Morgunblaðið - 11.06.1998, Síða 51

Morgunblaðið - 11.06.1998, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 51# FRÉTTIR Rúmlega 3 þús. unglingar í Vinnuskólanum Morgunblaðið/Arnaldur HÓPUR úr Vinnuskólanum við störf í Sæviðarsundi. Þau eru Nína, Þórey, ívar, Eva, Sigríður, María, Halldór, Björgvin og Jakob. Með stærri viimu- stöðum landsins SUMARSTARF Vinnuskólans í Reykjavík er hafíð og verða rúmlega 3 þúsund unglingar þar við vinnu, fræðslu og leik í sumar. Að sögn Amfínns Jónssonar, skólastjóra, eru það ívið færri þátttakendm- miðað við sl. ár þrátt fyrir að árgangarnir séu nánast jafn stórir. „Það er eins og aðsóknin sé einhverra hluta vegna örlítið minni en munurinn er ekki mikill eða milii 10 til 20 manns en þetta mun skýrast í lok vikunnar þegar þau hafa öll sótt sín vinnu- kort,“ sagði hann. Unglingarnir eru á aldrinum 14-16 ára og er Vinnuskólinn með stærstu vinnustöðum landsins. Leið- beinendur eru um 200 og munu þeir kenna unglingunum rétt vinnubrögð og aðstoða þau við vinnuna. Meðal verkefna Vinnuskólans eru opin svæði í borginni og opinberar lóðir auk þess sem nemendur sinna görð- um hjá um 600 ellilífeyrisþegum sé þess óskað. Eldri nemendur taka að sé stærri verkefni í samvinnu við gatna- og garðyi'kjudeild borgai-verkfræðings og fjölmargir vinna utan Reykjavík- ur, svo sem í Heiðmörk við skógrækt og á Nesjavöllum að átaki í upp- græðslu. Auk vinnunnar taka unglingamir þátt í fræðslustarfi m.a. í samstarfi við Jafningjafræðslu Félags framhalds- skólanema um forvamarfræðslu, söfii em heimsótt og framandi menningar- heimar kynntir. Einnig era elstu nem- endunum kynnt réttindi og skyldur á vinnumarkaðinum. Þjóðbúninga- dagar í Hornstofu OPIÐ hús verður í Hornstofu Heim- ilisiðnaðarfélags Islands á Laufás- vegi 2 dagana 11.-14. júní. Islenskir þjóðbúningar verða kynntir með ýmsu móti. Frætt verður um ýmis vinnubrögð tengd þjóðbúningunum. Fimmtudag kl. 10-12 og föstudag kl. 13-15 verð- ur sýnt hvernig sauðskinnsskór eru gerðir. Baldýring verður sýnd frá kl. 13 á laugardag og sunnudag. Alla daga verður kniplað á staðnum. Milli kl. 16-18 alla dagana verður veitt ráðgjöf um hvernig skal klæðast búningunum og á staðnum verða ýmsar konur til skrafs og ráðagerða. Opið verðm- fimmtudag og fóstu- dag frá kl. 10-18 og laugardag og sunnudag frá kl. 12-18. Aðgangur er ókeypis. Ályktun Blaðamanna- félags Islands Orökstudd gagnrýni átalin STJÓRN Blaðamannafélags íslands hefur samþykkt ályktun vegna um- ræðu og gagnrýni á fréttaflutning í fjölmiðlum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjómarkosninga og eru þar meðal annars órökstudd ummæli átalin. Alyktunin er svohljóðandi: „Stjórn Blaðamannafélags Islands átelur órökstudda gagmýni á frétta- flutning vegna sveitarstjórnarkosn- inganna í maí. Slík gagnrýni getur orðið til þess að koma í veg fyrir eðli- lega umræðu í þjóðfélaginu og er sérlega alvarleg þegar hún er sett fram af fulltrúum stjórnvalda sem njóta virðingar starfa sinna vegna. Blaðamenn mega eðli málsins samkvæmt búast við gagnrýni á störf sín og ef slík gagnrýni er rök- studd og málefnaleg er hún fallin til þess að bæta þjóðmálaumræðuna. Órökstudd gagnrýni skaðar hins vegar umræðuna vegna þess að hún getur þegar verst gegnir orðið til þess að ritstjórnir veigri sér við að fjalla um mikilvæg þjóðmál ef þau eru umdeild eða að þau ógni hags- munum áhrifamikilla þjóðfélags- hópa. Það er því krafa blaða- og frétta- manna að séu störf þeirra talin gagn- rýnisverð þá sé gagnrýnin sett fram með skýrum rökum og studd dæm- um.“ ------------ Norrænt þing um varnir gegn tannskemmdum FUNDUR aðiia sem annast varnir gegn tannskemmdum á Norðurlönd- unum verður haldinn föstudaginn 12. júní. Hittast þeir á tveggja til þriggja ára fresti og skiptast á upp- lýsingum og efni. Er mjög gagnlegt fyrir hið ís- lenska Tannverndairáð að fá að nota hugmyndir og fi’æðsluefni frá hinum Norðurlöndunum þar sem þessi starfsemi er búin að vera öflug mun lengur en hérlendis, segir í fréttatil- kynningu. Stórir fískar úr Laxá í Aðaldal VEIÐI hófst í Laxá í Aðaldal og Laxá í Kjós í gærmorgun. Fimm laxar veiddust í Laxá nyrðra, en tveir í Laxá sunnan heiða. Athygli vakti, að stærstu laxarnir úr Laxá í Aðaldal vora 21 og 18 punda, en frekai’ óalgengt er að fiskar í þeim stærðarflokki séu í aflanum svona snemma veiðitíma. Jón Helgi Vig- fússon veiddi stærsta laxinn. Að sögn Atla Vigfússonai- sem var á ferðinni við ána, sáu menn nokkuð af fiski, en allur veiðiskap- urinn fór fram neðan Æðarfossa. Veiði er ekki hafin þar fyrir ofan. Hinir laxarnir þrír vora allir vænir. Laxinn uppi í vatni Aðeins tveir laxar veiddust fyrsta morguninn í Laxá í Kjós og sáu menn lítið líf í ánni. Þórarinn Sigþórsson veiddi fyiTÍ laxinn, sem var 16 punda hængur, á maðk í Pokafossi, en hinn laxinn var 9 punda fiskur sem veiddist í Klingeberg. Fyrir um hálfum mán- uði fóru menn fyrst að verða laxa varir í Laxá, en lítið fór fyrir þeim fiskum nú. Ásgeir Heiðar, fulltrúi leigutaka árinnar, sagðist hafa það eftir fjóram bændum við Meðal- Morgunblaðið/gg FÉLAGARNIR Þórarinn Sig- þórsson og Árni Baldursson með fyrsta Kjósarlax sumars- ins. Og enga smásmíði, 16 punda hæng. fellsvatn, að lax væri þar að stökkva alla daga. „Laxinn hefur skellt sér þangað í vatnsleysinu og birtunni. Svo er eflaust eitthvað af laxi í felum í Þórufossi," sagði Ás- geir. Sjálfsbjörg kýs nýja framkvæmdastj órn NY framkvæmdastjórn Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra, var kosin á 29. þingi samtakanna sem haldið var um síðustu helgi. Framkvæmdastjórn landssam- bandsins mun sitja næstu tvö árin og voru fjórir af fimm fram- kvæmdastjómarmönnum kosnir í fyrsta sinn. Nýju stjórnina skipa: Arnór Pét- ursson formaður, Ragnar Gunnar Þórhallsson gjaldkeri og Hildur Jónsdóttir ritari, öll frá Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu. Snæbjörn Þórðarson varafonnaður, frá Sjálfsbjörg á Akureyri, og Jón Stígsson meðstjórnandi frá Sjálfs- björg á Suðurnesjum. Að undan- skildum Ragnari Gunnari Þórhalls- syni eru allir nýir í stjórninni. iiioioonooooo' •Q1-0--1- 01 -O-O-O'O': t UOJOOl. t'IOOOOOl ooooi bcnoT -omooc '0 'h19 4 i Ny Dell OptiPlex™ GX1 -- 266 MHz Pentium II örgjörvi • 32 MB minni 3,2 GB diskur • 15" VL skjár • AGP 4MB skjákort Hljóðkort • Uppfæranleg í 400 MHz Pentium II Verð kr. 130.000,-«, ‘Verð fyrir aðila að rammasamningi Ríkiskaupa RK-302 Tilboðið gildir til 1. júlí 1998 & SSPfÁ'i&.j < ' « l 1 i'LíÍflC; OptiPlex™ V F\>,My meðlntelPentium®llörgjöfvum Dell, Dell meildð og OptiPlex™em skrásett vörumerki Dell Computer Corporation r\ontii im* II höd±maltt^iBlbiifr®oiriiáæe rFo'! Vr.'o1! II vörumerki Intel Corporation.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.