Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 10

Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kosið um sameiningu fímm hreppa í Arnessýslu Kjósendur Skeiðahrepps felldu sameining'u SAMEINING fimm hreppa í uppsveitum Árnes- sýslu var felld í Skeiðahreppi í kosningum um sameiningu sem fram fór sl. laugardag. I Laugar- dalshreppi voru 80,5% kjósenda með sameiningu, í Þingvallahreppi voru 66,7% kjósenda með sam- einingu, í Hrunamannahreppi vora 62% kjósenda með sameiningu og í Biskupstungnahreppi voru 71,6% kjósenda með sameiningu. í Skeiðahreppi voru 80,8% á móti sameiningu en þegar kosið var um sameiningu átta hreppa í maí var meirihluti kjósenda hlynntur sameiningu. „Við getum því byrjað á núlli en hins vegar hafa þessar kosningar verið ákveðin skoðanakönnun og vísbending til sveitarstjómanna," sagði Sigurður Ingi Jóhanns- son, formaður framkvæmdanefndar um samein- ingu. „Það þýðir ekki að gefast upp ef menn telja að sameining sé vænlegasta leiðin til að snúa við þróuninni á landsbyggðinni." Sigurður Ingi sagði að niðurstaðan kæmi ekki á óvart en það kæmi á óvart hversu eindregin hún væri. „Að mínu mati eru þessar niðurstöður af- skaplega skýrar,“ sagði hann. „Annars vegar hafna Skeiðamenn með öllu þessari sameiningu og það hefur reyndar komið fram bæði fyrir og eftir kosningarnar hjá forráðamönnum þeirra að þeir stefna að auknu samstarfí við Gnúpverja. Eins og kom fram I kosningunum eru þeir ekki mótfallnir sameiningu heldur vildu þeir ekki þessa sameiningu.“ Sigurður Ingi bendir á aukið íylgi við samein- ingu í hinum sveitarfélögunum og telur að niður- staðan sé skýr skilaboð til sveitarstjórna um að halda áfram á þessari braut og reyna að mjmda eitt öflugt uppsveitarfélag í sýslunni. Sagði hann að Iíklega myndu þá sveitarfélögin sem fellt hafa sameiningu vera tilbúin að sameinast á næstu ár- um þótt þau hefðu ekki verið tilbúin til þess í vor. „Það er því mitt mat að þessi niðurstaða sé áskor- un til sveitarstjórna þessara fjögurra hreppa um að hefja viðræður nú strax í sumar um áframhald- andi vinnu á þessum sama grundvelli," sagði hann. Skiptar skoðanir um framhaldið Að sögn Sigurðar Inga eru skiptar skoðanir um framhaldið og þá sérstaklega í sveitarstjórn Hrunamannahrepps. „Það er engin önnur leið fær eins og er en að ræða sameiningu hreppanna, þar sem bæði Gnúpverjar og Skeiðamenn hafa hafnað sameiningu við þessi sveitarfélög,“ sagði hann. „En frá upphafí hafa verið ræddar hugmyndir um að sameina sveitarfélögin sitt hvora megin við Hvítá, það er Hrunamannahrepp, Skeiðahrepp og Gnúverjahrepp og hins vegar Biskupstungna- hrepp, Laugardalshrepp, Grímsneshrepp, Grafn- ingshrepp og Þingvallahrepp. Það var ákveðið að fara ekki þá leið en reyna þess í stað að sameina öll sveitarfélögin átta. Eftir á hafa síðan komið fram hugmyndir um að reyna hefði átt minni sameiningu en staðreyndin er sú að slík tillaga verður nú að koma frá Gnúpverjum og Skeiða- mönnum gagnvart okkur Hranamönnum. Við get- um ekki óskað eftir viðræðum við þá sem hafa hafnað sameiningu með svo afgerandi hætti. Þannig að við Hrunamenn eigum ekki kost á öðru en að halda áfram og reyna sameiningu enda skilaboðin nokkuð skýr nema strax komi tilboð frá nágrönnum okkar.“ Sigurður Ingi telur nokkuð Ijóst að sveitarfé- lögin vestan Hvítár, þ.e. Biskupstungur, Laugar- dalshreppur og Þingvallahreppur geti tekið upp viðræður um sameiningu og sagði hann ekki ólík- legt að nýja sveitarfélagið Grímsnes og Grafning- ur myndu óska eftir að koma þar að enda hefði verið meirihluti fyrir sameiningu í nýja sveitarfé- laginu ef atkvæðin úr báðum hreppum hefðu verið talin saman en ekki í sitt hvora lagi. Afgerandi afstaða Sveinn Ingvarsson, oddviti Skeiðahrepps, segir að ekki sé búið að ákveða hvað taki við eftir að meirihluti kjósenda felldi sameininguna við hin sveitarfélögin fjögur en í vor þegar kosið var um sameiningu átta sveitarfélaga var meirihluti fyrir sameiningu í hreppnum. „Við höldum auðvitað áfram samvinnu við nágrannasveitarfélögin og þá sérstaklega við Gnúpverjahrepp. Þetta er afger- andi afstaða sem fólk tekur gegn sameiningu og það er sterkt fyrir þá sem eiga að ráða,“ sagði hann. „Það sem fyrst og fremst hefur valdið þess- ari breytingu er að ekki er verið að kjósa um sam- bærilega sameiningu miðað við fyrri kosningu. Þar munar miklu. Gnúpverjar, sem eru okkar næstu nágrannar era dottnir út og það sem breytir þessari mynd er að kosið var í átta sveit- arfélögum í maí en nú vora þau fímm og af þess- um fimm eru tvö afgerandi stærst. Það breytir hlutföllunum milli sveitarfélaganna og ég held að Skeiðamenn hafi alltaf horft til þess að fylgja Gnúpverjum.“ Sameining við Árborgarsvæðið Sveinn sagði að vafalaust yrðu margir mögu- leikar kannaðir á næstunni. „Eg veit að hér á Skeiðum horfa margir til þess að sameinast Sel- fossi eða Árborgarsvæðinu," sagði hann. „Þangað sækjum við mikið okkar þjónustu og þar er mikill styrkur. Aðrir horfa til þess að sameina jafnvel alla sýsluna í eitt sveitarfélag en þetta eru ómót- aðar hugmyndir hjá fólki,“ sagði hann. Hentugri tímasetn- ingar og stærri vélar SUMARÁÆTLUN íslands- flugs hefur tekið gildi og gildir til ágústloka. Félagið hefur yf- ir fímm flugvélum að ráða í sumar, tveimur 46 sæta ATR vélum og þremur 19 sæta Dornier vélum. I sumar verð- ur lögð megináhersla á hent- ugri tímasetningar sem og stærri vélar til að svara kröfu markaðarins, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Helstu breytingar á flugá- ætlun félagsins era að sæta- framboð til Vestmannaeyja eykst til muna og þjónusta við Akureyringa er aukin með aukavélum á föstudögum og sunnudögum. Að auki hefur brottfarai’tímum til og frá Egilsstöðum verið breytt og mun það gefa Austfix-ðingum aukið svigrúm til styttri ferða á höfuðborgarsvæðið, segir í tilkynningunni. í baði með sædýrum LÖGREGLAN í Reykjavík hafði afskipti af ungum pilti sem farið hafði í bað í keri á Miðbakka í Reykjavík. Með piltinum í baðinu vora krabb- ar, skeljar og önnur sædýr. Bílvelta á Kili FJÓRIR erlendir ferðamenn urðu fyrir því að bílaleigubill þeirra valt á Kjalvegi sl. sunnu- dag, og lenti með þeim liætti ofan á þessum hnuliungi. Sjúkrabíll var sendur á vett- vang og var einn fluttur með honum á sjúkrahús vegna eymsla í hálsi. Fjórmenning- arnir sluppu með skrámur og fengu að fara heim að lokinni skoðun. Morgunblaðið/Margrét Björnsdóttir Byrjar vel á norðausturhorninu ÞAÐ er ekki hægt að segja að veiðin fari illa af stað á norðausturhorninu. Veiði er þar hafin í Sandá í Þistilfirði og Selá í Vopnafirði og veiddist vel á báðum stöðum miðað við aðstæðui' og menn sáu talsvert af laxi. Sextán laxar veiddust í Selá er hún var opnuð á laugardaginn og er það með bestu opnunum á þeim bæ. Þar töldu menn það hafa hrifið vel, að það hlýnaði vel daginn sem opnunin var og laxinn tók þá svona vel. Dag- inn eftir var orðið svínkalt og það blés hraustlega úr norðaustri. Féll þá öll taka niður og aðeins einn lax bættist í kælinn á sunnudaginn. Menn hafa séð talsvert af laxi, m.a. á Sundlaugarsvæðinu, í Djúpubotnum og Fossinum. Þá er margt laxa neð- an laxastigans I Selárfossi og menn hafa séð til fiska i stiganum. Varla sumar í Þistilfirði Slæmt tíðarfar hefur verið í Þistilfirði lengst af í sumar og GUÐMUNDUR Már Stefánsson með fyrsta laxinn af norðaust- urhorninu, 13 punda hrygnu á maðk úr Hæðarþúfuhylí Sandá. var þokusúld og fjögurra stiga hiti þegar áin var opnuð í síðustu viku. Þó veiddust strax þrír laxar og fleiri sáust. Kalt árvatnið veldur hins vegar tregum tökum. Þetta þykir þó lofa góðu, Þistil- fjarðarárnar hafa ekki sýnt sínar bestu hliðar síðustu sumur, en nú þykjast menn sjá teikn á lofti um að betri tímar séu framundan. Reyta úr Laxá á Ásum I gærdag voru komnir 60 laxar úr Laxá á Ásum og er reytingsveiði þessa dagana. Stærsti lax sumarsins veiddist á sunnudaginn og var hann 17 pund. Tölur úr ýmsum áttum í gær voru komnir 5 laxar úr Hít- ará sem er ekki gott. Menn sjá þó slatta af laxi, en hann tekur illa í bjartviðrinu. Rúmlega 50 bleikjur eru og komnar í bók. Rúmlega 30 laxar eru komnir úr Rangánum, 7 úr Eystri Rangá, en um 25 úr Ytri Rangá. Menn sjá þar æ meira af smálaxi. Níu laxar veiddust í Leii-vogsá um helgina, en þá var áin opnuð. Sjö veiddust fyiri daginn, en tveir þann síðari. Lítið vatn og bjart veður stendur veiðiskap fyrir þrifum eins og víðar, því menn sjá talsvert af laxi í ánni. Hollin eru nú að fá um 50 laxa í Norðurá og mest er það smálax þessa dagana. Átta laxar vora komnir af efsta svæði Stóru Laxár í gærdag, en rangt var í veiðipistli okkar um helg- ina að nokkiir væru komnir af neðstu svæðunum. Það var á mis- skilningi byggt. Breytt viðhorf til kuðungsígræðslu Tæki sem á að nota en kemur ekki í stað táknmáls BERGLIND Stefánsdóttir, formaður Félags heyrnarlausra og skólastjóri Vesturhlíðarskóla, telur jákvæða við- hoxfsbreytingu hafa orðið meðal heymarsérfræðinga gagnvart kuð- ungsígræðslu. Það hafi komið fram á norrænni ráðstefnu heymarfræðinga fyrir viku. Nú sé viðurkennt að ígræðslan veiti ekki fulla heyi'n og að táknmálið sé enn nauðsynlegt. Hún segh’ Vesturhlíðarskólann sinna kennslu bama sem gengist hafa undir kuðungsígræðslu en það sé heilbrigð- isyftrvalda að sinna eftirmeðferð í kjölfar læknisaðgerðarinnai’. Ábyrgð heilbrigðisyfírvalda Berglind segh’ Vesturhlíðarskólann taka við börnum sem gengist hafa undir kuðungsígræðslu, eins og öðr- um heymarskertum og heymarlaus- um börnum, til að kenna þeim tákn- mál, talmál og hefðbundnar greinai’. „Mikil áhei’sla er lögð á íslensku í skólanum og ég er ósamþykk þeim sjónarmiðum að ekki þurfi að kenna í skólanum það sem mælt er fyrir um í aðalnámskrá. Heymarlaus og heym- arskert böm eiga sama rétt á mennt- un og aðrír og þau þai’f að búa undir lífið og langskólanám." Berglind telur eðlilegt að heilbrigðisyfirvöld sinni eftirmeðferð eftir kuðungsígræðslu, þ.e. heymar- og talþjálfun. „Það er læknisfræðileg aðgerð og kennarar era ekki réttu aðilarnir til að veita meðferð eftir slíkar aðgerðir.“ Börnin ná mestum þroska tvítyngd Bei’glind hefur fylgst gi’annt með umræðum um kuðungsígræðslu á Norðurlöndunum og 1 Evrópu og segir umræðuna hafa breyst síðustu árin. „Skoðun heyrnarlausra á kuð- ungsígræðslunni hefur breyst mikið og helst það í hendur við bi-eytt við- horf þeiri’a sem staðið hafa að ígræðslunni. Upphaflega var talað um að þetta myndi veita góða heyrn og börnin þyrftu ekki að nota tákn- mál. En nú er viðurkennt eða ljóst að þetta veith’ ekki fulla heyrn heldur má noþa þetta svipað og heyrnar- tæki. Áður vorum við hrædd um að táknmálið yrði lagt til hliðar og börnin misstu það sem móðurmál sitt en næðu svo aldrei fullum tökum á talmáli þar sem þau era enn mjög heyrnarskei’t. Rannsóknir sem staðið hafa allt frá 1980 sýna fram á að börnin ná mestum þroska með því að vera tví- tyngd, þ.e. læra bæði táknmál og svo þjóðartunguna. Við viljum auð- vitað að kuðungsígi-æðsla sé notuð eins og önnur tækni sem hjálpar heyrnarlausum og heymarskertum en það má ekki gei’a sér óraunhæfar væntingar um árangur eða nota rangar aðferðir í kjölfarið. Þetta er eins og menn segja enn meiri bylt- ing fyrir þá sem hafa haft heyrn en misst hana og kunna því málið fyr- ir.“ Bei’glind segir þá umræðu sem nú eigi sér stað hér um hvemig sinna eigi börnum eftir kuðungsígræðslu í samræmi við það sem gerst hafi ann- ars staðar. Deilt sé um hvar hlut- verki heilbi’igðisyfírvalda sleppi og skólakerfíð eigi að taka við. Þetta sé mál sem þurfi að ræða og finna lausn á. „Vonandi verður hægt að ná góðri samvinnu hér og mér sýnist fagaðil- ar hér hafa sameiginlegan skilning á því að kuðungsígræðslan sé hjálp- artæki en komi ekki í stað tákn- máls.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.