Morgunblaðið - 19.07.1998, Side 22

Morgunblaðið - 19.07.1998, Side 22
22 SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ SAMNINGANEFNDIN í garði Alþingishússins. Talið frá vinstri: Magnús Jónsson, Bjarni Jónsson frá Vogi, Chr. Fr. Hage formaður dönsku samninganefndarinnar, Fr. H. J. Borgbjerg, Jóhannes Jóhannesson formaður íslensku samninganefndarinnar, J. Chr. Christensen, Einar Arnórsson, Erik I. Arup, Gísli ísleifsson, Þorsteinn M. Jónsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Svend A. Funder. Attatíu ár frá undir- ritun sambandslaganna Átjándi júlí hlýtur að teljast til merkisdaga í sögu sjálfstæðisbaráttunnar, skrifar Jón Þ. Þór, sagnfræðingur. Þann dag árið - ------------------------------7------- 1918 undirrituðu samningamenn Islend- inga og Dana sambandslögin svonefndu, en með þeim varð Island frjálst og fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku. Kvöldið áður, hinn 17. júlí, hafði Alþingi samþykkt lagafrumvarpið með 38 sam- hljóða atkvæðum, en tveir þingmenn sátu hjá. Lögin öðluðust gildi 1. desember 1918. UNDIRSKRIFT samninganefndanna og ráðuneytis Islands undir sam- bandslögin 18. júlí 1918. Efst rita formenn samninganefndanna, Chr. Fr. Hage og Jóhannes Jóhannesson. AÐDRAGANDINN að gerð sambandslaganna var að ýmsu leyti söguleg- ur. Hér á eftir verður at- burðarásin rakin í stórum dráttum og sagt frá samningaviðræðunum, sem fram fóru í Reykjavík fyrstu sautján daga júlímánaðar sumarið 1918. Aðdragandi samningaviðræðna A ríkisráðsfundi, sem haldinn var í Kaupmannahöfn 19. júní 1915, staðfesti Kristján konungur X. nýja stjórnarskrá Islands og löggilti ís- lenskan sérfána, sem nota mátti á Islandi og innan íslenskrar land- helgi. Þar með voru til lykta leiddar deilur, sem staðið höfðu með íslend- ingum og Dönum um alllangt skeið, og þóttust nú margir, einkum Dan- ir, sjá fram á bjartari tíð í samskipt- um landanna. En hér fór öðru vísi en margir ætluðu sumarið 1915. Heimsstyrj- öldin, sem hófst sumarið 1914, olli því að viðskipti Islendinga og Dana minnkuðu og jafnframt efldist þjóð- leg sjálfsvitund íslendinga að mun á styrjaldarárunum. Stafaði það m.a. af því, að þá urðu þeir að efla samskipti sín við aðrar þjóðir, ekki síst Breta og Bandaríkjamenn, og fundu að þeir gátu annast flest mál sjálfir, án afskipta og atfylgis Dana. Jafnframt óx þeirri skoðun fylgi, að gera bærí sérfánann, sem löggiltur var árið 1915, að farfána, þ.e.a.s. fána, sem íslensk skip sigldu undir á heimshöfunum, enda þótti mörg- um íslendingi hart að þurfa að flagga danska fánanum í erlendum höfnum. Með eigin farfána gætu ís- lendingar hins vegar undirstrikað sjálfstæði sitt og komið fram er- lendis sem sérstök þjóð - ekki sem hluti af dönsku þjóðinni undir dönskum fána. í maímánuði árið 1917 var Jón Magnússon, forsætis- ráðherra, á ferð í Danmörku. Hinn 18. maí gekk hann á fund Zahles, forsætisráðherra Danmerkur, og tilkynnti honum við það tækifæri, að Islendingar óskuðu eftir því að sérfáninn yrði gerður að farfána. Zahle tók dræmt í þessa málaleit- an, kvað Dani myndu synja henni ef hún yrði borin upp formlega, og sömu svör fékk Jón hjá konungi fjórum dögum síðar. Jón lét þó ekki við þetta sitja og áður en hann hélt heimleiðis tilkynnti hann dönskum ráðamönnum, að hann myndi bera kröfuna um farfánann fram að nýju. Þar með var hrundið af stað at- burðarás, sem lauk ekki fyrr en með undirritun sambandslaganna rúmu ári síðar. Alþingi samþykkti sumarið 1917 þingsályktunartillögu þar sem skorað var á landsstjómina að sjá til þess að íslendingar fengju farfána og þegar Jón Magnússon kom til Kaupmannahafnar um haustið bar hann ósk þingsins upp við Zahle. Undirtektimar vom svip- aðar og um vorið, en Zahle og Krist- ján konungur létu báðir í ljós ósk um að öll óleyst mál í samskiptum Islendinga og Dana yrðu leyst í einu og gekk konungur svo langt að stinga upp á því, að skipuð yrði nefnd, sem ræddi öll vafa- og ágreiningsmál í sambúð landanna. A ríkisráðsfundi, sem haldinn var 22. nóvember 1917, tjáðu bæði Za- hle og konungur Jóni Magnússyni, að Danir væru tilbúnir til viðræðna þegar og ef íslendingar óskuðu. Þar með var stigið þýðingarmikið skref og með bréfi til Zahles, 23. mars 1918, óskaði Jón Magnússon formlega eftir viðræðum. Er nú skemmst frá því að segja, að eftir allmiklar umræður sammæltust all- ir flokkar á danska þinginu, nema Ihaldsflokkurinn, um að skipa nefnd er héldi til viðræðna við full- trúa Islendinga í Reykjavík. Lagði danska samninganefndin upp frá Kaupmannahöfn 21. júní og kom til Reykjavíkur átta dögum síðar. Samninganefndirnar Danska samninganefndin kom til Reykjavíkur með varðskipinu Is- lands Falk laugardaginn 29. júní. Mátti það ef til vill kallast nokkuð táknrænt, að skipið hreppti mót- viðri á leiðinni, einkum á milli Björgvinjar og Færeyja, en til Björgvinjar fóru samningamennirn- ir landleiðina. Fjórir menn skipuðu samninga- nefnd hvors lands. I dönsku nefnd- inni voru þeir Christopher Hage, verslunarmálaráðherra, sem var formaður nefndarinnar, Erik Arup, prófessor í sagnfræði við Hafnarhá- skóla, F.H.J. Borgbjerg, þingmaður og ritstjóri blaðsins Social- Demokraten, og J. C. Christensen, fyrrverandi forsætisráðherra. Formaður íslensku samninga- nefndarinnar var Jóhannes Jóhann- esson, bæjarfógeti og forseti sam- einaðs Alþingis, en aðrir nefndar- menn voru þeir Bjarni Jónsson, al- þingismaður frá Vogi, Einar Ai-n- órsson, lagaprófessor og fyriver- andi ráðherra, og Þorsteinn M. Jónsson, alþingismaður. Samningaviðræður hefjast Samningaviðræðurnar hófust 1. júlí og urðu bæði langar og strang- ar. Lá á stundum við að uppúr slitn- aði og um skeið benti fátt til þess að samkomulag myndi takast. Ávallt tókst þó að sigla hjá hættulegustu skerjunum og halda viðræðunum gangandi. Þegar litið er yfir gang viðræðn- anna verður ljóst, að skipta má þeim í fjórar lotur eða hluta. Fyrsta lotan stóð frá 1. til 4. júlí og var þá um eins konar kynningarviðræður að ræða, þar sem samninganefnd- imar kynntu hvor annarri sjónar- mið sín. Þar kom fram, að Islend- ingar töldu sig vera í hreinu kon- ungssambandi við Dani, en sam- kvæmt því væri konungur einvaldur í öllum málum, nema sérmálunum, sem skilgreind væru í stjórnar- skránni fyrir íslensk málefni. I sam- ræmi við þennan skilning kröfðust íslensku samningamennirnir þess að ísland yrði viðurkennt sem full- valda ríki íþjóðréttarlegu sambandi við Danmörku, og væru engin mál sameiginleg nema konungur og konungserfðir. Öll önnur mál yrðu talin sérmál hvors ríkis um sig. Á þessu stigi höfðu þeir Einar Amórsson og Bjarni frá Vogi helst orð fyrir íslensku samninganefnd- inni og lét Einar í ljós ósk um að væntanlegt samkomulag yrði í formi samnings eða sáttmála á milli tveggja ríkja og Bjami taldi að þá yrði fullveldi íslands tryggt ef samið yrði um konungssambandið, en utanríkismál og farfáninn teldust íslensk sérmál. Danir vora á allt annarri skoðun og taldi Chr. Hage það skipta höf- uðmáli, að gerður yrði traustur og varanlegur samningur um samband landanna. Sá samningur ætti að vera ríkisréttarlegs en ekki þjóð- réttarlegs eðlis og yrði samband landanna að vera málefnalegt og fela í sér sameiginlegan ríkisborg- ararétt og sameiginlega stjórn ut- anríkismála, auk konungssam- bandsins. J. C. Christensen bætti því við, að Danir teldu að samkomu- lagið ætti að vera lögbundið en ekki samningsbundið og farfánann taldi hann sameiginlegt mál. Daginn eftir settu Danirnir sjónarmið sín fram skriflega og sögðu þar, að Danmörk og Island væra „frjáls og sjálfstæð" ríki með sameiginlegan konung og ríkisborgararétt og færa Danir með stjórn sameiginlegra mála, sem væra utanríkismál, landvamir, myntslátta og æðsti dómstóll. Danir skyldu njóta sömu réttinda á Is- landi sem Islendingar, og gagn- kvæmt, og öllum þegnum ríkjanna skyldi heimilt að stunda fiskveiðar í landhelgi þeirra beggja, án tillits til búsetu. Loks stungu Danir upp á stofnun tólf manna ráðgjafanefndar og var hugmyndin að hún gæti leyst ríkisráðið af hólmi. Á þessum sama fundi lögðu Is- lendingar fram uppkast að samn- ingi um samband Islands og Dan- merkur en samkvæmt því áttu hin tvö „fullvalda“ ríki að gera með sér samning um sameiginlegan konung og konungserfðir. Jóhannes Jó- hannesson, formaður íslensku nefndarinnar skýi-ði uppkastið nán- ar og sagði að það fjallaði um sam- eiginlegan konung þar eð hann væri eini óuppsegjanlegi þátturinn. Um önnur sameiginleg mál yrði hægt að semja, en þau yrðu að vera uppsegj- anleg. Danimir andmæltu tillögum íslendinga og sögðu sameiginlegan ríkisborgararétt miklu traustara samband en konungssamband. Á hinn bóginn kvað Hage Dani ekki myndu hafa á móti því að farfáninn teldist íslenskt sérmál ef samkomu- lag næðist er hlyti samþykki lög- gjafarþinga beggja landanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.