Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Grasiglufaraldur herjar á tún 1 Jökuldal
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
„TIL AÐ meta nokkurn veginn hve mikið væri í túnunum hjá mér, taldi ég fjölda maðka í 10X10 cm ferhyrn-
ingi og margfaldaði með hundrað til að fá fjölda á fermetra," sagði Sigurður.
20 hektarar uppétnir
GRASIGLAN hefur étið helming túnanna í Vaðbrekku, alls 20 ha,
og milli 100 og 200 ha úthaga.
GRASIGLUFARALDUR herjar
nú á tún og úthaga Sigurðar Aðal-
steinssonar, bónda á Vaðbrekku í
Jökuldal. Túnin eru gul og hefur
maðkurinn þegar étið um 20 hekt-
ara.
„Þetta byrjaði í lok maí, ég hélt
þá að túnin væru kalin, en í byrjun
júní sé ég að maðkar eru farnir að
skríða upp á veginn sem liggur í
gegnum túnin og þá áttaði ég mig á
hvað var að gerast. Þá var orðið svo
mikið af maðki í túnunum að það
var ekkert við því að gera,“ sagði
Sigurður í samtali við Morgunblaðið
í gær. Hann sagði ennfremur að til
að eyða maðkinum hefði þurft að
hefja aðgerðir strax, en þegar
maðkurinn væri búinn að ná sér svo
vel á strik væri lítið hægt að aðhaf-
ast.
Sigurður kvaðst verða fyrir miklu
tjóni af völdum maðksins. Hann væri
búinn að éta bróðurpart túnanna
hans svo hann þyrfti að kaupa allt
hey fyrir veturinn. Hins vegar hafí
hann ekki verið búinn að bera áburð
á túnin og það hafí komið sér vel.
Rigningin slær af maðkinum
„Þetta virðist hafa kviknað í út-
haganum og svo skríður maðkurinn
inn á túnin þegar hann er búinn að
éta úthagann. Sagt er að allt að
3.500 maðkar séu á hverjum fer-
metra, en samkvæmt mínum mæl-
ingum voru milli 8.900-11.500 maðk-
ar á túninu þar sem mest var, en
1.500-3.700 á öðrum túnum.“
Sigurður er með um 40 ha tún og
hefur maðkurinn étið um 20 ha nú
þegar, auk þess sem hann hefur étið
milli 100 og 200 ha af úthaganum.
Maðkurinn hefur einnig gert vart við
sig á túnum bæjarins Brú í Jökuldal.
Sigurður sagði að faraldrar sem
þessir gengu yfir á tveimur til
þremur árum og kæmu upp eftir
snjóþunga vetur og þurr og köld
vor. „Síðustu daga hefur ringt
hérna fyrir austan og það slær
nokkuð af maðkinum."
Morgunblaðið/Anna Ingólfa.
UNDIRRITUN viljayfirlýsingar um samstarf og stofnun Fræðslunets
Austurlands. Efri röð frá vinstri: Óðinn Gunnar Óðinsson, Stefán
Ólafsson, Einar Már Sigurðarson og Helga Hreinsdóttir. Neðri röð frá
vinstri: Rögnvaldur Ólafsson HÍ, Þórir Ólafsson KHÍ, Bjarni Hjarðar
HA og Emil Björnsson SSA.
Viljayfírlýsing á málþingi um fjar- og
símenntun á Egilsstöðum
Háskólanám
á Austurlandi
Egilsstaðir - Málþing um fjar- og
símenntun var haldið á Egilsstöð-
um. Þingið var haldið í tengslum við
fyrirhugaða stofnun Fræðslunets
Austurlands, en starfandi hefur ver-
ið háskólanefnd á vegum Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi við að
vinna að því að fá nám á háskóla-
stigi á Austurland.
I lok málþingsins var undirrituð
viljayfirlýsing Háskóla Islands, Há-
skólans á Akureyri, Kennarahá-
skóla íslands og þess efnis að þessir
skólar í samvinnu við háskólanefnd
SSA væru reiðubúnir að vinna að
þróun og standa að stofnun
Fræðslunets Austurlands í sam-
vinnu við aðila á Austurlandi.
Starfsmaður ráðinn til að
undirbúa samstarf
Óðinn Gunnar Óðinsson hefur
verið ráðinn starfsmaður til þess að
vinna að þessum málum fram til
áramóta. Hann segir stefnt að því
að kennsla hefjist á háskólastigi hér
austanlands næsta vetur. Hann seg-
ir áhuga mikinn meðal einstaklinga
og stjórnenda fyrirtækja enda sé
fólk að átta sig á því að sí- og endur-
menntun er nauðsynlegur þáttur í
rekstri fyrirtækja. Óðinn Gunnar
segir hlutverk fræðslunetsins vera
að ná inn í fjórðunginn námi á há-
skólastigi þannig að fólk geti stund-
að nám, næst sinni heimabyggð og
að netið verði tengiliður skóla og at-
vinnulífs.
Reykhólasveit
Þurr tún
farin að
brenna
Miðhúsum - Þar sem langvar-
andi kuldar og þurrkar hafa
verið má búast við að sláttur
hefjist ekki að ráði fyrr en
seinnihluta júlímánaðar. Gras-
spretta stendur í stað og þurr
tún eru farin að brenna sem
kallað er, en það er þegar grös
sölna á þurrustu svæðunum.
Allgott útlit er fyrir berja-
sprettu og blómgun lyngsins
hefur tekist vel. Ef sumai-
verður gott má búast við góðri
sprettu á öllum þremur berja-
tegundum, krækiberjum, blá-
berjum og aðalbláberjum.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
FRÁ afhendingu sjúkrarúmsins. Talið frá vinstri: Sólveig Kristinsdótt-
ir, hjúkrunarforstjóri Höfða, Margrét Guðmunsdóttir, deildarstjóri
Höfða, Gestur Sveinbjörnsson, formaður líknarsjóðs og Benjamín Jós-
efsson, formaður Lionsklúbbsins Akraness.
Dvalarheimili færð gjöf
Birki og gulvíðir gróðursett
í minningu ábúenda á Neðra-Asi
STEINN Kárason garðyrkjufræðingur og Svanhildur Steinsdóttir,
fyrrum skólastjóri og húsfreyja f Neðra-Ási, í blíðviðri við lok
gróðursetningarinnar.
Akranesi - Lionsklúbbur Akra-
ness hefur afhent Dvalarheimil-
inu Höfða góða gjöf í tilefni af 20
ára afmæli heimilisins sem haldið
var hátíðlegt fyrr á þessu ári. Um
er að ræða rafdrifíð rúm ásamt
náttborði sem kemur sér sérlega
vel fyrir vistmenn heimilisins.
Það var Sólveig Kristinsdóttir,
hjúkrunarforstjóri Höfða sem
tók við gjöfinni frá formanni
líknarsjóðs Lionsklúbbs Akra-
ness, Gesti Sveinbjörnssyni, en
afhendingin fór fram í húsakynn-
um Höfða föstudaginn 17. apríl
sl.
NÝLEGA voru gróðursettar 1.200
birkiplöntur og 30 gulvíðiplöntur í
landi Neðra-Áss í Hjaltadal til minn-
ingar um Soffíu Jónsdóttur og Stein
Stefánsson, fyrrum ábúendur í
Neðra-Ási. Það eru afkomendur
Soffíu og Steins sem að verkinu
standa en sl. sumar var markað
fyrsta skrefíð í tilurð skógarteigs til
minningar um þau hjónin en þá voru
gróðursettar 2.680 birkiplöntur.
Hátt í 40 manns komu að verkinu að
þessu sinni.
Verðandi skógarteigur sem alls er
rúmir 5 ha að stærð er í landi Erl-
ings Garðarssonar, bónda í Neðra-
Ási, sonar Svanhildar dóttur Steins
og Soffíu. Nú hefur verið plantað alls
í u.þ.b. einn hektara lands.
Birkiplönturnar sem gróðursettar
hafa verið eru skagfirskar að upp-
runa en þær eiga rætur sínar að
rekja til Austurdals í Skagafírði. Það
var Steinn Kárason garðyrkjufræð-
ingur sem safnaði fræi af 4 áhuga-
verðustu birkitrjánum og tók
græðlinga af 4 áhugaverðustu gul-
víðiplöntunum í Fögruhlíð, þar i
dalnum haustið 1995 en Steinn hefur
haft umsjón með framkvæmdunum.
Birkiplönturnar hafa verið fram-
leiddar í Gróðrastöðinni Barra hf. á
Egilsstöðum en auk þess gaf Garð-
yrkjumeistarinn ehf. í Reykjavík 500
birkiplöntur að þessu sinni.
Gulvíðigi'æðlingarnir voru geymd-
ir í frysti fyrsta veturinn en fóru síð-
an í sérræktun og eru móðurplönt-
urnar nú í framhaldsræktun Reykja-
vík.
Fyrirhugað er að halda ræktunar-
stai'fínu áfram að ári.