Morgunblaðið - 11.06.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 49
AUGLYSINGAR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
LAUGARBAKKASKOLI
Kennarar
hvar eru þið?
Laugarbakkaskóli í Miðfirði í V- Húnavatns-
sýslu auglýsir enn og aftur eftir kennurum.
Skólinn er staðsettur við hringveginn u.þ.b.
mitt á milli Reykjavíkur og Akureyrar, sam-
göngur eru því góðar.
Skólinn er vel búinn og aðstaðan öll til fyrir-
myndar. Við skólann hefur verið rekið metnað-
arfullt starf, þróunarverkefni tíð og áhugasamt
fólk við störf.
Við leitum að kennurum, 2 stöður:
Helstu kennslugreinar: Sérkennsla, tungumál,
samfélagsfræði og náttúrufræði.
í boði er áhugaverð störf, góð vinnuaðstaða,
gott samfélag, lág húsaleiga og ein ódýrasta
hitaveita landsins.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Albertsson
skólastjóri í síma 451 2901 eða 451 2927.
Laugarbakkaskóli.
Starf
framkvæmdastjóra
Fjórðungssambands Vestfirðinga er
laust til umsóknar
Að Fjórðungssambandinu standa öll sveitar-
félög í Vestfjarðakjördæmi og er megin mark-
mið þess að vinna að hagsmunum þeirra.
Skrifstofa sambandsins er í stjórnsýsluhúsinu
á ísafirði.
Æskilegt er að væntanlegurframkvæmdastjóri
geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veitir Pétur H.R. Sigurðsson,
stjórnarformaður, síma 456 4368 eða 897 6768
og Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri,
í síma 456 3170 eða 896 2890.
Umsóknir skulu póstleggjast og berast stjórn-
arformanni á skrifstofu Fjórðungssambandsins
Hafnarstræti 1,400 ísafirði, eigi síðar en 22.
júní nk.
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Kennara vantar á
hönnunarbraut
Kennslugreinar: Hönnunarsaga, mynd-
skreyting og tískumótun
Ráðning erfrá 1. ágúst 1998. Laun samkvæmt
launakerfi opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar veitirviðkomandi kennslu-
stjóri eða skólameistari í síma 552 6240.
Umsóknum skal skila til ritara skólameistara
fyrir 26. júní 1998.
Leikskólastjóri
Leikskólinn Lyngholt, Reyðarfirði, auglýsir
lausa stöðu leikskólastjóra frá og með 1. sept-
ember 1998. Skriflegar umsóknir berist til skrif-
stofu Sameinaðs sveitarfélags á Mið-Austur-
landi, Búðareyri 7, 730 Reyðarfirði fyrir 25. júní
nk. Nánari upplýsingarfást hjá leikskólastjóra
í síma 474 1257 eða á skrifstofu hreppsins í
síma 474 1245.
SUMARHUS/LQEim
Skorradalur
Til sölu er sumarbústaður sem stendur í skógi-
vöxnu landi Dagverðarness í Skorradal. Þetta
er heilsársbústaður með rafmagni og heitu
og köldu vatni. Bústaðurinn er um 54 m2 að
stærð ásamt 36 m2 verönd.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma
567 3631.
STYRKIR
Menntamálaráðuneytið
Styrkurtil háskóla-
náms í Japan
Hér með framlengist til 25. júní nk. frestur
til að skila inn umsóknum um annan af tveimur
styrkjum er japönsk stjórnvöld bjóða fram
handa íslendingumtil rannsóknanáms í há-
skóla í Japan á árinu 1999 og auglýstir voru
lausirtil umsóknar 17. apríl sl.
Nánari upplýsingarog umsóknareyðublöð fást
í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið,
9. júní 1998.
UPPBQÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Flúðabakki 1, íbúð 0104, Blönduósi, þingl. eig. Félag eldri borgara
í A-Húnav., gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, mánudag-
inn 15. júní 1998 kl. 13.00.
Hrossafell 2, Skagaströnd, þingl.eig. Rögnvaldur Ottósson, gerðar-
beiðendur sýslumaðurinn á Blönduósi og Verslunin Borg hf., mánu-
daginn 15. júní 1998 kl. 14.30.
Kollafoss, Fremri-Torfustaðahreppi, þingl.eig. Jarðasjóður ríkisins,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, mánudaginn 15. júní 1998
kl. 10.00.
Króksstaðir, Ytri-Torfustaðahreppi, þingl. eig. Eggert Rúnar Ingibjarg-
arson, gerðarbeiðendur Atlas hf„ Hvammstangahreppur, Kaupfélag
Vestur-Húnvetninga, Lánasjóður landbúnaðarins og sýslumaðurinn
á Blönduósi, mánudaginn 15. júní 1998 kl. 11.00.
Túnbraut 7, efri hæð, Skagaströnd, þingl. eig. Sigrún Benediktsdóttir,
gerðarbeiðendur Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar og Verslunin
Borg hf„ mánudaginn 15. júní 1998 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Blönduósi 10. júní 1998.
Lausafjáruppboð
veröur haldiö aö Miðfelli í Þingvallasveit föstu-
daginn 12. júní 1998 kl. 14.00.
Á uppboðinu verða seld ýmis tæki sem tengj-
ast landbúnaði, heyvagnar, tvær dráttarvélar
og annað smálegt sem tilheyrir búinu.
Þá verða einnig seld 8 hross á ýmsum aldri.
Jóhann H. Níelsson hrl.,
skiptastjóri í dánarbúi
Ingólfs Guðmundssonar.
TILKYNNINGAR
E
GERÐAHREPPUR
Gerðahreppur 90 ára
Hátíðahöld í tilefni 90 ara afmælis Gerða-
hrepps verða haldin í íþróttamiðstöðinni laug-
ardaginn 3. júní kl. 15.00.
Fjölbreytt dagskrá.
Margs konar sýningar opnar.
Um kvöldið verður dansleikur. Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar.
Garðmenn nær og fjær boðnir velkomnir.
Sveitarstjóri.
NAUQUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Brautarholt 10B, Skeiðahreppi, þingl. eig. Skeiðahreppur, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna, mánudaginn 15. júní 1998 kl.
15.00.
Búðarstígur 14B, Eyrarbakka, þingl. eig. Örn Sigurðarson, gerðarbeið-
endur Landsbanki Islands, Eyrarbakka, Landsbanki íslands, lögfrdeild,
Landsbanki íslands, Selfossi, Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. og
sýslumaðurinn á Selfossi, mánudaginn 15. júní 1998 kl. 11.00.
Hluti úr jörðinni Glóru, Hraungerðishr. 18.25 ha, þingl. eig. Ólafur
Stefán Þórarinsson, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins,
mánudaginn 15. júní 1998 kl. 10.00.
Jörðin Brautartunga, Stokkseyrarhreppi, 50%, þingl. eig. Hörður
Jóelsson, gerðarbeiðendur Ríkisútvarpið og Vátryggingafélag íslands
hf„ mánudaginn 15. júni 1998 kl. 13.15.
Kistuholt 14b, Biskupstungnahreppi, þingl. eig. Jóhann Björn Guð-
mundsson og Berglind Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Bygging-
arsjóður verkamanna og sýslumaðurinn á Selfossi, mánudaginn
15. júní 1998 ki. 16.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
10. júní 1998.
TILBOO/ UTBOO
UT
B 0 0 »>
Utboð 11054
Sala á hlut Ríkissjóðs í Hólalaxi hf.
Ríkiskaup fyrir hönd Ríkissjóös íslands óska eftir
tilboöum í hlutabréf ríkisins í Hólalaxi hf., Hólum
í Hjaltadal. Ríkið á 40% hlut í fyrirtækinu og er
nafnverð hlutabréfanna kr. 7.440.000.
Boðið verður upp á vettvangsskoðun hjá fyrir-
tækinu mánudaginn 15. júní næstkomandi kl.
13.00. Þeir sem áhuga hafa að taka þátt eru
beðnir um að skrá sig á skrifstofu Ríkiskaupa
eigi síðar en 12. júní nk.
Útboðsgögn veröa til sýnis og sölu á kr. 1.500
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7,105 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
7. júlí 1998 kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóð-
endum er þess óska.
\§S/RÍKISKAUP
Ú t b o d s k i I a á r a n g r í i
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
B r é f a s í m i 562-6739-Netfang: rikiskaup&rikiskaup.is
TIL SQLU
70% afsláttur
Seljum næstu 3 daga að Fosshálsi 9—11 göm-
ul sýnishorn af húsgögnum og lítið útlits-
gölluðum, svo sem skrifborð, skápa, leikskóla-
stóla, barnastóla, eldhús- og kaffistofuborð
og stóla og margt fleira.
Verðurtil sýnis og sölu á húsgagnalager Penn-
ans, Fosshálsi 9—11. Símar 540 2030 (sölumenn
Hallarmúla) og 587 8916 (lager Fosshálsi 9—11).
skrifstofubúnaður
FUNQIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Þörunga-
verksmiðjunnar hf.
verður haldinn þriðjudaginn 23. júní í kaffistofu
Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum og
hefst hann kl. 14.00.
Fundarefni
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
16. gr. laga félagsins.
2. Önnur mál löglega uppborin.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1997 liggur
frammi á skrifstofu félagsins.
í Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
°/^ADUP-'t,bb
Kennarar
Fyrirhugaður kennarafundur verður haldinn
í dag, 11. júní kl. 16.00.
SMAAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
TAI CHI í Kramhúsinu
Meistari Khinthitsa.
Kröftugt 5 daga námskeið,
19.-24. júní.
Upplýsingar í sima 551 5103,
Kramhúsið, og 551 9792, Guðný.
Jk Hjálpræóis-
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Lofgjörð og bæn í um-
sjá lofgjörðarhópsins.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFELAC
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Að lesa landið
Þórsmörk, fræðsluferð
12.-14. júní. Landgræðsla ríkis-
ins, Skógrækt ríkisins og Ferðafé-
lag Islands standa að stór-
skemmtilegri og einstakri
fræðsluferð. Dagskrá: Skógardag-
ur á laugardeginum. Jarðfræði-
ganga á sunnudagsmorgninum.
Kostakjör. Tilvalin ferð fyrir unga
sem aldna. Ókeypis grillveisla á
laugardagskvöldinu. Pantið tím-
anlega. Gist í Skagfjörðsskála.
Gestir á tjaldsvæðum Ferða-
félagsins í Langadal og End-
um eru velkomnir að taka
þátt ■ dagskrá helgarinnar, en
látið samt vita fyrirfram.
Vinnuferð í Landmannalaug-
ar 12,—14. júní. Brottför föstu-
dag kl. 20.00. Það vantar fleiri
sjálfboðaliða, frí ferð og fæði.
Bókið ykkur strax.
Gerist félagar og eignist nýju
árbókina: Fjallajarðir og
Framafréttur Biskupstungna.
Fimmtudagur 11. júní kl.
20.00.
Skógarganga í Kapellu-
hrauni. Ferð Skógræktarfó-
lagsins og FÍ, verð 500 kr.,
frftt f. börn m. fullorðnum.
Brottför frá Mörkinni 6.