Morgunblaðið - 11.06.1998, Side 62
§2 FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
FOLK I FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Sálin hans Jóns
míns svífur enn
AÐ VAR árið 1988 að
hljómsveitin Sálin hans
Jóns míns kom fyrst fram
og spilaði meðal annars
um verslunarmannahelgi á Mel-
gerðismelum í Eyjafirði. Otalmörg
lög hafa litið dagsins ljós síðan
„Kanínan“ varð vinsæl þetta fyrsta
sumar Sálarinnar, en tvö ný lög
koma einmitt út á safnplötunni
„Bandalög 8“ síðar í mánuðinum.
„Við ætlum að spila víðs vegar
um landið í allt sumar og fara svo í
hljóðver í haust og gefa út stóra
plötu fyrir næstu jól. Það eru liðin
þrjú ár síðan stór plata kom frá
okkur síðast," sagði Guðmundur,
en Sálin mun spila á öllum helstu
tónleikastöðum landsins í sumar.
Flýgur frá London
Síðastliðin tvö ár hafa Guðmund-
ur og sambýliskona
hans, Dóra Takefusa,
búið í London ásamt
syni Dóru. Guðmundur
starfai- hjá flugfélaginu
Atlanta og ætlar að
starfa þar í sumar sam-
hliða spilamennskunni
á Islandi og hann kem-
ur til með að fljúga
heim til Islands um
hverja helgi. „Við fór-
um út tO London með
smá pening í vasanum
en að öðru leyti m_eð
tvær hendur tómar. Ég
talaði mig inn í vinnu
hjá Atlanta og átti upp-
haflega bara að vinna í
fjóra daga við að taka
af bíl. Ég kunni á lyftara frá því ég
vann á frystihúsinu hérna í gamla
daga. Núna er ég kominn í skrif-
stofuvinnu hjá fyrirtækinu og líkar
mjög vel. Það er mikill skilningur
fyrir því að ég sé að „poppast“
heima á Islandi og ég fæ að vinna
fríin af mér. Ég hefði aldrei fengið
tilslakanir af þessu tagi hjá bresku
fyrirtæki.
Mér finnst mjög gott að koma
hingað af og til og spila. Við höfum
ekki sama úthald og áður og mark-
aðurinn býður ekki upp á það leng-
ur að við séum að spila um hverja
helgi.“
„Nauðsynlegt að breyta til“
- Hefurðu ekkert reynt fyrir þér
sem tónlistarmaður í London?
„Nei, auðvitað er maður alltaf
með einhverjar þreifingar í gangi,
en það er ekkert sem er í frásögur
færandi á þessari stundu. Fyrsta
árið prófaði ég að gamni að fara í
áheyrnarprufur sem voru auglýst-
ar en það var eins og að fara aftur í
bílskúrinn. Svo vill maður helst
vinna með sitt eigið efni. Ég gæti
reynt að komast í hljómsveit og
vonast til að verða heppinn eða
vinna eitthvað í kringum mitt eigið
efni. Núna er ég að reyna að koma
mér upp aðstöðu heima til að
semja.“
- Er London er ekki full af ís-
lenskum tónlistarmönnum?
„Það eru mjög margir íslenskir
tónlistarmenn búsettir héma og
þetta fer að verða hljómsveitar-
hæft. Við búum til dæmis í Full-
ham, en þar búa einnig Jakob
Magnússon og Ragnhildur Gísla-
dóttir og Friðrik Karlsson. Óskar
Páll upptökumaður býr í sama húsi
og ég og það eru margir íslending-
ar sem búa í sömu götu og við.
Þetta er mjög skemmtilegt samfé-
lag.“
- Þið eruð þá ekkert á leiðinni
heim?
„Nei, ég held ekki. Okkur líður
mjög vel þama úti. Ég var alinn
upp úti á landi og flutti til Reykja-
víkur þegar ég var 17 ára en þá var
ég alveg búinn að fá nóg af Skaga-
strönd. Það var sama sagan með
Reykjavík, ég var eiginlega búinn
að fá nóg þegar ég flutti út. Það er
líka gaman að takast á við nýja
borg og upplifa ólíka menningu.
Það er mjög dýrt að búa í London
en ef ég væri að hugsa um peninga
þá væri ég heima að spila með Sál-
inni allt árið eða í einhverjum árs-
hátíðarhljómsveitum. Þetta er bara
spurning um eftir hverju fólk sæk-
ist.“
- Eru ekki mikil viðbrigði að
reyna fyrir sér erlendis?
„Eftir að hafa unnið við tónlist í
fimmtán þá hefur maður greiðan
aðgang að fjölmiðlum hérna heima.
Það er mjög erfitt að verða sér úti
um fjölmiðlaumfjöllun í Bretlandi
og erfitt ferli. Allt í einu er maður
kominn á núllpunkt. Það er hins
vegar mjög gott, því
það var orðið ansi
þægilegt að búa á Is-
landi. I Englandi var
allt erfitt þessi fyi-stu
tvö ár, jafnvel það að
leita sér að íbúð. Og
erfiðleikar gera ekkert
annað en þroska fólk.
Ég er þeirrar skoðunar
að maður þurfi svona
spark í afturendann
annað slagið og ég í
raun þrífst á þvi.
Sálin hans Jóns míns
er eina hljómsveitin
sem mig langar til að
vera í á Islandi og hvað
getum við gert meira
en við höfum gert síð-
ustu tíu ár? Þess vegna var áskor-
un að prófa eitthvað nýtt og flytja
úr landi.“
Spilagleðin sem
ræður ríkjum
- Halda Sálarmenn miklu sam-
bandi sín á milli?
- Já, við gerum það. Það er svo
mikill vinskapur orðinn á milli okk-
ar, ég veit þetta hljómar eins og
einhver klisja, en þetta er satt. Áð-
ur fyrr var það metnaðurinn sem
rak okkur áfram en núna komum
við fyrst og fremst saman af því
okkur finnst gaman að spila. Við
erum þrír í hljómsveitinni sem bú-
um erlendis núna. Atli hljómborðs-
leikari býr í Bandaríkjunum þar
sem hann lærði að búa til kvik-
myndatónlist og Tommi trommari
er í margmiðlunarnámi í Flórída.
Hann kemst ekki heim í sumar og
því höfum við fengið Jóhann Hjör-
leifsson til að spila á trommumar
með okkur en Ath kemur tíma-
bundið heim.“
Að sögn Guðmundar hafa íslensk-
ir tónlistargagnrýnendur aldrei ver-
ið hiifnir af tónlist Sálarinnar og
svokallað vinsælda- eða sveitaballa-
popp sé mikil lágmenning í þeirra
huga. „Mér finnst skemmtilegast að
spila íyrir krakkana úti á landi.
Fyrsta ballið okkar var til dæmis í
Miðgarði í fyrra og þar var húsið
næstum fullt af 16 ára unglingum
og ég, 35 ára gamall maðurinn,
hugsaði með mér að nú væri kom-
inn tími til að hætta. Svo byrjaði
maður að spila tónlistina okkar, það
er ótrúlegt orkuflæði á milli okkar,
krakkamir kunna hvert einasta lag
utan að og mikil stemmning mynd-
ast. Þá rennur upp fyrir manni af
hveiju maður er að standa í þessu
ár eftir ár. Það er þessi hráa orka
sem maður hrífst af.“
Sálin hans Jóns míns byrjar
sumartónleikaferð sína í Sjallanum
á Akureyri á fostudag en þaðan
liggur leiðin til Selfoss þar sem
sveitin mun halda uppi hinu eina
sanna Sálarstuði á laugardags-
kvöldið.
Guðmundur Jóns-
son gítarleikari
Sálarinnar
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
SÁLIN hans Jóns míns á tónleikum árið 1990, en liðsskipan sveitarinnar hefur aðeins breyst síðan þá.
jútwhótul i ffM*’
HLJÓMSVEITIN mun hefja sumartónleikaferð sína um landið í Sjall-
anum á Akureyri á föstudagskvöldið.
Sálin hans Jóns míns
fagnar tíu ára hljóm-
sveitarafmæli um
þessar mundir og af
því tilefni er ýmislegt
á döfínni hjá sveit-
inni. Rakel Þorbergs-
dóttir hitti Guðmund
Jónsson gítarleikara
Sálarinnar fyrir
skömmu.
20% stgrafsláttur
af öllum vörum
Sumarkjólar
áður kr. J5«99tf
nú kr. 4.990
Hlýrabolir
áður kr. ,l*99(f
nú kr. 1.290
Gallajakkar
áður kr. 5*990”
nú kr. 3.990
Dragtir 40% afsl.
•• ••
og morg onnur
góð tilboð
Laugavegi 54, sími 552 5201