Morgunblaðið - 08.07.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 3
Þriðjungur alla ævi
Ef þú ferð eftir þumalputta-
reglunní, mun grænmetis-
brosið alltaf lýsa þig upp.
Mundu; þriðjungur alla ævi
Grænmeti þarf að vera áþreifanlegur hluti daglegrar fæðu, ómissandi þáttur í
inn-kaupum allra sem hafa heilsu og heilbrigði að leiðarljósi og hinna sem
elska bara góðan mat.
Margir næringarfræðingar nota eftirfarandi þumalputtareglu til þess að
auðvelda fólki að átta sig á ákjósanlegustu samsetningu hverrar máltíðar: Kjöt,
fiskur eða önnur próteinrík fæða, þeki þriðjung matardisksins, kolvetnarík
matvæli, líkt og kartöflur og pasta annan þriðjung og grænmeti þann þriðja.
Grænmeti má útbúa á marga vegu, t.d. hrátt, grillað snöggsteikt í smá olíu
og sem blandað salat með hollri salatsósu. Burtséð frá aðferðinni, getur
grænmeti breytt hversdagslegri máltíð í sannkallaða hollustuveislu.
ÍSLENSK GARÐYRKJA
þe/i/ i/ slei/