Morgunblaðið - 19.07.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
161. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússar skili
Kirjála-
héruðunum
FINNSKI hershöfðinginn Kari Hietanen
fór fram á það í blaðaviðtali á föstudag að
Rússar skiluðu Finnum þeim hluta Kirjála-
héraðanna sem sameinaður var Sovétríkj-
unum eftir að Finnar sömdu um frið í síð-
ari heimsstyrjöld.
Með þessum ummælum rauf Hietanen
þagnarmúr, sem reistur var um þetta mál
eftir stríðið og finnskir ráðamenn hafa virt
í hálfa öld. Innlimun finnsku Kirjálahérað-
anna f Sovétríkin sagði Hietanen vera
„söguleg mistök“ sem bæri að leiðrétta.
Hann sagði að endalok kalda stríðsins í
Evrópu yllu því að eðlilegt væri að taka
þetta mál á dagskrá nú, þar sem þau hefðu
þegar haft í för með sér töluverðar tilfær-
ingar landamæra í álfunni.
Forsætisráðherrann Paavo Lipponen og
yfírstjórn hersins brugðust hart við og
sögðu hershöfðingjann bera „prívat og
persónulega" ábyrgð á þessum skoðunum
sínum.
Vill fá boðorðin
fjarlægð
STEINTAFLA með boðorðunum tíu, sem
hangir uppi í dómsal bandarfsks héraðsrétt-
ar, er nú þrætuepli dómsmáls í Bandaríkj-
unum. 87 ára gamall guðleysingi lýsti því
yfír fyrir umdæmisrétti í Asheville í Norð-
ur-Karólínu í vikunni, að Biblíuboðorðin,
sem standa höggvin í marmara uppi á vegg
í dómhúsinu í heimabæ hans, Waynesville,
brytu á rétti hans til trúfrelsis.
„Mér er misboðið,“ sagði himi sannfærði
trúleysingi, Richard Suhre. Að mati yfir-
valda í heimabæ hans eru töflumar hins
vegar sögulegur hluti dómhússins og þær
eigi því hvergi að hræra. Óháð mannrétt-
indasamtök fjáiuiagna málarekstur Suhres.
Sviptir von
um drottningu
TUPOUTO“A, krónprins Kyrrahafseyrík-
isins Tonga, hefur svipt landsmenn sína
þeirri von að hann muni hafa eiginkonu
sér við hlið þegar hann tekur við krúnunni
af föður sfnum.
„Verið raunsæ, það er anzi seint fyrir
slfkt núna,“ var haft eftir honum í nýjasta
hefti ferðamannatímaritsins Evu, en prins-
inn er fimmtugur piparsveinn. Það væri
harla hlægilegt, ef hann færi um sextugt
að fylgja afkvæmum sínum á leikskólann,
sagði hann. „Fólk myndi spyija vesalings
barnið: Er þetta afí þinn?“
Prinsinn eldar gjarnan ítalskan mat og
safnar tindátum. I maí sl. sagði Tupoutu“a
af sér embætti utanríkis- og varnarmála-
ráðherra eyríkisins, til þess að geta helgað
hugðarefnum sínum allan sinn tíma. Faðir
hans, Taufa“ahau Tupou IV, varð áttræð-
ur fyrir skemmstu.
Morgunblaðið/Golli
Að leik á Búðaströnd
Mannskæðar aurskriður í Austurríki
Tólf námaverka-
menn farast
Vín. Reuters.
BJÖRGUNARSVEITARMENN reyndu
hvað þeir gátu í gærmorgun að bjarga tólf
mönnum, sem lokuðust inni í námagöngum
þegar mikil aurskriða féll yfir þau.
„Við höfum gefið upp alla von um að ná
nokkrum manni á lífi,“ sagði Horst
Freiberger, slökkviliðsvarðstjóri sem stýrði
björgunarliðinu, í samtali við austurríska
ríkissjónvarpið, ORF.
Ungur námaverkamaður lenti í aurskriðu
sem féll á magnesíumnámu í Lassing, um
200 km suðvestur af Vín, um hádegi á fóstu-
dag. Hinir verkamennirnir ellefu lokuðust
inni er önnur aurskriða féll eftir að þeir
höfðu haldið niður í námuna í lyftu í því
skyni að reyna að bjarga félaga sínum. Svo
virðist sem aurskriðan hafi valdið því að
lyftuvíramir slitnuðu. Að sögn námustjór-
ans, Wolfgang Wedrat, er óttazt að lyftan
hafi hrapað til botns með mennina innan-
borðs og þeir séu nú á kafi í aur og vatni.
Walter Engelhardt, framkvæmdastjóri
námunnar, sagði að seinni aurskriðan hefði
komið mönnum á óvart, enda var talið að ell-
efu manna björgunarliðinu væri óhætt að
halda niður í námuna.
Ekkert lífsmark
Björgunarmenn boruðu í gærmorgun um
60 m djúpa holu niður í námagöngin, þar
sem talið var að hinn 24 ára gamla verka-
mann væri að finna, en urðu einslds lífs-
marks varir. Þar með brugðust þær vonir
sem menn höfðu gert sér um að ná mannin-
um lifandi.
Viktor Klima, kanzlari Austurríkis, hélt
eftir hádegið til Lassing, en þar eyðilögðust
líka nokkur hús í aurskriðunum.
Reuters
Allt er átt-
ræðum fært
NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, og
ástkona hans Graca Machel taka við gjöfum
frá börnum í forsetahöllinni í Pretoríu í
gær, á áttræðisafmæli Mandelas. Sögusagn-
ir eru á kreiki um að brúðkaup þeirra
skötuhjúa sé í vændum.
Með fyrirhyggjuna
1 farteskinu
Áttatíu ár
frá undir-
ritun sam-
bands-
laganna
22
24
Eins og
þruma
úr heið-
skíru
lofti
Sjálfstæði í stað
miðstýringar
15
|Hpma oj wði lamferða Snorn iX I
P>|W)r t>.r um h.nn .r terMur oj upp-
»*"«. >ir ujðl SootTI M IMxu I ripty.
•rtUtu allt I krlnj. I apSnum oj ÞtOrJurv
um «1 RMIclð þurtil ið l»f> fyrtr eyiabú-
akapnum. ►