Morgunblaðið - 30.06.1998, Síða 52

Morgunblaðið - 30.06.1998, Síða 52
; 52 PRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 MORGUNBLABIÐ Freyðandi, ilmríkt og höfugt popp TÓJVLIST Geisladiskur STEREO Breiðskffa Páls Óskars Hjálmtýsson- ar og hljómsveitarinnar Casino sem kallast Stereo. Páll Óskar syngur en þeir Casino-menn eru Samúel Jón Samúelsson básúnu- og slagverks- leikari, Snorri Sigurðarson trompet- Ieikari, Þorgrímur Jónsson bassa- leikari, Halldór Kristinn Júlíusson gítarleikari, Auðunn Freyr Ingvars- son saxófónleikari, Ingólfur Jóhann- esson hljómborðsleikari og Hjörleif- ur Jónsson slagverksleikari. Þeim til aðstoðar eru ýmis, þar á meðal strengjasveit sem Szymon Kuran leiðir, Kristinn Arnason leikur á gít- ar í tveimur lögum og Brynhildur Björnsdóttir raddar í einu. Japis gefur út. 44,10 mín. Á SJÖUNDA áratugnum vestur í Bandaríkjunum var blómatími lagasmiða og útsetjara; lagasmiðir mokuðu frá sér eftirminnilegum lögum og útsetjarar færðu þau í íburðarmikinn búning með fjöl- skipuðum strengja- og blásara- sveitum. Tónlist frá þeim tíma fékk á sig slæmt orð, framleiðslan var kannski of mikil og andlitin of fá, en ómaklegt var þó og er að kalla hana lyftutónlist eða Muzak. Muzak er allt annað fyrirbæri og eldra, enda Muzak-fyrirtækið stofnað á fimmta áratugnum. Fremstu lagasmiðir þessa tíma, Burt Bacharach, Henri Mancini, Jimmy Webb, Lawrence Welk, sem reyndar vann mikið fyrir Muzak, Paolo Mantovani og Percy Faith svo fáeinir séu tíndir til. Víst voru þeir ólíkir, sumir laga- smiðir, aðrir útsetjarar og hljóm- sveitarstjórar sem gerðu verk annarra að því sem menn kölluðu um tíma kampavínstónlist; freyð- andi, ilmríkt og höfugt popp. Þau orð eiga reyndar vel við þá skífu sem hér er gerð að umtalsefni. Páll Óskar Hjálmtýsson hefur verið duglegur við að kynna tón- listarstefnuna sem hér er lýst og kallar hana stofupopp. Fyrr á ár- inu tók hann saman við septettinn Casino og afraksturinn er platan Stereo. Að hlusta á Stereo er ævintýri líkast, hvarvetna eru skemmtilegir sprettir og ólgandi af fjöri. Nefni sem dæmi hvernig áheyrandinn er leiddur úr frönskum munaðartrega í fágaða salsasveiflu með aðstoð ítalsks sjónvarpsstefs. Á leiðinni í gegnum Stereo eru óteljandi beygjur og afkimar, en allt hnýtt meistaralega saman. Hljóðfæra- Mikill stuðn- ingur við frumbyggja ÞESSI ástralski listamaður af frumbyggjaættum kom fram í Sydney nýverið. I Ástralíu er um þessar mundir mikill stuðn- ingur við málefni frumbyggja. Þessi mikli stuðningur og sú hreyfíng sem hefur myndast í kringum hann þykir minna á friðar-, og kvenréttindahreyf- ingar sjöunda og áttunda ára- tugarins. Þrátt fyrir þessa stuðningsbylgju vann hægri- flokkurinn One Nation Party, sem Pauline Hanson stýrir, mikinn kosningasigur í Queens- land-fylki og sögðu sérfræðing- ar það endurspegla að stuðning við frumbyggja er fyrst og fremst að fínna í stórborgum Ástralíu. FÓLK í FRÉTTUM A svið í London Morgunblaðið/Golli PÁLL Oskar og septettinn Casino. leikarar standa sig með afbrigðum vel, þar fremstur meðal jafningja hljómborðsleikarinn Ingólfur Jó- hannesson sem leikur jöfnum höndum á orgel, Rhodes-píanó, skemmtara og Wurlitzer. Slagverk er einnig vel útfært og útsetningar framúrskarandi, meðal annars eru strengir vel fram reiddir. Lögin sjálf er flest svo hagan- lega úr garði gerð að erfítt er að fara illa með þau. Það er þó ekki síður ei-fitt að ná að gæða þau lífi og gera persónuleg sem vissulega tekst á plötunni. Lög eins og af- bragðsstykki Bacharachs um lífið í Los Angeles kvikna til lífsins á ný og mera að segja stemman um Barbapabba og hans hyski er ná- kvæmlega rétt á réttum stað. Mest gaman er að heyra lög sem sjaldan hljóma í útvarpi eins og Knowing When to Leave, Something Big, sem er með bestu lögum Bacharachs, og lostaóð Gains- bourgs, 69 année érotique. Ekki er síður skemmtilegt að heyra leiknu lögin, til að mynda er Meglio sta- sera sérdeilis. vel flutt og Nothing to Lose, bæði eftir Henry Mancini, en í því síðamefnda eiga þeir stjörnuleik Auðunn Freyr Ingvars- son saxófónleikari, Hjörleifur Jónsson víbrafónleikari og Snorri Sigurðarson trompetleikari. Það er svo til að kóróna fjörið þegar kletz- mer-smellurinn Hava nagila tekur hamskiptum óforvarandis í lok plötunnar. Hljómur á plötunni er upptöku- stjórum hennar til sóma og um- slagið er kapítuli út af fyrir sig; nær að fanga andrúmsloftið á plöt- unni í útliti, letri og myndvinnslu. Árni Matthíasson ► ÞRÁTT fyrir að leikkonan Nicole Kidman hafí eytt rúmu ári við tökur á mynd Stanleys Kubricks „Eyes Wide Shut“ er hún hvergi af baki dott- inn og hefur nýverið lok- ið við að leika í mynd- inni „Pract- ical Magic“ með Söndru Bullock. Nýjasta verkefni þessarar áströlsku leikkonu er hins vegar frumraun hennar á sviði í London, þar sem hún leikur á móti enska Ieikaranum Iain Glenn í leikriti David’s Hares „The Blue Room.“ Kidman og Glenn leika fímm pör sem eiga í hinum margvíslegustu ástarflækjum. Kidman lætur launakjörin ekki vefjast fyrir sér því hún mun einungis fá tæpar 30 þús- und krónur í vikulaun fyrir sviðsleikinn en það munu vera lágmarkslaun. Nicole Kidman hefur víðtæka reynslu af sviðs- leik í heimalandi sínu, Ástralíu, en það þykir nokkurt afrek að takast vel til á sviði í London. Það er leiksljórinn Sam Mendez sein setur leikritið upp og er áætlað að frumsýningin verði 23. september. Til hamingju með heilla- daginn þinn! ALLIR þekkja íslenska af- mælissönginn, eða hvað? Reyndar þekkja allir þann söng sem sunginn er í af- mælum afmælisbarni til heiðurs en sá söngur er am- erískt Iag með íslenskum texta. Hins vegar vita færri að til eru íslenskar afmælisvísur með lagi eft- ir Atla Heimi Sveinsson tónskáld við Ijóð Þórarins Eldjárns rithöfundar en sagt er frá því í nýjasta hefti Skímu, tímarits móðurmálskennara. Blaðamaður grennsl aðist fyrir um tilurð þessara vísna, komst að því að hvatamaður að gerð þeirra var Gunnar Þorsteinn Halldórsson íslensku- fræðingur og sló á þráðinn til hans og fékk að heyra meira. „Það er nú þannig að ég hef kennt Norðurlandabúum íslensku á sumarnámskeiðum Háskóla fslands. Þar syngja nemendur gjarnan afmælissöngva þegar einhver á námskeiðinu á af- mæli og ég koinst fljótt að því að Danir, Svíar og Norðmenn eiga allir sína söngva sem er auðvitað mjög skemmtilegt ojg mér fannst að við Islend- ingar ættum að eiga okkar söng líka,“ segir Gunnar. ALÍSLENSKAR afmælisvísur eftir Atla Heimi Sveins- son og Þórar- in Eldjárn. Fyrir tveimur árum þegar Gunnar starfaði við dægur- málaútvarp Rásar 2 datt honum í hug að tilvalið væri að biðja þá Atla Heimi og Þórarin að semja nýjar afmælisvfsur sem yrðu síðan fluttar í útvarpinu. * Ski'ma 7 „Þeir brugðust vel við en því miður varð ekkert úr flutningi vísnanna í útvarpinu. Þær hafa því ekki komist í notkun nema hjá konunni minni sem kenn- ir í Melaskóla. Hún hefur sungið þetta með nemendum sinum og hafa vísurnar vak- ið mikla lukku hjá þeim.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.