Morgunblaðið - 11.06.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.06.1998, Blaðsíða 45
MORGUNB LAÐIÐ SKOÐUN FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 4 VALKOSTUR FYRIR LISTAHÁSKÓLA ÉG er sannfærður um að stofnun Listahá- skóla íslands nýtur nánast samhljóma fylg- is hjá þjóðinni. Samein- ing allra listgreina und- ir eitt þak við sóma- samlegar aðstæður mun gjörbreyta mennt- unarmöguleikum og menningarumhverfi í landinu. Húsnæðisöng- þveiti og skortur á skipulagi eru farin að hafa veruleg og augljós áhrif á möguleika ungs fólks til listrænnar menntunar. Samtímis vex markaður fyrir listastarfsemi hratt. Menningarmiðstöð í miðborginni Ör vöxtur í menningarlífi þjóðar- innar hefur haft stórkostleg áhrif á þróun gamla bæjarhlutans í Reykja- vík. Það hefur sýnt sig að sjálfráð listastarfsemi vill nánast hvergi ann- ars staðar hafa aðsetur. Hið opin- bera tekur nú í vaxandi mæli þátt í þessari þróun og eru opnun menn- ingarhúss í Iðnó og Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu gleði- tíðindi. Þá virðist hugmynd um stað- setningu tónhstarhúss við gömlu höfnina njóta almenns fylgis. I Ijósi þessa og með hhðsjón af almennri viðvarandi vantrú innan Ustageirans á staðsetningu listaháskóla í SS hús- inu í Laugamesi þá ákváðu aðstand- endur Mýrargötu 26 ehf. að bjóða ríkinu þann valkost um staðsetningu Listaháskóla sem hér er kynntur. Hugmyndin er unnin af Kristni Ragnarssyni arkitekt. Markmið verksins er að sýna fram á að hægt sé að skapa Listaháskóla heppilega, rúmgóða og hagkvæma aðstöðu í þessum sögufrægu húsum við gömlu höfnina. Listaháskólann í frystihús Félag okkar, Mýrargata 26 ehf, var stofnað um síðustu áramót til að kaupa gömlu Hraðfrystistöðina og innrétta þar gagna- og munavörslu af vönduðustu gerð. Stofnendur eru tvö byggingafyrirtæki í Kópavogi, Desember ehf. og Hamra ehf. Þvert á áætlun sáum við nánast strax að Hraðfrystistöðin ásamt gömlu Bæj- arútgerðinni við hliðina er athyglis- verður kostur fyrir Listaháskóla. Hraðfrystistöðin er sérlega traust steinsteypt mannvirki. alls um 7.000 m2. Húsið skiptist í 4ra hæða skrif- stofubyggingu (4 x 400 m2) sem snýr að Mýrargötu og 3ja hæða verk- smiðjuhús (3 x 1.800 m2) sem vísar út Grandann. Utan og innan er end- umýjunar þörf frá grunni. BÚR húsið er einnig traust steypumannvirki, alls um 4.500 m2. Það er nú til sölu. Húsin eru sam- síða, þau hafa næstum sama gólf- kvóta og sömu salarhæð (4 m). Ef byggð væri ca. 1.800 m2 millibygging í sundinu milli húsanna með sam- komusal og aðalaðkomu, væru þama samtals um 13.000 m2 til ráðstöfunar fyrir Listaháskóla. Það em 2.500 m2 umfram skilgreindar þarfir skólans. Skilgreind rýmisþörf listaskólaer eftirfarandi: (Sjá meðfylgjandi töflu) Vegna mikillar lofthæðar gerum við ráð fyrir því að leiklist og dans- list verði á 3. hæð Hraðfrystihúss- ins. Verksmiðjusalurinn er óskipt 40 x 45 m rými og lofthæð 5,5 m. Loftplatan er steypt. Hæðin hefur aldrei verið notuð. Aðalaðstaða myndlista- og handíðadeildar er ráðgerð á hæðunum fyrir neðan. Þyngri deildirnar, þ.e. skúlptúr og leirlist, eru hugsaðar á jarðhæðinni (2.200 m2), en léttari deildirnar á 2. hæð (1.800 m2). Það er þó ekki nægilegt rými og því er gert ráð fyrir því að að málaradeild verði á 2. hæð tengi- byggingarinnar (600 m2) og að grafíska hönnunin verði síðan í framhaldi á 2. hæð aðal- byggingar Bæjarút- gerðarinnar. Tengibyggingin er eina nýbyggingin í til- lögu okkar. I austur- hluta jarðhæðar hugs- um við okkur sameigin- legan sal fyrir skólann (600 m2) með 8-10 m lofthæð. í vesturhluta er hugsuð aðalaðkoma skólans ásamt mötuneyti á neðri hæð (600 m2). A efri hæð vesturhluta er mál- aradeildin (sjá ofar). Hafnarstjórn Reykjavíkur hefur uppi hugmyndir um að endurskoða nýtingu lóðarinn- ar austan Hraðfrystistöðvarinnar og gerum við ráð fyrir að aðalað- koma skólans verði þaðan. Á 1. hæð aðbyggingar BÚR húss- ins (900 m2) er reiknað með bakað- stöðu fyrir sameiginlegan sal, upp- tökustúdíói og yfirstjórn skólans. Á efri hæðunum tveimur er áætlað rými fyrir almennar kennslustofur, Ríkinu hefur verið boð- inn valkostur varðandi staðsetningu listahá- skóla, segir Sigurður Gunnarsson, kostur sem hér er frá greint og unninn er af Kristni Ragnarssyni arkitekt. bókasafn o.fl. auk grafísku deildar- innar (sjá ofar). Þessar hæðir eru vannýttar í hugmynd okkar en þar væri auðveldlega hægt að koma fyr- ir arkitektadeild án þrengsla. I álmu BÚR hússins hugsum við okkur aðstöðu tónlistardeildar. Þarfir tónlistadeildar eru mjög vel sundurliðaðai' í rýmisáætlun fyrir listaháskóla. í tillögu okkar settum við því inn hugsanlegt innra skipu- lag tónlistardeildar í álmunni. Litli salurinn á neðri hæð hefur yfir 5 m lofthæð. Þar var áður vélasalur og gólfið er þar tekið niður. Álman er 10-13 m. á dýptina og virðist henta þessari sérhæfðu starfsemi vel. Umframrými í álmu er 400-600 m2. Stofnkostnaður Kostnaðarætlun fyrir tillögu okk- ar hefur greinarhöfundur unnið í samráði við Kristin Má Þorsteinsson verkfræðing. Ekki er reiknað með neinum íburði en vönduðum frá- gangi fyrir þarfirnar. Á þessu frum- stigi hönnunar eru að sjálfsögðu engin tök á að gera nákvæma sund- urgreiningu kostnaðarliða. Miðað við gefnar forsendur, þ.e. vandaða 2 mm litaða álklæðningu utan á húsin, Sika dúk eða sambærilegt efni á þökin, 54-58 DB hljóðeinangrun í innveggjum og vönduð gólfefni, ætti heildartalan þó að vera nálægt lagi. Samkvæmt henni er kostnaður við kaup og fullnaðarfrágang 13.000 m2 listaskóla samtals 800 milljón krón- ur. Þar af er kaupverð eigna 200 millj., endurbætur Hraðfrystistöðv- ar 240 millj., endurbætur á BÚR húsi 190 millj., bygging tengibygg- ingar 140 millj. kr. og umhverfi 30 milljónir króna. Þá áætlum við 200 milljón kr. til kaupa á fóstum bún- aði. Heildarkostnaður með fóstum búnaði er því áætlaður 1 milljarður Sigurður Gunnarsson Skrifstofur og athvörf ...... 400 m2 Mötuneyti ................... 300 m2 Samkomusalur ................ 550 m2 Safn ........................ 400 m2 Fræðileg kennsla ............ 350 m2 Búningsklefar ............... 320 m2 Leiklistardeild ........... 1.060 m2 Tónlistardeild ............ 1.060 m2 Listdansdeild ................915 m2 Myndlista- og handíðad......5.000 m2 Málning ..................... 580 m2 Skúlptúr .................. 1.230 m2 Grafík ...................... 665 m2 Fjöltækni ................... 330 m2 Grafísk hönnun .............. 460 m2 Leirlist .................... 890 m2 Textíl ...................... 630 m2 Ljósmynd .................... 230 m2 Samtals ca. 10.500 m2 I rýmisgreiningu Menntamálaráðuneytisins er ekki gert ráð fyrir aðstöðu fyrir kvik- myndadeild eða arkitektadeild í fyrsta áfanga. Valkostur okkar, 13.000 mz, getur rúmað báðar þessar deildir. I tillögunni höf- um við þó valið að staðsetja aðeins þær deildir sem fyrirhugað er að verði starf- ræktar við í skólann í fyrsta áfanga. króna. Kostnaðarverð á m2 án bún- aðar er því áætlað 62 þús. kr. og með föstum búnaði 77 þús. kr. Þetta eru ótrúlega lágar tölur því kostnað- arverð á m2 í skólabyggingum er 110-130 þús. krým2. Skýringin felst fyrst og fremst í hagkvæmni stærstu einingarinnar, hraðfrysti- stöðvarinnar. Kaupverð hússins er aðeins 11 þús. kr7m2 og lögun þess og gerð stuðla að lágum kostnaði við endumýjunina. Áætlað er að þegar upp verður staðið kosti Hraðfrysti- stöðin 54 þús. krým2, millibyggingin 111 þús. kr7m2 og BÚR húsið 84 þús. kr./m2. Varðandi fjármögnun og fram- kvæmd kemur margt til greina. Fé- lag okkar hefur boðist til að leigja skólanum húsið tilbúið. Þá ræðst leiguverð ekki síður af vaxtakjörum langtímalána en af framkvæmda- kostnaði. Miðað við 20 ára leigutíma ætti leiguverð að vera 550-600 krým2 á mánuði. Þá er einnig hægt að Hágæða sánaklefar Finnolme sánaklefarnir koma í 27 stöðluðum stærðum eða smíðaðir eftir þlnum óskum. Minna mál umboðið, s. 5574244 Þakrennur Þakrennur og ror frá A SiBA BLIKKAS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata KÓPAVOGI LISTAHÁSKÓLIÍSLANDS GRANDAGARÐI (hugmynd) <3tJB GÓLFLÖTUR = 12666 m1 TÓNLIST (UTem") MYNDUST (6201 m*) LEIKLIST (1010 mf) DANSUST tWVni') SAMEIGINLEGT (l«»mf) SALUR («25 m>) STJÓRNSÝSLA <5. TENGIRÝMI (1321 m>) ÞAK hugsa sér kaupleigu, beina sölu á skólanum fullbúnum eða á einhverju skilgreindu byggingastigi. Jafnvel kæmi til greina að Listaháskólinn láti SS húsið upp í kaupin. Það er hið ágætasta hús og vænn heimanmund- ur, þó svo mörgum finnist það ekki henta undir Listaháskóla. Má bjóða yður listaháskóla? Nú eru liðnir 2 mánuðir frá því að tillaga okkar að listaháskóla var fyrst kynnt. Við vitum ekki hve lengi kosturinn stendur til boða. Mýrar- gata 26 ehf er nú að hefja fram- kvæmdir við endumýjun Hraðfrysti- stöðvarinnar og ákvörðun um notk- un hússins þolir nokkra bið. Hins vegar er BÚR húsið til sölu, í hlutum eða í heilu lagi. Enginn veit hvað kosturinn stendur lengi til boða. Tillaga okkar er á engan hátt frumleg. Hin Norðurlöndin hafa staðsett sína listaskóla við gömlu miðbæjarhafnimar og svipaða sögu er að segja víða um hinn vestræna heim. Þá hafði menntamálaráðu- neytið látið gera lauslega úttekt á þessum húsum fyrir listaháskóla áð- ur en okkur datt það í hug. Við telj- um hins vegar að kostinum hafi ftfc. verið hafnað að vanhugsuðu máli. Við teljum að gæði húsanna, stað- setning þeirra og hagkvæmt kostn- aðarverð mæli eindregið með því að málið verði aftur tekið til rækilegr- ar (og snöggrar!) skoðunar. Við gætum skilað skólanum tilbúnum samkvæmt okkar tillögu haustið 2000. Strax haustið 1999 gætum við skilað Hraðfrystistöðvarhlutanum. Því miður kemur tillaga okkar fram á sama tíma og ákveðið er að drífa af stað byggingu listaháskóla í SS húsinu í Laugamesi. Ég vona að tillaga þessi eigi ekki eftir að tefja löngu tímabæra stofnun Listahá- skóla Islands. Höfundur er hagfræðingur og ^ framkvæmdasijóri. Konur Golf Konur Opna Guinot Opið kvennamót laugardaginn 13. iúní í Leiru Punktamót Verðlaun verða veitt fyrir 10 efstu sætin. Nándarverðlaun á 16. braut Útdráttur í mótslok????? Mótsgjald kr. 2.000. Skráning hafin í síma 421 4100. ^ i iiK.AN-r Golfklúbbur Suðurnesja. „kiaxt fiUINOT fiUINOT Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vetívangur fólks f fasteignaleit - mbl.is/fasteignir» -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.