Morgunblaðið - 08.07.1998, Side 44
44 MIÐVTKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerd
Papríka
Ekkert hefí ég gróðurhúsið segir Kristín
Gestsdóttir sem ræktar papríku í vestur-
glugga stofu sinnar.
PAPRÍKAN þrífst vel í glugg- anum og uppskera er mikil af stórum og fínum papríkum allt sumarið og fram eftir hausti. Plantan er blaðfalleg, aldinin stór og fögur einkum þegar þau roðna. Fræið tek ég ekki innan úr papríku heldur kaupi úrvals fræ sem er nokkuð dýrt og sái um mánaðamótin febr/mars. Eg hefi 3 plöntur í hverjum stórum potti, sem settar eru ofan í gaml- fjarlægið steina og hvitar himnur, skerið í ræmur. Setjið á pönnuna og sjóðið með þvi sem þar er í 10 mínútur. Hafið mjög hægan hita og lok á pönnunni. Setjið síðan ofan á bökubotninn. 3. Fletjið út það sem þið tókuð frá af deiginu, skerið í ræmur og leggið yfir bökuna. Sjá meðf. teikn- ingu. Áukið hitann á bakaraofnin- um um 10 gráður, setjið bökuna í ofninn og bakið í 10-12 mínútur.
ar, fallegar, stórar leirkrakkur; sem móðir mín geymdi sultu í. I byrjun era plönturnar vökvaðar með vatni, en þegar þær stækka Papríkukjúklingur 2 stórir kjúklingar
fá þær blómaáburð eins og önn- ur stofublóm. Strax og paprík- umar eru orðnar nokkuð stórar 1 tsk. Season All (meira eða minna)
5 dl vatn til að sjóða bein og húð í
sækjast bamaböm mín eftir að 'h lítill laukur + 'h gulrót í sneiðum
tína þær af plöntunum og stýfa úr hnefa eins og epli. Það er ágætt þar sem papríka er mjög auðug af bæði A- og C-vítamíni. 1 tsk. salt, 8 piparkorn og 1 lárviðarlauf 2 meðalstórir laukar
1 dl matarolía
40 g smjör
Papríkubaka 2 stórar rauðar papríkur
1 dós sýrður rjómi
Botnlnn: 1 dl rjómi
3 dl hveiti sósuiafnari er vkkur sýnist svo
1 tsk. milt papríkuduft 1. Skerið bringur frá beimun og
'h tsk. salt takið húðina af. Geymið lærin til síðari nota. Skerið kjötið í ræmur og takið frá, klippið bein og sjóðið ásamt húðinni með salti, kryddi,
100 g rifinn ostur, sú tegund
sem ykkur hentar
'h dl matarolía lauk og gulrótarsneiðum í 30 mín- útur. 2. Raðið kjúklingaræmunum á fat, stráið Season All yfir alla kanta og látið bíða í nokkrar mínútur. 3. Takið steina og stilk af papr- íkum og skerið í ræmur. 4. Saxið laukana tvo frekar smátt. Hitið olíu og smjör á pönnu, hafið hægan hita og sjóðið laukinn í feitinni í 5 mínútur. Hellið þá á sigti, fleygið lauknum en setjið feit- ina aftur á pönnuna. Aukið hitann og steikið kjötræmurnar á öllum
3 msk. kalt vatn
1. Setjið allt í skál og hnoðið sam- an. Smyrjið bökumót eða álmót. Þrýstið tæpl. 2/3 deigsins á botninn og örlítið upp með börmunum á bökumóti. 2. Hitið bakaraofn í 200°C, blást- ursofn í 180°C, bakið í 12 mínútur. Fyllingin:
'h dl matarolía
1 meðalstór laukur hliðum. Setjið síðan á heitt fat og leggið álpappir yfír. 5. Síið soðið af beinum eg húð. Setjið í pott, sjóðið papríkusneið-
2 hvítlauksgeirar
2 stórar papríkur, sá litur
sem ykkur hentar amar við hægan hita í soðinu í 10 mínútur. Takið af hellunni og hrær- ið sýrðan rjóma og rjóma út í. Ef þið viljið þykkari sósu, má hræra
1 msk. tómatmauk (purée)
% tsk. sykur
2 msk. vatn sósujafnara út í en sósan má ekki
1. Setjið matarolíuna á pönnu, hafið lágan hita, saxið lauk og hvít- lauk og sjóðið í olíunni í 5 mínútur. Athugið að hvítlaukurinn má alls ekki brúnast. Hrærið tómatmauk með vatni og sykri og setjið síðan út í. 2. Kljúfið papríkurnar langsum, sjóða eftir að sýrði rjóminn er kom- inn út í, þá skilur hann sig. 6. HelHð sósunni með papr- íkunni yfír kjúklingræmurnar og berið á borð. Meðlæti: Soðin hrísgrjón eða heitt brauð. Athugið: Allt kjöt af beinum er sjálfsagt að nýta t.d. í salat.
í DAG
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Keikó
og umhverfíð
MARGIR spyrja hvort
eitthvað sé betra fyrir
Keiko að vera innilokaður í
sjókví í köldum sjó við ís-
land heldur en í sjókví i
heitari sjó sem hann hefur
vanist frá þriggja ára
aldri. Viðbrigðin hljóta að
vera mikil þrátt fyrir að-
lögun. Mér finnst ekki hafa
komið nógu vel fram í
fréttum að einungis sé ætl-
unin að hafa hann í sjó-
kvinni í Vestmannaeyjum
meðan verið sé að sann-
reyna hvort hann geti
bjargað sér af sjálfsdáðum
en síðan eigi að sleppa
honum lausum ef hann
stenst prófið. Var það ann-
ars ekki ætlunin með öllu
þessu brambolti?
Annars er fróðlegt að
lesa í bókinni Félagsfræði
eftir Garðar Gíslason (bls.
69) um prinsinn Kaspar
Hauser sem bjó í Þýska-
landi á 19. öld. Hann
fannst fyrir tilviljun í
Niirnberg árið 1828. Hann
var þá 16 ára og hafði ver-
ið innilokaður nær allt sitt
líf í myrkvuðu herbergi og
var ótalandi og gat varla
gengið og réð ekki við ein-
fóldustu borðsiði. Keiko er
víst 20 ára og hefur verið
innilokaður mest allt sitt
líf í sundlaugum þar sem
frelsi til hreyfings hefur
verið takmarkað miðað við
heilt hafsvæði sem bíður
hans við íslandsstrendur.
En hvemig fór með ves-
aling Kaspar? Ekki tókst
að kenna honum að segja
nema örfá orð og borðsiðir
hans voru þannig að eng-
inn hefði viljað sitja við
sama borð og hann. Enda-
lok hans urðu þau að hann
fannst myrtur. Nokkurra
ára þjálfun hafði hvorki
gert hann mennskan né
sjálfbjarga í samfélaginu. I
sömu bók er sagt frá smá-
börnum sem borin hafa
verið út í skóg til að deyja
en dýrahópar (oftast apar
eða úlfar, sbr. Mógli) taka
börnin að sér og „ala“ þau
upp. Þegar börnin finnast
hegða þau sér „eins og
dýr“, þau kunna ekki að
tala, eru hrædd við fólk,
urra og klóra.
Er þetta brambolt með
Keiko ekki hálfgert sjónar-
spil og auglýsingabrella
sem gerir dýrinu sjálfu
ekkert gott nema síður sé?
Dýravinur.
Til athug'unar
ALLTAF slær það mig
þegar fólk í fjölmiðlum,
hvort sem það eru spyrj-
endur eða svarendur, notar
það sem ég tel lítilsvirðandi
orðaval. Þama sér maður á
skjánum bændur og búalið
smala fé af fjalli, til slátrun-
ar daginn eftir, síðan beint í
Hagkaup og með tilheyr-
andi fýlu sem leggur um
nágrennið þegar náungi
vor fer að grilla. Ef bændur
þiggja björg af búfénaði
sínum sem gegnum tíðina
hefur fætt okkur og klætt
er lágmark að þeir notið
virðingaverðara heiti en
rolluskjátur og beljur.
Guðrún Jacobsen.
Þakkir til Elínar
á Vogi
MIG langar til að koma
þökkum á framfæri til
Elínar sem svarar síman-
um á Sjúkrahúsinu Vogi.
Hún veitti mér þvílíka
kurteisi, hlýju og hjálp-
semi á erfíðri stundu.
Kærar þakkir til þín, Elín.
Þakklát móðir.
Að fæða kýrnar
upp á nýtt
MÉR datt í hug hvort ekki
væri hægt að fæða kýrnar
upp á nýtt með nýrri fóð-
urblöndu t.d. gulrótum eða
linsubaunum og lauk. Það
væri þá hægt að steyta það
en sjálfsagt era fleiri með
hugmyndir tengdar því.
Svo er líka hægt að steyta
grasið.
Erla Hauksdóttir, Iðufelli.
Tapað/fundið
Eyrnalokkur tapaðist
GULLEYRNALOKKUR,
hringur, frekar þykkur,
tapaðist 30. júní sl. í
Reykjavík. Finnandi vin-
samlegast hafið samband í
síma 553-3698 Hildur.
Blá kaðlapeysa
BLA handprjónuð kaðla-
peysa á 3ja ára tapaðist í
Eiliðaárdalnum á móts við
Fáksheimilið milli
17-17.30 á sunnudag. Skil-
vís finnandi vinsamlega
hringi í síma 555-2208,
hennar er sárt saknað.
Farsími týndist
PANASONIC farsími í
leðurhulstri tapaðist sl.
fostudag. Finnandi vin-
samlegast hafið samband í
síma 552-6664.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
TVEIR hálfstálpaðir fal-
legir kettlingar fást gefins
á gott heimili. Uppl. í síma
561-6304.
Fugl týndist
SUNNUDAGINN 5. júlí
týndist dísarfugl frá Garð-
húsum 41. Hann er hvítur
og gulur á litinn með rauð-
ar kinnar og gulan kamb.
Best er að ná fugHnum á
prik, ekki að reyna að ná
honum á putta því honum
er ekki vel við alla putta.
Ef einhver hefur orðið var
við fúglinn má hann
hringja í síma 587-4333.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afrnæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, Sent í bréfsíma
569-1329, sent á netfangið
ritstj@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
OKKUR langar svo að vera ein í bátnum en getur þú
ekki samt haldið áfram að syngja fyrir okkur
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA hefur borist eftir-
farandi bréf frá Ingólfí Hann-
essyni, íþróttadeild Ríkisútvarps-
ins:
„Víkverji þriðjudagsins fer
nokkrum orðum um nýlega
áhorfskönnun vegna opnunarleiks
HM í knattspymu og dregur þar
nokkuð undarlegar ályktanir. Hið
rétta í þessu máli er að um 26%
landsmanna á aldrinum 16-75 ára
horfðu á umrædda útsendingu, ann-
aðhvort allan leikinn eða hluta hans.
Nú er það svo að leikurinn var á
miðjum miðvikudegi 10. júní sl.
(15.30-17.39). Hér eram við að tala
um ríflega 50 þúsund manns og hef-
ur sjaldan annað eins áhorf mælst á
dagskrárlið sem er á miðjum degi,
utan sk. kjörtíma í sjónvarpi (19-23)
þegar fólk flest er heimavið. Það
þurfti því ekki að koma á óvart að
flestir sem horfðu voru í hópi sér-
fræðinga, sjómanna, bænda og
nema, sem ráða eigin vinnutíma
fremur en aðrir landsmenn.
Víkverji kemst síðan að þeirri
fráleitu niðurstöðu, að þar sem
„75% landsmanna" horfðu ekki á
leikinn væri verið að þjóna hávær-
um minnihluta með því að færa til
fréttatíma vegna leikjanna. Nú er
það svo að í tvígang hafa áhorfend-
ur sjálfír verið spurðir álits á slíkum
færslum. Eftir HM 1990 sögðu um
55% aðspurða að slíkt væri í lagi og
eftir úrslitaleik EM 1992 voru um
77% aðspurðra á sama máli. Þeir
sem vildu ekki færa til fréttir voru
ríflega 30% í fyrra skiptið og um
20% í hið síðara. Það er því lítill, en
hávær, minnihluti sem situr fastur
við sinn keip og heimtar fréttatíma
kl. 20 hvað sem tautar og raular.
Með knattspyrnukveðju,
Ingólfur Hannesson, íþróttadeild
RÚV.“
XXX
OFT er talað um miskunnarleysi
fjölmiðla í garð þeirra sem um
er fjallað, a.m.k. í ákveðnum tilvik-
um, og sennilega á slík gagnrýni í
einhverjum tilvikum við rök að
styðjast. Víkverji telur að íslenskir
fjölmiðlar, flestir hverjir, fari alla
jafna nærfærnari höndum um þá
sem fjallað er um en margir erlend-
ir fjölmiðlar. Þessar hugrenningar
sóttu á Víkverja í liðinni viku eftir
að landslið Argentínumanna í knatt-
spyrnu hafði unnið sigur á landsliði
Englendinga á HM í knattspymu, í
vítaspymukeppni sem há þurfti eft-
ir að staðan var jöfn að lokinni
framlengingu. Englendingar léku
með tíu liðsmenn gegn ellefu frá því
á 47. mínútu, þ.e. í 73 mínútur, og
héldu jöfnu allan tímann, sem hlýt-
ur að teljast afrek út af fyrir sig.
XXX
ASTÆÐA þess að Víkverji fór
að hugsa um miskunnarleysi
fjölmiðla var þau tök sem breska
pressan tók David Beckham, leik-
manninn breska, sem fékk rauða
spjaldið í upphafí seinni hálfleiks,
þegar hún fjallaði um leikinn. Hon-
um var einfaldlega kennt um það að
heimsmeistaradraumur Breta varð
að engu og þeir vora sendir heim úr
16 liða keppninni. Hann var sagður
gjörspilltur, fordekraður, veikur á
geði og sitthvað fleira kræsilegt í
svipuðum dúr. Það voru ekki bara
götublöðin bresku sem létu Beck-
ham fínna til tevatnsins, heldur hin
virðulegri blöð einnig, þannig að
líkast til hefur drengurinn blessað-
ur þurft að fara með veggjum við
heimkomuna til Bretlands. Hann
gerði enda stuttan stans þar í landi
og flúði í fang kærustunnar,
Kryddpíunnar Viktoríu, sem var
ásamt stöllum sínum í New York.
Hitt er svo annað mál, að fram-
koma hans í leiknum var með öllu
ófyrirgefanleg, því Argentínumað-
urinn sem braut á honum hafði þeg-
ar fengið gula spjaldið þegar Beck-
ham hagaði sér eins og smákrakki,
stjórnlaus af frekju, og sparkaði til
hans þar sem hann lá í grasinu.
Danski dómarinn átti engan kost
annan en vísa honum af leikvelli,
sem varð jú til þess að gangur
leiksins breyttist algjörlega og
Englendingar máttu loks bíta í það
súra, að þurfa að pakka saman og
fara heim.