Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JULI1998
Sjmímu Mmtm* .««^1 R
HASKOLABIO
TILBOÐ KR. 400 A ALLAR MYNDIR KL. 5 OG 7
20 ARA
Af=IML4EK_A
ENDURHLJÓÐ-
BLÖNDUÐí
D I G I T A L
S T E B E O
Frábærlega
vel leikin
spennu-
mynd í
Film Noir
stíl.
JKN.NTFÍCH \MSl|\ I'
Hagatorgi, sími 552 2140
Sjáið seinni leikinn í 4liða úrslitum, á stóru tjaldi, í beinni. t t' l'l.'l
Takið þátt i HM getraun. Glæsileg verðlaun; HM bolti, skór o.fl.
www .samfilm.is
LESLIE MIELSEN iHHgrer -a*', .-.t- {m
Sýnd kl. 7. Sýnd kl.5. Isl. tal.
Best geymda
leyndarmálið
í heiminum
Aðilar frá bandaríska tímaritinu Harper’s
* Bazaar voru staddir á Islandi á dögunum
við myndatökur í Vestmannaeyjum fyrir
tískuþátt blaðsins. Rakel Þorbergsdóttir
mælti sér mót við stílistann Jennifer Tzar.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónsson
JENNIFER Tzar
JENNIFER Tzar starfar sem
stílisti fyrir hin ýmsu blöð og tíma-
rit víðs vegar um heiminn. Hún
hefur áður unnið fyrir Harper’s
Bazaar en kýs að starfa sjálfstætt
fremur en binda sig við eitt tímarit.
Petta er ekki fyrsta heimsókn
hennar til Islands því í febrúar á
þessu ári kom hún til landsins
“vegna myndatöku fyrir tímarit í
Los Angeles.
Jennifer kynntist tískuiðnaðin-
um í gegnum fyrrverandi eigin-
mann sinn sem er fatahönnuður.
Að hennar sögn er mikil sam-
vöriimar
frá Karin Hcrzog
• endurupiíbjggja liiiðina
• vinna á unglingabóÍuni
• viðlieldur ierskleika liúð-
arinnar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Ráðgjöf og kynning
í Worid Class
í kvöld kl. 19-21,
fimmtudaa kl 11-13.
HÓPURINN á vegum tímaritsins Harper’s Bazaar var mjög ánægður
með móttökurnar í Vestmannaeyjum.
keppni meðal stílista en hún segist
ekki kvarta vegna ónógra atvinnu-
tilboða. Jennifer hefur til dæmis
þrisvar sinnum unnið með Björk
Guðmundsdóttur vegna viðtala við
hana í tímaritum auk þess sem hún
hefur unnið sem stílisti fyrir nokk-
ur af helstu tískutímaritum heims.
- Af hverju valdir þú Island fyrir
myndatökumar?
„Eg valdi það vegna þess að ég
hafði heyrt mikið um landið og
heillast af því. Sjálf er ég frá
Minnesota sem er norðarlega í
Bandaríkjunum og einn kaldasti
staðurinn. ísland er mjög sérstakt
land og ég féll strax fyrir því þegar
ég kom í febrúar.
-Hvað gerir stílisti nákvæm-
lega?
„Það felst fyrst og fremst í því
að velja fótin sem fyrirsætumar
klæðast á myndunum. Það er hins
vegar víðtækara og venjulega vinn
ég mjög náið með ljósmyndaran-
um. I þessu tilfelli talaði ég við
Ranjit ljósmyndara og sagði hon-
um frá hugmyndinni að myndaser-
íu. Honum leist vel á hugmyndina
og sömuleiðis tímaritinu og við
ákváðum að Vestmanna-
eyjar yrðu tilvalinn stað-
ur fyrir tökumar.“
- Hver er „sag-
an“ í myndatökunni?
„Hún er hvít og hentar
mjög vel við hina fjöl-
breyttu náttúru landsins. Við not-
um landslagið til að leggja áherslu
á fótin og hvítar flíkumar koma
mjög vel út. Fyrirsætan sem við
notuðum er sænsk og mjög eftir-
sótt um þessar mundir og heitir
Anna Karen.
- Var bara notuð ein fyrirsæta?
„Já, í þessari myndaseríu en við
tókum aðra seríu í Bláa lóninu og
þá notuðum við aðra fyrirsætu. Ein
af þeim myndum verður notuð á
forsíðu blaðsins í haust eða vetur.“
- Hvað eruð þið mörg sem vinn-
iðíkringum svona myndatöku?
„Núna eram við sex fyrir utan
fyrirsætuna. Ljósmyndari og að-
stoðarmaður hans,
stflisti og aðstoðarmað-
ur, hárgreiðsludama og
förðunardama."
-Hverjir eru vinsæl-
ustu staðirnir fyrir tísku-
ijósmyndun?
„Eg held að flestir ljósmyndarar
velji staði þar sem loftslag er heitt.
Ég var einmitt að koma úr tökum í
Cannes. Indland er til dæmis vin-
sæll tökustaður um þessar mund-
ir.“
- Gæti Island orðið einn af þess-
um vinsæiu stöðum?
„Já, því miður. Ég held að æ
fleiri eigi eftir að „uppgötva" Island
og muni leggja leið sína hingað."
-Finnst þér það slæm tilhugs-
un?
„Já, ég myndi helst vilja eiga það
ein. Að mínu mati er Island eitt
best geymda leyndarmálið í heim-
inum og eftir því sem fleiri ferða-
menn koma hingað aukast líkurnar
á að það spillist með tímanum."
- Er það eitthvað sér-
stakt sem heiliar þig við Island?
„Landið er mjög sérstakt og
landslagið er eins og á annarri
plánetu. Það er ennþá virkt og er
sífellt að breytast. Það er engu
öðru líkt.“
- Er fóikið að ein-
hverju ieyti öðruvísi en þú átt-
ir von á?
„Það vakti athygli mína að unga
fólkið er sérstaklega smart og
fylgist greinilega vel með tískunni.
Það kom mér mjög á óvart og land-
ið er mun tæknivæddara en ég
hafði heyrt um. Island er mun nú-
tímaiegra en ég bjóst við.“
Landslagið
eins og á
annarri
plánetu
Madonna
ávallt um-
deild
MADONNA hefur iðulega vakið
hneykslan manna með hinum
ýmsu uppátækjum sínum og skoð-
unum. Nýjustu fregnir herma að í
myndbandi við lagið „(Drowned
World) Substitute for Love“ minni
söguþráðurinn mjög á síðustu
stundir Díönu prinsessu þar sem
hún var elt af fjölmiðlum til hinstu
stundar. Myndbandið var tekið
upp í London á dögunum og 1
byrjunaratriðinu er Madonna með
nýja hárgreiðslu að horfa á jarð-
arför Díönu prinsessu. Dagblaðið
JVew York Daily News segir frá
því að skilaboð myndbandsins séu
skýr; athygli fjölmiðla getur verið
hættuleg. Dagblaðið „The Mirror"
segir frá því að í einu atriði mynd-
bandsins fari Madonna 1 gegnum
rennihurð í fylgd lífvarðar og flýti
sér upp í glæsivagn til að forðast
myndavélar ljósmyndara. Atriðið
þykir minna á upptöku af Díönu
og Dodi þar sem þau yfirgefa Ritz
hótelið í París.
Kynningarfulltrúi Madonnu vís-
ar þessum getgátum blaðanna al-
farið á bug og segir að ekkert í
myndbandinu vísi til prinsessunn-
ar. „Það er um samskipti Ma-
donnu sjálfrar við fjölmiðla og
frægðina. Það eru blaðasnápar í
myndbandinu en það er ekki eins
og Madonna kannist ekki við þá
ágengni sjálf. Þetta er dagur í lífi
Madonnu," sagði kynningarfull-
trúinn Liz Rosenberg. „Madonna
er eina stórstjarnan sem talaði
ekki gegn fjölmiðlum eða sagði þá
hafa valdið dauða prinsessunnar."
Madonna, sem verður fertug í
næsta mánuði, er á fullu þessa
dagana og herma fregnir að hún
muni leika í leikriti Tennessee
Williams „Cat on a Hot Tin Roof“ í
London næsta sumar. Hún mun að
sjálfsögðu leika Suðurríkjatál-
kvendið Maggie sem Elizabeth Ta-
ylor gerði ódauðlegt á hvíta Ijald-
inu árið 1958.