Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 11
FRETTIR
Ráðstefna um Norðurlöndin og kalda stríðið
Island fyrirmyndarland í
sovéskum bókmenntum
ISKRIFUM sovéskra rithöf-
unda eftir dauða Stalíns 1953
varð ísland á suman hátt fyrir-
mynd hvað varðaði þjóðfélags-
skipan og varðveislu þjóðmenningar,
þrátt fyrir að landið væri eitt hinna
kapítalísku vesturvelda. Þeir dáðust
að stéttleysi íslensks samfélags, lífs-
gæðum almennings og opnu stjórn-
kerfí. Þetta kom fram í fyrirlestri
Áma Bergmanns bókmenntafræð-
ings á ráðstefnunni á laugardag.
A valdatíma Stalíns ríkti mikil tor-
tryggni gagnvart öllum erlendum
menningaráhrifum. Eftir að „þíðan“
tók við í Sovétríkjunum var faiið að
þýða ýmsar samtímabókmenntir á
rússnesku, en það hafði áður verið
einkar sjaldgæft. Meðal erlendra höf-
unda sem nú hlutu náð í augum sov-
éskra yfirvalda vai- Halldór Laxness.
Árni segir að rússneskir bók-
menntagagnrýnendur hafi ekki ein-
göngu metið hann út frá mælikvarða
pólitíski-ar rétthugsunar heldur var
ft'umleiki einnig talinn honum til
tekna og í máli þeirra brá fyrir gam-
alli rómantískri hefð frá því fyrir
daga byltingarinnar um gefandi bar-
áttu manns og náttúru á norðurslóð-
um og lærdóma sótta í hetjuskáld-
skap fortíðar.
Jafnframt var á þessum tíma tekið
til við að þýða íslenskar miðaldabók-
menntir, og segir Ami að þær hafi
jafnvel haft meiri áhrif en bækur
Halldórs. Gagnrýnendur sögðu að
þar væru komnar jarðbundnar og
raunverulega raunsæjar bókmennt-
ir, ólíkt stefnu hugmyndafræðilegrar
rétthugsunar.
Ami segir að hugmyndir Sovét-
manna um íslenskar miðaldabók-
menntir sem ein-
stakt fyrirbæri hafi
smám saman færst
yfir á Ísland samtím-
ans. Fræðimenn sem
heimsóttu landið á
sjöunda áratugnum
skrifuðu að þar væri
lifandi þjóðannenn-
ing ' varðveitt sem
næði tO allrar alþýðu
manna. Þeir töldu að
Sovétmenn gætu
dregið lærdóma af
Islendingum, en sú
hugsun var mjög
óvenjuleg í skrifum
þess tíma. Algengast
var að blaðamenn og
aðrir þeir sem fóru
til vesturlanda gæfu
þá mynd af vesturlöndum að þar
væri þjóðfélögin á hverfandi hveli
vegna arðráns kapítalismans.
Fleira sameinaði
en aðgreindi
Finnski sagnfræðingurinn Jussi
M. Hahnimáki fjallaði um menning-
arárekstra milli Norðurlandabúa og
Bandaríkjamanna í kalda stríðinu.
Meginniðurstöður hans eru þó að í
huga beggja hafi það verið fleira sem
sameinaði en aðgreindi. Helstu sam-
eiginlegu gildi voru vinnusemi, trú á
lýðræðishugsjón og réttindi einstak-
lingsins.
Norðurlandabúai’ gagnrýndu hins
vegar það sem þeir sáu sem óhefta
einstaklingshyggju Bandaríkjamanna
og mismunum kynþátta. Bandaríkja-
menn litu mikil ríkisafskipti á Norð-
urlöndunum óhýru auga.
I kjölfai- stríðsins voru viðhorf
Norðurlandabúa til Bandaríkjanna
yfirleitt jákvæð, en í byrjun 6. áratug-
ai'ins jókst torti’yggni þeirra í kjölfar
baráttu öldungadeildarþingmannsins
McCarthy gegn kommúnískum áhrif-
um í bandarísku þjóðfélagi.
McCarthy líkt við Goebbels
Hahnimáki segir meðal annars frá
skýrslum sem sendiherrar í Nator-
íkjum voru beðnir að skila til utan-
ríkisráðuneytisins um vaxandi efa-
íslenskar miðaldabókmenntír og rit Hall-
dórs Laxness vöktu aðdáun sovéskra fræði-
manna á íslenskri menningu og þjóðfélagi,
þrátt fyrir kapítalískt þjóðskipulag. Heigi
Þorsteinsson og Kristján Jónsson segja frá
fyrirlestrum Arna Bergmanns og nokkurra
útlendra fræðimanna á síðasta degi ráð-
stefnu um Norðurlöndin og kalda stríðið.
RUSSNESKI sellóleikarinn Rostropovitch, sem hér heilsar Halldóri
Laxness, var ásamt öðrum sovéskum menningarfrömuðum sendur til
Islands til að vinna hugi íslendinga í kalda stríðinu. Áhrifin voru gagn-
kvæm, því skáldverk Halldórs heilluðu sovéska bókmenntaunnendur.
þess lýstu þeir fjöldamenningu sem
mótaði alla í sömu mynd. Jafnframt
töldu þeir að of mikið væri af lögum
og að lögreglan hefði afskipti af of
mörgum þáttum einkalífsins.
Ríkisforsjá frá
vöggu til grafar
Samkvæmt Hahnimaki eru mun
færri heimildir til um viðhorf Banda-
ríkjamanna til Norðurlandabúa en
öfugt, enda urðu íbúar stórveldisins
ekki svo mjög varir þessara friðsælu
smáríkja í Norður-Evrópu. Neikvæð
viðhorf sem fram komu voru helst á
þann veg að Norðurlandabúar væru
þröngsýnir, einlitir tækniveldissinnar.
Viðhorf Bandaríkjamanna gagn-
vart Svíum komu skýrar fram en
gagnvart öðrum Norðurlöndum. Ár-
ið 1951 birtist til dæmis gi'ein í tíma-
ritinu Time þar sem gagnrýnd var
ofverndun þegnanna í Svíþjóð, þar
sem séð væri fyrir hverjum einstak-
lingi frá vöggu til grafar. Þetta ylli
ólgandi óánægju undir yfirborðinu
sem kæmi fram í aukinni tíðni skiln-
aða, fjölda óskilgetinna bama, áfeng-
issýki, afbrotum unglinga og skorti á
trúaráhuga.
Balkanskagi og Skandinavía
herfræðilegir útjaðrar
Búlgarinn Jordan Baev sagði frá
rannsóknum sínum en áður hefur
verið rakið hér í blaðinu hvað hann
sagði um samskipti íslenskra komm-
únista við þekktasta leiðtoga búlgar-
skra kommúnista og yfirmann Kom-
intern, Georgí Dimitrov. Dimifrov
var mikill áhrifamaður í alþjóða-
hreyfingu kommúnista og heims-
frægur fyrir vörn sína í réttarhöld-
um í Þýskalandi eftir að ríkisþing-
húsið brann. Nasistar kenndu
vinstrimönnum um brunann.
Baev fjallaði um Skandinavíu og
Balkanskaga, tvo útjaðra í herfræði
og áætlunum bandalaganna beggja,
Atlantshafsbandalagsins og Varsjár-
bandalagsins, í kalda sfríðinu. Hugs-
anleg átök milli heraflanna í Mið- og
Vestur-Evrópu voru þungamiðjan í
öllum vangaveltum um heimsstyij-
öld milli austurs og vesturs.
Ólafur K. Magnússon
SAMSKIPTI Svía og Bandarikjamanna hafa
aldrei verið stirðari en á tímum Víetnamstríðs-
ins, sem Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, barðist ákaft gegn.
semdir Evrópumanna í garð Banda-
ríkjamanna sem forystuafls í álfunni.
I samantekt var sagt um niðurstöð-
urnar að McCarthyisminn hefði
„gert meira til að veikja stöðu
Bandaríkjamanna og spilla fyrfr for-
ystuhlutverki þeirra en nokkur ann-
ar einstakur þáttur“. Borgaralegt
sænskt tímarit skrifaði árið 1953 að
„Goebbels hefði öfundað McCarthy
af aðferðum hans“, og að þingmaður-
inn hefði valdið ímynd Bandaríkja-
manna ómældum skaða.
Fullbrightáætlunin svonefnda,
sem komið var í framkvæmd í lok 5.
áratugarins og fól í sér nemenda-
bmpti milli Bandaríkjanna og ann-
arra landa, hafði að áliti Hahnimakis
þau áhrif að auka skilning milli
Norðurlandabúa og Bandaríkjanna.
Jafnframt kom þó í ljós ýmis menn-
ingarmunur. í rannsókn sem gerð
var 1954 sögðust Norðurlandabúarn-
fr margir í upphafí dvalar sinnar
vera ánægðir með hvað Bandaríkja-
menn væru opnir og einlægir, en eft-
ir nokkra mánuði kvörtuðu þeir yfir
því að vinsemdin væri yfirborðsleg.
Þeim fannst líka nóg um hversu
stórt hlutverk trúin lék í lífí fólks og
hversu mikil togstreita var milli
fólks vegna kynþáttar og þjóðernis-
uppruna. Sú ímynd einstaklings-
hyggju sem gestirnir höfðu fyrir-
fram gefið sér breyttist og í stað
Seint á sjötta áratugnum fóru
búlgarskir kommúnistar að huga að
hlutleysisstefnu Svía, sem þeim hafði
áður þótt mefri í orði en á borði og
jafnframt var reynt að efla tengsl við
ýmis samtök og flokka í NATO-ríkj-
um á Norðurlöndum í von um að ýta
undir sjálfstæða stefnu ríkjanna inn-
an bandalagsins og gagnvart Banda-
ríkjunum. Möguleikar á ósætti og
klofningi voru kannaðir og reynt að
nýta þá.
Bændasamband Búlgaríu og
Framsóknarflokkurinn
Baev ræddi um Bændasamband
Búlgaríu, sem var sérstakur stjórn-
málaflokkur, algerlega undir hand-
arjaðri kommúnistaflokksins. Þess
má geta að Framsóknarflokkurinn
íslenski átti vinsamleg samskipti við
Bændasambandið og einnig Ihalds-
flokkurinn danski, að sögn Baevs.
Víða í V-Evrópu og ekki síst á
Norðurlöndum fannst miðjuflokkum
og hófsömum hægriflokkum auð-
veldara að taka þátt í ráðstefnum um
„slökun, frið og alþjóðleg samskipti"
og kjarnorkuvopnalaus svæði ef full-
trúar kommúnistaríkjanna voru und-
ir sakleysislegri fána en þeim rauða.
Rússnesku fræðimennirnir Maxím
Korobotsjkín og Alexei Komarov
ræddu einkum í erindum sínum
stefnu Sovétmanna gagnvart Finn-
um á fimmta og sjötta áratugnum og
Svíinn Sune Persson um hlutleysis-
stefnu Svía og þátttöku þeirra I frið-
argæslu Sameinuðu þjóðanna.
Korobotsjkín sagði að smáþjóðir
hefðu ekki ávallt orðið að sitja og
standa í kalda stríðinu eins og risa-
veldin fyrirskipuðu. Hann sagði sam-
skipti Sovétríkjanna við Norðmenn
og Finna fyrstu ár kalda stríðsins
vera gott dæmi um þetta.
Sovétstjóminni hefði þó tekist að
tryggja sér áhrif á stefnu Finna.
Þannig hættu Finnar við að þiggja
Marshallhjálp vegna þrýstings frá
Moskvu og Mauno Pekkala, félagi í
samfylkingu kommúnista og Sovét-
vina, varð forsætisráðherra 1947. Að
áliti Korobotsjkíns fékk hann „nauð-
synlegar leiðbeiningar" frá Moskvu-
mönnum er gerður var samningur
milli ríkjanna um gagnkvæma að-
stoð. Vegna kænsku Juhos Paasikiv-
is forseta hafi lokaniðurstaðan 1948
ekki orðið Finnum óhagstæðari en
svo að þeir héldu nokkurn veginn
sjálfstæði í varnarmálum.
Slæm reynsla
af Vetrarstríðinu
Ákvæði var í samningnum er skilja
mátti sem yfirlýsingu um hlutleysi
Finna í kalda stríðinu. Korobotsjkín
sagði Urho Kekkonen, síðar forseta,
hafa getað sannfært Molotov um sál-
fræðilega nauðsyn ákvæðisins.
Á hinn bóginn hafi sovétstjórnin
aldrei velt fyrir sér að beita hervaldi
til að tryggja stöðu sína í Finnlandi.
Reynslan af stríðsrekstri gegn Finn-
um í Vetrarstríðinu og síðar heims-
styrjöldinni hafí verið slík að Stalín
og Molotov hafi útilokað hernám
Finnlands.
Augljós þrýstingur Stalíns á Finna
hafi valdið aukinni tortryggni á Vest-
urlöndum í garð Sovétstjórnarinnar.
Árið 1948 hafi Norðmenn óttast að
næst fengju þeir samningstilboð um
gagnkvæma aðstoð, Korobotsjkín
segir þó engin skjöl benda til að
hætta hafi verið á því. En valdarán
kommúnista í Tékkóslóvakíu sama ár
fyllti mælinn og ári síðar urðu þrjú
Norðurlandanna stofnaðilar NATO.
Athyglisvert sé að sovétstjórnin
hafi eftir kosningaósigur kommún-
ista I Finnlandi sætt sig við að þeir
hyrfu úr ríkisstjórn. Tekin hafi verið
sú grundvallarákvörðun að efla sam-
skiptin við Kekkonen og borgaralega
stuðningsmenn hans, útiloka þannig
eftir fongum áhrif jafnaðarmanna,
sem voru harðfr andkommúnistar og
láta kommúnista í reynd róa. Þessi
stefna varð síðan leiðaríjós Moskvu-
manna næstu áratugina þegar feng-
ist var við Finna.
Sérlilboð
ui Barcelona
22. og 29. júlí
frá kr. 29.532
Flugsæti
Flug og bill
Flug og hótel
Tryggðu þér nú sfðustu sætin til
Barcelona í júlí á hreint frábæru til-
boðsverði og kynnstu þessari heill-
andi borg sem á ekki sinn líka í
allri Evrópu. Hér getur þú notið
þess að búa í borginni sjálfri, eða
farið til strandbæjarins Sitges, þar
sem þú finnur fallega strönd og ein-
stakt mannlíf yfir sumartímann. Við bjóðum nú sértilboð á
Adagio hótelinu, einföldu en góðu hóteli í hjarta Barcelona, rétt
við Römbluna. Öll herbergi með sjónvarpi, síma og loftkælingu.
Einnig getur þú valið um að kaupa eingöngu flugsæti, flug og bíl,
eða flug og hótel.
Yerð kr.
29.532
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, flug-
sæti eingöngu.
Verð kr.
39.960
M.v. 2 í herbergi, Adagio hótelið,
1 vika, 22. eða 29. júlí.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sfmi 562 4600