Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 35

Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 35 AÐSENDAR GREINAR Hvert skal stefna? ÁRIÐ 1995 varð að ráði að Alþýðubanda- lagið byði fram undir heitinu Alþýðubanda- lag og óháðir. Ástæðan var sú að hópur fólks - og var undirritaður þeirra á meðal - sem ekki var flokksbundið vildi taka þátt í stjórn- málabaráttu og freista þess að safna liði á meðal þeirra sem ekki höfðu gengið í stjórn- málaflokka en væru engu að síður reiðu- búnir að beita sér á vettvangi stjórnmál- anna. Á þessum tíma var að ljúka fjögurra ára kjörtíma- bili Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks og höfðu menn þá heldur betur fengið smjörþefínn af því sem síðar varð framhald á í samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks á þessu kjörtímabili. Einka- væðing og hvers kyns gjaldtaka, jafnt innan velferðarþjónustu sem utan, komst á dagskrá og kröfum verkalýðshreyfingar um jöfnuð var vísað til fóðurhúsanna. Skattar voru lækkaðir á fyrirtækjum og klyfjum hlaðið á launafólk. Iðulega var þetta réttlætt í ljósi efnahags- legra þrenginga sem í raun er und- arlegur fyrirsláttur því þegar þrengir að eru lítil búhyggindi að láta hina þurfandi blæða svo unnt sé að bæta hag hinna sem eru af- lögufærir. Á þessum tíma voru boð- aðar grundvallarbreytingar á allri stjórnsýslu og skipulagi samfélags- ins. Innan verkalýðshreyfingar, og víðar, þótti okkur sem barist höfð- um gegn þessari þróun og vildum ganga í gagnstæða átt og efla fé- lagsleg gildi, að nú gæti enginn skorast undan þvi að leggjast á hin- ar pólitísku árar. Þar sem okkur þótti stefna Al- þýðubandalagsins ríma vel við okk- ar pólitísku áherslur og samvisku og þar sem við áttum kost á því að taka þátt í að móta þau áhersluat- riði sem G-listaframboðið lagði fyr- ir kjósendur var brugðið á það ráð- ið að hafa þennan hátt á. Hefur þetta gengið ágætlega upp og aldrei hef ég orðið var við annað en að samstarf hafi verið með miklum ágætum á þessu kjörtímabili. Auð- vitað er það hálfankannaleg staða að starfa með pólitískum flokki án þess að taka að fullu þátt í starfi hans og getur slíkt aldrei gengið til frambúðar. Sjálfur hef ég íhugað að ganga í Alþýðubandalagið en að sjálfsögðu mun það ráðast af því hvort sá flokkur hugir sjálfum sér lífdaga. Nú bregður svo við ekki alls fyrir löngu að stofnað er til félagsskapar sem ber heitið Stefna. Þorri þeirra sem aðild áttu að þessari félags- stofnun í upphafi voru einstaklingar sem komu að fyrrgreindu kosningabandalagi við Alþýðubandalagið undir heitinu óháðir. Fljótlega komu þó fleiri til sögunnar og er það fólk víðar að en úr fyrrgreindum pólitísk- um ranni. Til þessa fé- lags er stofnað til að skapa vettvang fyrir stj órnmálaumræðu sem grundvallast m.a. á þeim meginmark- miðum að efla samfélagsvitund og treysta samfélagsþjónustuna, reka framsækna umhverfisstefnu og tryggja að auðlindir til lands og sjávar verði sameign þjóðarinnar. Þá er lögð höfuðáhersla á að spyrna við fótum gegn einkavæðingu og hefja þess í stað gagnsókn til að bæta velferðarþjónustu. Nú má spyrja sem svo, hvort þetta séu ekki einmitt þau sjónar- mið sem einkennt hafi Alþýðu- bandalagið. Svar mitt við þeirri spurningu er vitaskuld játandi enda engin tilviljun að ég hef viljað starfa með þeim flokki. Á hitt er að líta að innan Stefnu er fólk úr öðr- um stjórnmálafylkingum sem hefur tekið því fegins hendi að þetta félag skuli verða til. Með árangur að leiðarljósi Við annað tilefni verður nánar gerð grein fyrir Stefnu og mark- miðum félagsins. Hér verður hins vegar vikið að svokölluðum samein- ingarmálum fyrir næstu kosningar og er þar vísað til hugmynda um að slá í eitt Alþýðuflokki, Alþýðu- bandalagi og Kvennalista. I langan tíma hef ég verið þeirrar skoðunar að þrátt fyrir ólíkar áherslur eigi þessir flokkar að starfa saman og reyndar allir þeir sem vilja kenna sig við félagshyggju. Ég tel hins vegar brýnt að þrennt sé haft að leiðarljósi: I fyrsta lagi að menn losi sig við kvótahugsun gagnvart kjósendum, að flokkar telji sig hafa umboð til að ráðstafa þeim að eigin vild; í öðru lagi að skipulagsbreyt- ingar á vettvangi stjórnmálanna verði ekki til að deyfa póltíska bar- áttu og í þriðja lagi er mikilvægt að vera praktískur í hugsun og hug- leiða rækilega hvernig árangri verði best náð. I þessu samhengi er rétt að spyrja hvað skuli til bragðs taka í þjóðfélagi þar sem markaðshyggja hefur náð að skjóta rótum í þeim mæli sem nú hefur gerst? Tvennt Ögmundur Jónasson Mikið úrval af fallegum rúmfatnaii Skólavörðuatíg 21, Reykjavík, síini 551 4050 Vönduð - ryðfrí HÚSASKILTI EPÖXY MALNING Hágæðamálning fyrir gólf og veggi wwjs'Mméi Smlðjúvegur 72,200 Kópavogur Sími: 564 1740, Fax: 554 1769 Framsóknarflokknum yrði jafnframt gert ljóst, segir Ögmundur Jónasson, að líkur væru á að sá flokkur á þessum væng stjórn- málanna sem kæmi sterkastur út úr kosn- ingum myndi hafa verkstj órnarhlutverk á hendi. þarf að gerast að mínum dómi. í fyrsta lagi eigum við að skipuleggja stjómmálabaráttu þannig að tryggt sé að vinstrisinnuðum sjónai-miðum sé haldið hátt á loft og svo búið um hnúta að unnt sé að afla þeim fylg- is. Reynslan sýnir að í stórum kosn- ingasamsteypum, sem hugsaðar eru og hannaðar til að ná til meiri- hluta þjóðarinnar, er jafnan reynt að draga úr og deyfa allar ein- dregnustu skoðanir manna, einfald- lega vegna þess að óttast er að þær gætu stuðað tiltekna hópa kjós- enda. Þess vegna er iðulega reynt til hins ýtrasta á þanþol þeirra sem standa næst jaðri hreyfingarinnar og er gengið svo langt sem talið er þorandi, þó þannig að þeir hugsi sér ekki til hreyfings. En hvað þá með völdin, ætla menn að útiloka sig frá fonnlegum völdum, þau þurfa vissulega að byggjast á meirihlutafylgi; þurfa menn þvi ekki að gera málamiðlan- ir? Vissulega, og er þar komið að hinu atriðinu sem ég vildi nefna. Til 1 allt sumar M MÁLNINGARDAGAR Viðurkennd vörumerki PLÚS10 4 Ltr. Verð frá kr. 2.540.- STEINTEX 4 Ltr. Verð írá lcr. 2.807.- 10 Ltr. Verð fiá kr. 6.595.- KJ0RVARI 4 Ltr. Verð frá kr. 2.717.- Takið teikniugar Við reilmuin emlsþörfina Öll m álniiigaráhöld á hagstæmi verði. þess að vinstrisinnað fólk komist í aðstöðu til að stjórna þarf að sjálf- sögðu samstarf við aðra og slíkt kallar á málamiðlanir. Það skiptir hins vegar sköpum hvenær og á hvaða forsendum málamiðlanir eru gerðar. Ef málamiðlanir eru gerðar áður en gengið er til kosninga gefst kjósendum aldrei kostur á því að styrkja og efla þau sjónarmið sem kunna að vera í minnihluta, hætt er við því að þau frjósi í málefnasamn- ingi löngu fyrir kosningar. Og það sem meira er, aldrei gefst kostur á að tala máli þessara sjónarmiða. Þetta þýðir að öll pólitísk umræða verður smám saman flött út. Taka má hér sem dæmi hugsanlegt sam- starf Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks. Þessir flokkar hafa haft ólíkar áherslur varðandi fjármögn- um velferðarþjónustunnar, í skatta- málum, landbúnaðarmálum og ekki síst í Evrópumálum. I stað þess að flokkarnir töluðu af sannfæringar- krafti fyrir sínum áherslum og bæðu kjósendur að styrkja sig í komandi kosningum og gefa sjónar- miðum sínum þannig vægi við stjórnannyndunarviðræður - í stað þessa yrði allt frágengið áður en kosningabaráttan hæfist - er allt slétt og fellt en baráttan fyrir bragðið að sjálfsögðu steindauð. Leið til árangurs Ég tel að það sem eigi að gera fyrir komandi kosningar sé þetta: Álþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Kvennalisti lýsi því yfir að þeir séu staðráðnir í því að starfa saman eft- ^ ir næstu Alþingiskosningar. Þeir geri með sér samkomulag um lág- marksskilyrði fyrir slíku samstarfi en myndu ekki ganga frá stjórnar- sáttmála fyrr en að kosningum loknum og í ljós hefði komið hver vilji kjósenda væri. Þá kæmi einnig í ljós hvort Framsóknarflokkurinn væri reiðubúinn að ganga til slíks samstarfs. Framsóknarflokknum yrði jafnfi-amt gert ljóst að líkur væru á að sá flokkur á þessum væng stjórnmálanna sem kæmi ^ sterkastur út úr kosningum myndi hafa verkstjórnarhlutverk á hendi. Með þessum hætti myndi tvennt vinnast. Tryggð yi'ði kraftmikil stjórnmálabarátta og hin praktísku sjónarmið yrðu jafnframt í öndvegi. Þetta væri með öðrum orðum lík- legt til að tryggja framgang vinstri stefnu og auðvelda merkisberum hennar aðgang að framkvæmda- valdinu. Höfundur er alþingismaður og formaður BSRB. DUGMIKIL FJÖLSKYLDA, TÆKNILEGA SINNUÐ i' ■ V . ' . 'j. ■ • • ■:. ' . 2 TÆKNIBUNA0UR SÍÐUMÚL112 108 REYKJAVÍK SÍMI 510 5500 FAX 510 5509 Minolta fjölskyldan er stór fjölskylda og annálaðir dugnaðarforkar MINOLTA FAXTÆKI 3 tegundir faxtækja, öll tölvutengjanleg. Allt í senn; prentari, skanni, fax og Ijósritunarvél. MINOLTA LASERPRENTARAR 4 tegundir laserprentara, bæði fyrir svart/hvítt og lit. MINOLTA LJÓSRITUNARVÉLAR. Hraði frá 15 upp í 80 eintök pr. mín. Bæði fyrir svart/hvítt og lit. Líttu við í nýrri verslun og heilsaðu upp á einstæða fjölskyldu. MINOLTA SKÝR MYHD-SKÝK HUGSUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.