsu framboða
en svo fór nú reyndar
ekki alveg. Nokkrum
dögum síðar blandaði
sér í umræðuna Þór-
hildur G. Egilsdóttir fé-
lagsráðgjafi og þótt
hún hefði fundið ýmis-
legt bitastætt í grein
Helgi
Gunnlaugsson
undirritaðs hafði hún eigi að síður
sitthvað að athuga við málflutning-
inn. Mér finnst því sjálfsagt og eðli-
legt að hnykkja á örfáum meginat-
riðum í greininni og varpa vonandi
skýrara ljósi á viðfangsefnið.
^ Afengisvandinn
Vímuefni eru fjarri því að vera
eitthvað nýtt í sögu mannkyns og
er saga þeirra á margan hátt sam-
ofin sögu mannsandans. Áfengi á
sér einna drýgstar rætur í okkar
heimshluta og má segja að það hafi
unnið sér viðurkenndan sess í lífi
flestra venjulegra borgara. Vandi
vegna áfengis hefur þó fylgt okkur
eins og skugginn og hefur sýnt sig
að fara ekki í manngreinarálit eins
og dæmin sanna. Úrræði af toga
>læknisfræðinnar hafa hjálpað fjölda
manns til að halda aftur af fíkn
sinni og ekki má gleyma þætti trú-
arinnar sem einnig hefur reynst
haldreipi margra.
En þótt einstaklingsbundin með-
ferðarúrræði séu nauðsynleg í bar-
áttunni við afleiðingar vímuefna-
vandans má ekki líta framhjá
margvíslegum samfélagslegum for-
sendum, sem annað hvort geta
hjálpað við að draga úr vandanum
eða jafnvel þvert á móti stuðlað að
honum. Þótt opinberar mælingar
sýni að Islendingar neyti marktækt
minna áfengis en flestar aðrar vest-
rænar þjóðir segir það næsta lítið
um umgengni okkar við Bakkus.
- Æ)rykkjusiðir Islendinga, sem í al-
þjóðlegum samanburði hafa verið
11 Pe rstorp
'Hár« & Uilgfiir
og veggi
frumstæðir í meira
lagi, stafa til að mynda
ekki síst af því menn-
ingarlega og félags-
lega umhverfi sem
áfenginu hefur lengst-
um verið búið hér á
landi. Uppeldi eða
réttara sagt skortur á
uppeldi í meðferð
áfengra drykkja hefur
lengi verið landlægt og
vafalítið ýtt undir
þann vanda sem við
einatt glímum við.
Drykkjusiðir okkar
eru m.ö.o. ekki líf-
fræðilegt lögmál sem
ekki er hægt að um-
breyta, heldur er hægt að hafa
áhrif á þá með ýmsum hætti, einsog
breyttar drykkjuvenjur á síðari ár-
um eru e.t.v. til vitnis um. En því
Við verðum að byggja
aðgerðir okkar í fíkni-
efnamálum á grunni
traustra upplýsinga,
segir Helgi Gunnlaugs-
son, en ekki á einstaka
dramatískum upp-
hlaupum í fjölmiðlum.
verður ekki á móti mælt að vímu-
efnavandi Islendinga er umfangs-
mikill og að stærstum hluta tengd-
ur áfengi. Og þó að margt gott sé
gert í meðferðarmálum þjóðarinnar
er jafnvíst að betur mætti gera á
mörgum öðrum sviðum.
Fikniefnavandinn
Um fíkniefnin gilda að sumu leyti
svipuð lögmál og að sumu leyti
ekki. Olögleg fíkniefni eru tiltöíu-
lega ný í okkar heimshluta og hafa
ekki hlotið sömu útbreiðslu og
áfengið. Þótt samstaða hafi tekist
með þjóðinni um læknisfræðilega
lausn áfengisvandans verður það
sama ekki sagt um fíkniefnavand-
ann. Umfjöllun um vandann hefur
sömuleiðis enn yfir sér blæ for-
dóma, sbr. orðnotkunina fíkniefna-
greni eða -bæli.
Einsog reifað var í fyrri grein
undirritaðs má í grófum dráttum
skipta neyslu fíkniefna í dag í
tvennt. Annars vegar er um ein-
hvers konar tilrauna- eða félags-
neyslu að ræða. Ymis efni eru próf-
uð, sér í lagi kannabisefni, og finnst
neysla af þessu tagi í öllum þjóðfé-
lagshópum, sem sýnir að neytendur
fíkniefna eru langt frá þvf að vera
IÐNAÐARHURÐIR
FELLIHURÐIR LYFTIHURÐIR
GÖNGUHURÐIR ELDVARNARHURÐIR
dQD?Ofnasnilðjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Simi 511 1100
Netfang: ofnasmidjan@ofn.is
Veffang: www. ofn.is
ISVAL-öOftGA 5MF
HOFÐABAKKA 9. 112 REYKJAVÍK
SIMI 587 8750 - FAX 587 8751
RÆSTIVAGNARI
Urvalið er hjá okkur
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
einhver félagslegur undirmálshóp-
ur. Neyslan er þó einkum bundin
við yngra fólk og fer umfangið
hverju sinni mjög eftir alþjóðlegum
tískusveiflum. Einhver hluti þessa
hóps fer út í þráláta neyslu ýmissa
efna, ekki síst áfengis, en fleiri gefa
hins vegar neyslu fíkniefna upp á
bátinn þegar kemm- fram á fullorð-
insár, um þetta vitna bæði innlend-
ar og erlendar rannsóknir. En
þetta er einungis annar hluti fíkni-
efnaneyslunnar.
Hinn hópurinn felur í sér enn
stærra vandamál. Hér erum við í
megindráttum, en þó alls ekki á
einhlítan hátt, að tala um neyslu
minnihlutahópa sem hafa orðið
undir í lífinu einhverra hluta vegna.
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að
misnotkun fíkniefna er mest hjá fé-
lagslegum jaðarhópum, þeir sökkva
dýpst í fen harðra fíkniefna. Til
staðfestingar nægir að nefna
heróínvandann í stórborgum Vest-
urlanda svo og krakkneyslu í
Bandaríkjunum, sem einkennir fé-
lagslega minnihlutahópa í ríkari
mæli en aðra hópa, staðreyndir sem
hafa verið rækilega kortlagðar í
fjölda rannsókna. Handtökuskýrsl-
ur íslensku fíkniefnalögreglunnar
sýna sömuleiðis fram á sömu mynd
með ótvíræðum hætti; vandinn er
dýpstur meðal þeirra sem standa
höllum fæti í samfélaginu.
Skýringar á vandanum
Ástæða þess að vandinn birtist
skýrast í jaðarhópum samfélagsins
liggur ekki í líffræði eða eðli við-
komandi einstaklinga heldur miklu
fremur í félagslegum aðbúnaði
þeirra sem í mörgum tilfellum
reynist afar bágborinn. Fíkniefnin
virðast veita skammtímalausn á
þrautagöngunni og verða einnig
hluti af lífsstíl og lífsviðurværi
margra sem telja löglegar leiðir til
bjargálna torsóttari. Og þótt neysla
fíkniefnanna sé ekki meginorsaka-
þáttur bágborinna félagslegra að-
stæðna er jafnvíst að neyslan gerir
þessa einstaklinga vanbúnari en
ella til að takast á við kröfur sam-
tímans. Ekki er því ætíð nægilegt
að uppræta neyslu fíkniefna eina og
sér, þótt það geti í mörgum tilfell-
um verið nauðsynleg forsenda,
heldur verða úrræðin iðulega að
fela í sér breiðari skírskotun. Sem
dæmi má taka að rannsóknir hafa
sýnt fram á samband atvinnuleysis
ungra karla og umfangs fíkniefna-
vandans. En vitaskuld má ekki
gleyma því að ekki eru allir sem
búa við bág kjör ofurseldir fíkniefn-
um þó að vandinn í dag höggvi
dýpst í raðir þeirra.
Öfangreind staða fíkniefnamála
er þó alls ekki óumbreytanlegt
náttúrulögmál. Umfang vandans
gæti hugsanlega aukist eða minnk-
að með breyttum forsendum.
Sömuleiðis gæti vandinn vaxið á
sama hátt og áfengisvandinn hefur
gert á síðustu áratugum. Ópíum-
notkun á 19. öld hér á Vesturlönd-
um var svo dæmi sé tekið þrálátust
meðal roskinna, hvítra millistéttar-
kvenna en birtist í dag skýrast í
heróínvanda ungra karla úr lág-
stétt. Og þó að rýmkun á kannabis-
löggjöfinni í mörgum fylkjum
Bandaríkjanna á áttunda áratug
þessarar aldar hafi ekki leitt til
aukinnar neyslu á efninu verður
eigi að síður að telja sennilegt að
aukið frjálsræði myndi leiða af sér
víðtækari vanda en glímt er við í
dag. Um þetta er þó sjálfsagt að
kalla eftir frekari umræðu.
Lokaorð
Við verðum að byggja aðgerðir
okkar í fíkniefnamálum á grunni
traustra upplýsinga en ekki á ein-
staka dramatískum upphlaupum í
fjölmiðlum né stuttum vettvangs-
heimsóknum erlendra aðila. Rann-
sóknir á hinum ýmsu hliðum vímu-
efnavandans eru m.ö.o. forsenda
vænlegrar stefnumörkunar. Við
verðum því að efla rannsóknir og
stuðla þannig að aukinni þekkingu
sem gæti styrkt tök okkar á þess-
um vanda.
Höfundur er dósent ( félagsfræði
við HAskólu íslands.
FRÁ opnun hverfisskrifstofunnar á Laugarnesvegi.
Kveðja úr
Laugarnesi eftir
kosningar
FÉLAG sjálfstæðismanna í
Laugarnesi er eitt af mörgum öflug-
um félögum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Þar starfar grasrót
flokksins að undirbúningi kosninga
og kynningu á stefnumálum flokks-
ins.
Sjálfstæðismenn
hófu undirbúning að
borgarstj órnarkosning-
unum snemma. Margir
fundir voru haldnir og
spáð í hvernig best
væri að standa að bar-
áttunni. Þrátt fyrir
margar góðar hug-
myndir og málefni
dugði ekki framlag
okkar að þessu sinni til
að vinna borgina. Við
þóttumst eiga góða von
um að vinna þessar
kosningar miðað við
þann lista sem R-list-
inn bauð fram. Aftur
lét hluti borgarbúa
blómafólkið í R-listan-
um plata sig og er lík-
legt að einhverjir eigi eftir að sjá
eftir atkvæðinu sínu þegar vinnu-
brögð R-listans fara að koma í ljós á
næsta kjörtímabili. í kennimerki R-
listans er regnbogi sem á að vera
táknrænn fyrir listann. Samkvæmt
þjóðsögunni á að vera undir enda
regnbogans gullpottur. Við óttumst
að í þessum potti séu loforð R-list-
ans sem gefin voru fyrir síðustu
kosningar ásamt einhverjum nýj-
um. Þennan gullpott á enginn borg-
arbúi eftir að finna, frekar en svo
mörg loforð sem týndust á síðasta
kjörtímabili. Regnboginn myndast
við samspil regns og sólar. Það er
ekki undarlegt að mörgum finnst að
sífelld rigning hafi verið á síðasta
kjörtímabili þegar loforðin fuku út í
veður og vind. Það mun ekki stytta
upp fyrr en ný stjóm tekur við
borginni að fjórum árum liðnum.
Arni Sigfússon stóð sig mjög vel í
þessari kosningabaráttu og efldist
með hverjum degi sem leið. Sama
verður að segja um aðra frambjóð-
endur sem stóðu sig vel í málefna-
legri kosningabaráttu. Þeir voru
mjög duglegir að heimsækja kosn-
ingaskrifstofurnar og fyrirtæki.
„Innrásir" þeirra í hin ýmsu borg-
arhverfi voru vel heppnaðar þar
sem þeir komust í beint samband
við kjósendur. Það sást best hvort
var hæfari forystumaður þegar
Árni og Ingibjörg Sólrún ræddu
málin í síðasta umræðuþætti þeirra
fyrir kosningarnar. Þar brást borg-
arstjóra gjörsamlega bogalistin en
Árni fór á kostum. Það verður eftir-
sjá að Árna en við þykjumst viss um
að hann á eftir að vinna sína sigra,
fyrr en seinna. Við þökkum Arna
fyrir frábæra forystu í þessum
kosningum.
Mikið hefur verið rætt um þá
misjöfnu umfjöllun sem flokkarnir
fengu hjá fjölmiðlum. Það var
greinilegt að R-listinn átti hug fjöl-
miðla þó að aðeins hafi rofað til er
nær dró kosningum. Ritstjóri DV,
Össur Skarphéðinsson, sagði á
kosninganótt að þetta hefði verið
„óheiðarleg kosningabarátta" og
sannaðist þar að „oft ratast kjöftug-
um satt á munn“ og slagorðið
„Frjálst og óháð dagblað" fékk nýja
og áður óþekkta merk-
ingu í þessum kosn-
ingaslag. Annað gam-
alt orðatiltæki sannað-
ist hins vegar að „ekki
er sama Jón og séra
Jón“ eða verður til nýtt
orðatiltæki: „Ekki er
sama Hrannar og ein-
hver annar“? Það er
von okkar að menn
læri af þessum mistök-
um sínum og reyni að
gæta fulls jafnvægis á
milli frambjóðenda í
næstu kosningum. Það
er vafalaust erfitt að
gæta þess í þessum
málum og áríðandi er
að fréttamenn og
fréttastjórar séu vel vakandi hvað
þessi mál varðar og gæti þess eftir
fremsta megni að á hvorugan aðil-
ann halli.
Við þökkum Arna, seg-
ir Hjörtur Guðnason,
fyrir frábæra forystu í
þessum kosningum.
R-listinn á borgarfulltrúa í Laug-
arneshverfi og verður fróðlegt að
fylgjast með því hvernig henni tekst
að framfylgja hugmyndum R-list-
ans um að byggja félagsmiðstöð við
Laugalækjarskóla og viðbyggingu
og endurbætur á Laugarnesskóla.
Vonandi týnist ekki félagsmiðstöðin
og önnur fyrirheit undir regnboga
R-listans eins og svo mörg önnur
loforðin. Við erum samt bjartsýn í
Laugarneshverfi núna á vordögum
þrátt fyrir að ekki hafi allt gengið
eftir óskum okkar hér í höfuðborg-
inni. Við unnum ekki borgina í þetta
sinn en það gekk vel á landsbyggð-
inni og verður gaman að leggja aft-
ur í nýja kosningabaráttu. Það er
ekki nema eitt ár í næstu kosningar
og þær munum við vinna.
Við þökkum öllum þeim sem
lögðu okkur lið í kosningabarátt-
unni. Fjöldi fólks kom á kosninga-
skrifstofuna, sumir bara til að
spjalla og fá sér kaffisopa. Aðrir
komu og lögðu okkur lið með vinnu
og þökkum við þeim sérstaklega
fyrir gott starf í þágu góðs málstað-
ar og hlökkum til að sjá þá í næstu
baráttu. Þar sem sumarið er loksins
komið segjum við gleðilegt sumar
og þakkir fyrir ánægjulega daga.
Höfundur er stjórnarmaður í Félagi
sjálfstœðismanna i Laugarneshverfi.
í Laugarnesi
Hjörtur
Guðnason