Morgunblaðið - 30.06.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
PRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 25
Allt milli him-
ins og jarðar
MYNÐLIST
L j ósiny ndakoinpan,
Kaupvangsstræti 24,
Akureyri
LJÓSMYNDIR
ANDREASZÚST
Til 10. júlí. Opið þriðjudaga til
laugardaga frá kl. 14-17.
LJÓSMYNDAKOMPAN heitir
lítið herbergi í Kaupvangsstræti 24,
Akureyri, sem Aðalheiður S. Ey-
steinsdóttir rekur. Sjálf er Aðal-
heiður listmálari, en fóstrar óbland-
inn áhuga á listrænni Ijósmyndun
eða ljósmyndlist eins og réttast
væri að kalla fyrirbærið. Hafí Ljós-
myndakompan farið framhjá ein-
hverjum er rétt að taka það fram að
hún er í sama húsi og Listasafnið á
Akureyri, hægra megin við inn-
ganginn í safnið.
Syningin á verkum svissneska
listamannsins Andreas Zúst, frá
Zúrieh, er 6. sýningin sem Aðalheið-
ur skipuleggur í Ljósmyndakomp-
unni. Zúst - fæddur í Bern, 1947 -
er lærður náttúrufræðingur frá
ETH - Tækniháskóla Svissneska
fylkjasambandsins - í Zúrich. Frá
1973 til 1980 vann hann sem veður-
og jöklafræðingur í Kanada, á
Grænlandi og í svissnesku Ölpun-
um.
Frá upphafi 9. áratugarins hafa
fjölmargar sýningar Zúst í Sviss og
víðar borið vott um fjölhæfni hans,
bæði sem ljósmyndara og málara.
Það virðist nefnilega hvergi vefjast
fyrir iistamanninum hvaða „línu“
skuli taka. Það er ef til vill það at-
hyglisverða og skemmtilega við list
Zúst hve laus hann er við fastmót-
aðar og fyrirframgefnar skilgrein-
ingar á hugtakinu myndlist.
Sveppablek, rauðlúsarblek, sepía
og jurtalitir eru meðal þeirra nátt-
úruefna sem Zúst notar í verk sín
auk ljósmyndatækninnar. Ljós-
ÚR myndröðinni Botanische
Pigmente, 1986-89 og 1991.
Hér speglast listamaðurinn í
vatnsdropum ætisvepps.
myndaraðirnar eru innbyrðis jafnó-
iíkar og tæknibrögð listamannsins
eru margvísleg. Það leiðir hugann
ósjálfrátt að þeim mikla mun sem er
á ljósmyndlist og málaralist. Zúst
virðist einmitt hafa velt þeim and-
stæðum fyrir sér.
Áður en ljósmyndatæknin leysti
drátt- og málaralist af hólmi sem
sjónrænn heimilda- og frásagnar-
miðill vó myndefnið jafnt og tækni
listamannsins. Eftir að ljósmyndin
rændi dráttlistina hefðbundnum
túlkunargrundvelli sínum varð út-
færslan hinstu rök myndlistarinnar.
Þegar abstraktlistin leysti hlut-
bundna tjáningu af hólmi var það
einungis til að undirstrika það sem
öllum var ljóst: Það gilti einu hverju
máiverkið lýsti; efnistökin voru mál
málanna. Framhjá þeirri nauðvöm
málverksins leitast Zúst við að
stýra ljósmyndum sínum án þess að
slá af myndrænum kröfum.
Halldór Björn Runólfsson
EITT verka Rebekku.
Rebekka
sýnir á
Laugar-
vatni
ELÍN Rebekka Tryggvadóttir í
Art-Hún sýnir verk sín í sumar á
Hótel Eddu, Laugarvatni.
Art-Hún er gallerí og vinnu-
stofur sex listakvenna sem vinna
að list sinni. Verk Rebekku er
unnin með olíulitum á striga og
eru nú átta málverk í gestamót-
töku Menntaskólans en eitt í
íþróttakennaraskólanum (áður
Húsmæðraskólinn á Laugar-
vatni). Hægt er að skoða mynd-
irnar alla daga fram til 20.
ágúst.
Tvær myndlist-
arsýningar í
Hótel Framnesi
NÚ STANDA yfir tvær myndlist-
arsýningar í Hótel Framnesi,
Grundarfirði, og eru þær í tengsl-
um við opnunarhátíð hótelsins sem
haldin var fyrir skömmu. Það er
sýning Sigríðar Gísladóttur frá
Bjarnarfossi í Staðarsveit er nefn-
ist Þarfasti þjónninn (Lurkur II),
olía á striga og sýning Áslaugar
Pétursdóttur frá Grundarfirði, verk
unnin með blandaðri tækni.
Sigríður stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1989-1993 og var gestanemandi við
Statens Kunstacademy í Ósló 1994.
Hún hefur haldið nokkrar einka-
sýningar hér á landi, í Ósló og
París.
ÁMORGUN
ALLIR AÐ G
LÍFEYRIS
Frá og með 1. júií taka ný lög gildi sem skylda alla til að greiða í lífeyrissjóð.
Nú er lag, veldu frelsi til að njóta lífsins eftir þínu höfði. Þú þarft að byrja
snemma að safna í réttum sjóði til að geta notið lífsins síðar á ævinni.
Hringdu í síma 540 5060 eða komdu til okkar á Laugaveg 170
Eitt
mesta
úrval
landsins
af
útivistar-
vörum
* allt á einum staö
Opið í sumat
món - mið kl. 09-18
fimm-fðst kl. 09-19
laugardaga kl. 10-16
. P
\ AMí>.
«
«
«
«
«
«
3
|4,
FRJALSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er stærsti og elsti séreignarlífeyrissjóður landsins.
NGAR
AFSLATIUR
á götuskóm
oföllum
tegundum
#
hin heimsþekkta sportskólfna
.ý
❖
...Skeifunni 6, Reykjavík
tegundum a m e r 1 5 k u g ö * u s k 6 r
’ | ' ITALSKIR GONGUSKOR GEYSIR
fróbærir gönguskór úr leári
toppurmn/ í/ MOvL&t
n
SEGUGERÐIH ÆGIR
Skeifan 6 • Reykjavík • Sími 533 4450