Morgunblaðið - 11.06.1998, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ
■j56 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998 ____________________________
KIRKJUSTARF í DAG
Safnaðarstarf
Raðsamkomur
í Filadelfíu
CARROLL Thompson verður með
raðsamkomur dagana 11. til 14.
júní í Ffladelfíu og hefjast þær kl.
20 hvert kvöld.
Caroll Thompson hefur verið í
þjónustu Drottins í rúmlega 40 ár.
Hann fór ungur sem kristniboði til
Brasilíu á vegum baptista þar sem
hann þjónaði í um það bil sjö ár.
Þegar hann kom til baka var hann
niðurbrotinn á sál og líkama og það
varð tii þess að Carroll fór að
' kynna sér betur það andavald sem
við glímum við daglega. Síðan hef-
ur Carroll kennt og starfað víðs-
vegar um heiminn og Guð hefur
notað hann á sérstakan hátt til að
frelsa þúsundir manna undan oki
óvinarins. Það eru allir hjartanlega
velkomnir í Ffladelfíu og aðgangur
er ókeypis.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgeltónlist. Léttur hádegis-
verður á eftir.
Háteigskirkja. Kvöldsöngur með
Taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun,
endurnæring. Allir velkomnir.
Digraneskirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 18. Bænaefni má setja í
bænakassa í anddyri kirkjunnar
eða hafa samband við sóknarprest.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæna-
efnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 lofgjörð
og bæn í umsjá lofgjörðarhópsins.
Ailir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Al-
menn samkoma kl. 20. Ræðumaður
Carroll Thompson. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Húsasniiðj
mo
Golfmót milli sveina og
húsasmíðameistara og
maka þeirra verður haldið
á Kiðjabergsvelli, Grímsnesi,
sunnudaginn 14. júní
HÚSASMIDJAN
Mæting kl. 10.
Skráning á staðnum.
Vegleg verðlaun í boði.
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð grein
ÉG VIL lýsa yfir ánægju
minni með grein eftir Sig-
urð Hrafn Guðmundsson
sem birtist í Morgunblað-
inu sl. þriðjudag. Greinin
hét „Menntamálaráðherra
hvar ert þú?“ Ráðamenn
skilja ekki hag náms-
manna og tekur virkjanir
fram yfír menntun þjóðar-
innar.
Nemi.
Löng biðröð -
léleg afgreiðsla
GUÐNÝ hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hafa mætt á skrifstofu lög-
reglustöðvarinnar klukkan
rúmlega niu sl. þriðjudag
til að endurnýja ökuskír-
teini. Segir hún að þegar
hún kom hafí verið fjórir á
undan henni en eftir smá-
stund voru 20 manns í bið-
röð. Segir hún að sér finn-
ist þetta hæg afgreiðsla og
það hljóti að vera hægt að
ráða bót á þessu því fólk
sem beið í röðinni var
mjög óánægt með þessa
afgreiðslu.
Guðný.
Tapað/fundið
Kvenúr týndist
við IKEA
KVENÚR týndist sl.
fimmtudag við IKEA í
Holtagörðum. Úrið er úr
stáli og gulli. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
551 0683.
Gler úr
gleraugum týndist
GLER úr gleraugum týnd-
ust 4. júní í erfisdrykkju á
Hótel Borg. Þetta er mjög
dýrt gler, kostar 25 þús.
kr. Þjónninn sem fann
glerið lét mann hafa það
og er hann beðinn um að
hafa samband við Magnús
Blöndal Jóhannsson í síma
561 4161.
Blátt fjallahjól týndist
hjá Vesturbæjarskóla
BLÁTT Diamond-fjalla-
hjól týndist hjá Vestur-
bæjarskóla fyrir rúmri
viku. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 552 9338.
Dýrahald
HVÍTUR páfagaukur með
örlítinn bláan lit flaug út
frá Miðhúsum 6 í Grafar-
vogi sl. mánudag. Fuglinn
er gamall og spakur. Þeir
sem hafa orðið hans varir
vinsamlega látið vita í síma
567 7725.
Kettlingur óskar
eftir heimili
SVARTUR og hvítur kett-
lingur, 10 vikna, fæst gef-
ins. Upplýsingar í síma
557 6315.
Polly er týnd
POLLY, sem er 6 mánaða
gömul, gulgrábröndótt,
hvarf frá Nesvegi í lok
maí. Hún var með bleika
ól, bjöllu og málmtunnu
sem neðri hlutinn hefur
glatast úr. Þeir sem geta
gefið upplýsingar hringi í
sírna 588 1428.
Kettlingar fást gefíns
FJÓRIR fallegir, svartir
og hvítir, kassavanir kett-
lingar, fást gefins. Upplýs-
ingar í sxma 567 6827.
—
Morgunblaðið/RAX.
BORN og folald
Víkveiji skrifar...
NÝLEGA henti það kunningja
Víkverja, sem er fiugmaður, að
hann lenti í útistöðum við tollinn,
þar sem svo virðist vera sem menn
hafi ekkert lært og ekkert þróazt
frá því fyrir 30 árum að slökkviliðs-
stjórinn í Reykjavík háði harða bar-
áttu fyrir því að öryggishjálmar
slökkviliðsmanna skyldu ekki lenda
í sama tollflokki og pípuhattar.
Málsatvik eru þau að flugmaður-
inn fékk mann í Bandaríkjunum til
þess að kaupa fyrir sig og tvo fé-
Iaga sína öryggishjálm af sömu gerð
og þyrlu- og þotuflugmenn hersins
þar nota. Hjálmarnir voru keyptir
notaðir og fengust því fyrir lítinn
pening hjá einhverri sölunefnd
hersins. Bjóst flugmaðurinn við að
þurfa að greiða í toll um það bil
7.000 krónur fyrir þá alla.
Nú komu hjálmamir hingað heim
og lentu auðvitað í tolli. Þá fann toll-
vörður, sem skoðaði þá það út að í
þeim voru svokölluð heymartól inn-
byggð, þar sem þoturnar og
þyrlurnar eru svo illa hljóðeinangr-
aðar að flugmennirnir tala sín í milli
í gegnum hjálmana, sem era þar
með ekki aðeins öryggishjálmar
heldur einnig hávaðahlífar frá hvin
þotnanna. Og tollvörðurinn setti ör-
yggishjálmana í sama tollflokk og
hljómflutningstæki. Þetta olli því að
tollurinn, sem greiða skyldi af ör-
yggishjálmunum, hækkaði upp í
27.000 krónur.
Það þýddi ekkert fyrir kunningja
Vikjverja að vera með neitt múður,
tollvörðurinn almáttugi hafði kveðið
upp sinn úrskurð, hljómflutnings-
tæki skyldi öryggishjálmurinn vera
og engar refjar.
Þegar Víkverji heyrði þessa sögu
minntist hann sögu, sem Jón Sig-
urðsson slökkviliðsstjóri í Reykja-
vík sagði honum fyrir nokkrum ára-
tugum. Slökkviliðið í Reykjavík
keypti inn öryggishjálma fyrir
mannskapinn, sem nauðsynlegt var,
þvi slökkvliðsmenn vinna oft við erf-
iðar aðstæður og þurfa öryggis-
hjálma. Einhver vitringurinn hjá
tollstjóra hafði flokkað þessa
hjálma, sem oft og einatt vom
skrautlegir, í sama tollflokk og
pípuhatta, sem menn báru gjarnan,
væru þeir í „kjól og hvítt“ eins og
kallað var. Það tók margra ára bar-
áttu slökkviliðsstjórans að fá þess-
ari ákvörðun breytt, svo að ríkis-
sjóður væri ekki beinlínis að okra á
öryggishjálmum fyrir slökkviliðið.
Og enn eru starfsmenn toll-
stjóra við sama heygarðshornið,
hafa ekkert lært, ekkert séð og
ekkert heyrt í heil 30 ár. Það getur
verið að þeir hlusti á æðri tónlist
og ýmislegt eyrnakonfekt með ör-
yggishjálmum, en það gera nú ekki
þeir, sem þurfa að vinna með slík
höfuðföt.
XXX
VÍKVERJI var að vafra á vefn-
um eins og það er kallað og fór
þá inn á veffang stjórnarráðsins,
sem er „www.stjr.is11. Það verður að
segjast að þetta veffang er orðið
mjög til fyrirmyndar og em þar öll
ráðuneytin, nema félagsmálaráðu-
neytið og landbúnaðarráðuneytið.
Þessi tvö ráðuneyti virðast ein-
hverra hluta vegna ekki vera komin
í samband við tæknina, þar sem
ekki er unnt að komast inná heima-
síður þeirra. Onnur ráðuneyti era
flest til fyrirmyndar og unnt er að
sækja bæði mikinn og góðan fróð-
leik um lög og reglur sem í gildi eru
inn á þessar vefsíður. Oft og einatt
era þetta gögn, sem erfitt er að
nálgast annars staðar.
Stjórnarráðið á hrós skilið og
vonandi koma félagsmálaráðuneytið
og landbúnaðarráðuneytið brátt í
kjölfar hinna ráðuneytanna. Þau
geta ekki verið eftirbátar hinna
ráðuneytanna.